Morgunblaðið - 12.07.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2021
Smáauglýsingar
Garðar
» Jarðvinna
» Drenlagnir
» Hellulagnir
» Þökulagnir
Þjónustum einstaklinga,
fyrirtæki og húsfélög
prostone@prostone.is
519 7780
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Húsviðhald
» Smíðavinna
» Múrvinna
» Málningarvinna
Þjónustum einstaklinga,
fyrirtæki og húsfélög
prostone@prostone.is
519 7780
með
morgun-
"&$#!%
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Gönguferð um hverfið kl.
10.30-11.15. Leir ogTie dye smiðja, opin öllum kl. 13.30. Kundalini
jóga kl. 14.5, ókeypis. Kaffi kl. 14.30-15.20. Nánari upplýsingar í síma
1411-2701. Allir velkomnir.
Árskógar 4 Opin vinnustofa kl. 9-12. Leikfimi kl. 10. Handavinna
kl. 12-16. Félagsvist kl. 12.45. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Heitt á
könnunni. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600.
Boðaþing Ferð í Guðmundarlund 15. júlí kl. 14-16, lagt af stað frá
félagsmiðstöðvunum kl. 13.30, skrá þarf þátttöku síðasta lagi í dag,
12. júlí, eyðublöð eru á félagsmiðstöðvum. Félagsvist í BOÐANUM
annan hvern mánudag kl. 13.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi, blöðin og spjall
kl. 8.10-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30.
Opin Listasmiðja kl. 13-15.45.Tríó Velferðarsviðs kl. 14. Síðdegiskaffi
kl. 14.30-15.30.
Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi
kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11.
Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12.40. Brids í Jónshúsi kl.13. Ganga
fyrir fólk með göngugrind frá Jónshúsi kl. 14. Smiðjan Kirkjuhvoli
opin kl. 13 – 16.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn-
unni. Fjölbreytt leikfimi frá kl. 11.15-12 með Hönnu. Útifjör, ganga,
teygjur og fleira með Höllu Karenu, frá kl. 13 (fer eftir veðri hvort farið
er út). Alltaf allir velkomnir.
Gjábakki Ferð í Guðmundarlund 15. júlí kl. 14-16, lagt af stað frá
félagsmiðstöðvunum kl. 13.30, skrá þarf þátttöku síðasta lagi í dag,
12. júlí, eyðublöð eru á félagsmiðstöðvum. Opin vinnustofa í allt
sumar í Gjábakka á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl. 13 og 15.
Á staðnum verður boðið upp á málningu, pensla og blöð. Kennsla á
ipad: Kennt verður á spjaldtölvu í Gjábakka alla þriðjudaga milli
kl. 13 og 15 í sumar. Botsía verður alla miðvikudaga í sumar í Gjá-
bakka kl. 10. Systurnar Ingibjörg og Herdís Linnet munu flytja íslensk
þjóðlög og dægurlög föstudaginn 16. júlí kl. 13.30. Samsöngur í
Gjábakka, Hannes Guðrúnarson mætir með gítarinn og spílar sígild
sönglög sem allir geta sungið með, 13. júlí kl. 11.
Gullsmári Ferð í Guðmundarlund 15. Júlí kl. 14-16, lagt af stað frá
félagsmiðstöðvunum kl. 13.30, skrá þarf þátttöku síðasta lagi í dag,
12. júlí, eyðublöð eru á fèlagsmiðstöðvum. Félagsvist kl. 20. Sam-
söngur í Gullsmára í dag kl. 11, Hannes Guðrúnarson mætir með
gítarinn og spilar sígild sönglög sem allir geta sungið með. Milli kl. 13
og 15 verður boðið upp á kennslu á snjalltæki, spjaldtölva á staðnum.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Stólaleik-
fimi kl. 13.30.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum frá kl. 9, leikfimi í salnum Skóla-
braut kl. 11, handavinna og samvera í salnum Skólabraut kl. 13.
Snjallsímanámskeið kl. 13.30. Á morgun förum við í gönguferð í
Öskjuhlíð. Skráning í þessa ferð er til hádegis í dag og viljum við
endilega fá sem flesta. Við verðum með borð á Nauthóli og hver og
einn getur farið á sínum hraða eða bara tyllt sér á Nauthól og keypt
sér kaffisopa.
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
✝
Sævar Þór
Hilmarsson
var fæddur í
Reykjavík 31.
ágúst 1970. Hann
andaðist á heimili
sínu í Haugesund í
Noregi 14. októ-
ber 2020.
Foreldrar Sæv-
ars eru Hilmar
Kristensson, f.
17.7. 1947, og
Helga Margrét Gestsdóttir, f.
29.10. 1949. Bræður Sævars
eru Jón Gestur Sortveit, f.
24.9. 1968, og Kristinn Adolf,
f. 14.5. 1976. Sævar ólst upp í
foreldrahúsum Hafnarfirði til
sjö ára aldurs en þá flutti fjöl-
skyldan á Hvolsvöll og bjó
Sævar þar með foreldrum sín-
um og bræðrum í nokkur ár.
Síðan lá leiðin til Hafnar-
fjarðar. Hann varð stúdent frá
Flensborg, þaðan
lá leiðin til Frakk-
lands í háskóla í
Toulouse, eftir
Frakklandsdvölina
flutti Sævar til
Bergen í Noregi
og var þar í há-
skóla, sneri síðan
til Íslands og
gerðist kennari í
Nesjaskóla við
Hornafjörð,
kenndi þar í grunnskólanum í
nokkur ár, flutti síðan í Hafn-
arfjörð og gerðist kennari í
Áftanesskóla. Á skólaárunum
starfaði Sævar m.a. í Kjöt-
miðstöðinni, Miklagarði og í
Miðvangi í Hafnarfirði. Flutti
til Noregs 2009 þar sem hann
lést.
Sævar verður jarðsunginn
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
12. júlí 2021, kl. 13.
Það vill gjarnan verða við
leiðarlok að maður verður lág-
vær og langsótt getur verið í
orðanna sjóð hvað draga skuli
fram að lokum. Sagt er að það sé
gott að velja sér eina góða minn-
ingu og halda í hana þegar sorg-
in virðist ætla að verða yfir-
þyrmandi. Sævar Þór
Hilmarsson var fæddur 31.
ágúst 1970 á Landspítalanum.
Sævar ólst upp að mestum hluta
í Hafnarfirði. Hann lést á heimili
sínu í Haugesund í Noregi 14.
október sl. Manni finnst það
vera dálítið sérkennilegt að for-
eldrar skuli þurfa að standa í því
ömurlega hlutverki að kveðja og
jarðsyngja barnið sitt. Vonandi
hefurðu fundið frið elsku fallegi
sonur. Við elskum þig og hafðu
þökk fyrir allt. Reynum að finna
styrkinn saman og ylja okkur
við allar þær frábæru minningar
sem við eigum öll um einstakan
og ljúfan dreng.
Umhyggju og ástúð þína
okkur veittir hverja stund.
Ætíð gastu öðrum gefið
yl frá þinni hlýju lund.
Gáfur prýddu fagurt hjarta
gleðin bjó í hreinni sál.
Í orði og verki að vera sannur
var þitt dýpsta hjartans mál.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þinn pabbi
Hilmar.
Það er skrýtin tilfinning og
erfitt að fylgja bróður sínum til
grafar, en líka gott að geta kom-
ið honum til hvíldar í sumarland-
inu sínu, þar sem honum líður
örugglega vel núna.
Ég og Sævar Þór ólumst upp
saman í Hafnarfirði að mestu
leyti og vorum alltaf eins klædd-
ir, bestu vinir, leikfélagar.
Standa upp úr dásamlegar minn-
ingar þegar við vorum litlir og
lékum okkur mikið saman og
voru uppátækin ansi mörg. Alls-
konar tilraunastarfsemi með
rakettur, flugvélamódel, kúre-
kaleikir, kofasmíði o.fl.
Sævar var mjög tengdur
börnum okkar Áslaugar, þeim
Fannari Alexander, Jóni Aski og
Guðrúnu Helgu, enda eiga þau
bara yndislegar minningar með
Sævari frænda. Hann var frá-
bær föðurbróðir, passaði fyrir
okkur, kom svo oft í heimsókn,
borðaði með okkur og oft eldaði
hann fyrir okkur mat.
Lýsir honum best eins og Jón
Askur segir, hann var alltaf svo
þolinmóður þegar hann var
barn, kubbaði með mér og gaf
mér allan tímann í veröldinni og
svo voru afmælis- og jólagjaf-
irnar svo skemmtilegar frá hon-
um.
Eitt aðaleinkenni Sævars var
að hann var alltaf svo blíður og
góður við alla. Vinum sínum var
hann traustur og góður vinur.
Hann hafði einstakan og
skemmtilegan húmor og fyndinn
og það var svo gaman að vera
með honum þegar hann var í
góðum gír.
Svo standa svo upp úr allar
heimsóknirnar til þín til Noregs
og þá sérstaklega til Stavanger.
Frábær ferð þegar við fórum
saman í fallega Lýsufjörðinn.
Efst í huga er heimsókn þegar
við Áslaug komum og gistum í
litlu íbúðinni þinni og héldum
upp á brúðkaupsafmælið okkar
og áttum yndislegan tíma sam-
an.
Nú kveðjum við ástkæran
bróður, vin, mág og frænda.
Dreng með fallegt hjartalag sem
fór allt of snemma en gaf öllum
af sér sem kynntust honum.
Minningin þín mun lifa, elsku
Sævar okkar!
Þinn bróðir,
Jón Gestur Sørtveit.
Elsku Sævar, við andlát þitt
er höggvið stórt skarð hjá okkur
fjölskyldunni þinni, það skarð
getum við einungis fyllt með
endalausum góðum minningum
um góðan og ljúfan húmorista.
Ég kynntist þér sem stelpa á
Hvolsvelli og tókst með okkur
mikil vinátta, þú og Jón Gestur
og við krakkarnir brölluðum ým-
islegt og mikið, við byggðum
kofa, lékum í öllum skemmtilegu
útileikjunum sem þá voru leikn-
ir. Sem stelpa fann ég strax
hversu góður strákur þú varst
og nærvera þín einstök. Þið
bræður skemmtuð okkur með
bröndurum jafnvel út um
herbergisgluggann og við vin-
konurnar hlógum endalaust að
ykkur. Við fengum að horfa á
Dýrlinginn í litasjónvarpinu
heima hjá ykkur í Norðurgarð-
inum á miðvikudögum og svo
margt annað skemmtilegt sem
rifjast upp. Fjórtán árum síðar
felldu foreldrar okkar hugi sam-
an og urðu hjón. Strax í fyrstu
heimsókn tókum við upp þráðinn
og mikil, góð og djúp vinátta
hófst á ný, við grínuðumst oft
með það að nú værum við orðin
systkini. Þá tók við nýr kafli hjá
okkur, endalausar góðar sam-
verustundir heima hjá mömmu
og pabba þínum, við erum dug-
leg að hittast og hafa gaman
saman, grillveislurnar, jólaboðin
og bara mánudagskaffi. Alltaf
var jafn gaman að hitta þig, þú
varst einstakur gullmoli með
góða nærveru, alltaf stutt í húm-
orinn og glensið. Þegar við fjöl-
skyldan hittumst er alltaf gam-
an, stuð og þið bræður hélduð
okkur við hláturinn sem oft á
tíðum varð til þess að maður fór
heim með magakrampa úr
hlátri. Þú komst reglulega til
okkar Ómars og varst alltaf svo
afslappaður og áttum við nota-
legar stundir saman. Þú og Óm-
ar urðuð góðir vinir og gerðum
við grín að því að þú værir hans
helsti stuðningsmaður í hjóna-
bandi okkar. Það er óbærileg
sorg og erfiðara en tárum taki
að kveðja góðan vin eins og þig.
Við fjölskyldan reynum eftir
fremsta megni að rifja upp og
ylja okkur með frábærum minn-
ingum um þig, elsku Sævar.
Börnin okkar kveðja einstakan
frænda sem gaf sér alltaf góðan
tíma til að spjalla. Þú varst einn-
ig snillingur að smíða og gera
fallega hluti í höndunum. Seinni
ár hittumst við alltof sjaldan þar
sem þú bjóst í Noregi, en auðvit-
að gafst þú þér reglulega tíma til
að hringja í mig og þykir mér
endalaust vænt um þau samtöl.
Elsku elsku Sævar minn, hvíldu
í friði og við hittumst síðan aftur
og höldum áfram að byggja kofa,
hlæja og bralla eitthvað
skemmtilegt.
Þín vinkona og systir,
Linda Björk Halldórsdóttir.
Sævar frændi var stór hluti af
minni barnæsku.
Hann var okkur systkinunum
mjög góður og var alltaf stutt í
grínið. Hann hafði alltaf mikinn
áhuga á því sem við vorum að
gera og fór stundum með okkur
í menningarferðir til Reykjavík-
ur.
Sævar frændi elskaði ís og við
elskuðum þegar Sævar frændi
kom með ís. Mér leið alltaf eins
og hann hefði keypt alla ísbúð-
ina. Rjómaís, sósur og nammi,
allt fyrir okkur.
Hann kom líka stundum og
hjálpaði okkur að læra heima,
hann var nefnilega svo þolin-
móður og góður kennari. Sævar
var góður að hlusta og reyndi
alltaf að tala við mig um hluti
sem ég hafði áhuga á, hvort sem
það var nýjasta tónlistin, hvað
væri að frétta úr skólanum eða
um bloggarana í Noregi.
Hann sendi mér oft greinar
um hina og þessa bloggara. Sæv-
ar frændi var alltaf bara Sævar
frændi, skemmtilegi bróðir hans
pabba. Mér finnst mjög sárt að
vita til þess að honum hafi liðið
svona illa.
Ég vildi óska að hann hefði
fengið að hitta Áslaugu Rún
Sørtveit. Þegar ég var lítil þá
gaf ég Sævari frænda passa-
mynd af mér sem ég hafði fengið
úr skólanum. Ég sagði við Sæv-
ar: „Hérna er mynd af mér, svo
þú gleymir mér aldrei.“ Sævari
frænda fannst þetta mjög fyndið
og geymdi alltaf myndina í vesk-
inu. „Litla Dúna“ kallaði hann
mig oft og ég kallaði hann „Sæsa
frænda“ á móti.
Elsku Sævar, ég vona að þér
líði betur hvar sem þú ert. Þín
er sárt saknað.
Þín frænka,
Guðrúna Helga Sørtveit.
Seltzer, mágkonupasta og
mörgæsir.
Ég man hreinlega ekki eftir
mér án þín, þú varst alltaf í
endaherberginu á ganginum til
hægri og þó að ég hafi sjálfur
farið í þetta herbergi nokkrum
árum seinna þá var þetta alltaf
herbergið þitt. Þetta herbergi
var töfraheimur ungs manns.
Tinnabækur, tölvuleikir og hin
ógleymanlega skúffukaka sem
hvarf. Hún var víst sérstaklega
bökuð fyrir saumaklúbbinn
hennar mömmu en einhvern
veginn hvarf, reyndar ásamt
lítra af mjólk, en það var í sjálfu
sér ekkert skrítið, því þú varst
rammgöldróttur. Þú gast
galdrað fram Seltzer hvenær
sem var, þannig að auðvitað
gastu látið eina vesæla skúffu-
köku hverfa, það var eflaust lítið
mál. Ég man bara hvað mamma
var reið og hvað þú og pabbi flis-
suðuð mikið þegar hún sá ekki
til. Ég man líka alltaf eftir bros-
inu sem kom á þig líka þegar
minnst var á þetta.
Bókastaflar, sokkar og skrítn-
ar svefnstellingar. Í eitt skipti
þegar ég kom inn til þín sá ég
hann Magga Mörgæs á skrif-
borðinu. Það var ást við fyrstu
sýn, ég man hvað ég suðaði í þér
að þetta væri það eina sem ég
vildi. Hann var reyndar ætlaður
einhverri draumadísinni en end-
aði hjá mér. Ég á hann enn og
hann verður í minni vörslu þar
til einhver annar eða önnur þarf
meira á honum að halda. En
hann hefur það gott, vildi bara
að þú vissir það.
Minningarnar eru svo margar
og veit ég hreinlega ekki alveg
hversu langt ég á að hafa þetta
en eitt sem ég verð að þakka þér
fyrir að lokum er mágkonu-
pastað sem þú eldaðir svo oft.
Penne pasta með skinku, aspas
úr dós og nóg af rjómaosti. Sem
ungur maður að geta galdrað
þetta fram í eldhúsinu var betra
en hvaða töfrabragð sem er.
En ég vil enda þessa minning-
argrein á orðum eftir annan
mann því að ég get ekki ímynd-
að mér betri orð: „Ekki sam-
hryggjast mér, en ég þakka
samhug ykkar.“ En ég gat kall-
að hann Sævar vin.
Þinn frændi,
Fannar Alexander.
Í dag minnumst við Sævars
frænda. Hann ákvað að kveðja
þetta líf í október. Við sem eftir
sitjum munum ekki skilja það
frekar en svo margt annað í
þessu flókna lífi.
Sævar frændi var einn af
strákunum sem ég passaði, son-
ur Helgu systur, og eru margar
eftirminnilegar minningar frá
þeim tíma þegar ég passaði
strákana hennar. Sævar bjó líka
á Höfn um tíma. Þar kenndi
hann með mér í grunnskólanum
í nokkur ár. Hann var daglegur
gestur heima hjá okkur Jóhanni
á Silfurbrautinni þar sem við
áttum góðar fjölskyldustundir.
Eldri börnin mín eiga góðar
minningar um Sævar frænda og
geta rifjað upp kennslustundir
frá því Sævar frændi var að
kenna. Þau minnast þess að oft
var mikið hlegið í tímum og
kunnu nemendur vel að meta
Sævar. Hann hafði gott lag á
nemendum og náði vel til þeirra.
Einnig útbjó hann kennsluefni
sem vakti gleði og spenning inn-
an nemendahópsins. Mörg
kvöldin sátum við á Silfurbraut-
inni og ræddum saman um lífið
og tilveruna.
Eftir að Sævar flutti í Hafn-
arfjörðinn og svo seinna til Nor-
egs ræddum við reglulega sam-
an í gegnum tölvuna. Það hefði
mátt vera miklu oftar.
En minningin um Sævar
frænda á alltaf eftir að lifa með
okkur og minni fjölskyldu. Við
hugsum til hans með þakklæti
um leið og við sendum okkar
dýpstu samúðarkveðjur til
Helgu, Jóns Gests, Kristins og
Hilmars og fjölskyldna þeirra.
Kristín, Jóhann, Emil,
Sólveig og Salóme.
Sævar Þór
Hilmarsson
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar