Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 40

Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is T öluvert er fjallað um þess- ar greinar í skýrslu um stöðu og horfur í íslensk- um sjávarútvegi og fisk- eldi. Fjórir vísindamenn rituðu skýrsluna að beiðni Krist- jáns Þórs Júlíussonar, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra. Í skýrslunni er vakin athygli á þeirri gjörbreyttu stöðu sem hefur átt sér stað á undanförnum árum í þessum sérhæfðu greinum og voru árs- reikningar 84 fyrirtækja teknir til greiningar. Harðfiskvinnsla er hugsanlega elsta fiskiðngrein hér á landi og hefur verið stunduð allt frá land- námi. Fimm fyrirtæki sem vinna harðfisk eru í greiningu skýrsl- unnar og voru tekjur fyrirtækjanna 1,1 milljarður árið 2018 sem sam- svarar 19 milljónum á hvert þeirra 58 ársverka sem unnin eru hjá fyr- irtækjunum, en það er næst- minnsta velta á ársverk í sam- anburði við hinar hliðargreinarnar. Hins vegar eru þessi fyrirtæki með hæsta hagnaðarhlutfall af tekjum. Leiðandi á heimsvísu Það eru þó fleiri aðferðir nýttar til þurrkunar á sjávarafurðum en harðfiskvinnsla og hefur til að mynda hausaþurrkun verið stund- uð innanhúss hér á landi frá 1978, fyrst í Hafnarfirði. Alls eru sex fyrirtæki sem reka fiskþurrkun sem eru í greiningunni og er hjá þeim unnið 181 ársverk. Veltan 2018 nam 5,1 milljarði króna sem gerir tekjur á hvert ársverk 28,6 milljónir. Niðursuða sem geymsluaðferð hefur verið geymsluaðferð matvæla í rúm 200 ár og barst hingað til lands 1858 er Skotinn James Ritc- hie hóf niðursuðu á laxi í Borg- arfirði. Niðursuða er enn stunduð í stórum stíl og er Ísland meðal ann- ars leiðandi í niðursoðinni þorska- lifur. Framleiðslan á heimsvísu er um 65 milljónir dósa og eru tvær af hverjum þremur frá íslenskum framleiðendum eða 45 milljónir dósa. Þau fjögur fyrirtæki sem eru markaðsráðandi í niðursoðnum hliðarafurðum hér á landi seldu vörur fyrir rétt tæpa þrjá milljarða árið 2018 og voru ársverkin 71. Hagnaðurinn af þessum rekstri er þó takmarkaður. Auka nýtingu Leitin að leiðum til að auka fullnýt- ingu hráefnis hefur verið stöðugt viðfangsefni í sjávarútvegi eða allt frá því að takmörk voru sett á veið- ar með innleiðingu kvótakerfisins. Enda er ljóst að þegar ekki er hægt að auka tekjur með veiðum er eina færa leiðin að auka þau verðmæti sem fást út úr hverju lönduðu kílói af afla. Fjöldi sprotafyrirtækja hef- ur orðið til við verkefni sem tengj- ast fullnýtingu. Í skýrslunni er sérstaklega horft til fyrirtækja í líftækni, líf- efnaframleiðslu og lækningavörum í þessu samhengi en þeim hefur fjölgað gífurlega á undanförnum árum. Þessum fyrirtækjum hefur tekist að skapa verðmæti úr hluta sjávarafurðanna sem oft á tíðum var fargað, til að mynda roði og slógi. Alls eru fyrirtækin 14 og hafa fjölda starfsmanna en þar eru unn- in um 220 ársverk. Rekstrartekj- urnar nema 9,4 milljörðum króna og þær næsthæstu á hvert ársverk. Hins vegar er verulegt tap meðal þessara fyrirtækja og segja skýrsluhöfundar ástæðuna vera að umrædd „fyrirtæki eru mörg ung og hafa lagt í mikla og kostn- aðarsama rannsókna- og þróun- arvinnu sem er annaðhvort nýlega farin að skila árangri eða á stutt í að skila jákvæðri afkomu.“ Hagstætt umhverfi Fyrir um áratug var Bláa lónið eina fyrirtækið hér á landi sem sinnti ræktun og vinnslu örþörunga. Þessi fyrirtæki eru nú sex talsins og hafa þau vaxið mjög ört. „Ísland er um margt ákjósanlegt land til að setja upp starfsemi tengda örþör- ungum. Næg græn orka er til stað- ar á ásættanlegu verði, bæði til hit- unar og fyrir rafmagnslýsingu sem er mjög orkufrek,“ segir í skýrsl- unni. En það eru fleiri breytur sem gera Ísland að eftirsóttum stað fyr- ir fyrirtæki af þessum toga og vísa skýrsluhöfunar til náttúrulegs kol- tvíoxíðs sem er nægt. Auk þess er framboðið á köldu vatni töluvert, en það kemur að notum til að kæla LED-ljósakerfi sem nýtt eru til ræktunar. Ársverkin eru 59 í fyrirtækj- unum sex og námu tekjur þeirra 1,7 milljörðum árið 2018. Þrátt fyrir að fyrirtækin skiluðu samanlögðu tapi upp á 122 milljónir króna er talið að það sé ekki merki um veika stöðu, heldur er um að ræða ung fyrirtæki í örum vexti og rekstrartap á þess- um tímapunkti eðlilegt. Þörungar skili tæknistörfum Aðeins tíu ársverk eru í fínvinnslu stórþörunga og er greinin á byrj- unarstigi. Fyrirtækin eru fjögur og tekjurnar litlar og tapið tölu- vert. „Greinin er ung og eru mikil tækifæri í vinnslu lífvirkra efna og afurða úr stórþörungum, en fyrir- tækin hafa ekki enn haft erindi sem erfiði,“ segir í skýrslunni. Aðra sögu er að segja af hefð- bundinni vinnslu stórþörunga, þó aðfjöldi fyrirtækja sé svipaður. Tekjurnar námu 1,9 milljörðum árið 2018 og voru unnin 50 árs- verk. Tvö fyrirtækjanna eru tölu- vert stærri en hin og bera ábyrgð á stórum hluta veltunnar. Þá er bent á að töluverður áhugi er á því erlendis að auka nýtingu á þangi og þara við strendur Íslands, sér- staklega í Breiðafirði þar sem 50 þúsund tonna uppskera er leyfð. Fram kemur í skýrslunni að einnig séu töluverð tækifæri falin í rækt- un á þangi og þara. „Á Íslandi eru miklir mögu- leikar í vinnslu á þangi og þara sem mikilvægt er að skapa sem mest verðmæti úr. Heppilegt væri að fara sömu leið og farin hefur verið í vinnslu hliðarafurða í hefð- bundinni fiskvinnslu og vinna þangið frekar í verðmætar vörur sem skila sér einnig í nýjum ís- lenskum hugverkum og verðmæt- um tæknistörfum,“ segja höf- undar. Stoðirnar Tækja- og tæknigreinin er líklega það sem hefur verið hvað mest áberandi er kemur að hliðar- og stoðgreinum sjávarútvegs. Há- tæknifyrirtæki eins og Valka, Marel og Skaginn 3X eru vel þekkt og selja líklega meira er- lendis en hér á landi. Fyrirtækin eru 20 hér á landi og voru unnin 1.390 ársverk sem skiluðu fyr- irtækjunum 38,2 milljörðum króna árið 2018. Vöxtur hefur verið gífurlegur í fyrirtækjum sem bjóða ýmsan hugbúnað til úrvinnslu gagna og annarra tæknilausna. Helst það líklega í hendur við aukna tækni- væðingu fiskvinnslna enda miða báðar greinar að því að auka skil- virkni, nýtingu og gæði. Sam- anlagt voru unnin 229 ársverk hjá þessum fyrirtækjum og veltan tæpir fimm milljarðar. Ekki verða stundaðar veiðar án veiðarfæra og eru sex ráðandi fyrirtæki hér á landi og nam velt- an rúmlega fjórum milljörðum, en reksturinn skilaði ekki hagnaði ár- ið 2018. Hafa þarf í huga að tvö fyrirtækjanna eru sprotafyrirtæki sem eiga eftir að sanna sig. Sam- hliða veiðarfærum eru umbúðir og fiskikör ómissandi hluti af sjávar- útvegi og fiskeldi og eru unnin 169 ársverk hjá fjórum ráðandi fyr- irtækjum í umbúðalausnum fyrir sjávarútveg. Gríðarlegur fjöldi starfa í hliðargreinum Árið 2018 voru að minnsta kosti 84 fyrir- tæki í hliðar- og stoð- greinum sjávarútvegs. Velta þeirra nam rúm- lega 78 milljörðum króna og ársverkin 2.541 sem þýðir að tekjur á hvert ársverk voru að meðaltali 31,6 milljónir króna. Líftækni og hráefni Stórþörungar – fínvinnsla Stórþörungar – hefðbundin vinnsla Örþörungar Niðursuða Fiskþurrkun Harðfisk- vinnsla Tækja- og tæknilausnir Veiðarfæri Umbúðir Gagna- og tæknilausnir Fyrirtæki í hliðar- og stoðgreinum sjávarútvegs 14 4 4 6 4 6 5 20 6 4 11 -461 -88 80 -122 23 154 76 492 28 117 -386 42,6 8,3 37,3 28,8 42,2 28,6 19,2 27,5 41,3 51,2 21,2 9.432 79 1.882 1.690 2.982 5.181 1.112 38.228 4.258 8.645 4.857 222 10 51 59 71 181 58 1.390 103 169 229 Fjöldi fyrirtækja 84 fyrirtæki alls Fjöldi ársverka 2.541 ársverk alls Rekstrartekjur Hagnaður/tap 78.346 m.kr. alls -87m.kr. alls Tekjur á ársverk 31,6 m.kr. að meðaltali Heimild: Skýrsla um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi Helstu rekstrartölur úr ársreikningum fyrir árið 2018 Allar upphæðir eru í milljónum króna Rannsóknastofa Algalíf í Reykjanesbæ er einn þeirra starfsvettvanga sem skapast hafa í hliðargreinum. Tækni- og sjálfvirknivæðing í framleiðslu sjávarafurða hefur skilað verðmætum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.