Morgunblaðið - 12.07.2021, Side 32
Skissa eftir endurreisnarmanninn Leonardo da Vinci af
bjarnarhöfði var seld í liðinni viku á uppboði í Christies
fyrir 8,9 milljónir sterlingspunda, jafnvirði um eins og
hálfs milljarðs króna. Er það metupphæð fyrir teikn-
ingu eftir listamanninn á uppboði, að því er segir í frétt
The New York Times. Verkið er afar smátt, um sjö og
hálfur sentimetri á hvora hlið, og talið vera frá upphafi
níunda áratugar fimmtándu aldar.
Agnarsmá skissa seld fyrir jafnvirði
eins og hálfs milljarðs króna
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Tempeh, fersk og gerjuð vegan-
matvara sem er algerlega framleidd
á Íslandi, er væntanleg í matvöru-
verslanir á næstu tveimur mánuðum
að sögn Kristjáns Thors, eins af
stofnendum Vegangerðarinnar sem
sér um að þróa og framleiða tempeh,
meðal annars úr íslensku byggi. Um
er að ræða rétt sem á uppruna sinn
að rekja til Indónesíu og er lítið
þekktur hér á landi þrátt fyrir að
vera einn vinsælasti próteingjafi
heims.
Kristján, sem er með matreiðslu-
gráðu frá Le Cordon Bleu í Banda-
ríkjunum, segir að hugmyndin um að
byrja íslenska framleiðslu á tempeh
hafi sprottið upp árið 2019 eftir að
hann kynntist vörunni í Kaupmanna-
höfn og varð yfir sig hrifinn. Kynnti
hann hugmyndina í kjölfarið fyrir
meðstofnanda Vegangerðarinnar,
Atla Stefáni Yngvasyni. Höfðu þeir
þá tekið eftir því að nánast öll vegan-
matvæli á landinu voru frosin og inn-
flutt og fundu sig knúna til að finna
lausn.
„Við hugsuðum bara: Af hverju
getum við ekki gert þetta hérna
heima úr íslenskum hráefnum? Af
hverju þarf að vera að flytja inn allan
þennan mat?“ segir Kristján í sam-
tali við Morgunblaðið. Lausnina sáu
Kristján og Atli í tempeh sem auð-
velt er að framleiða á Íslandi með al-
gerlega hreinu og fersku hráefni.
Losar steinefni og vítamín
Aðalhráefni tempeh er indónes-
ískur myglusveppur sem er settur
saman við bygg, nærist á því og losar
í kjölfarið um steinefni og vítamín.
„Þetta eru hlutir sem eru í raun læst-
ir inni í bygginu og við komumst ekki
í. Ef þú sýður 100 grömm af byggi þá
færðu meira út úr 100 g af tempeh,“
útskýrir Kristján.
Hann segir að betaprófanir á tem-
peh hafi gengið mjög vel og að flestir
séu mjög spenntir og ánægðir með
vöruna sem er þó afar ólík flestu því
sem Íslendingar eru vanir.
„Þegar [Íslendingar] sjá tempeh
fyrst þá lítur þetta bara út eins og
myglaður kubbur. En þetta er nátt-
úrlega bara það, þetta er myglu-
sveppur,“ segir Kristján kíminn í
bragði. „Þetta er sveppur sem tekur
mjög mikið bragð í sig. Marinerast
mjög vel. Ég hef verið að elda þetta
fyrir fjölskylduna til dæmis með því
að skella þessu á grillið og búa til eins
konar „berbecue“,“ segir Kristján.
„Það er í raun og veru hægt að
gera allt með þetta. Þú getur hakkað
þetta niður, þú getur búið til hakk
fyrir lasagna eða pastasósuna, þú
getur skorið þetta niður og steikt á
pönnu og sett í pítuna þína. Ef þér
dettur eitthvað í hug þá ættirðu að
geta gert það með þessari vöru,“ seg-
ir Kristján.
Vegan Kristján vonar að með tempeh muni fjölbreytni í ferskri vegan-matvöru sem framleidd er á Íslandi aukast.
Glæný íslensk vegan-
vara úr myglusveppi
- Hugmyndin kom vegna skorts á íslenskri vegan-matvöru
ÞINN
STUÐNINGUR
ER OKKAR
ENDURHÆFING
Ljósavinir hafa snert líf mitt án þess að vita það.
Komdu í hópinn!
ljosid.is
MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 193. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Baldvin Þór Magnússon náði frábærum árangri á
Evrópumeistaramóti 23 ára og yngri í frjálsum íþrótt-
um sem fram fór í Tallinn í Eistlandi um helgina.
Langhlauparinn hafnaði í þriðja sæti í 5.000 metra
hlaupi á tímanum 13:45,00 mínútum og setti um leið
Íslandsmet í greininni. Þá hafnaði Erna Sóley Gunnars-
dóttir í níunda sæti í kúluvarpi en hún kastaði kúlunni
lengst 15,75 metra í úrslitum. Erna bætti sig umtalsvert
frá undankeppninni þar sem hún kastaði 15,57 metra en
Íslandsmet hennar í greininni er 16,77 metrar. »26
Hafnaði í þriðja sæti í 5.000 metra
hlaupi á Evrópumeistaramótinu
ÍÞRÓTTIR MENNING