Morgunblaðið - 05.06.2021, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 05.06.2021, Qupperneq 46
S jómannadagurinn er gjarnan notaður til þess að mæra sjómenn, hetjur hafsins sem bera björg í bú. Hvernig er svo stað- an í dag? Nú eru sjómenn búnir að vera með lausa kjarasamninga í um það bil eitt og hálft ár og lítið miðar. Það er ekki í fyrsta skiptið sem gengur hægt að semja við út- gerðarmenn í gegnum árin. Síðast þegar samið var var það eftir sjö vikna verkfall. Síðustu samningar hafa alltaf snúist um að verjast kröfum útgerðarmanna, það hefur þróast þannig að sneið sjómanna úr kökunni hefur heldur rýrnað. Í yfirstandandi samningum hafa sjó- menn verið með tvær megin- kröfur: Fá meira gagnsæi á verð- lagsmálin og fá 11,5% í lífeyrissjóð eins og aðrir landsmenn. Kröfum sjómanna um að fá sama í lífeyrissjóð hefur verið hafnað með rökunum „þið eruð á hlutaskiptum“. Þrátt fyrir að hagnaður útgerðar hafi verið að meðaltali um 20 milljarðar á ári síðustu ellefu ár er ekki hægt að greiða sjómönnum sambærilegan lífeyri og öðrum landsmönnum. Sjómenn eru í meiri hættu en flest annað launafólk fyrir mikilli ör- orkubyrði, þetta er erfið vinna við erfiðar aðstæður, mjög slítandi. Það er ótrúlegt að menn vilja ekki semja við okkur sjómenn um að hafa sama lífeyrissjóð og aðrir. Það er ótrúlegt að fyrirtæki sem hafa hagnast mjög á síðustu árum á sameiginlegri auðlind þjóð- arinnar skuli þráast við að leyfa sínu fólki að sitja við sama borð og aðrir landsmenn. Það á að vera krafa frá þjóðinni að þeir sem nýta sameiginlegar auðlindir borgi góð laun. Arðurinn á að dreifast um samfélagið. Þá hefur líka vakið athygli á síð- ustu misserum framganga Sam- herja og viðbrögð þeirra við þeim fréttum og gagnrýni sem þau hafa fengið. Það er ekki alveg þannig að þetta hafi bara verið einn maður með einhverjar getgátur. Samherji hefur fengið harða gagnrýni frá ráðamönnum í Namibíu, Noregi og Færeyjum. Allir hafa rétt til þess að verja sig, en svo sannarlega get ég tekið undir með Samherjamönn- um þegar þeir segja að það sé ljóst að of langt hafi verið gengið í við- brögðum þeirra sjálfra. Þegar menn ganga það langt að þeir skrifa ráða- mönnum þjóðarinnar bréf til þess að skamma þá fyrir hvað þeir segja og hvernig þeir vinna vinnuna sína, þá eru menn orðnir veruleikafirrtir. Þú skrifar ekki ráðherrum og seðla- bankastjóra bréf og segir þeim hvað þeir mega gera og ekki gera. Þegar menn eru komnir þangað eru þeir ekki á góðum stað. Samherji hefur beðist afsökunar á þeirri framgöngu, sem er gott, en þá verða menn líka að sýna það í verki. Það er merkilegt að SFS þurfi að gera þá kröfu til fé- lagsmanna sinna eins og segir í yf- irlýsingu frá þeim að fyrirtækin „fylgi lögum, bæði hér heima og er- lendis, og viðhafi góða viðskipta- og stjórnarhætti“. Ég hélt að annað ætti ekki að vera í boði. Einnig tel- ur SFS „mikilvægt að fyrirtækið axli ábyrgð á eigin ákvörðunum og athöfnum, stuðli að gagnsæjum starfsháttum og góðum sam- skiptum“. Ég tel það frumskilyrði fyrir útgerðarmenn að fara eftir því, vilji þeir öðlast traust þjóðarinnar. Gott væri þá ef útgerðarmenn gætu byrjað á að vinna traust og trúnað sjómanna sinna og gengið að samn- ingum með samningsviljann að vopni. Það er nefnilega nóg til. Að lokum vil ég óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn. Sjómannadagurinn Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna Morgunblaðið/Eggert „Það á að vera krafa frá þjóðinni að þeir sem nýta sameiginlegar auðlindir borgi góð laun. “ Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Það er nefnilega nóg til 46 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 E ngin banaslys urðu á ís- lenskum sjómönnum við strendur landsins á árinu 2020 sem er sjöunda árið sem sú ánægjulega þróun á sér stað og fjórða árið í röð. Önnur ár þar sem engin banaslys urðu við landið eru 2008, 2011, 2014, 2017, 2018 og 2019. Lykillinn að þessum árangri er efalaust meiri og skilvirkari fræðsla og forvarnir. Þar kemur Slysavarna- skóli sjómanna sterkur inn. Öryggis- vitund og öryggismenning sjómanna hefur aukist jafnt og þétt frá því að skólinn tók til starfa. Sjómenn læra að umgangast hætturnar um borð og reyna að kortleggja þær með öllum ráðum til að forðast slys og afleið- ingar þeirra. Alvarlegum slysum hefur einnig fækkað en sjómönnum hefur líka fækkað. Ég hef ekki tölur um hvort þessar tvær stærðir haldast í hendur en ljóst er að baráttan heldur áfram við fækkun slysa. Skipin hafa stækk- að og eru orðin öruggari vinnustaðir ef rétt er staðið að málum. En gjalda verður varhug við fækkun í áhöfn um efni fram. Það leiðir oftast til meira álags á mannskapinn og minni hvíld- ar sem yfirleitt er ávísun á minni ár- vekni viðkomandi áhafna. Vansvefta og illa hvíldur sjómaður er stór- hættulegur bæði sjálfum sér og öðr- um. Sagan lýgur ekki í þeim efnum. Ekki þarf að blaða lengi í slysa- og atvikaskýrslum rannsóknarnefndar samgönguslysa til að komast að því. Nú um stundir er unnið að styttingu vinnuvikunnar hjá flestum stéttum. Þó ekki sjómönnum. Fækkun á flotanum Nú er lenska að fækka á togara- flotanum hjá sumum útgerðum. Fyrst átti þetta að vera tímabundin fækkun vegna Covid-19 en nú er gengið á lagið. Þessi fækkun skal vera viðvarandi þrátt fyrir að áhrif Covid séu að hverfa. Fiskiríið er síst minna en fyrir Covid þannig að álag á mannskapinn er meira ef eitthvað er, þó ekki kæmi til fækkun. Íslenskir sjómenn og útgerðir hafa verið í fararbroddi í heiminum þegar kemur að slysavörnum til sjós. Þeim árangri má ekki fórna á altari Mammons. Allir eiga að koma heilir heim til fjölskyldu og vina. Kjarasamningar Þegar þetta er ritað eru sjómenn búnir að vera með lausa kjarasamn- inga síðan 1. desember 2019, eða í 18 mánuði! Það er auðvitað óboðlegt ástand. Sjómenn krefjast samninga. Að gengið verði að hógværum kröf- um þeirra í því gósenástandi sem nú ríkir í íslenskum sjávarútvegi. Hvert fyrirtækið af öðru skilar met- uppgjöri. Eitthvað er nú til sem mætti hríslast meira niður til fólks- ins á dekkinu sem sækir verðmætin og vinnur þau. Að þessu sögðu óska ég sjómönn- um og fjölskyldum þeirra og öllum Íslendingum nær og fjær gleðilegrar sjómannadagshátíðar 2021 þótt há- tíðin sé nokkuð frábrugðin og lág- stemmdari en hún ætti að vera. Á næsta ári tökum við hraustlega á því og höldum almennilega upp á sjómannadaginn með fjölda- samkomum, gríni, glensi og keppni. Góðir Íslendingar, munum að flagga á sjómannadaginn til heiðurs ís- lenskum sjómönnum, lifandi sem látnum. Og já – Sjómannadagurinn er með stóru ESSI, það er bara þannig. Sjómannadagurinn Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambands Íslands Árið 2020 varð ekkert banaslys til sjós við Ísland Morgunblaðið/Eggert „Vansvefta og illa hvíldur sjómaður er stórhættulegur bæði sjálfum sér og öðrum.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.