Morgunblaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 28
28 MESSUR á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021 ÁRBÆJARKIRKJA | Sameiginleg sumarhelgi- stund Árbæjar-, Grafarvogs- og Grafarholts- safnaðar kl. 11 á ljúfum og léttum nótum við suðurgafl Árbæjarkirkju (ef veður leyfir). Fé- lagar úr kór Árbæjarkirkju leiða almennan söng við undirleik Reynis Jónassonar harmonikku- leikara. Sóknarprestur Árbæjarsafnaðar ásamt sóknarprestum Grafarvogs- og Grafarholts- safnaðar þjóna. Grillaðar pylsur og meðlæti eft- ir stundina. ÁSKIRKJA | Guðsþjónustur í Laugardals- prestakalli í sumar verða í Laugarneskirkju kl. 11 alla sunnudaga frá 13. júní til og með 8. ágúst. Næsta guðsþjónusta í Áskirkju verður sunnudaginn 15. ágúst 2021. Ástjarnarkirkja | Sumarmessur í Garðakirkju, alla sunnudaga klukkan 11. Ástjarnarkirkja tek- ur þátt í sumarmessunum. Sjá Garðakirkja hér á síðunni. BESSASTAÐASÓKN | Sumarmessur í Garða- kirkju alla sunnudaga kl. 11. Bessastaðasókn tekur þátt í Sumarmessunum. Sjá Garðakirkja hér á síðunni. BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa sunnudag kl. 20. Messuþjónar og sr. Pálmi annast þjón- ustu. Félagar úr Kór Bústaðakirkju syngja undir stjórn Þórðar Sigurðssonar. DIGRANESKIRKJA | Helgistund í Digranes- kirkju sunnudag kl. 11. Sr. Sunna Dóra Möller. DÓMKIRKJAN | Messa klukkan 11. Prestur er Sveinn Valgeirsson, Hilmar Örn Agnarsson er organisti og félagar úr Dómkórnum syngja. GARÐAKIRKJA | Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg prédikar og þjón- ar fyrir altari ásamt sr. Sighvati Karlssyni. Tón- listarflutningur er í höndum Davíðs Sigurgeirs- sonar og Gospeltríó Ástjarnarkirkju syngur. Tvö börn verða borin til skírnar við messuna. Sumarsunnudagaskólinn er á sínum stað í vinnustofunni á safninu Króki. Í hlöðunni á Króki eftir messu verður boðið upp á kaffi og konfekt og Gospeltríóið syngur nokk- ur lög. Messan verður í beinu streymi á facebook.com/sumarmessur. GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudaginn 11. júlí verður útiguðsþjónusta þriggja safnaða í Ár- bæjarkirkju. Guðsþjónustan hefst kl. 11. Pílagrímaganga leggur af stað kl. 10.15 frá Grafarvogskirkju. Prestar frá söfnuðunum þremur, Grafarvogi, Grafarholti og Árbæ, þjóna. Tónlistaratriði og léttar veitingar. GRENSÁSKIRKJA | Á sunnudaginn er síð- asta messan fyrir sumarlokun. Altarisganga, gleðisálmar og sumarstemming. Organisti er Ásta Haraldsdóttir, félagar úr kór Grensáskirkju leiða almennan messusöng. Séra Eva Björk Valdimarsdóttir þjónar. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Sunnu- daginn 11. júlí kl. 11 verður hin árlega sameig- inlega útisumarhelgistund Árbæjar-, Grafar- vogs- og Grafarholtssafnaðar á ljúfum og léttum nótum við suðurgafl Árbæjarkirkju. Fé- lagar úr kór Árbæjarkirkju leiða almennan söng við undirleik Reynis Jónassonar harmonikku- leikara. Sóknarprestur Árbæjarsafnaðar ásamt prestum Grafarvogs- og Grafarholtssafnaðar þjóna fyrir altari. Grillaðar pylsur og meðlæti eftir stundina. Mæting í Guðríðarkirkju kl. 10.30. Sameinumst í bílum til Árbæjarkirkju. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sumarmessur í Garðakirkju alla sunnudaga kl. 11 í júní, júlí og ágúst. Hafnarfjarðarkirkja tekur þátt í sumar- messum í Garðakirkju. Streymt er frá mess- unum. Sjá Garðakirkja hér á síðunni. HALLGRÍMSKIRKJA | Orgelsumar í Hall- grímskirkju. Hádegistónleikar laugardag kl. 12. Eyþór Fransson leikur á orgelið. Messa sunnu- dag kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédik- ar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar að- stoða. Forsöngvarar syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti er Björn Steinar Sól- bergsson. HÁTEIGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Fé- lagar í Kordíu, kór Háteigskirkju, leiða messu- söng. Organisti er Kristín Jóhannesdóttir. Prestur er Eiríkur Jóhannsson. HVALSNESKIRKJA | Sumarmessur á Suð- urnesjum. Sjá Útskálakirkju. KEFLAVÍKURKIRKJA | 11. júlí kl. 20 er sumarmessa í Útskálakirkju. Keflavíkur- prestakall tekur þátt í sumarmessum. Sjá Út- skálakirkju hér á síðunni. KIRKJUVOGSKIRKJA Höfnum | Sumar- messa í Útskálakirkju kl. 20. Njarðvíkurprestakall tekur þátt í sumarmess- unum. Sjá Útskálakirkju hér á síðunni. LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar. Kristján Hrannar Pálsson annast tónlistarflutning. Kaffi og samvera í safnaðar- heimilinu á eftir. NESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Ef veður leyfir verður guðs- þjónustan úti í garði fyrir utan safnaðarheimilið. Kaffiveitingar. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík | Sum- armessa í Útskálakirkju kl. 20. Njarðvíkur- prestakall tekur þátt í sumarmessunum. Sjá Útskálakirkju hér á síðunni. Sandgerðiskirkja | Sumarmessur á Suður- nesjum. Sjá Útskálakirkju. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, prestur er Bryndís Malla Elídóttir, almennur safnaðar- söngur og messukaffi í lokin. ÚTSKÁLAKIRKJA | Kósíkvöldmessa kl. 20. Al- mennur söngur við gítarslátt sóknarprests. VÍDALÍNSKIRKJA | Sumarmessur í Garða- kirkju alla sunnudaga kl. 11. Vídalínskirkja tek- ur þátt í sumarmessunum. Sjá Garðakirkju hér í síðunni. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Sumar- messur í Garðakirkju alla sunnudaga kl. 11. Víðistaðakirkja tekur þátt í sumarmessunum. Sjá Garðakirkju hér á síðunni. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Sumarmessa í Út- skálakirkju kl. 20. Njarðvíkurprestakall tekur þátt í sumarmessun- um. Sjá Útskálakirkju hér á síðunni. Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonValþjófsstaðarkirkja. Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.