Morgunblaðið - 12.07.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2021
„ÞAÐ ER Í LAGI MEÐ BÍLSTJÓRANN SEM
KEYRÐI AFTAN Á ÞIG – EN HANN VILL FÁ
JÓLATRÉÐ SITT TIL BAKA.“
„VIÐ HÆKKUM VENJULEGA VERÐIÐ UM 30
PRÓSENT!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að setja mikilvægasta
jólaskrautið upp fyrst.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG HEF LÍKA
VERIÐ GÓÐUR!
HEI! ÞETTA ER NETSPJALLIÐ
MITT VIÐ JÓLA!
HVAÐA DRASL
ER ÞETTA?
ÞETTA ER TIL
SKRAUTS!
ÞETTA ER EKKI „SKRAUT“
EF ÞAÐ ER EKKERT ANNAÐ
Á DISKNUM!
SÁSTU EKKI BAUNINA
Í MIÐJUNNI?
MEGRUNIN ENDAR Í
DAG!
Steingrímsdóttir, f. 29.10. 1950, fv.
bankastarfsmaður og húsnæðis-
fulltrúi Mosfellsbæjar. Þau bjuggu í
30 ár í Árbæjarhverfi en hafa búið í
Mosfellsbænum frá 2001. Foreldrar
Kristbjargar eru hjónin Steingrímur
Aðalsteinsson alþingimaður, f. 13.1.
1903, d. 20.12. 1993 og Sigríður Jens-
ína Þóroddsdóttir frá Alviðru í Dýra-
firði, húsfreyja, f. 13.11. 1915, d. 4.12.
1999. Þau voru búsett í Reykjavík.
Börn Walters og Kristbjargar eru 1)
Steingrímur, f. 7.6. 1971, húsasmiður
hjá Aðalvík, kvæntur Elínu Rósu
Finnbogadóttur, teymisstjóra hjá Út-
lendingastofnun, f. 29.8. 1972. Þau
eiga börnin Kristbjörgu, f. 1977 og
Finnboga, f. 2001 og eru búsett í
Mosfellsbæ. 2) Hjörtur, f. 19.2. 1976,
tölvunarfræðingur hjá Bláa Lóninu,
kvæntur Sæborgu Reynisdóttur
kennara, f. 13.6. 1977. Þau eiga Wal-
ter, f. 2000, Kristjönu Sigríði, f. 2004
og Reyni Sæberg, f. 2008 og eru bú-
sett í Grindavík. 3) María, f. 6.7. 1977,
starfsmaður hjá Margt Smátt, gift
Sveinbirni Ólafi Sigurðssyni, f. 10.6.
1974, bílstjóra hjá Loftorku. Þau eiga
synina Guðjón, f. 2003 og Þórð, f.
2006 og eru búsett í Reykjavík. 4)
Sigrún, f. 26.3. 1980, skólaliði á Ísa-
firði, gift Stefáni Erni Jónssyni, f. 6.2.
1979, starfsmaður Örnu í Bolung-
arvík. Þau eiga börnin Aðalstein, f.
2001, Sólveigu Birnu, f. 2005 og Val-
borgu, f. 2011 og eru búsett í Bolung-
arvík.
Systkini Walters eru Haraldur, f.
14.5. 1947, framkvæmdastjóri; Þor-
geir, f. 10.9. 1955, bílstjóri; Eyþór, f.
24.11. 1956, vélstjóri og Jónas, f. 27.3.
1961, sölumaður. Hálfsystir Walters
er Elsa Friedlaender, f. 26.12. 1936,
fv. afgreiðslukona hjá ÁTVR.
Foreldrar Walters eru Hjörtur
Haraldsson vélstjóri, f. 27.8. 1914, d.
27.9. 2008 og Sigrún Haraldsdóttir,
húsfreyja frá Kolfreyjustað í Fá-
skrúðsfirði, f. 14.12. 1923, búsett í
Reykjavík.
Walter
Hjartarson
Martha Danziger
f. í Zulz í Slesíu í Póllandi
Joseph Friedlaender
járnsmiður og sjóliðsforingi,
f. í Berlín, féll í orrustu á
SMS Pommern haustið 1914
Hjörtur Haraldsson
vélstjóri í Reykjavík
(hét áður Heinz Karl
Friedlaender)
Þórey Jónsdóttir
húsfreyja í Neskaupstað
Haraldur Brynjólfsson
fiskmats- og hrepps-
nefndarmaður í Neskaupstað
Guðrún Valborg
Haraldsdóttir
prestsfrú á Kolfreyjustað
Haraldur Jónasson
sóknarprestur á
Kolfreyjustað og prófastur í
Suður-Múlaprófastsdæmi
Rannveig Gísladóttir
prestsfrú í Sauðlauksdal á
Rauðasandi, V-Barð. Síðar
húsfreyja í Reykjavík
Jónas Björnsson
sóknarprestur í Sauðlauksdal
á Rauðasandi, V-Barð.
Úr frændgarði Walters Hjartarsonar
Sigrún Haraldsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Jón Gissurarson skrifar á Boðnar-
mjöð: „Nokkuð oft undanfarnar
vikur hefur hefur bláleit móða frá
eldgosinu í Geldingadölum, stund-
um í bland við moldarmökk og þoku
takmarkað útsýnið héðan frá Víði-
mýrarseli. Alloft hefur móða þessi
verið svo dimm að fjallahringur
Skagafjarðar hefur verið illsjáan-
legur eða alveg hulinn sjónum og
þá jafnvel þó engin ísaþoka hafi
blandast móðunni. Nú hefur birt til
og fjörðurinn allur blasir við í sum-
arblíðunni, en hér andar vindur 3.
m. sek. af suðsuðvestri með 14
gráðu hita. Himinhvolfið er þó að
talsverðu leyti hulið skýjum, en út-
sýnið engu að síður fallegt“:
Undurfagurt útsýnið
yljar huga mínum.
Blönduhlíðin blasir við
björt og fögur sýnum.
Á blámóðunni býðst nú hlé
baðast ljósi jörðin.
Aftur núna yfir sé
allan Skagafjörðinn.
Anton Helgi Jónsson skrifaði á
fimmtudag: „Ég verð á Cafe Dun-
haga, Tálknafirði, kl. 20.30 föstu-
dagskvöldið 9. júlí og ætla mér að
lesa alls konar kveðskap, segja frá
tengslum mínum við Vestfirði, við
Djúpið og djúpin og fara í huganum
yfir heiðina Hálfdán á vit forföður
míns Einars Thorlaciusar sem var
prestur í Otradal. Það stefnir í að
ég verði all-hress en ekki hálf-dán
einsog limrubókarpersónan Beggi
Stínu sem fór einu sinni yfir heiðina
í hauströkkri“:
Tvílráð er trú mín
á heiðinni
en treysta má
sjálfrennireiðinni.
Ég bensínið gef
í botn en ég hef
samt bremsurnar
niðri
í leiðinni.
Friðrik Steingrímsson segir
fréttir að norðan:
Blíðan í sveitinni breytist ei neitt
og blómin í golunni vaggast.
Friðrik er sveittur og ferlega heitt
og frúin er heldur að braggast.
Vigfús M. Vigfússon segir „gamla
ferðasögu endurunna:
Fuglarnir flögra um gleypnir,
fótsmáir, snarir og hleypnir.
Þeir koma upp ungum
í klöngrum og sprungum,
hvar hófanum sló niður Sleipnir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Frá Geldingadölum
í Skagafjörð