Morgunblaðið - 12.07.2021, Síða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2021
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið virka daga 9.30–18
af sér, hafði fengið fallega laxa en
sagði líka að það væru fiskar á öll-
um helstu veiðistöðum, sem héldi
mönnum vel við efnið, þótt yfir tutt-
ugu stiga hiti dag eftir dag gerði
veiðina erfiða; laxinn væri þá ekki
viljugur í töku.
Sturla Birgisson, staðarhaldari
við Laxá á Ásum, tekur undir með
Bubba að takan sé erfið þegar hit-
inn sé yfir tuttugu gráðum dag eftir
dag. Á Ásunum gangi lax nú inn
með hverju flóði en ekki í miklu
magni. Sturla hefur samt trú á því
að það gerist nú í vikunni en venju-
lega komi stór ganga 16. júlí.
smálaxi, þá setti hann í stórlax sem
náði að slíta og slapp. Næst hnýtti
Aðalsteinn litla Sunray Shadow
undir og hana tók annar stórlax.
Viðureignin tók um hálftíma og um
hríð leit út fyrir að sá stóri ætlaði
niður fossinn. En hann endaði í
háfnum og var mældur 104 cm.
Blaðamaður ræddi við Bubba
Morthens sem hefur verið við veið-
ar í Aðaldal síðustu daga og með
breyttu fyrirkomulagi veiðir hann
ekki aðeins á Nesveiðum, eins og
mörg undanfarin ár, heldur öll
laxasvæðin, líka þau sem Laxár-
félagið hafði í áratugi. Bubbi lét vel
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Það er fullt af fiski í Elliðaánum –
það hafa nálægt 900 farið gegnum
teljarann og mikið að ganga,“ segir
Óskar Örn Arnarson, umsjónar-
maður við árnar. Og veftengingin
við teljarann staðfestir það, á sólar-
hring fyrir tveimur dögum fóru til
að mynda 134 í gegn. Það tengist
spurningunni sem laxveiðimenn
hafa spurt sig um land allt, hvort
smálaxagöngurnar mæti með stór-
streyminu sem er í dag og hvort
veiðin muni þá mögulega ná ein-
hverju sem kalla má meðalveiði.
Því laxinn hefur gengið seint í ár.
Óskar bætir við að í blíðviðri
undanfarið hafi laxinn ekki tekið af
neinu kappi og tyllt verið í fleiri en
landað. „En veiðin gengur ágæt-
lega og það eru engir núlldagar,“
bætir hann við.
Barnadagar voru í Elliðánum um
helgina og fengu rúmlega tuttugu
börn og ungmenni að spreyta sig á
laxveiði. Hrafn og Ólafur Ágúst
Haraldssynir, sem kalla sig „caddis-
bræður“, sáu um veiðina og sagði
sá síðarnefndi að það hefði gengið
frábærlega og góð stemning væri
við bakkann. „Og áin er malbikuð
af laxi,“ bætti hann við. Fiskur væri
í öllum hyljum.
„Það veiddist fullt af fiski og að
minnsta kosti einn maríulax sem
Kári Steinn Örvarsson 11 ára fékk.
Við fengum veiðibúðirnar í bænum
til að gefa 25 eintök af þeirri flugu
sem þeim þætti líklegast að veiddist
á og við settum þær í box sem
krakkarnir fengu. Maríulaxinn
fékkst á rauða Frances sem Veiði-
hornið gaf í púkkið.“
Þorgils Helgason er við veiðar í
Laxá í Leirársveit og segir mikið
ganga af laxi í ána nú á hverju flóði.
Síðasta holl hafi landað 33 og „það
er ógrynni af fiski í Laxfossi og
Vaðstrengjum þar fyrir neðan,“
sagði hann í hléinu í gær. Sjálfur
hafi hann sett í fjóra laxa á klukku-
stund í Mjóhyl í gærmorgun og
landaði tveimur þeirra. Hollið fékk
átta þá á morgunvaktinni og þar af
voru þrír maríulaxar.
Tekur illa í yfir tuttugu gráðum
Frést hefur af nokkrum tuttugu
punda löxum í sumar, 100 cm og
stærri, og þann stærsta veiddi Aðal-
steinn Jóhannsson í Mjósundi ofan
við Æðarfossa í Laxá í Aðaldal í lið-
inni viku. Hann átti þar æsilega
veiðistund; landaði fyrst fallegum
Ljósmynd/Þorgils Helgason
Laxadans Unnur Elísabet Gunnarsdóttir, dansari og danshöfundur, steig
fimlega dans við lax í Leirársveitinni í gær þar sem vel hefur veiðst.
„Áin malbikuð af laxi“
- Mikið af laxi hefur gengið um teljarann í Elliðaánum
- Vaxandi göngur nú á stórum straumi - 104 cm í Aðaldal
Sá fyrsti Kári Steinn Örvarsson 11 ára með 60 cm langan, sjö punda maríu-
laxinn sem hann veiddi í Barnadegi í Elliðaánum í gær, á rauða Frances.
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Síðustu tveir bólusetningardag-
arnir fyrir sumarhlé verða 13. og
14. júlí í þessari viku að sögn Ragn-
heiðar Óskar Erlendsdóttur, fram-
kvæmdastjóra hjúkrunar hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
„Endurbólusett verður með Pfi-
zer frá kl. 10-14 á þriðjudag,“ segir
hún. „Samhliða því verður opið hús
þar sem allir sem eiga eftir að fá
bólusetningu og hafa jafnvel verið
að bíða eftir bóluefni Pfizer eru vel-
komnir.“ Opna húsið er þó ekki ætl-
að börnum á aldrinum 12-15 ára
enda hefur sóttvarnalæknir ekki
tekið endanlega ákvörðun um það
hvort og hvenær eigi að bólusetja
þann aldurshóp að sögn Ragnheið-
ar.
„Við bíðum bara eftir tilkynning-
unni. Ef þessi hópur verður bólu-
settur verður það gert áður en skól-
arnir byrja í haust,“ segir hún.
Stefnt er að því að ljúka endur-
bólusetningum með bóluefni Mod-
erna og AstraZeneca á miðvikudag-
inn. „Það eiga um 1.700 manns eftir
að fá seinni sprautuna af Moderna
og um það bil 2.000 eiga eftir að fá
seinni sprautuna af AstraZeneca,“
segir Ragnheiður. „Þetta verður
vonandi bara létt og ljúft svona síð-
ustu vikuna.“
Nú fer hver að
verða síðastur
- Síðustu bólusetningar fyrir sumarfrí
Morgunblaðið/Eggert
Bólusett Nærri 230 þúsund manns á Íslandi hafa nú verið fullbólusettir.
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Snjómokstri á Öskjuleið lauk í síðustu viku og
er leiðin því orðin fær fjórhjóladrifnum fjalla-
jeppum. Þórir Stefánsson hefur séð um að
moka þessa leið frá árinu 1989 og þekkir
svæðið þar af leiðandi vel. Í ár sá hann um að
moka síðasta legg leiðarinnar sem er 8 kíló-
metrar á lengd og nær frá skálunum í Dreka
og upp á Vikraplan. Frá Vikraplani er aðeins
um 2,5 km gangur að Öskjuvatni, sem er vin-
sæll ferðamannastaður á hálendinu.
Þórir segir moksturinn hafa gengið vel
þrátt fyrir óvenjulegar aðstæður. „Þetta
gekk þokkalega allt saman en það var
óvenjumikill snjór þarna síðustu 1,5 kílómetr-
ana því það hafði verið svo kalt í júní en það
var snjótroðari ofan í þessu sem hjálpaði til
við að ýta þessu aðeins frá.“
„Það var
óvenjumikill
snjór þarna“
Lindá Þórir á heflinum í miðri Lindá norðan Herðubreiðarlindar.
Ljósmynd/Þórir Stefánsson Snjóþungt Óvenjusnjóþungt var á síðustu
kílómetrum leiðarinnar að sögn Þóris.