Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 11

Skólablaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 11
 Sep 20,22, 23 Sep 27,29, 3o Okt 4,6,7 Okt 11,13, 14 Okt 18,2o, 21 Okt 25,27, 28 Nóv 1,3,4 Nóv 8,lo,12 Nóv 15,17, 18 Nóv 22,24, 25 Nóv 29 Des 1,2 Des 6,8,9 Des 13,15, 16 Jan 3,5,6 Jan lo,12, 13 Jan 17,19, 2o Jan 24,26, 27 Jan 31 Feb 2,.3 Feb 7,9,lo Feb 14,16, 17 Feb 21,23, 24 Feb 28 Mar 1,2 Mar 6,8,9 Mar 13,15, 16 Mar 2o,22, ,23 Mar 27,29, 30 Apr 3,5,6 Apr lo,12, 13 Apr 17,19, 2o Apr 24,26, ,27 Maí 1,3,4 Maí 8,lo,ll Maí 15,17, ,18 Maí 22,24, ,25 SAGA UGETSU (Ugetsu Monogatari) LYFTA TIL AFTÖKUSTAÐAR (Lift to the Seaffold) HAKAKROSSINN (Swastika) TVÖFALT SJALFSMORÐ (Double Suicide) SKÍPUR DR. CALIGARI (Das Kabinett des Dr. Caligari) IRAFÍR VEGNA MYNDA GEORGIE OG BONNIE (Hullabaloo over Georgie & Bonnie's Piot.) UNDIR ÞÖKUM PARÍSARBORGAR (Uder the Roofs of Paris) ONIBABA VELDI ASTRÍÐNANNA (Emire of Passion) BORG HINS TAKMARKALAUSA ÖTTA MILLI LlNANNA (Between the Lines) DODESKA DEN THE CHEMIST (Efnafræðingurinn) /DITTO Stuttar Myndir ALLEGRO NON TROPPO SEM SVIPT ÖR HÖFÐI GAMALS MANNS (I huvet paa en gammal gubbe) NÆRMYND AF LISTAMANNINUM A YNGRI ARUM (Portrait of the artist as a young man) NlU MANUÐIR (Nine Months) HUGREKKI FÖLKSINS (Courage of the people STEAMBOAT BILL JR. UTANGARÐSMENNIRNIR (The Outsiders) ÖLYMPlULEIKARNIR I TÖKtó (Tokio Olympiad) PUNK IN LONDON METROPOLIS Bruno Bozzetto Tage Danielsson Joseph Striok Martha Mezáros Jorge Sanjines Buster Keaton Mrinal Sen Fritz Lang Kon Iehikawa Wolfgang Buld Fritz Lang Fjalakötturinn hóf vetrarstarfiö ekki alls fyrir löngu. A dagskrá vetrarins kennir margra grasa. Þar má finna japanskar myndir, myndir gömlu expressionistanna og franskar gamanmyndir. Ætlunin er að fjalla ofurlítið um þær myndir sem boðið er upp á. Þemun í vetur eru þrjú. Fyrst er að nefna hið viðamesta, en það eru japönsku myndirnar. Þar eru á ferðinni sex úrvalsmyndir. Fyrst er SAGA UGETSU eftir Kenji Mizoguchi (195?). Mynd þessi er talin með betri myndum sem gerðar hafa verið 1 Japan fyrr og síðar. TVÖFALT SJALFS- MORÐ nefnist hin næsta í röðinni. Henni leik- stýrði Masahiro Shinoda. ONIBABA er byggð á magnþrungnu JaþönSkú ævintýri. VELDI ASTRÍÐN- ANNA eftir Nagisa Oshima er á dagskrá í febrúar. Það má til fróðleiks geta þess fyrir þá, sem ekki vita (ef einhverjir eru), að Nagisa þessi gerði myndina VELDI TILFINNINGANNA, sem svo hressilega erti umvöndunartaugar smáborgaranna hér um árið. Ein mynd er eftir Akia Kurosawa, DODESKA DEN. Einnig er myndin éLYMPlULEIKARNIR I TOKlö eftir Ken Iehikawa á dagskránni. Hún þykir mögnuð vegna kvikmyndatökunnar. ÞYSKI EXPRESSIONISMINN 1 vetur verða sýndar fjórar myndir eftir gömlu þýzku expressionistana. Myndir þessar erú allar sígild verk og hvalreki á fjörur kvik- myndaáhugamanna. 1 október verður sýnd hryll- ingsmyndin NOSFERATU eftir F. W. Mumau (1922), SKAPUR DR. CALIGARI (192o) er á dagskrá í jan- úar. I þessari mynd er kvikmyndaformið nýtt til hins ýtrasta. Tvær myndir eru eftir Fritz Lang: M (1931), myndin um bamamorðingjann, og METRO- POLIS (1927), sem er stórkostleg framtíðarmynd. FRANSKAR- GAMANMYNDIR A dagskrá í vetur verða nokkrar franskar gamanmyndir. Þar má fyrst nefna MILLJÖN og UNDIR ÞÖKUM PARÍSARBORGAR, báðar eftir René Clair. BORG HINS TAKMARKALAUSA ÖTTA eftir Jean- Pierre Mocky verður sýnd í febrúar. Auk þessara frönsku gamanmynda verða sýndar tvær aðrar franskar, WEEKEND eftir Jean-Lue Goddard og LYFTA TIL AFTÖKUSTAÐAR eftir Louis Mallé. GRlNKARLAR öhætt er að segja að dagskráin i vetur sé af léttara taginu, því að auk áöurtallnna franskra gamanmynda eru á feröinni grínkarlar eins og Buster Keaton og Max Linder. I marz, nánar tiltekið 6., 8., og 9-, verða sýndar eftir þá (Buster Keaton og Max Linder) stuttar grín- myndir auk þess sem STEAMBOAT BILL JR. eftir Keaton verður sýnd í apríl. Sænski grínistinn Tage Danielsson er með myndina SEM SVIPT ÖR HÖFÐI GAMALS MANNS og teiknimyndin ALLEGRO NON TROPPO eftir ítalska grínistann Bruno Bozzetto er á dagskrá í marz. ÚR ýmsum Attum Auk ofantalinna mynda eru á dagskránni myndir eftir marga þekkta leikstjóra. Má þar nefna myndirnar HNlFUR I VATNINU eftir Roman Polanski; ZABRISKE POINT eftir-i eftir Antonioni; ALLT ER FALT eftir hinn viðurkennda pólska leik- stjóra Andrzej Wajda; HIÐ LANGA SUMARFRÍ árið 1936 eftir Spánverjann Jaime Caraino; heimildar- mynd um uppgang nazista HAKAKROSSINN, athyglis- verð fyrir það að í hana voru notaðar fjölskyldu- myndir Evu Braun; IRAFAR VEGNA MYNDA GORGIE OG BONNIE eftir James Ivory; MÍLLI LlNANNA, Iétt- meti eftir Joan-Micklin Silver; NlU MANUÐIR eftir Mörtu Mezáros; HUGREKKI FÖLKSINS eftir Bólivíumanninn Jorge Sanjines; UTANGARÐSMENNIR- NIR eftir Mrinal Sen og svo loks kvikmyndin PUNK IN LONDON en hún var gerð þegar punkið var upp á sitt besta. Hér hefur verið fariö allhratt yfir sögu, en þegar þessi grein birtist mun dagskrá Fjala- kattarins vera komin út. Þar geta menn lesiö sér til um myndirnar. Ég vil eindregið hvetja fólk til þess að láta þetta ekki fara fram hjé sér, því að starfsemi Fjalakattarins er kærkomin til- breyting í eilitið einhæfu félaglífinu. Stefán Kristjánsson, 6.M. o

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.