Morgunblaðið - 12.07.2021, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2021
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú græðir lítið á því að láta alla
hluti fara í taugarnar á þér. Nú skiptir máli
að vera léttur í lund og sýna sínar bestu
hliðar.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það þarf ekki mikið til þess að ýta
undir köfnunartilfinningu eða að þér finnist
þrengt að þér núna. Vertu því vel und-
irbúinn og hafðu öll þín mál á hreinu.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Sá er vinur sem í raun reynist.
Beygðu þig undir forystu aðila sem þú virð-
ir. Og þegar maður gefur, miklast maður
ekki, heldur hefur það fyrir sjálfan sig.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Ef þú ert ekki ánægður með verk
annarra skaltu bara taka þau að þér sjálfur.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Forðastu allt rifrildi við förunaut þinn
um málefni heimilisins. Fáðu ástvinina með
þér í dásamlegan leik.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Hugdirfska þín leiðir þig á framandi
slóðir og þú munt upplifa mikil ævintýr.
Mundu bara að virða skoðanir annarra, líka
þótt þú sért ekki sammála þeim.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Hópvinna virkar alltaf best þegar allir
vinna saman. Ekki gefa loforð sem þú getur
ekki staðið við.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þér finnst þú bara verða að
kaupa einhvern ákveðinn hlut í dag. Gerðu
umhverfið þannig úr garði að það ýti undir
ástleitni.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þetta er góður dagur til að
ræða við foreldra þína eða yfirmenn. Ynd-
islegur aðstoðarmaður hjálpar þér í hví-
vetna, hvort sem það er við að laga fjárhag-
inn eða flikka upp á útlitið.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Láttu ekki atburðarásina kippa
undan þér fótunum heldur stattu fastur
fyrir og haltu þínu striki ótrauður. Daður,
skemmtanir og aukin vellíðan munu ein-
kenna líf þitt á næstunni.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Ef þú vinnur í einrúmi áttu á
hættu að missa þig í hinum ýmsu blæ-
brigðum viðfangsefnisins, þar til heild-
armyndin er ekki nema dauf minning.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Búðu þig undir mikla vinnu. Ef þú
eignast nýja vini fjölgar atvinnutækifær-
unum að sama skapi. Settu þig því í réttar
stellingar og vertu ákveðinn.
Johnsen, sem var mjög gaman.“
Mikil vinna hafði þó slæm áhrif og
Walter þurfti að fara í brjósklos-
aðgerð á baki. „Þá ákvað ég að skipta
um vettvang og réð mig til Flugmála-
stjórnar og var þar í 26 ár í flug-
stjórnarmiðstöðinni.“ Árið 2000 fór
Walter að vinna hjá Kögun við hug-
búnaðarprófanir og starfaði þar uns
fyrirtækið var m.a. sameinað
SKÝRR og EJS og varð Advania.
Hann hætti árið 2015 og fór á eft-
irlaun.
Walter segir að þau hjónin og fjöl-
skyldan öll séu mikið útivistarfólk.
„Við áttum stóran fjallatrukk í tíu ár
taki og fór að vinna í stækkun Mjólk-
árvirkjunar uppi á Glámujökli í Arn-
arfirði á sumrin. Á veturna vann ég
við uppsetningu viðlagasjóðshúsa á
Hellu, Hvolsvelli og Stokkseyri vegna
Vestmannaeyjagossins auk annarra
verkefna. Þegar búið var að bjarga
öllum frá Eyjum hófst uppbygging-
arstarfið. Þá var Ístak fengið til að
ryðja hrauni frá húsunum svo
Vinnslustöðin gæti hafið starfsemi að
nýju.“ Walter segir að mikil samstaða
hafi verið hjá þeim sem voru að vinna
úti í Eyjum og góður andi. „Þarna
smakkaði ég fyrst reyktan lunda og
svo fór ég í lundasúpupartí hjá Árna
W
alter Hjartarson
fæddist á Nesvegi í
Reykjavík 12. júlí
1951. Hann flutti í
Vogana og gekk í
Vogaskóla og var í sveit á Gullbera-
stöðum í Lundarreykjadal á sumrin
við gott atlæti. Á veturna var hann
sendill með skólanum og notaði aust-
urþýska Möve-hjólið til starfans.
Hann var sendill í einn vetur hjá
Frjálsri þjóð en næstu tvö árin þing-
sveinn á Alþingi. „Þá voru Bjarni
Ben. og Óli Thors upp á sitt besta og
þá sentist maður oft til að ná í laun
þingmanna. Þetta voru aðalmenn-
irnir í bænum og maður skalf oft á
beinunum af ábyrgðartilfinningu að
vera að sendast með fulla tösku af
peningum. Í eitt skiptið náði ég í laun
Auðar Auðuns og ég stalst til að kíkja
á ávísunina sem var upp á heilar 32
þúsund krónur og þá varð ég hrædd-
ur og hjólaði sem mest ég mátti að
skila þessu af mér. Þá hafði ég 1.500
krónur fyrir allan veturinn, en fékk
reyndar 500 aukalega í hjólastyrk.
En þetta var allt mjög spennandi og
ég var bara 12-13 ára.“
Walter lauk gagnfræðaprófi vorið
1966. Eftir það fór hann til New
York, þar sem föðurbróðir hans bjó
og var þar í undirbúningsnámi fyrir
erlenda nemendur sem hugðu á há-
skólanám. „Þetta voru alveg æðisleg-
ir tímar. Ég vildi búa í New York og
langaði ekkert heim. Þarna var kosn-
ingabarátta Nixons og Humphreys í
hávegum og þá voru ekki allir þessir
vefmiðlar eins og núna, og baráttan
eiginlega háð á götum úti og kosn-
ingaræður haldnar út um borgina.
Ég bjó á horni 96. strætis og Broad-
way í miðri hringiðunni. Svo var
spenningurinn yfir tunglferð Arm-
strongs í hámarki og alveg magnað
að vera á fimmta breiðstræti þegar
skrúðgangan fagnaði með strimlum
og knöllum.“
Bandaríkjaævintýrinu lauk árið
1969 og stuttu eftir heimkomuna
kynntist hann Kristbjörgu konu sinni
í Júdódeild Ármanns og urðu þau
strax par. Hann hóf nám í húsgagna-
smíði hjá Jóni Péturssyni í JP inn-
réttingum en lauk sveinsprófi árið
1973 hjá Sveini Guðmundssyni á
Sogaveginum. „Þá hóf ég störf hjá Ís-
og höfum farið út um allt land og upp
á hálendið. Síðan fórum við um tíma
nánast á hverjum degi í Bláfjöll með
krakkana og þá var ég plataður í
stjórn Skíðadeildar Ármanns, svo
SKRR og var síðan ritari hjá Skíða-
sambandi Íslands.“ Flestir þekkja þó
Walter mest úr golfheiminum.
„Ég byrjaði í golfi 52ja ára og tók
þetta föstum tökum og spilaði mig inn
í landslið eldri kylfinga og fór með
hópi góðra manna til Slóvakíu árið
2011.“
Fjölskylda
Eiginkona Walters er Kristbjörg
Walter Hjartarson húsgagnasmiður, fluggagnafræðingur og golfari – 70 ára
Fjölskyldan Hér er öll fjölskyldan saman í 70 ára afmæli eiginkonu Walters, Kristbjargar, í Borgarnesi. F.v.: María,
Steingrímur, Sigrún, Walter, Sæborg, Hjörtur, Kristbjörg, Stefán Örn, Elín Rósa og Sveinbjörn Ólafur.
Þeystist um á Möve-hjóli fyrir þingið
Hjónin Walter og Kristbjörg fóru í
Geldingadali að skoða gosið.
Fram og KR Hér er Framarinn Walter umkringdur KR-ingunum Jókim
Gunnari Jóakimssyni og Birgi Guðbjörnssyni og skartar sundhettu KR.
Til hamingju með daginn
50 ÁRA Elín Jóna ólst upp í
Unnarholti í Hrunamannahreppi.
Hún gekk í Flúðaskóla og var
mikið í frjálsum íþróttum á ungl-
ingsárunum. Eftir grunnskólann
ákvað hún að fara í Kvennaskól-
ann og var þar í eitt ár, en flutti
sig síðan yfir til Menntaskólans að
Laugarvatni. Árið 1989-90 var El-
ín Jóna skiptinemi í Michigan-ríki
í Bandaríkjunum. „Þetta voru
mikil viðbrigði en mjög gaman og
ég þroskaðist mikið á þessum
tíma og bý að því enn. Það er hollt
að kynnast öðrum þjóðfélögum.
Elín Jóna varð stúdent frá ML
1992 og fór þá beint í Íþrótta-
kennaraskólann á Laugarvatni og
útskrifaðist þaðan tveimur árum
seinna og fór að búa á Tungufelli
upp úr því. „Ég kynntist mann-
inum mínum strax á Réttarballinu
á Flúðum haustið sem ég byrjaði í
Íþróttakennaraskólanum, en hann bjó í sveitinni, svo ég vissi alveg hver hann
var.“ Meðfram bústörfunum fór Elín Jóna að kenna á Þingborg og svo í
Flúðaskóla. „Ég vinn núna sem verkefnastjóri í kerfisstjórnun í ML. Helsta
áhugamál Elínar Jónu er saumaskapur. „Þegar ég var yngri stóð valið á milli
Íþróttakennaraskólans eða að fara í fatahönnun í Iðnskólanum, en ég hef
saumað á mig alveg frá því að ég náði upp á saumavélina.“ Eftir Elínu Jónu
liggja allnokkrir þjóðbúningar og skartar hún eigin búningi á myndinni.
FJÖLSKYLDA Eiginmaður Elínar Jónu er Svanur Einarsson, f. 16.7. 1964,
bóndi í Tungufelli, og þau eiga þrjú börn: Maríönnu, f. 24.10. 1995, sem er að
læra gullsmíði og vinnur núna hjá Siggu og Tímó; Einar Trausta, f. 18.12.
1998, atvinnuflugmann sem vinnur hjá Drop flutningaþjónustu, og Elínu
Helgu, f. 20.11. 2011, heimasætu í Tungufelli. Foreldrar Elínar Jónu eru
Trausti Indriðason bóndi, f. 17.2. 1935 og Elín Guðfinnsdóttir, bóndi, f. 1.2.
1936. Þau búa á Flúðum.
Elín Jóna Traustadóttir