Morgunblaðið - 10.07.2021, Blaðsíða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. JÚLÍ 2021
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Ég valdi fyrst og fremst lög á þessa
plötu sem mér finnst mjög gaman að
syngja. Ég er búin að læra að það
skilar sér alltaf ef ég nýt þess sér-
staklega vel að syngja lögin, þá
finnst fólki gaman að hlusta á þau.
Þetta eru perlur frá ye ye-tíma-
bilinu, fjörug popplög frá tónlistar-
konum eins og France Gall, Franç-
oise Hardy og Sylvie Vartan. Ég lýsi
þessu stundum sem einni stórri
franskri gleðisprengju frá sixties-
tímabilinu,“ segir tónlistarkonan
Unnur Sara Eldjárn sem sendir nú
frá sér sinn þriðja disk, Bisous, þar
sem hún syngur fyrrnefndar fransk-
ar perlur.
Unnur Sara hefur vakið athygli
undanfarin ár fyrir flutning sinn á
franskri tónlist, en hún útskrifaðist
sem djass-, popp- og rokksöngkona
frá Tónlistarskóla FÍH 2015.
„Margir halda að ég hljóti að hafa
einhverja tengingu við Frakkland,
að ég eigi ættingja sem búi þar og að
ég hafi oft farið þangað í heimsóknir
eða eitthvað slíkt, en það er ekki svo.
Þetta var fyrst og fremst í gegnum
tónlist sem áhugi hjá mér vaknaði á
Frakklandi og öllu sem því sem
franskt er. Frændi minn, Halldór
Eldjárn, var mikið að hlusta á Gains-
bourg þegar við vorum unglingar og
þá varð ég forvitin. Ég kveikti samt
ekkert fyrst á Gainsbourg sjálfum,
en ég var aftur á móti mjög forvitin
um söngkonurnar sem voru að
syngja með honum. Þetta þróaðist
þannig að ég gaf út plötu með lögum
frá Gainsbourg, enda mikið til af frá-
bærum lögum frá honum.“
Líkt við söng Vanessu Paradis
Unnur Sara segir að hvert einasta
lag sem hún hélt upp á þegar hún
var yngri sé hún búin að syngja inn á
þessar tvær plötur, Unnur Sara
syngur Gainsbourg, og Bisous.
„Stundum er maður dottinn niður
á eitthvað strax þegar maður er ung-
lingur en þorir ekki að taka mark á
því, maður heldur að það hljóti að
vera eitthvað annað. Mér fannst
þetta alltaf frekar fyndið áhugamál,
frönsk tónlist, og ég bjóst aldrei við
því að þetta væri það sem fólk vildi
heyra, hvað þá að þetta væri það
sem ég ætti eftir að einbeita mér
að,“ segir Unnur Sara og bætir við
að öll frönsk tónlist heilli hana.
„Ég hef líka verið að syngja lög
eldri kynslóða, eins og Edit Piaf,
Jacques Brel og fleiri, en mér finnst
gaman að sjá þetta allt tengjast. Síð-
an tókst ég á við France Gall og
þessar sem ég er að syngja núna á
nýja diskinum, og í einni af næstu
kynslóðum á eftir þeim er söng-
konan og lagahöfundurinn Vanessa
Paradis, en sumir segja að ye ye-
bylgjan hafi hjálpað til við að skapa
rými fyrir tónlistarkonur eins og
hana. Fólk hefur reyndar verið að
líkja söngnum mínum við söng Van-
essu Paradis, til dæmis Frakkar sem
hafa heyrt mig syngja. Mér finnst
það skemmtilegt, en við höfum báð-
ar þennan mjúka sæta hljóm í rödd-
inni. Ég kveikti ekki almennilega á
þessari tónlistarkonu fyrr en ég var
að syngja á hóteli hér á Íslandi þar
sem voru franskir ferðamenn, en
þeir voru rosalega ánægðir með að
ég væri að syngja á frönsku. Þeir
spurðu hvort ég gæti tekið lag með
Vanessu Paradis, því þeim fannst ég
hljóma alveg eins og hún.
„Þú ættir að syngja eitthvað með
henni,“ sögðu þeir, sem var sannar-
lega hvetjandi fyrir mig.“
Allt var miklu betra en ég hélt
Unnur Sara flutti til Nice í Suður-
Frakklandi vorið 2019 til að læra
frönsku og ferðast um Frakkland, til
að kynnast loks landi og þjóð.
„Ég fór ein til Frakklands að læra
tungumálið almennilega og prófa
hvort ég mundi í alvöru fíla að vera
þarna. Ég passaði upp á að stilla
væntingunum mínum í hóf, þetta
væri jú bara eitthvert land, sem væri
að mörgu leyti líkt Íslandi og það
væri ekki eins og ég væri bara að
fara að labba inn í Amelie-kvik-
myndina eða neitt slíkt. En þegar ég
var komin út þá var allt miklu betra
en ég hélt. Mér finnst frábært að
vera í Frakklandi og þar tengist ég
kjarnanum mínum. Það gerir svo
mikið fyrir mig þegar ég er til dæm-
is stödd á kaffihúsi í Frakklandi, að
þá er oft verið að spila góða franska
tónlist. Ég get ekki almennilega sagt
hvað það er nákvæmlega, en það er
eitthvað sem veldur því að mér líður
rosalega vel þar og ég tengi við
margt sem er franskt. Þannig er það
með svo margt af því sem er best í
lífinu held ég, maður getur ekki út-
skýrt það, það bara er.“
1,6 milljón spilanir á Spotify
Eftir dvölina í Nice var Unnur
Sara viðþolslaus að flytja til Frakk-
lands og lét verða af því síðastliðið
haust, þegar hún fór í bachelornám í
sviðslistum í Montpellier.
„Heimsfaraldurinn setti strik í
reikninginn og ég þurfti því miður að
flytja heim eftir aðeins tvo mánuði í
Montpellier. Ég er samt fegin hvað
ég náði að nýta tímann vel hér
heima, ég vann í nýju plötunni og ég
fór líka af stað með námskeið fyrir
tónlistarfólk í því að koma tónlist
sinni inn á Spotify-lagalista,“ segir
Unnur Sara en vinsælasta lagið af
plötu hennar, Unnur Sara syngur
Gainsbourg, er með rúmar 1,6 millj-
ón spilanir á Spotify.
„Sú staðreynd vakti mikla athygli
hér heima, en þegar ég mátti ekki
vinna í covid þá þurfti ég að finna
mér eitthvað að gera. Ég hafði verið
svo heppin að komast inn á einn
stóran lagalista og þannig uppgötv-
aði ég að þetta væri þess virði að
eyða tíma sínum í, að fá spilun og fá
fleiri hlustendur, því það skilar pen-
ing í budduna. Ég lagðist í að skoða
hvernig ég gæti gert eitthvað í því
sjálf að koma mér og minni tónlist
inn á fleiri lagalista. Ég ætlaði aldrei
að fara að kenna þetta en margir
fóru að spyrja mig og leita ráða, því
þetta er eitthvað sem við á Íslandi
höfum í raun og veru ekki opnað
augun mikið fyrir,“ segir Unnur
Sara sem býður bæði upp á hóp-
námskeið og einstaklingsnámskeið.
„Ég sé fyrir mér að halda þessum
námskeiðum áfram og taka á móti
fólki í einkatíma í gegnum Zoom
þegar ég fer út til Frakklands í
haust til að halda áfram í náminu
mínu þar,“ segir Unnur Sara sem
ætlar að sjálfsögðu að hafa útgáfu-
tónleika vegna nýju plötunnar á
þjóðhátíðardegi Frakka, 14. júlí, í
næstu viku á nýjum tónleikastað
Máls og menningar við Laugaveg.
„Ég ætla að fagna þjóðhátíðar-
degi Frakka með þessum hætti, ég
hugsa útgáfutónleikana fyrst og
fremst sem skemmtilegt partí.
Frakkar búsettir á Íslandi taka líka
mjög vel í þetta framtak,“ segir
Unnur Sara sem er harla ánægð
með að hafa fylgt sinni tilfinningu
með frönsku tenginguna sem hún
hefur fundið fyrir allt frá því hún
var unglingur.
Ég tengi við margt sem er franskt
- Unnur Sara Eldjárn sendir frá disk sem er ein stór frönsk gleðisprengja frá sixties-tímabilinu
- Hún heldur námskeið fyrir tónlistarfólk í því að koma tónlist sinni inn á Spotify-lagalista
Ljósmynd/Katla Sólnes.
Unnur Sara „Margt af því besta í lífinu getur maður ekki útskýrt, það bara er,“ segir hún um frönsku tenginguna sem hún hefur fundið fyrir frá unglingsaldri.
Útgáfutónleikarnir í Máli og menn-
ingu miðvikudaginn 14. júlí hefjast
kl. 20 og er aðgangur ókeypis.
Nýja platan, Bisous, verður að-
gengileg á Spotify og öllum helstu
streymisveitum frá og með 14. júlí.
»
Ég get ekki
almennilega sagt
hvað það er nákvæm-
lega, en það er eitthvað
sem veldur því að mér
líður rosalega vel þar. Í
Frakklandi tengist ég
kjarnanum mínum.
Einkasýning Guðrúnar Töru
Sveinsdóttur, Earth Abides/ Jörð-
in dafnar, verður opnuð í gallerí-
inu Harbinger á Freyjugötu 1 í
dag, laugardag, kl. 16 . Guðrún
Tara útskrifaðist með BA-gráðu í
myndlist frá Listaháskóla Íslands
árið 2015, hóf MA-nám í myndlist
árið 2016 og var við nám bæði í
Reykjavík og í Bergen. Árið 2020
lauk hún MA-námi í skapandi
heimildarmyndagerð við Den
Norske Filmskolen í Ósló.
Guðrún Tara vinnur með gjörn-
inga þar sem orð, vídeó og tónlist
sameinast í ljóðrænni frásögn sem
gefur innsýn í innra líf einstakl-
ings, eins og segir í tilkynningu
en með því að veita aðgang að
eigin huga og tilfinningum skap-
ast vettvangur
fyrir samlíðan
og samveru.
Hún vinnur
einnig með
skúlptúra sem
tjá samfélags-
lega eða pólit-
íska meðvitund.
Í skúlptúrum
sínum vinnur
Guðrún Tara
með fundna hluti og form og leit-
ar fanga í umhverfi sínu en við-
fangsefni daglegs lífs leiða hana á
fjölbreytta staði, segir í tilkynn-
ingu og að sköpunarferlið sé ekki
bundið við vinnustofuna eða slitið
frá öðrum stundum dagsins held-
ur sé stöðugt í gangi.
Guðrún Tara sýnir í Harbinger
Guðrún Tara
Sveinsdóttir
Auður Gunnarsdóttir sópran og
Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleik-
ari munu kl. 16 á morgun, sunnu-
dag, flytja lög og ljóð um eða eftir
íslenskar konur á tónleikum í
Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hval-
firði.
Auður hefur lokið söng- og
kennslunámi bæði hér heima og
erlendis ásamt ýmsum meistara-
námskeiðum og á árunum 1999-
2005 var hún fastráðin við Main-
Franken-óperuhúsið í Würzburg,
Þýskalandi. Hún hefur víða komið
fram sem einsöngvari, haldið
fjölda ljóðatónleika, sungið inn á
ýmsar upptökur og verið tilnefnd
til Grímu- og tónlistarverðlauna.
Eva lauk píanókennara- og
burtfararprófi frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík og hélt þaðan
til Danmerkur og Englands í nám.
Auk fjölda einleikstónleika hefur
hún komið fram sem einleikari
með hljómsveitum og lagt mikla
áherslu á flutning kammertón-
listar og ljóðasöngs. Hún starfar
við LHÍ samhliða tónleikahaldi.
Flytja lög og ljóð um eða eftir íslenskar konur
Kvennatónleikar Auður og Eva Þyri flytja lög og ljóð um eða eftir íslenskar konur.