Morgunblaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021
WWW.ASWEGROW.IS
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Fjallalömbin er hjólreiðahópur
þriggja æskuvina sem ólust saman
upp á Álftanesi. Þeir eru Magnús
Orri Schram, fyrrverandi þingmað-
ur, Rúnar Gíslason matreiðslumaður
og Haukur Ómarsson fjármálastjóri.
Magnús segir í samtali við Morgun-
blaðið að skátaflokkurinn þeirra í
barnæsku hafi heitið Fjallalömbin
og þaðan komi nafnið.
Þeir hafa á undanförnum fimm ár-
um unnið að því á hverju sumri að
fara kringum þrettán stærstu jökla
landsins á fjallahjólum. „Við vorum
búnir að vera á fjallahjólum svona til
gamans, en svo fékk Haukur þessa
hugmynd. Verkefni fyrir okkur að
klára sem bæði hvetur mann af stað
og svo er líka fínt að hafa svona
ramma í kringum þetta,“ segir
Magnús.
Þeir félagar eru eins og stendur
að hjóla hringinn í kringum Vatna-
jökul. Magnús segist gera ráð fyrir
því að ferðalagið muni taka fimmtán
til tuttugu daga, enda um 900 kíló-
metra löng leið. „Við erum með
trússbíl sem eltir okkur og svo sof-
um við bara í tjöldum eða skálum.
Við gerum reyndar ráð fyrir því að
verða viðskila við bílinn í svona tvo
til þrjá daga á meðan við hjólum
norður fyrir jökulinn. Þá erum við
bara með poka og tjöld á bakinu.“
Magnús segir hópinn hafa farið
margar ótrúlegar ferðir og nefnir
eftirminnilega ferð í kringum Hofs-
jökul, sem þeir fóru í fyrra. „Ég
efast um að það hafi verið gert, áð-
ur,“ segir Magnús. Hann segir þá fé-
laga ávallt fara varlega en þó hafi
þeir stundum komist í hann krapp-
an. „Á leiðinni frá Hveravöllum í
Laugarfell sunnan Hofsjökuls þarf
að fara yfir 30 til 40 jökulár og við
urðum að vaða þær allar með hjólin á
bakinu. Vatnið nær alveg upp í nára,
og svo stóð tæpt að áin hrifsaði einn
okkar með sér. En þetta slapp allt.“
Spurður hvort þeir hafi ekki
áhyggjur af því að ná ekki að ljúka
Vatnajökulshringnum segir Magnús
hlæjandi: „Jú, jú, við erum nátt-
úrlega að nálgast fimmtugt, við
gleymum því stundum.“
Magnús segir fjallahjól frábæran
ferðakost ætli fólk sér að ferðast um
hálendi Íslands. „Að ferðast á fjalla-
hjóli er að mörgu leyti skemmtileg-
asti ferðamátinn þar. Maður fer til-
tölulega hratt yfir svo er hægt að
nema staðar og þá er þetta bara þú,
hjólið og pokinn. Þú ert svo frjáls
ferða þinna.“
Hægt er að fylgjast með ferð
Fjallalambanna á Facebook-síðu
hópsins, Þrettán Jöklar.
Þróttur og þrek Fjallalömbin á fullri ferð um hálendið en félagarnir stefna á að klára hringinn í kringum Vatnajökul.
Hjóla kringum Vatna-
jökul á fjallahjólum
- Vaða ár með hjólin á bakinu - 900 km á 15 til 20 dögum
Vatn upp að nára Vaðið yfir á og hjólið að sjálfsögðu sett á herðarnar.
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Byggðaráð Norðurþings samþykkti í
vikunni að efna til íbúakönnunar um
afstöðu til fyrirhugaðra breytinga á
aðalskipulagi sveitarfélagsins fyrir
uppbyggingu vindorkuvers á Mel-
rakkasléttu.
Fram kom á fundinum tillaga frá
Kolbrúnu Ödu Gunnarsdóttur, for-
seta sveitarstjórnar og fulltrúa VG,
þess efnis að fallið yrði frá fyrirhug-
uðum breytingum á aðalskipulagi
Norðurþings „fyrir byggingu stór-
tæks vindorkuvers á Hólaheiði“.
Sömuleiðis lagði Kolbrún Ada til að
umfjöllun sveitarstjórnar Norður-
þings um skipulagsbreytingar í
tengslum við orkuverið yrði frestað
þar til að umhverfismati væri lokið að
fullu.
„Með þeim hætti verði málsmeð-
ferð best háttað enda liggja þá nið-
urstöður ítarlegra rannsókna, upp-
lýsingaöflunar og opinbers samráðs
fyrir áður en sveitarstjórn tekur sín-
ar veigamiklu, stefnumarkandi
ákvarðanir um landnýtingu í gegnum
Aðalskipulag,“ segir í tillögu Kol-
brúnar Ödu.
Byggðaráð samþykkti að fresta af-
greiðslu tillögunnar og samþykkti í
kjölfarið að ráðast í íbúakönnunina.
Kristján Þór Magnússon, sveitar-
stjóri Norðurþings, segir í samtali við
Morgunblaðið að fimmtán athuga-
semdir hafi borist úr ýmsum áttum
um breytingarnar.
Margt enn óljóst
„Ég held að það sé mjög gott að
byggja á því hvað íbúum finnst al-
mennt um þetta og fara í stóra könn-
un, þannig að vilji fólks sé ljós á þess-
um tíma,“ segir Kristján Þór.
Hann segir mikið vatn eiga eftir að
renna til sjávar áður en breytingar
verða gerðar og að sveitarfélagið hafi
verið skýrt gagnvart framkvæmda-
aðilum um það.
Þekkingarneti Þingeyinga verður
falið að framkvæma íbúakönnunina
og segir Kristján að annaðhvort verði
hringt í fólk eða því boðið að svara
könnun í tölvupósti. Hann áætlar að
könnunin gæti tekið allt að tvær vik-
ur. Hann segir áhyggjur íbúa, sem
meðal annars hafa verið viðraðar í
umsögnum, séu skiljanlegar og eðli-
legt að íbúar velti fyrir sér hvort að
uppbygging á borð við vindorku ýti
undir atvinnuuppbyggingu á svæð-
inu, tryggi afhendingaröryggi raf-
orku á svæðinu eða hvort að hún
verði hreinlega leidd í burtu. „Þetta
eru allt sjónarmið sem fólk þarf að
velta fyrir sér og hafa skoðun á,“ seg-
ir hann.
Kristján segir að úrtakið sem
könnunin á að ná til eigi að endur-
spegla áhrifasvæði mögulegs vind-
orkugarðs.
„Það er í næsta nágrenni þarna og
þar sem sést til þessara áforma. Ég
myndi áætla að það væri meirihluti
austurhluta sveitarfélagsins okkar.
Allt frá Raufarhöfn að Núpasveit,“
segir Kristján, spurður út í hvað hann
líti á sem áhrifasvæði áformanna.
Kanna hug íbúa til vindorkuvers
- Forseti sveitarstjórnar vill falla frá skipulagsbreytingum fyrir byggingu vindorkuvers á Sléttu - Tillögu
frestað og efnt til íbúakönnunar - Fimmtán umsagnir hafa borist - Gert ráð fyrir niðurstöðu í ágúst
AFP
Vindmyllur Sjá má vindmyllugarða víða í Evrópu en engir slíkir eru hér á landi.
Atvinnuleysi í júní mældist 7,4 pró-
sent og minnkaði talsvert frá maí,
eða um 1,7 prósentustig. Í maí var
atvinnuleysi 9,1 prósent.
Þetta kemur fram í skýrslu Vinnu-
málastofnunar. Alls fækkaði um
3.307 á atvinnuleysisskrá. Af þeim
fóru um 1.360 á ráðningarstyrk.
Vinnumálastofnun spáir því að at-
vinnuleysi minnki áfram í júlí og
verði á bilinu 6,3 til 6,8 prósent, með-
al annars vegna atvinnuátaks stjórn-
valda og aukinna umsvifa í ferða-
þjónustu. Atvinnuleysi var mest 11,6
prósent á þessu ári í janúar.
Alls voru 14.316 atvinnulausir í lok
júní, 7.528 karlar og 6.788 konur. At-
vinnuleysi mældist mest á Suður-
nesjum eða 13,7 prósent og minnkaði
úr 18,7 prósentum í maí. Næstmest
atvinnuleysi var á höfuðborgarsvæð-
inu, eða 7,9 prósent, og lækkaði úr
9,4 prósentum frá því í maí.
Minnkaði mest í ferðaþjónustu
Fram kemur í skýrslunni að at-
vinnulausum hafi fækkað mest í
ferðatengdri starfsemi í júní eða á
bilinu 26 til 37 prósent. Þá hafi at-
vinnulausum fækkað um 21 prósent
á milli mánaða í menningartengdri
starfsemi. Atvinnulausum fækkaði í
öllum atvinnugreinum.
Alls höfðu 5.818 atvinnuleitendur
verið án atvinnu í meira en tólf mán-
uði í lok júní en þeim fækkaði um 612
frá því í maí. Hins vegar voru þeir
2.700 í júnílok 2020. esther@mbl.is
Atvinnuleysi 7,4
prósent í júní
- Mest atvinnuleysi á Suðurnesjum