Morgunblaðið - 17.07.2021, Page 1
Fyrst vító,svo fram-lenging
18. JÚLÍ 2021SUNNUDAGUR
Saga afmælanna
Bragi V. Berg-mann, fyrrver-andi dómari,vill fækkasektarlömb-um í spark-heimum. 12
Umræða ávilligötum
Enginn stjórnmála-maður getur efnt loforðum að innleiða „nýjustjórnarskrána“ sisona,það er blekking, segirKristrún Heimisdóttirlögfræðingur í viðtali. 8
Hvers vegna og hvenærbyrjuðum við að fagnafæðingardegi okkar? 18
Algjör nagli!Fannar Guðmundsson mun hlaupa heilt maraþon
í næsta mánuði í nafni sonar síns, Theodórs Mána,
og til styrktar Barnaspítala Hringsins. Theodór
Máni fæddist með sjaldgæfan erfðasjúkdóm og er
ekki hugað langt líf. Hann hefur komið
öllum á óvart með seiglu sinni og
lífsgleði og auðgað líf foreldra
sinna og margra annarra. 14
L A U G A R D A G U R 1 7. J Ú L Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 166. tölublað . 109. árgangur .
ÞRÓTTUR Í
FYRSTA SINN
Í BIKARÚRSLIT
VÖLUSPÁ
TÓK HANN
Á LÖPP
JÓN GNARR Á SÖGULOFTINU 34ÍÞRÓTTIR 32
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Um fimmti hver kaupandi lúxus-
íbúða við Austurhöfn er erlendur.
Sumir hafi tengingu við Ísland en
aðrir hyggjast dvelja hér í fríum.
Gunnar Thoroddsen, eigandi og
stjórnarformaður hjá Íslenskum
fasteignum, segir búið að selja íbúðir
á Austurhöfn fyrir tæplega fjóra
milljarða króna. Íbúðirnar séu að
seljast hraðar en áætlað var.
Meðal annars var þakíbúð, sem
snýr að Hörpu og höfuðstöðvum
Landsbankans, seld á 295 milljónir
en hún er um 200 fermetrar. Hún er
því ein dýrasta íbúðin sem selst hef-
ur í sögu miðborgarinnar.
Gunnar segir verðhækkanir á
fasteignum, lága vexti og skort á
íbúðum hafa örvað söluna.
Verð á lúxusíbúðum á uppleið
Fasteignamarkaðurinn hefur
verið á hreyfingu og hafa t.d. selst
nýjar þakíbúðir á Kársnesi fyrir vel
á annað hundrað milljónir króna.
Almennt hefur markaðurinn með
íbúðir sem kosta 100-200 milljónir
stækkað og hefur það sett íbúðirnar
á Austurhöfn í nýtt samhengi.
Eftirspurn að utan
- Erlendir aðilar hafa keypt lúxusíbúðir á Austurhöfn fyrir
hundruð milljóna - Íbúðir seldar fyrir nærri fjóra milljarða
MSalan nálgast fjóra milljarða »16
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Við Hörpuna Íbúð með þessu útsýni
seldist á 295 milljónir króna.
Fannar Guðmundsson ætlar að
hlaupa heilt maraþon í Reykjavík-
urmaraþoninu 21. ágúst í nafni tíu
mánaða sonar þeirra Önnu Grétu
Oddsdóttur, Theodórs Mána, og
safna um leið áheitum sem renna
munu óskipt til Barnaspítala
Hringsins. Theodór Máni er með af-
ar sjaldgæfan erfðasjúkdóm og er
ekki hugað langt líf.
„Þegar ég var að byrja að æfa átti
ég frekar von á því að hann yrði far-
inn þegar loksins kæmi að hlaupinu.
Nú er ég ekki viss. Það er auðvitað
ekki í okkar höndum, en yrði algjör
draumur að Theodór Máni tæki á
móti mér þegar ég kem í mark og ég
fengi að knúsa hann. Það yrði ómet-
anleg minning,“ segir Fannar. Rætt
er við hann í Sunnudagsblaðinu.
Morgunblaðið/Eggert
Nánir Feðgarnir Fannar Guð-
mundsson og Theodór Máni.
Það yrði
ómetanleg
tilfinning
Þrátt fyrir hvimleitt sólarleysi er þó hægt að
busla og leika sér á ylströndinni í Nauthólsvík.
Pollagalli, húfa og uppbrettar buxur nægja. Íbú-
ar á suðvesturhorninu geta þó verið bjartsýnir á
að hægt verði að sóla sig í dag en spáð er sól-
björtu veðri víða um land um helgina.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Pollagallinn klár
á ylströndinni
Arnar Sigurðsson, eigandi netversl-
unarinnar Sante.is, hyggst leggja
fram kæru á hendur Ívari J. Arndal,
forstjóra ÁTVR, fyrir rangar sak-
argiftir. „Forstjórinn sendir bréf á
ríkisskattstjóra og lögreglustjórann
á höfuðborgarsvæðinu og sakar mig
og fyrirtæki mín um umfangsmikil
skattaundanskot. Hann hefur ekkert
fyrir sér í því annað en þá fullyrð-
ingu að fyrirtæki mitt í Frakklandi
sé ekki með virðisaukaskattsnúmer.
Hann hefði getað haft samband
við skattinn áður en hann lagði af
stað í þennan leiðangur og staðreynt
að fyrirtækið er með þetta númer,
sem er 140848.“ Bendir Arnar á að
ásakanir þær sem forstjórinn haldi
fram varði jafnvel fangelsisrefsingu
og því sé mjög íþyngjandi að sitja
undir dylgjum um slík lögbrot. »11
Kærir for-
stjóra ÁTVR
VAR & HVENÆR SEM ER
ýningarsalurinn okkar er alltaf opinn!
www.hekla.is
s
H
Vef
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.hekla.is Í sumar er opið alla virka daga hjá HEKLU á Laugavegi og Kletthálsi en lokað er á laugardögum.
Audi Q4 e-tron
Verð frá 5.790.000 kr.
ÍÞRÓTTA- OG FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ
Skráning í fullum gangi á ulm.is
Unglingaland
smót
Selfossi um verslunarmanna
helgina