Morgunblaðið - 12.07.2021, Page 21

Morgunblaðið - 12.07.2021, Page 21
mér þá að ég hafi aldrei komið að tómum kofunum hjá honum. Pabbi var afar lítillátur og gerði ekki miklar kröfur fyrir sjálfan sig en var alltaf boðinn og búinn að hjálpa öðrum. Sem dæmi setti hann það ekkert fyrir sig að keyra daglega til Reykja- víkur til að heimsækja mömmu sína á elliheimilið, bara til að kaupa handa henni ís eða vín- arbrauð. Einnig var hann alltaf kominn á stundinni heim til mín ef það vantaði eitthvað að dytta að. Ekkert skutl var of langt fyr- ir hann og ekkert verkefni svo lítið að það tæki því ekki að keyra til Reykjavíkur til að sinna því. Eitt af því sem hann grín- aðist oft með var að við ættum ekkert að hafa fyrir honum með miklu tilstandi þegar hann væri allur, auðvitað var það grín en samt svo lýsandi. Pabbi vildi ekkert láta hafa fyrir sér og var alltaf þakklátur fyrir það sem fyrir hann var gert. Eftir að mamma kvaddi var hann fasta- gestur á heimili okkar systkina og man ég aldrei eftir öðru en að hann hrósaði matnum í hástert, allt væri svo gott og við öll snill- ingar að elda og höfðingjar heim að sækja. Þakklæti og lítilæti fylgdu honum fram að kveðjustundinni, en hann dvaldi seinustu dagana á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Þar var hann til smá vandræða af því að hann hringdi aldrei bjöllunni til að fá aðstoð heldur reyndi bara að redda sér sjálfur og var mjög þakklátur fyrir alla aðhlynningu sem hann fékk. Verðið fyrir kærleikann er sorg og nú er komið að skulda- dögum, mikið á ég eftir að sakna þín, elsku pabbi minn. Margrét Pétursdóttir. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2021 ✝ Guðbrandur Kristmundsson fæddist 15. sept- ember 1930 á Kaldbak í Hruna- mannahreppi. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Ljósheimum á Sel- fossi 1. júlí 2021. Foreldrar hans voru Elín Halls- dóttir, f. 12. júní 1896, d. 20. júní 1942, og Krist- mundur Guðbrandsson, f. 1. maí 1897, d. 24. des. 1954, er bjuggu á Kaldbak frá 1930 til æviloka. Systkin: Jónína Guðrún, f. 27. ágúst 1926, d. 9. desember 1967, Sigurður, f. 17. júní 1928, d. 4. mars 2001, Guðmundur f. 15. september 1930, d. 11. maí 1999, Gunnar Marel, f. 5. nóv- ember 1933, Kristinn, f. 8. sept- ember 1937, d. 15. september 2010, Elín, f. 12. mars 1942. Guðbrandur kvæntist 12. maí 1955 Sigrúnu Guðmundsdóttur frá Högnastöðum í Hruna- mannahreppi, f. 10. júní 1936. Foreldrar hennar voru hjónin Guðmundur Guðmundsson, Daníel, f. og d. 2014, Eva Katr- ín, f. 27.8. 2015. b) Stefán, f. 28.12. 1988, í sambúð með Tinnu Þorradóttur, f. 30.3. 1995. Barn: Birnir, f. 2.5. 2018. Guðbrandur og Sigrún bjuggu eitt ár á Kaldbak í Hrunamannahreppi í félagsbúi með Guðmundi, tvíburabróður Guðbrands, og Kristrúnu, konu hans. Árið 1957 fluttu Guð- brandur og Sigrún að Bjargi í sömu sveit en þar bjó föður- bróðir hans, Guðjón Guð- brandsson og kona hans, Guð- laug Matthíasdóttir. Næstu áratugina byggðu þau upp jörðina á Bjargi og endurnýj- uðu húsakost. Guðbrandur vann í fjölmörg ár við lög- gæslustörf á sumrin hjá Hér- aðslögreglunni í Árnessýslu, einnig mörg haust við slátrun í Laugarási og á Selfossi. Hann var alla tíð virkur í félags- málum, m.a. formaður Naut- griparæktarfélags Hruna- manna 1977-1986. Haustið 1990 söðluðu þau hjónin um og fluttu á Selfoss. Guðbrandur starfaði við bú- rekstrardeild Kaupfélags Ár- nesinga til ársins 2000 þegar hann lét af störfum vegna ald- urs. Hann tók virkan þátt bæði í starfi eldri borgara á Selfossi og í Hrunamannahreppi. Útför Guðbrands fer fram frá Hrunakirkju í dag, 12. júlí 2021, og hefst athöfnin kl. 13. bóndi á Högnastöð- um, f. 27.10. 1904, d. 20.1. 1965, og Kristbjörg Svein- bjarnardóttir, f. 13.8. 1903, d. 16.5. 1987. Börn Guðbrands og Sigrúnar eru: 1) Kristmundur, f. 15.11. 1955. 2) Guðmundur, f. 21.3. 1960. Kona hans er Helga Björk Birgis- dóttir, f. 12.9. 1960. Börn þeirra eru a) Daldís Ýr, f. 17. 8. 1979, gift Bjarka Bjarnasyni, f. 15.12. 1984. Börn: Freydís Vera, f. 10.7. 2008, Védís Eir, f. 29.8. 2015, Grímur Kári, f. 24.6. 2019. b) Arnþór Daði, f. 13.12. 1993, í sambúð með Þóru Krist- ínu Reinharðsdóttur, f. 21.6. 1991. Barn: Vilhelm Logi, f. 26.5. 2020. 3) Elín Kristbjörg, f. 28.11. 1966. Hennar maður er Jóhann Ingvi Stefánsson, f. 25.10. 1964. Börn þeirra eru: a) Sigrún, f. 25.8. 1985, gift Ás- þóri Sædal Birgissyni, f. 3.4. 1975. Börn: Jóel Birgir, f. 3.8. 2009, Hanna Berglind, f. 16.11. 2010, Mikael Kári, f. 5.11. 2012, Pabbi kvaddi okkur að morgni 1. júlí. Hann var ferðbúinn og hafði orð á því síðustu mánuðina að nú færi hann líklega að leggja af stað í lönguleitina. Hugurinn leitaði æ meir í átt til heimahag- anna upp í Hrepp. Faðir okkar fæddist á Kald- bak í Hrunamannahreppi 15. september 1930 ásamt tvíbura- bróður sínum Guðmundi sem lést 1999. Þeir bræður voru mjög nánir alla tíð, eins og reyndar öll systkinin frá Kaldbak. Hin mikla sorg sem þau urðu fyrir þegar móðir þeirra lést úr lungnabólgu sumarið 1942 frá sjö börnum, hinu yngsta fárra mánaða, mót- aði systkinahópinn. Þau vissu af eigin raun hve mikilvægt það var að standa saman og styðja hvert annað. Faðir þeirra og elsta syst- irin, Jónína, héldu fjölskyldunni saman. Pabbi fór snemma að heiman og var vetrarmaður víða á bæj- um. Alltaf setti hann sem skilyrði að hann kæmist heim að Kaldbak 12. mars, í afmæli til Ellu, litlu systur sinnar. Aðeins átján ára gamall vann hann eitt ár á skurð- gröfu á vegum Vélasjóðs. En lengst af var hann hjá Gísla Hjörleifssyni í Unnarholtskoti og vann ýmis störf. Hann tók þátt í að sækja fé norður í Mývatns- sveit í fjárskiptunum árið 1953. Yfir þeim ferðum var mikill æv- intýraljómi og alltaf kom viss glampi í augun þegar þær voru rifjaðar upp. Og svo kom ástin, hann og mamma urðu par og og giftu sig 12. maí 1955. Þau bjuggu eitt ár á Kaldbak með Guðmundi bróð- ur hans og Kristrúnu, einn vetur voru þau á Högnastöðum hjá móðurforeldrum okkar og árið 1957 fluttu þau fram að Bjargi en þar bjó Guðjón afabróðir okkar og Guðlaug kona hans. Ungu hjónin var dugmikil og kappsöm, ræktuðu upp jörðina og bættu húsakost. Í nýtt einbýlishús fluttu þau haustið 1967. Pabbi var mikill ræktunarmaður og einstaklega natinn við skepnur. Vinnusemi og dugnaður voru honum í blóð borin, hann vildi drífa í hlutunum og lét verkefnin ekki bíða til morguns. Hann var orðheldinn og hann kenndi okkur fljótt að loforð skyldu standa. Þau mamma áttu góð ár á Bjargi í sambýli við Guðjón frænda og Laugu. Milli þeirra frændanna ríkti ávallt gagnkvæm virðing og hlýja. Árið 1990 urðu þáttaskil þegar jörðin á Bjargi var seld og þau fluttu niður á Selfoss. Pabbi fékk vinnu við búrekstrardeild Kaup- félags Árnesinga. Hann var fljót- ur að kynnast nýju fólki og þótti lipur og úrræðagóður. Hann var góður afi og naut þess að hafa barnabörnin í kring- um sig og dekra við þau. Dökka hárið var aðalsmerki pabba, barnabörnin veltu raunar stund- um fyrir sér hvort afi þeirra væri nokkuð að bera skósvertu í hárið. Hann var mikið snyrtimenni og var mikið í mun að komast reglu- lega til rakara. Pabbi var mikill gæfumaður í sínu lífi, þau mamma fetuðu sam- an lífsbrautina í rúmlega 65 ár og voru samhent hjón. Við systkinin eigum margs að minnast og þakka fyrir á þessari kveðjustund. Hann bar hag okk- ar mjög fyrir brjósti og eins og hann sagði eitt sinn: „Ef ég veit að þið eruð hamingjusöm og líð- ur vel, þá líður mér vel.“ Elsku pabbi okkur, hjartans þakkir fyr- ir allt og allt. Kristmundur, Guðmundur og Elín Kristbjörg. „Átt þú lödudrusluna hérna úti?“ var eitt það fyrsta sem tengdafaðir minn sagði þegar við hittumst á Bjargi fyrir hartnær 40 árum. Guðbrandur gat við fyrstu kynni virkað svolítið harðneskju- legur og stífur á meiningunni. En fljótlega skynjaði maður að bak við hrjúft yfirborðið var mik- il tilfinningavera og stutt í kímn- ina og jafnvel kvikuna. Það kom í ljós þegar hann rifjaði upp áföll sem hann varð fyrir í æsku, t.d. þegar hann missti móður sína barn að aldri. Þá átti röddin það jafnvel til að bresta. En þó fyrsta kveðjan væri kannski aðeins hryssingsleg þá bar aldrei skugga á okkar sam- skipti. Guðbrandur tók mér strax vel og sýndi mér virðingu og vin- áttu. Hann var boðinn og búinn að aðstoða okkur unga parið í okkar fyrstu skrefum út í lífið. Hann hafði mikinn áhuga á öllum framkvæmdum sem við höfum staðið í og spurði reglulega hvernig verkin gengu. Hvort sem um var að ræða kartöflu- rækt, bílaviðgerðir eða fram- kvæmdir heima fyrir. Guðbrand- ur var mikill verkmaður og vildi láta hlutina ganga hratt. Líklega var honum því orðið um og ó þegar ný bílskúrshurð hafði legið úti í skúr hjá okkur á þriðja ár en alltaf spurði hann hvernig gengi að setja upp hurðina. Barnabörnin og síðar barna- barnabörnin urðu honum mikil gleði og hann spurði reglulega hvernig þeim vegnaði. Við rifj- uðum stundum upp þegar við vorum stödd uppi á Bjargi og Sigrún okkar ákvað að koma í heiminn, aðeins á undan áætlun. Þá vorum við Guðbrandur eins og einn maður í því að láta hlut- ina ganga, ekki síst þegar búið var að bjóða sjúkraflutnings- manninum í kaffi og fæðingin um það bil að fara í gang. Eftir því sem árin hafa liðið þá kom mjúka hliðin á Guðbrandi æ betur í ljós. En þó sást í gamla harðjaxlinn, alveg fram á síðustu stundu. Ég þakka fyrir samfylgdina. Jóhann I. Stefánsson. Það er komið að leiðarlokum og við minnumst afa með þakk- læti fyrir samfylgdina. Það var alltaf gott að koma til afa og ömmu í Grashagann. Í seinni tíð var afi oft að brasa í skúrnum eða dytta að húsinu. Hann var fljótur að leggja frá sér verkfær- in og koma inn til að spjalla þeg- ar okkur bar að garði. Hann var gjarnan fljótur að draga fram það bakkelsi sem var til eða hlaupa út í bílskúr til að sækja ís. Við eigum góðar minningar um umhyggjusaman afa sem hafði áhuga á okkur barnabörnunum og því sem við vorum að fást við í lífinu. Margs er að minnast og margs er að sakna. Þú Árnesþing, ég elska nafnið þitt. Þar upp til fjalla er helgisetrið mitt, er morgungeislans mildi fyrst ég naut við móðurskaut. Í hinum gamla, göfga minjasal þú geymir Skálholt, Þingvöll, Haukadal. Því segir Ísland: Sjá, við háborð mitt er sæti þitt. Nú læt ég hætta hugarstarfið mitt við hlíðarfaðm og sezt í grasið þitt og ilmi þínum anda þar að mér, svo enginn sér. (Eiríkur Einarsson) Fyrir hönd barnabarna, Sigrún. Afi Gras er farinn á vit nýrra ævintýra. Við barnabörnin köll- uðum hann það gjarnan eftir að þau amma fluttu í Grashaga á Selfossi árið 1990. Þar áður voru þau bændur á Bjargi í Hruna- mannahreppi þaðan sem ég á mínar sterkustu æskuminningar. Afi kom fram við mig af virð- ingu og væntumþykju og ég fann alltaf hvað hann var stoltur af mér og okkur barnabörnunum. Hann var blíður og góður afi en lífið hafi ekki alltaf farið blíðum höndum um hann sjálfan. Hann var alinn upp á heiðarbýlinu Kaldbaki í Hrunamannahreppi. Elín Hallsdóttir móðir hans lést frá sjö börnum sínum þegar afi var tólf ára en Jónína elsta systir hans tók þá að einhverju leyti við hlutverki húsmóður en yngsta systirin, Elín, var þá kornabarn. Jörðin Kaldbakur er einn af efstu bæjum sveitarinnar og var ekki í alfaraleið. Afi sagði mér frá því að þegar hann var krakki gekk hann langa leið á sauð- skinnskóm til að komast til kirkju á jóladag. Það mótaði mig mikið að alast upp við þau forréttindi að eiga afa og ömmu í sveit. Ég fékk tækifæri til að kynnast sveitalíf- inu og öllu sem því fylgir. Ég fékk að fylgja afa í útiverkunum, fara í fjósið, reka kýrnar, sækja egg til hænsnanna, hjálpa til í sauðburði og klæða kettlinga í dúkkuföt. Amma hjálpaði mér að sauma og baka, fór með mér í búleik og göngutúra. Það var líka hægt að dunda sér með henni í gróðurhúsinu heilu dagana. Ég var eins og blómi í eggi í sveit- inni. Bíltúrar á Flúðir eða heim- sóknir til systkina afa í sveitinni voru líka spennandi. Afi var mjög náinn Guðmundi tvíbura- bróður sínum í Skipholti og saknaði hans alltaf mikið eftir að hann lést árið 1999. Afi var reyndar í góðu sambandi við öll systkini sín. Þau hittust gjarnan og spiluðu bridge, en spila- mennskan var eitt helsta áhuga- mál afa og þótti hann einkar lunkinn spilari. Afi var næstum alltaf til í að taka í spil með mér, en ef hann var upptekinn gat ég yfirleitt platað ömmu eða hlaupið yfir í gamla bæinn til Laugu og Guðjóns. Eftir að afi og amma fluttu á Selfoss gat ég heimsótt þau oftar en saknaði þess að geta farið í sveitina. Þau söknuðu hennar líka en leið vel á Selfossi. Afi fór að vinna hjá Kaupfélagi Árnes- inga og naut þess að hitta fólk og spjalla. Það var alltaf hægt að leita til afa og hann skutlaði mér út um allan bæ ef á þurfti að halda. Við afi fórum í mörg ár tvö saman í kirkjuna á aðfangadags- kvöld og hlökkuðum alltaf bæði til stundarinnar. Afi þekkti flesta í kirkjunni og margir héldu að ég væri dóttir hans en ekki barna- barn því ég hef sterkan svip úr föðurfjölskyldunni. Ég veit að afi saknaði þessara stunda þegar ég hætti að koma á Selfoss um jólin. Ég sakna líka allra góðu stund- anna með afa og ömmu og þykir einstaklega vænt um allar end- urminningarnar úr sveitinni. Afi var örugglega tilbúinn í ferðalagið. Hann varð níræður síðastliðið haust og kroppurinn var farinn að gefa eftir. Hann saknaði systkina sinna og þess að geta farið á hestbak, í réttir og að geta spilað Bridge. Ég minnist afa með hlýju og þakk- læti fyrir samfylgdina. Daldís Ýr Guðmundsdóttir. Elsku Guggi okkar hefur sofn- að svefninum langa eftir langa ævi, þreyttur og sáttur. Hann bjó síðustu árin á Hjallatúni í Vík, á Ási í Hveragerði og á Ljósheimum á Selfossi þar sem hann lést. Þegar við Jóndi heim- sóttum hann í Hjallatún var hann svo ósáttur við það að vera svona langt að heiman frá Rúnu sinni og börnunum. Hann grét þegar við fórum og ég grét alla leiðina heim, þetta var svo átak- anlegt. Hann þráði svo heitt að vera með Rúnu sinni í nýju íbúð- inni þeirra. Guggi var tvíburabróðir Guð- mundar tengdapabba míns. Þeir voru mjög líkir og samheldnir bræður. Þegar Guðmundur dó í maí 1999 fannst Gugga hann þurfa að koma í hans stað fyrir okkur Jónda og börnin okkar. Hann fylgdist mjög vel með hverjum og einum og var okkur öllum svo einstaklega góður. Við Jóndi höfum boðið Rúnu og Gugga ásamt mömmu minni og Jóhanni manninum hennar heim á annan í jólum í ömmu og afa-jólakaffi. Hans verður sárt saknað þar. Fyrst man ég eftir Gugga þeg- ar þeir tvíburabræðurnir fóru saman á fjall 1970 í tilefni af 40 ára afmæli þeirra. Þeir komu ríð- andi frá Kerlingarfjöllum yfir til Tungnamanna sem þá voru í Fossrófum. Þeir þáðu kaffi í vagninum hjá mömmu og pabba. Þá var ég bara krakki og man hvað ég var hissa hvað þeir gátu verið líkir. Góða minningu á ég um Gugga í heyskap á Fossi. Þau heyjuðu saman tengdaforeldrar mínir, hjónin í Skipholti og Guggi og Rúna en þau bjuggu á Bjargi. Skemmtilegar stundir þar, og auðvitað var alltaf gott nesti. Árið 1998 fórum við Jóndi með tvíburunum og konunum þeirra í eftirminnilega ferð. Hringinn um landið á fjórum dögum með A- tjald. Við nýtrúlofaða parið sváf- um í kórnum í tjaldinu sem kall- að var þá og þau fjögur fyrir framan. Þá var ekki boðið upp á grill og sjoppufæði. Nei, það var soðinn lax með nýjum kartöflum og venjulegur heimilismatur. Og bakkelsið hjá Rúnunum var það allra besta. Ferðin gekk í alla staði mjög vel. En mikið hlógum við oft þegar þessi ferð var rifjuð upp. Guggi var í héraðslögreglunni og var því oft á böllum í gamla daga, flottur og virðulegur í lög- reglubúningnum. Það var alltaf gott að vita af honum þar. Guggi kom gagngert til okkar til að bjóða í 80 ára afmælið sitt ef hann þá tórði eins og hann sjálfur orðaði það svo skemmti- lega. Það gerði hann svo sann- arlega, því hann hefði orðið 91 árs í september. Undir dalanna sól, við minn einfalda óð hef ég unað, við kyrrláta för. Undir dalanna sól, hef ég lifað mín ljóð, ég hef leitað og fundið mín svör. Undir dalanna sól, hef ég gæfuna gist, stundum grátið, en oftar í fögnuði kysst. Undir dalanna sól á ég bú mitt og ból og minn bikar, minn arin, minn svefn- stað og skjól. (Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum) Ég þakka fyrir góðar sam- verustundir bæði í Grashaganum og Lambhaganum en þær voru þó nokkrar. Með virðingu og þökk kveð ég elsku Gugga okkar og þakka fyr- ir allt. Elsku Rúna, Kristmundur, Gummi, Ella og fjölskyldur. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra. Blessuð sé minning Guð- brands Kristmundssonar frá Kaldbak. Lilja Smáradóttir. Guðbrandur Kristmundsson Ævistarfið varð sjósókn og út- gerð fiskibáts með frændum sínum en síðustu starfsárin vann hann á netaverkstæði á Húsavík. Systir hans minnist þess ennþá hve hún hlakkaði til komu hans af vertíðunum því ævinlega færði hann litlu systir einhverja fallega gjöf við heim- komuna. Fyrir nokkrum dögum fór Íbbi á sjúkrahús á Akureyri þar sem hann, fáum dögum síð- ar hitti ferjumanninn mikla og þar sem enn var laust pláss kom þeim saman um að hann fengi far með síðustu siglingu kvöldsins. Þeir fengu góðan byr yfir álinn djúpa og náðu til hafnar á Sumarlandinu sama kvöld þar sem eiginkona, for- eldrar og vinir voru saman- komin til að fagna heimkomu hans. Hin löngu kynni okkar Íbba hafa alla tíð verið einstaklega kær en þau hófust fyrir tæpum sextíu og þremur árum er ég kom til Húsavíkur í þeim til- gangi að nema burt heimasæt- una í Vogum, sem tókst mót- mælalaust. Tveimur árum seinna skruppum við hjónaleys- in til Húsavíkur til að dvelja þar yfir jól og áramót og rétt fyrir áramótin gengum við Björg Skarphéðinsdóttir og systkinin úr Vogum upp eftir til sr. Friðriks A. Friðrikssonar sóknarprests á Húsavík og klukkustund síðar gengu tvenn brúðhjón heim til Voga. Þetta brot af eilífðinni sem við gist- um þessa jörð líður en ljúfar minningar sitja eftir í hugan- um. Ég veit að heimkoma Íbba til Sumarlandsins hefur verið hamingjustund og að hann muni una þar vel hag sínum. Vonandi hittumst við þar innan ekki allt of margra ára og get- um þá endurnýjað kunnings- skapinn. Að lokum biðjum við algóðan guð að gæta vinar okk- ar og sendum afkomendum hans, ættingjum og vinum öll- um okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Dagbjartur Sigursteinsson, Bjargey Júlíusdóttir. ✝ Sölvi Vík- ingur Aðal- bjarnarson fæddist á Unaósi 4. febr- úar 1929. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Dyngju 4. júlí 2021. Útförin fer fram frá Egilsstaðakirkju 12. júlí 2021 klukkan 13. Meira á www.mbl.is/andlat. Minningar á mbl.is Sölvi Víkingur Aðalbjarn- arson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.