Morgunblaðið - 12.07.2021, Page 28

Morgunblaðið - 12.07.2021, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2021 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Friðrik Sigurjónsson bóndi, Frissi í Skóghlíð, átti margan sprettinn á sinni tíð. Eitt sinn mæltist honum svo: „Jæja, það er best að vera ekki að vinna fyrir tefjandi fólki.“ - - - Eitt sinn að sumri til leit Frissi út að morgunlagi og sá að hafði gránað í fjöll. Honum sagðist svo frá: „Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin fjöllum þegar ég leit út í morgun.“ - - - Kjartan Ingvarsson var stórverk- taki á Egilsstöðum. Hjá honum vann Reynir Magnússon frá Stakkahlíð í Loðmundarfirði (Reyn- ir Lomm). Reynir var bæði vélvirki og bifvélavirki og var búinn að reyna að fá kauphækkun hjá Kjart- ani út á tvöfalda menntun sína, en Kjartan vildi ekki taka það í mál. Eitt sinn voru þeir að brasa við bil- aða vél og verður Reyni þá að orði: „Hvað ætli geti verið að þessu?“ Þá svarar Kjartan: „Þú ættir nú að vita það, þú ert með tvö próf.“ - - - Ármann Halldórsson gröfumaður er einstaklega athugull maður og fer fátt fram hjá honum. Eitt sinn var hann á gröfu sinni að vinna í vegagerð fyrir ofan bæinn Hrólfs- staði á Jökuldal þegar hann tekur eftir beinahrafli sem kemur undan skóflunni. Hann stöðvar vélina og athugar málið og kemst að því að þetta muni vera mannabein. Snar- lega eru kallaðir til fornleifafræð- ingar og brátt kemur í ljós að þarna er um að ræða kuml úr heiðni. Sjónvarpsfréttamenn mæta síðan á staðinn og taka meðal annars viðtal við Ármann þar sem hann lýsir allri atburðarás varðandi beinafundinn. Daginn eftir sjónvarpsviðtalið hittir Magnús Jóhannsson vegagerðar- verkstjóri Ármann og segir í stríðn- istóni: „Það kom ekki fram í viðtal- inu við þig í gær hver hann hefði verið þessi náungi sem þú grófst upp.“ „Nei,“ segir Ármann snúðugt, „það lá í augum uppi að þetta var vegagerðarmaður.“ „Af hverju held- urðu það?“ spyr Magnús. Ármann svarar: „Af því að hann fannst liggj- andi í vegkanti, og þegar litið var inn í höfuðkúpuna sást þar ekkert nema grjót og drulla.“ - - - Magnús Guðmundsson (Maggi Svönu) var lengi til sjós á Reyð- arfirði, fyrst á Gunnari SU 139 og síðar togaranum Snæfugli SU 20. Eitt sinn, áður en haldið var í karfatúr á Snæfuglinum, keypti Maggi sér ný stígvél. Þegar fyrsta halið er tekið ákveður Maggi að nota gömlu stígvélin áfram til að eiga ekki á hættu að skemma þau nýju í karfakösinni. Þegar trollið er komið inn vill svo slysalega til að stór fiskilúga skellur á annan fót Magnúsar sem varð til þess að hann missti allar tærnar. Við höggið sest hann niður og blóðflekkurinn fer ört stækkandi á dekkinu. Skips- félagarnir bregðast skjótt við og fá Magnús til að leggjast út af til að hægja á blóðtapinu meðan börur eru sóttar. Magnús leggst aftur og virðist falla í hálfgert mók um stund, en nokkrir skipsfélagar bíða hjá honum. Skyndilega kallar Maggi til þeirra veikri röddu: „Strákar!, ? strákar!“ Þeir beygja sig allir niður að honum ef vera kynni að þetta væri hinsta bónin. Þá segir Maggi: „Djöfull var heppilegt að ég var ekki kominn á nýju stígvélin.“ - - - Séra Einar Þór Þorsteinsson varð prestur í Kirkju- bæjarsókn á eftir séra Sigurjóni Jónssyni. Í kjölfar embættistöku séra Einars var prestssetrið fært til Eiða þar sem presturinn sat eftir það. Þegar Einar prestur spurði séra Sigurjón, forvera sinn, um það hvernig honum hefðu gengið prests- verkin á löngum embættisferli á Héraði, svaraði Sigurjón: „Mér gekk alltaf vel að skíra, ferma og gifta, en þeir sem ég jarðaði, gengu allir aftur.“ - - - Fljótsdalshreppur er vel statt sveitarfélag eftir að Kárahnjúka- virkjun kom til sögunnar. Má segja að þjónustustig til sveita sé vart hærra en í Fljótsdal. Ferðamanna- straumur hefur vaxið þar mikið enda margt áhugavert í boði, svo sem fjallahótel með heitri laug, óbyggðasetur, þjóðgarður, Gunn- arsstofnun, Hengifoss og síðast en ekki síst Lagarfljótsormurinn sem fólk úr öllum heimsálfum kemur til að hitta eftir að Hjörtur Kjerúlf, bóndi á Hrafnkelsstöðum, náði af honum mynd og birti á YouTube. Hjörtur hefur nú sett af stað ferða- þjónustu til að geta boðið gistingu þeim sem vilja skima eftir orm- inum. Hreppsnefnd Fljótsdalshrepps ákvað að senda eina milljón króna á hvern bæ til að menn gætu bætt ásýnd á heimahlaði vegna þessa mikla gestagangs í sveitarfélaginu. Þegar frá leið sýndist mönnum eitthvað lítið hafa gerst hjá Hirti í ásýnd- armálum og var hann spurður hvort hann ætl- aði ekki að nýta skerf- inn með sýnilegum hætti. „Jú,“ sagði Hjörtur. „Ég ætla að fá mér nýjar tennur til að geta brosað almenni- lega framan í túrist- ana.“ - - - Eitt sinn tók Hákon Aðalsteins- son, skógarbóndi og hagyrðingur, að sér að fylgja tveimur ungum sonarsonum sínum á Seyðisfjörð til keppni á innanhússmóti í fótbolta. Hann hafði ekki fram að því sýnt fótboltaiðkun afkomenda sinna mik- inn áhuga, en ákvað að bæta úr því þarna og styðja dyggilega við bakið á strákunum. Fyrsti leikur þeirra hefst og fljótlega liggur boltinn í netinu. Með það sama stekkur Hákon á fætur í stúkunni og fagnar æðislega. Þá koma afastrákarnir hlaupandi í áttina til hans og kalla hneykslaðir: „Afi! Hvað ert’að pæla! Það var hitt liðið sem skoraði!“ - - - Pétur Jónsson, bóndi á Egils- stöðum, var lengi formaður Hesta- mannafélagsins Freyfaxa og setti öll mót og samkomur sem haldnar voru á vegum þess. Ávörp Péturs voru yfirleitt hátíðleg og ræður hans voru allt að því ljóðrænar þeg- ar best lét. Eitt sinn ávarpaði hann samkomu með þessum orðum: „Heiðraða samkoma, hestar og hestamenn!“ - - - Sveinn Jónsson, stórbóndi á Eg- ilsstöðum og bróðir Péturs, eign- aðist snemma herjeppa, sem þótti mikið þarfaþing fyrir stórt bú eins og Egilsstaðabúið. Sveinn notaði jeppann mikið, en slíkur flýtir var á honum stundum, þegar hann lagði jeppanum, að hann gleymdi að setja hann í gír þegar hann steig út. Seig þá jeppinn gjarnan af stað eftir ein- hverja stund og rann oftar en ekki inn á tún hjá Pétri. Eitt sinn lítur Pétur út um gluggann og segir: „Er hann kominn í túnið eina ferðina enn, jeppinn?“ - - - Gunnar Jónsson, bóndi á Egils- stöðum, þurfti eitt sinn með ungan son sinn til læknis. Þegar þeir mæta á heilsugæslustöðina, þar sem öll samtöl byrja á kennitölum, spyr konan í glerinu hvenær dreng- urinn sé fæddur. Gunnar verður þögull og hugsar þetta atriði dálitla stund, en svarar síðan: ? „Það var haust.“ - - - Þegar Þórunn Sigurðardóttir, húsfreyja á Skipalæk, var orðin ekkja og nálgaðist tíræðisaldurinn var Baldur, sonur hennar og skrá- setjari þessarar bókar, vanur að líta reglulega inn hjá henni til að at- huga daglega líðan. Aðspurð hvern- ig henni farnaðist í ellinni, svaraði Þórunn: „Baldur kemur reglulega, hann vill alls ekki að ég deyi ein og hjálparlaust!“ - - - Gunnar Egilson, flugumferðar- stjóri á Egilsstaðaflugvelli og síðar bóndi á Grund í Eyjafirði, var heimagangur hjá Pétri bónda á Eg- ilsstöðum (Pétri Jónssyni). Pétur, sem var sérfræðingur í að finna mönnum viðurnefni sem festust við þá, breytti strax ættarnafni Gunn- ars úr Egilson í „Egilsen“ og var Gunnar upp frá því undantekning- arlítið kallaður „Egilsen“. Gunnar hafði um tíma hesta sína hjá Pétri og fannst Pétri hann stundum koma seint til að gefa þeim. Talandi um þetta sagði Pétur: „Hann má nú eiga það, hann Egilsen minn, að þegar hann gefur þá gefur hann vel.“ - - - Pétur fékk eitt sinn til sín ungan og fádæma viljugan vinnumann, sem hann nefndi „Blæ“ eftir góð- hestinum Blæ frá Langholtskoti sem stóð efstur tvö landsmót í röð. Blær, þ.e.a.s. vinnumaðurinn, var svo kappsfullur að Pétur hafði gam- an af því að leggja fyrir hann þraut- ir. Meðal annars sagði hann Blæ að Egilsen væri Íslandsmeistari í sjó- manni og yrði hann að reyna sig við hann við fyrsta tækifæri. Blær beið ekki boðanna og birtist einn daginn uppi í flugturni hjá Gunnari og bar upp erindið: „Pétur segir mér að þú sért Íslandsmeistari í sjómanni og nú vil ég reyna mig við þig.“ Gunn- ar fattaði strax grínið hjá Pétri og segir við Blæ: „Nei, það vill svo illa til að ég er tognaður í hendinni núna og get ekki keppt, við verðum að reyna síðar.“ Nokkru seinna kemur Egilsen á Egilsstaðabúið og þá snarast Blær strax til hans og segir: „Jæja, hvernig er handlegg- urinn, getum við ekki keppt núna?“ „Nei, því miður,“ segir Egilsen, „nú er togaraverkfall og bannað að fara í sjómann á meðan.“ Gamansögur af Héraðsmönnum Bókarkafli | Í bókinni Hérasmellir, sem Baldur Grétarsson á Skipalæk tók saman, eru gamansögur af Héraðsmönnum Frissi Friðrik Sigurjónsson bóndi, Frissi í Skóghlíð, átti margan sprettinn. Afasaga Hákon Aðalsteinsson, skógarbóndi og hagyrðingur. Stórverktaki Kjartan Ingvarsson var stórverktaki á Egilsstöðum. Heimagangur Gunnar Egilsen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.