Morgunblaðið - 12.07.2021, Side 26
með besta móti og mikilvægt fyrir
liðið að næla í þrjú stig eftir svekkj-
andi 2:3 tap gegn Breiðabliki síðast-
liðið þriðjudagskvöld,“ skrifaði
Gunnar Egill Daníelsson m.a. í um-
fjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
_ Markaskorarar Þróttar, þær
Cousins og Ólöf Sigríður skoruðu
báðar sitt sjötta mark í úrvalsdeild-
inni í sumar. Þróttarar hafa skorað
22 mörk í deildinni á tímabilinu og
þær Cousins og Ólöf Sigríður hafa
því skorað yfir helming marka liðs-
ins.
ÍBV krækti í stig fyrir norðan
Hanna Kallmaier bjargaði stigi
fyrir ÍBV þegar liðið heimsótti Þór/
KA á SaltPay-völlinn á Akureyri.
Colleen Kennedy kom Akureyr-
ingum yfir á 48. mínútu eftir skelfi-
leg mistök Auðar Scheving í marki
Eyjakvenna áður en Hanna Kall-
maier jafnaði metin fyrir Eyjakon-
ur með skoti af stuttu færi úr teign-
um og 1:1-jafntefli því niðurstaðan
á Akureyri.
„Úrslitin í þessum leik þýða það
að Þór/KA hefur ekki ennþá unnið
leik á heimavelli sem hlýtur að telj-
ast áhyggjuefni,“ skrifaði Aron Elv-
ar Finnsson m.a. í umfjöllun sinni
um leikinn á mbl.is.
Jafnteflið gerir lítið fyrir bæði lið
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2021
Pepsi Max-deild kvenna
Þór/KA – ÍBV ........................................... 1:1
Þróttur R. – Tindastóll............................. 2:0
Staðan:
Valur 9 6 2 1 22:12 20
Breiðablik 9 6 0 3 31:15 18
Þróttur R. 10 4 3 3 22:17 15
Selfoss 9 4 2 3 14:12 14
Stjarnan 9 4 1 4 11:13 13
ÍBV 10 4 1 5 16:19 13
Þór/KA 10 3 3 4 10:14 12
Keflavík 9 2 3 4 9:15 9
Fylkir 9 2 3 4 9:18 9
Tindastóll 10 2 2 6 6:15 8
2. deild kvenna
SR – Einherji ............................................ 1:1
Hamrarnir – Álftanes .............................. 2:0
Fram – Fjarðab/Hött/Leikn ................... 4:3
Sindri – ÍR................................................. 0:3
Staðan:
Fjarðab/Höttur/Leiknir
8 7 0 1 35:11 21
Völsungur 8 7 0 1 21:9 21
KH 7 6 0 1 27:4 18
Fjölnir 7 5 0 2 31:9 15
Fram 7 5 0 2 18:10 15
Hamrarnir 8 3 1 4 20:18 10
ÍR 7 3 1 3 16:14 10
Hamar 7 2 2 3 13:17 8
Sindri 6 2 0 4 12:18 6
Einherji 7 1 3 3 5:12 6
SR 7 1 1 5 14:12 4
Álftanes 7 1 0 6 6:14 3
KM 8 0 0 8 1:71 0
Lengjudeild karla
Kórdrengir – Vestri ................................. 2:0
Staðan:
Fram 11 10 1 0 33:9 31
ÍBV 11 7 1 3 20:11 22
Kórdrengir 11 5 4 2 18:14 19
Grindavík 11 5 4 2 22:20 19
Fjölnir 11 5 2 4 13:12 17
Vestri 11 5 1 5 16:21 16
Þór 11 4 3 4 23:18 15
Grótta 11 4 2 5 21:19 14
Afturelding 11 3 4 4 21:23 13
Selfoss 11 2 3 6 19:27 9
Þróttur R. 11 2 1 8 20:28 7
Víkingur Ó. 11 0 2 9 14:38 2
2. deild karla
Völsungur – Njarðvík .............................. 1:0
KF – Haukar............................................. 5:0
Kári – Magni ............................................. 1:2
Staðan:
Þróttur V. 11 7 3 1 25:11 24
Njarðvík 11 5 5 1 26:12 20
KV 11 5 4 2 22:16 19
KF 11 5 2 4 20:17 17
Völsungur 11 5 2 4 22:23 17
ÍR 11 4 4 3 22:18 16
Haukar 11 4 3 4 25:24 15
Reynir S. 11 4 3 4 22:21 15
Magni 11 3 4 4 21:24 13
Leiknir F. 11 4 0 7 17:27 12
Kári 11 1 3 7 15:26 6
Fjarðabyggð 11 0 5 6 6:24 5
3. deild karla
Tindastóll – KFS ...................................... 1:2
Ægir – Höttur/Huginn ............................ 1:1
Víðir – Einherji......................................... 3:0
Dalvík/Reynir – Augnablik...................... 3:1
Sindri – KFG............................................. 4:0
Staðan:
Höttur/Huginn 11 7 2 2 17:13 23
Augnablik 11 6 3 2 27:15 21
KFG 11 5 4 2 17:14 19
Elliði 11 6 0 5 26:16 18
Sindri 11 5 3 3 23:17 18
Ægir 11 4 5 2 15:12 17
Dalvík/Reynir 11 4 2 5 18:16 14
Víðir 11 3 4 4 16:19 13
ÍH 11 2 5 4 16:23 11
Tindastóll 11 2 4 5 22:23 10
KFS 11 3 1 7 13:26 10
Einherji 11 2 1 8 14:30 7
Svíþjóð
Östersund – Gautaborg .......................... 2:3
- Kolbeinn Sigþórsson lék fyrstu 55 mín-
úturnar með Gautaborg og skoraði.
Hammarby – Degerfors.......................... 5:1
- Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með
Hammarby.
Mjällby – Norrköping ............................. 0:1
- Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn
með Norrköping og lagði upp sigurmarkið,
Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn, Jó-
hannes Kristinn Bjarnason var ónotaður
varamaður.
Malmö – Sirius ......................................... 4:0
- Aron Bjarnason lék ekki með Sirius
vegna meiðsla.
Staðan:
Malmö 11 7 2 2 24:16 23
Djurgården 9 6 2 1 16:6 20
Elfsborg 11 6 1 4 15:12 19
Norrköping 10 5 2 3 14:9 17
AIK 10 5 2 3 13:11 17
Hammarby 10 4 3 3 20:15 15
Kalmar 9 3 5 1 9:8 14
Degerfors 10 4 2 4 13:13 14
Gautaborg 10 2 6 2 11:10 12
Sirius 10 3 3 4 11:18 12
Halmstad 9 2 4 3 8:9 10
Mjällby 10 2 4 4 7:10 10
Häcken 9 2 3 4 12:13 9
Östersund 10 2 2 6 14:14 8
Varberg 10 2 2 6 12:20 8
Örebro 10 2 1 7 6:21 7
B-deild:
Helsingborg – Akrapolis ........................ 1:0
- Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Helsingborg.
50$99(/:+0$
ÞRÓTTUR – TINDASTÓLL 2:0
1:0 Katherine Cousins (víti) 29.
2:0 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 47.
M
Andrea Rut Bjarnadóttir (Þrótti)
Jelena Tinna Kujundzic (Þrótti)
Katherine Cousins (Þrótti)
Lorena Yvonne Baumann (Þrótti)
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þrótti)
Shea Moyer (Þrótti)
Kristrún María Magnúsdóttir (Tinda-
stóli)
Murielle Tiernan (Tindastóli)
Dómari: Gunnar Freyr Róbertsson – 8.
Áhorfendur: Um 300.
ÞÓR/KA – ÍBV 1:1
1:0 Colleen Kennedy 48.
1:1 Hanna Kallmaier 65.
.
M
Colleen Kennedy (Þór/KA)
Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA)
Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir (Þór/KA)
Hanna Kallmaier (ÍBV)
Olga Sevcova (ÍBV)
Þóra Björg Stefánsdóttir (ÍBV)
Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinsson – 8.
Áhorfendur: 112.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og
greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot-
bolti.
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Þróttur úr Reykjavík er kominn í
þriðja sæti úrvalsdeildar kvenna í
knattspyrnu, Pepsi Max-deild-
arinnar, eftir sigur gegn nýliðum
Tindastóls á Eimskipsvellinum í
Laugardal í tíundu umferð deild-
arinnar í gær.
Leiknum lauk með 2:0-sigri
Þróttara sem voru mun sterkari að-
ilinn í leiknum allan tímann.
Katherine Cousins kom Þrótti
yfir á 29. mínútu með marki úr
vítaspyrnu sem hún fiskaði sjálf en
hún fór þá illa með varnarmenn
Tindastóls áður en Bryndís Rut
Haraldsdóttir braut á henni innan
teigs.
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir tvö-
faldaði svo forystu Þróttara í upp-
hafi síðari hálfleiks þegar Linda Líf
Boama átti frábæra fyrirgjöf frá
hægri á Ólöfu sem skoraði með við-
stöðulausu skoti upp í samskeytin.
Þróttarar eru með 15 stig í þriðja
sæti deildarinnar, stigi meira en
Selfoss sem á leik til góða á Þrótt,
en Tindastóll vermir botnsætið með
8 stig og er stigi frá öruggu sæti.
„Spilamennska heimakvenna var
en Þór/KA er með 12 stig í sjöunda
sætinu á meðan ÍBV er í því sjötta
með 13 stig.
_ Akureyringurinn Colleen Ken-
nedy skoraði sitt fyrsta mark í
efstu deild í áttunda byrjunarliðs-
leiknum en Þór/KA hefur einungis
skorað 10 mörk í deildinni í sumar.
Þróttarar í
þriðja sætið
Ljósmynd/Jón Helgi Pálmason
Vörn Þróttarinn Ólöf Sigríður Kristinsdóttir í baráttunni við Sauðkræking-
inn Bryndísi Rut Haraldsdóttur á Eimskipsvellinum í Laugardal í gær.
- Akureyringar bíða ennþá eftir sínum
fyrsta deildarsigri á heimavelli í sumar
_ Ángel Di María reyndist hetja Arg-
entínu þegar liðið mætti Brasilíu í úr-
slitaleik Ameríkubikarsins, Copa Am-
erica, á Maracana-vellinum í Ríó í
Brasilíu á laugardaginn. Leiknum lauk
með 1:0-sigri Argentínu en Di María
skoraði sigurmark leiksins á 22. mín-
útu. Þetta var fimmtándi sigur Argent-
ínu í Ameríkubikarnum en liðið vann
síðat keppnina árið 1993. Þá var þetta
jafnframt í fyrsta sinn sem Lionel
Messi, fyrirliði Argentínu, vinnur bikar
með landsliðinu en fjórum sinnum hef-
ur hann hafnað í
öðru sæti á stór-
móti með landslið-
inu; þrívegis í Am-
eríkubikarnum og
á HM 2014 þegar
Argentína tapaði
0:1 fyrir Þjóð-
verjum í fram-
lengdum úrslita-
leik í Ríó í Brasilíu.
_ Birnir Freyr Hálfdánarson bar sigur
úr býtum í 200 metra fjórsundi og
tryggði sér þar með gullverðlaun á
Norðurlandameistaramóti æskunnar í
sundi í Litháen sem lauk í gær. Snorri
Dagur Einarsson og Veigar Hrafn Sig-
þórsson nældu sér svo báðir í brons-
verðlaun á mótinu. Birnir Freyr synti í
gær á tímanum, 2:09,92, en hans
besti tími í greininni var 2:11,20.
Í gær synti svo Snorri Dagur 100
metra bringusund á tímanum 1:07,48,
sem er nærri hans besta tíma. Snorri
varð í þriðja sæti í sundinu og tryggði
sér bronsverðlaun. Á laugardaginn
synti Veigar Hrafn 1.500 metra skrið-
sund á tímanum 16:57,26 og tryggði
sér þar með bronsverðlaun í greininni.
Þetta er besti árangur íslensks sund-
fólks á NÆM síðan árið 2013 en þá
komu íslensku keppendurnir heim
með fern bronsverðlaun.
_ Kraftlyftingakonan Elsa Pálsdóttir
setti á laugardaginn tvö heimsmet á
Evrópumóti öldunga í kraftlyftingum í
Tékklandi í Plzen. Elsa er 61 árs gömul
og keppti í -76 kg þyngdarflokki í ald-
urshópnum 60-69
ára. Hún setti
heimsmet í hné-
beygju þegar hún
lyfti 117,5 kg. Hún
tvíbætti svo eigið
heimsmet þegar
hún lyfti næst 125
kg og svo 130 kg.
Fyrra heimsmet
var 116 kg. Í réttstöðulyftu lyfti hún
157,5 kg og er það sömuleiðis heims-
met. Hún hafði áður á mótinu lyft 140
kg í greininni. Elsa lyfti auk þess 52,5
kg og 60 kg í bekkpressu og bætti hún
þar með einnig heimsmetið í saman-
lögðum árangri um 12,5 kg er hún lyfti
samtals 347,5 kg á mótinu. Hún varð
einnig stigahæsti öldungurinn í sínum
aldursflokki þvert á þyngdarflokka.
Eitt
ogannað
Bergrún Ósk Aðalsteinsdóttir úr
FH stórbætti eigið Íslandsmet í
kúluvarpi þegar hún varpaði kúl-
unni 9,1 metra á Íslandsmóti
Íþróttasambands fatlaðra í Kapla-
krika á laugardag. Fyrra met henn-
ar, sem hafði staðið frá árinu 2018,
var 8,89 metrar.
Þá náði Patrekur Andrés Ax-
elsson úr FH sínum besta árangri í
400 metra hlaupi í flokki blindra.
Bergrún og Patrekur taka bæði
þátt á Ólympíumóti fatlaðra í
Tókýó sem hefst í næsta mánuði.
Stefanía Daney Guðmundsdóttir úr
Eik keppti svo í þremur greinum í
flokki þroskahamlaðra og stóð uppi
sem sigurvegari í þeim öllum; 100
metra hlaupi, 400 metra hlaupi og
langstökki.
Ljósmynd/Jón Helgi
Glaðbeitt Bergrún Ósk hæstánægð með árangur sinn á Íslandsmótinu.
Stórbætti eigið met
Baldvin Þór Magnússon náði frá-
bærum árangri á Evrópumeistara-
móti 23 ára og yngri í frjálsum
íþróttum sem fram fór í Tallinn í
Eistlandi um helgina.
Langhlauparinn hafnaði í þriðja
sæti í 5.000 metra hlaupi á tímanum
13:45,00 mínútum og setti um leið
Íslandsmet í greininni.
Baldvin Þór sló með því viku-
gamalt Íslandsmet Hlyns Andrés-
sonar sem hann setti 3. júlí og hljóp
þá á 13:45,20 mínútum á KBC
Nacht-mótinu í Belgíu.
Baldvin, sem er 22 ára gamall, er
fyrsti íslenski karlmaðurinn til þess
að vinna til verðlauna á Evrópu-
meistaramóti U23.
Kúluvarparinn Erna Sóley hafn-
aði í níunda sæti í kúluvarpi en hún
kastaði kúlunni lengst 15,75 metra í
úrslitum.
Erna bætti sig umtalsvert frá
undankeppninni þar sem hún kast-
aði 15,57 metra en Íslandsmet
hennar í greininni er 16,77 metrar.
Þá jafnaði Tiana Ósk Whitworth
sinn besta árangur á árinu í undan-
rásum í 100 metra hlaupi þegar hún
hljóp á tímanum 12,21 sekúndu en
það dugði ekki til þess að komast
áfram í undanúrslit.
Kringlukastarinn Mímir Sigurðs-
son var fimm sentímetrum frá sæti í
úrslitum þegar hann kastaði kringl-
unni lengst 54,54 metra í undan-
keppninni en hann á best 60,32
metra í greininni.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir
hljóp svo á tímanum 24,40 sek-
úndum í undanrásum í 200 metra
hlaupi sem dugði ekki til að komast
áfram í undanúrslit.
Fyrstur til að vinna
til verðlauna á EM
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
3 Baldvin Þór náði bestum árangri
íslensku keppendanna í Tallinn.