Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 15.09.1979, Page 2

Skólablaðið - 15.09.1979, Page 2
[5 ~ii Rithöfundurinn Joachim Fernau fæddist í Bromberg í Vestur - Prússlandi (nú Póllandi) áriö 1910 og starfaði hann lengi sem blaöa- maður. Áriö 1952 kom fyrsta bók hans út ; „Deutchland, Deutchland uber alles", sem varð metsölubók. Eftirfarandi tilvitnun er tekin úr bréfi er vestur - þýzka blaöið Welt am Sonntag fékk til birtingar, en þar svarar hann dóttur sinni Rut, sem spurt hafði í bréfi til föður síns: „Er Guð til?" „Félagi minn úr stríðinu sagði mér frá því er hann eitt sinn lifði af stórskotahríð. Hann lá flatur á akri og kom auga á jurt eina þétt upp við andlitið. Hann hafði ekki veitt þessari jurt athygli árum saman og það veitti honum nú óumræðilega ánægju að uppgötva hana aftur. Það var græðisúra. Hann lifnaði allur við er honum kom nafnið í hug. Hann minntist bernsku sinnar þegar hann strauk fingrunum yfir aldinhnappana og lét kornin ýrast upp x munninn. Þarna stóð hún nú, græðisúran, í eld- glæringunum, rétt eins og hann sjálfur og hon- um kom í hug að hún væri aðeins jurt eins og hann væri maður: Þú hefur lifað og blómstrað, lifað mörg sumur á enda og ég hef lifað, unnað lifinu. Ef deyjum við nú, deyjum við saman, óttastu eigi. Barnið mitt, ég trúi að þessi maður háfi ekki síðan spurt frekar um guð. Finnst þér það ekki ósennilegt líka? Við þetta tækifæri hafði hann sannreynt að hann og skepnan voru eitt, hann og skepnan sem aldrei spurði spurn- inga. Og til hvers væri að spyrja? Einhvers staðar er tilgangur lífsins og allrar tilveru fólginn. En hvers vegna spyrðu hvar? Hafðu traust í stað þess að spyrja eftir æðri máttar völdum. Hafðu traust £ stað þess að spyrja eftir^ tilvist einhvers ofar okkar eigin hugarflugi. Sköpunarverkið spyr einskis. Enginn fugl, ekkert fiðrildi, ekkert tré eða grasstrá leit- ar að guði. - Leita þú ekki heldur að guði. Ef til er guð vænist hann þess allra sízt að jarð- neskar verur leiti hans. Slíkur hégómi væri almættinu vart samboðinn. Vertu sterk elsku dóttir, og taktu lífinu opnum örmum, ástinni, fegurðinni, náttúrunni. Og þegar þú loks hefur öðlast ró, nefndu það eins og þú vilt, nefndu það guð. Ég á sjálfur ekki orð til að lýsa því". i a* Eflaust höfum við öll einhvern txma leitt hugann að þeirri spurningu, hvað taki við eftir dauðann. Margir hafa leitað svars með áhyggjublandinni óþolinmæði og krafist af- dráttarlausra skýringa á þessum mikla leyndar- dómi. Aðrir hafa haldið sig finna svör í hin- um ýmsu trúarbrögðum og meðtekið forskrift að lífsskoðun sem eldri kynslóðir hafa mótað í aldaraðir. En hversu mikilvæg er þessi spurning? Hefur það úrslitaþýðingu að vita hvort líf sé eftir dauðann? Skiptir það öllu máli að vita hvort framlífið skiptist í Himnaríki og Helvxt^ eða að handan við dauðann sé auðn og tóm? - öll höfum við okkar sannfæringu, okkar ákveðnu trú, þótt breytileg kunni að vera. Hjá sumum kann þessi sannfæring að vera óljós, en hún er til staðar hjá okkur öllum. Ég get ekki leitt mér fyrir sjónir hvernig nokkur maður getur afrekað stórvirki án þess að trúa. Öll saga mannsins sýnir þetta augl jóslega._ Er ekki fásinna aö spyrja andspænis menningu Babýlons, Egyptalands, Hellas, Rómar, Kína, Japan og Evrópu hvaða máttarvöld þessi ólíku samfélög tignuðu eða hvaða orð þau mæltu af vörum fram? Þær sungu allar sína lofgjörð. Er það ekki nóg? Nægir ekki að þau hafa gert okkur auðið að lifa sömu tilfinningu, að hrærast í andakt yfir lífinu? Hverju værum við bættari ef fyrir hendi væri eitthvert pottþltt, skjalfest svar við spurningunni um tilgang lífsins? Það er skoðun margra að okkur mönnunum, þessari grein á lífsmeiðnum, sem hlotið hefur skynsemi og hæfileikann til rökrænnar hugsunar í vöggugjöf, beri skylda til að leit svara við ýmsum spurningum. Svara sem vitað er að verða ætíð persónubundin og engu minna fjölbrevtileg en þau eru nú. Hvers vegna eigum við að skera okkur úr náttúrunni á þennan hátt, þvi umhverfij sem okkur er ætlað að lifa í samneyti við? Hvers vegna er þessi skoðun svo útbreidd að maðurinn sl kóróna sköpunarverksins, öllu öðru lifi æðri? Eigum við ekki heldur að nota skyn- semi okkar og hugsun til þess að gera okkur ljóst hversu óaðskiljanlegur hluti við erum lífinu og náttúrunni í heild? Sjaldan hef ég verið jafn sammála nokkrum manni en Fernau: „Einhvers staðar er tilgangur lífsins og allrar| tilveru folginn. En hvers vegna spyrðu hvar?" Það er hverjum manni hollt og nauðsynlegt að hafa sína sannfæringu. Mennirnir eru mis- jafnir og trú manna er misjöfn. En er nauðsyn- legt að neyða sannfæringu sína upp á aðra? Grunntónn allra meiri háttar trúarbra.gða jarðar-| búa er lotning fyrir lífinu og undrum þess. Hvers vegna leyfum við ekki þeim að veita gleðij sinni yfir lífinu útrás í þakkargjörð til guðs sms, sem það viljatán þess að fara hjá okkur? Og hvers vegna hneykslumst við á „trúleysingjan-j um", sem hefur ekki trúna á guð, en er jafn al- sæll og hamingjusamur og hver annar? Höfum við nokkurn rétt til að hlutast til um sannfæringu eða lífsskoðun annarra? Slíkt væri ofstæki. r, ol K nn j-| efnisyfirl.it. Steen M. Friðriksson: Editor dicit ........ Ritnefnd: Ritnefndarspjall .... Efnisyfirlit 54. árg■ Sveinn Y. Egilsson: Embættismannatal 1979-1980 ............ 6 Eiríkur Hjartarson: Um Suðurgötu 7 ........-............... 7 Magnús B. Baldursson: Jassstraumar og stefnur í U.S.A. .... 10 Stefán Kristjánsson: Steen M. Friðriksson: Viðtal við inspector .............. Pétur H. Ármannson: Islensk byggingarlist ............ Sigurður Haraldsson: Vísindaskáldsögur .................... 18 12 14

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.