Morgunblaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021
60 ÁRA Ingólfur fæddist á
Akureyri og er elstur fimm
barna hjónanna Guðlaugar Jó-
hannsdóttur og Sigþórs Á. Ing-
ólfssonar. „Ég ólst upp í faðmi
fjölskyldunnar og mamma var
heimavinnandi og tók alltaf á
móti okkur þegar við komum
heim.“ Ingólfur fór í Iðnskólann
þar sem hann lærði húsasmíði,
var á samningi hjá frændum
sínum og lauk náminu 1981. Þá
fór hann á síld á Höfn í Horna-
firði og á togara á Akureyri.
„Það er góð reynsla hverjum
manni að fara á sjó og kynnast
því hvernig við öflum tekna fyr-
ir landið.“
Ingólfur og eiginkona hans,
Pálína Tryggvadóttir, giftust
árið 1986 og bjuggu á Akureyri
til 1995 en fluttu þá suður. Ing-
ólfur fór að vinna sem sölumaður hjá Merkúr og vann þar til ársins 2006.
„Árið 2006 stofnaði ég, ásamt félaga mínum, fyrirtækið Hýsi og rak fyrir-
tækið fram til 2013 þegar ég seldi minn hlut og stofnaði fyrirtækið Strúktúr
ehf. sem flytur inn hús, húshluti og fleira.“
Ingólfur er mikill hestamaður og þau hjónin búa í Mosfellsdal þar sem þau
eru með íbúð og hesthús. „Ég var ekki nema 3 mánaða þegar afi fór með mig
upp í hesthús og þá varð ekki aftur snúið og ég hef verið á hestbaki síðan.“
FJÖLSKYLDA Eiginkona Ingólfs er Pálína Tryggvadóttir, f. 1959, sem
starfar hjá Fulltingi en var áður í 20 ár hjá VÍS. Áður átti Pálína Snjólaugu
Maríu Árnadóttur, f. 1981, tæknifræðing og tölvunarfræðing, sem er í sam-
búð með Jóni Ögmundssyni og þau eiga synina Eið, f. 2009 og Róbert, f. 2013
og búa í Reykjavík. Dóttir Ingólfs og Pálínu er Guðlaug, f. 1986, með BA í
lögfræði frá HÍ, gift Helga Tómassyni Jónssyni, með MBA frá HR. Þau búa í
Hamborg.
Ingólfur Ármann Sigþórsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Einhver hælir þér á hvert reipi og
það gleður þig mikið. Ekki eyða púðri í nei-
kvæðar manneskjur.
20. apríl - 20. maí +
Naut Allt sem viðkemur heimili þínu og
fjölskyldu ætti að blómstra á næstunni.
Gakktu hægt um gleðinnar dyr.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú ert eitthvað annars hugar og
átt erfitt með að einbeita þér að þeim verk-
efnum sem fyrir liggja. Gerðu hlutina bara
á þeim hraða sem þér hentar.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú ert í aðstöðu til að dæma, en
ekki gera það! Hlustaðu á fólk með opnum
huga. Geta þín til þess að sjá nýja fleti á
málum er með besta móti.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er einhver ólga innra með þér
sem þarfnast útrásar. Þú hefur aldrei feng-
ið neitt á silfurfati en samt hefur þú komist
langt.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Góður vinur virðist geta lesið hugs-
anir þínar. Þú rennir blint í sjóinn með hug-
mynd sem þú fékkst.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þótt einhver snurða hlaupi á þráðinn
milli þín og vinar þíns, máttu ekki loka á
vináttuna. Kennið börnunum að sjá alltaf
björtu hliðarnar.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Láttu þér ekki bregða, þótt
einhver þér nákominn beri upp sérkenni-
lega bón. Ef traust er ekki fyrir hendi í sam-
bandi, verður nándin aldrei fullkomin.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Gerðu allt sem þú getur til að
halda ró þinni. Dagurinn byrjar í rólegheit-
um en seinni partinn fer allt á fullt. Víkkaðu
sjóndeildarhringinn.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Fólk heldur að það þekki þig vel,
en satt best að segja er ýmislegt í þínu fari
sem þú vilt halda leyndu fyrir öðrum. Sláðu
á létta strengi.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það getur létt álagið að bera
viss mál undir náinn vin. Kannski þarftu að
axla aukna ábyrgð fljótlega. Njóttu þess
eins og þú frekast getur að sinna áhuga-
máli þínu.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Einhver afturkippur kemur í málin
og veldur þér áhyggjum. Láttu ekki kjafta-
sögur halda fyrir þér vöku. Það kemur nýr
og betri dagur á morgun.
S
mári Ólason fæddist 10.
júlí 1946 í Reykjavík og
ólst upp í Norðurmýrinni
og var m.a. í sveit á
Möðruvöllum í Hörgár-
dal. Smári gekk í skóla í Reykjavík
en var einn vetur í Héraðsskólanum
í Skógum undir Eyjafjöllum og bjó
þá á heimili Þórðar Tómassonar,
safnvarðar í Skógum. „Ekki hvarfl-
aði að mér þá, fjórtán ára gömlum,
að ég ætti eftir að rannsaka þennan
gamla arf okkar, eins og Þórður.“
Eftir stúdentspróf frá MR 1967 og
einkanám í píanóleik í Tónlistar-
skóla Íslands 1967-70 fór hann til
Vínarborgar í framhaldsnám í
Hochschule für Musik und dar-
stellende Kunst þar sem hann nam
tónfræði, tónsmíðar, hljómsveitar-
stjórnun, þjóðlög, kirkjutónlist og
tónlistarrannsóknarfræði og útskrif-
aðist með meistarapróf í tónfræðum
og tónvísindum árið 1979. „Ég var
alla tíð áhugasamur um tónlist en
það sem kveikti í mér púðrið var ver-
an í Söngsveitinni Fílharmoníu þar
sem ég kynntist Róbert Abraham
Ottóssyni, mínum góða kennara.“
Á Íslandi hafði Smári alltaf unnið
með náminu, m.a. í fjölskyldufyrir-
tækinu Jarðýtunni sf. frá 1959-74.
Þegar heim var komið kenndi hann
við Tónlistarskóla Borgarfjarðar,
Tónlistarskóla Akraness og síðan
kenndi hann við Tónskóla þjóðkirkj-
unnar frá 1979-2006. Þar samdi
hann námskrá fyrir menntun orgel-
leikara og bjó til kennsluefni fyrir
margar af námsgreinum skólans og
var yfirkennari skólans 1980-2001.
Smári kenndi einnig í Tónlistarskóla
Garðabæjar og var yfirkennari þar
og aðstoðarskólastjóri frá 1984-2001,
auk þess að kenna í Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar frá 2001-18 og vera
stundakennari við Félagsvísinda-
deild HÍ þar sem hann kenndi nám-
skeiðið Þjóðkvæði og þjóðlög með
Njáli Sigurðssyni og Ögmundi
Helgasyni árið 2001 og 2005. Á
sumrin var hann leiðsögumaður í
Skógum og rannsakandi á Byggða-
safninu hjá sínum forna mentor,
Þórði, á árunum 2008-2019.
Smári hefur verið kirkjuorganisti
í Lágafellssókn, Seljasókn, Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði, Digraneskirkju
og í Hveragerðiskirkju. Hann hefur
verið söngstjóri Kórs Mennta-
skólans við Tjörnina, Kórs MR,
Söngsveitarinnar Fílharmóníu og
Karlakórs Keflavíkur. Árið 1991-92
var Smári gestavísindamaður og
doktorsnemi hjá dr. Folke Bohlin,
prófessor við tónlistarvísindadeild
Háskólans í Lundi, og síðan aftur á
vorönn 1994. Einnig stundaði hann
nám jafnhliða störfum í þjóðfræði
við Háskóla Íslands.
Smári hefur ritað fjölda greina um
tónvísindi bæði hér heima og erlend-
is en hann hefur sérstaklega rann-
sakað þróun söngtónlistar á Íslandi
frá 1589 til samtíma, einkum svo-
nefnd „gömlu lögin“ við Passíusálma
Hallgríms Péturssonar. Árið 2015
kom út bókin „Passíusálmar Hall-
gríms Péturssonar – Kórútsetningar
íslenskra þjóðlaga fyrir blandaðan
kór“. „Þetta er tónlist sem varð til
hér á Íslandi út frá þessum sálma-
lögum sem komu hingað á 16. öld og
þau verða smám saman að sér-
stökum íslenskum þjóðlögum. Sú
tónlist sem kemur á 19. og 20. öld-
inni tók yfir þessa hefð og mitt starf
var ekki síst að endurvekja þessa
gömlu menningu sem allt of lítið hef-
ur verið fjallað um og er mikilvæg
fyrir sögu þjóðarinnar.“
Smári hefur ekki tölu á þeim út-
setningum sem hann hefur gert, en
áætlar að þær séu á annað hundrað
talsins. Útsetningar Smára hafa
komið á nokkrum hljómdiskum en
tveir þeirra eru eingöngu með út-
setningum hans. Annars vegar „Allt
svo verði til dýrðar þér“ – Þjóðlög
við Passíusálmana og önnur þjóðlög
skráð úr munnlegri geymd fyrir ein-
söng með undirleik frá 2003 og í
Morgunblaðinu 6. nóvember 2003
segir: „Smára hefur tekist ákaflega
vel upp að setja gömlu sálmalögin í
búning sem fer þeim vel.“ Hinn
hljómdiskurinn er Barbörukórinn
2012 með íslenskri tónlist úr munn-
legri og skriflegri geymd fyrir
blandaðan kór. Jónas Sen segir í
Fréttablaðinu 6.12. 2012: „Óvana-
lega vönduð og metnaðarfull útgáfa
nokkurra sjaldheyrðra laga úr ís-
lenskum tónlistararfi“ og í Morgun-
blaðinu 20.12. 2012, talar Ríkarður
Örn Pálsson um „næmt handbragð
þessa glöggva þjóðlagasérfræðings,
er tókst ósjaldan að samræma sagn-
réttan upphafsstíl við tónmál síðari
tíma svo varla verður betur gert“.
Smári gaf út fimm bækur um gerð
tíðasöngs í samstarfi við Glúm
Gylfason, fv. organista á Selfossi, og
þeir héldu uppi tíðagjörðum í mörg-
um kirkjum. Fjöldi rannsókna ligg-
ur eftir Smára, og má nefna upp-
tökur á íslenskum rímnakveðskap,
upptökur dr. Stefáns Einarssonar á
gömlu fólki í Breiðdal, auk efnis um
Hallgrím Pétursson. Árið 2017
Smári Ólason tónlistarfræðingur, tónlistarmaður og yfirkennari – 75 ára
Morgunblaðið/Jim Smart
Ævistarfið Smári hefur helgað sig rannsóknum á þróun söngtónlistar 16. aldar.
Varðmaður þjóðlegrar tónlistar
Skógar 1954 Smári í heimsókn hjá
Margréti ömmu sinni og hrafninum
hennar í Skógum. Hrafninn var allt-
af mættur áður en hún kom á vorin,
en árið sem hún dó kom hann ekki.
Til hamingju með daginn
- meira fyrir áskrifendur
Lestumeira
með vikupassa!
Fyrir aðeins 1.990 kr. færð þú netaðgang að
öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga.
- Fréttir
- Ritstjórnargreinar
- Menning
- Íþróttir
- Daglegt líf
- Viðskipti
- Fastir þættir
- Aðsendar greinar
- Aukablöð
- Viðtöl
- Minningargreinar
- Umræðan
Vikupassi er auðveldari
leið til að lesaMorgunblaðið
á netinu.
Fáðu þér vikupassa af
netútgáfu Morgunblaðsins.