Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 47

Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 47
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 MORGUNBLAÐIÐ 47 E nn einn sjómannadagurinn er runn- inn upp og á ný hvílir skuggi heims- faraldurs yfir deginum með þeim af- leiðingum að allri skipulagðri skemmtidagskrá hefur verið aflýst í ár í höfuðborginni og væntanlega munu há- tíðahöld vítt og breitt í sjávarplássum fara fram með varkárari hætti en almenn hefð er fyrir. Það eina sem stefnt er á að haft verði í heiðri í Reykjavík er hefðbundin minning- arathöfn við Öldurnar, minnisvarða drukkn- aðra sjómanna við Fossvogskirkju, og árleg sjómannamessa í Dómkirkjunni. Auk þessa munu fimm eldri sjómenn verða heiðraðir í nýjum húsakynnum dvalarheimilis Hrafnistu við Sléttuveg í Reykjavík. Góðar líkur eru blessunarlega á að með þrautseigju og sam- stilltu átaki þjóðarinnar muni von bráðar sjá fyrir endann á þessum vágesti sem haft hefur gríðarleg áhrif á tilveru okkar allra allt of lengi. Covid-19 og sjómenn Óhætt er að segja að sjómennirnir okkar hafi ekki farið varhluta af faraldrinum. Allir landsmenn hafa fært fórnir til forðast smit og afleiðingar þess og í raun hafa sjómenn í mörgum tilfellum þurft að leggja meira á sig en margar aðrar stéttir þar sem víða voru settar strangar varúðarreglur í þeim tilgangi að gera allt sem hægt væri að gera til að halda sjávarútvegi og siglingum gangandi gegnum þetta langvinna Covid-ferli. Samtök sjómanna og útvegsmanna tóku saman höndum og útbjuggu leiðbeiningar fyrir áhafnir skipa um hvernig bregðast skyldi við ef upp kæmi grunur um smit um borð. Þessar leiðbeiningar voru settar um borð í flotann og fullyrða má að það hafi haft veruleg áhrif á hversu vel hefur í stórum dráttum tekist til varðandi smitvarnir í flot- anum, þótt til séu einstakar undantekningar frá því. Segja má að þar sem mesta öryggis er gætt hafi menn nánast verið í viðvarandi sóttkví, s.s. á sumum ísfisktogurum, þar sem áhafnir einangra sig algjörlega um borð í skipum sínum í þrjár vikur, fara ekki í land meðan landanir standa yfir og hafa yfir höfuð ekki samskipti við neina utanaðkomandi þann tíma. Að afloknum þremur vikum fara fram áhafnaskipti og þeim sem fara í frí er gert að sýna ýtrustu varkárni, fara í sýnatöku og fá neikvæða niðurstöðu úr henni, áður en haldið er í næsta úthald. Með þessu móti hefur til þessa tekist að koma í veg fyrir smit um borð. Vonandi fer að styttast í að ekki verði lengur þörf fyrir þetta fyrirkomulag. Kjarasamningar fiskimanna Um þessar mundir standa yfir kjarasamn- ingsviðræður milli samtaka sjómanna og út- vegsmanna en Félag skipstjórnarmanna vís- aði þeim til ríkissáttasemjara þann 18. febrúar þar sem framgangur viðræðna hafði fram að vísun ekki skilað árangri. Haldnir hafa verið fundir reglulega undanfarnar vikur undir stjórn sáttasemjara auk funda í smærri hópum án aðkomu hans til að reyna að nálg- ast samkomulag um ákveðin ágreiningsmál sem í framhaldinu eru rædd á næsta sátta- fundi. Óhætt er að segja að í ákveðnum þáttum virðast vera að skapast forsendur til að ná saman sem er mjög jákvætt og vonandi verð- ur lagt kapp á að komast að samkomulagi sem fyrst. Þar ber hæst krafa sjómanna um að njóta sömu lífeyrisréttinda og aðrar stéttir launafólks þ.e.a.s. að mótframlag vinnuveit- enda hækki úr 8% í 11,5%. Á móti kemur að í gegnum tíðina hafa mál þróast með þeim hætti að hjá LÍÚ og síðan áfram með SFS hefur kröfugerð þeirra í aðdraganda und- anfarinna kjarasamninga vaxið og dafnað upp í það að verða mun viðameiri en kröfur sjó- mannasamtakanna þannig að segja má að „hefð“ sé orðin fyrir því að skera niður og fækka kröfum áður en lengra er haldið. Hvað sem því líður þá er affarasælast með hækk- andi sól að hafa bjartsýni og jákvæðni að leiðarljósi. Óska sjómönnum, fjölskyldum þeirra og landsmönnum öllum gleðilegs sjómannadags og velfarnaðar í því sem fram undan er. Vel hefur tekist að takast á við vágestinn Morgunblaðið/Eggert Sjómannadagurinn Árni Bjarnason, formaður Félags skipstjórnarmanna „Óhætt er að segja að sjómennirnir okkar hafi ekki farið var- hluta af faraldrinum“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.