Morgunblaðið - 17.07.2021, Side 11

Morgunblaðið - 17.07.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021 Skipholti 29b • S. 551 4422 Skoðið laxdal.is Opið laugardag kl. 11-15 ENN MEIRI AFSLÁTTUR 40-60% ÚTSALA Skoðið // hjahrafnhildi.is Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is ÚTSALA Meiri verðlækkun! 40% - 60% afsláttur Í samræmi við reglugerð nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit m.s.br., eru starfsleyfisskilyrði til kynningar hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands (HSL) að Austurvegi 65a á Selfossi og á skrifstofu Grímsnes- og Grafningshrepps, Borg, 805 Selfoss. Starfsleyfisskilyrði fyrir Orku Náttúrunnar ohf., vegna orkuvinnslu í Nesjavallavirkjun, Nesjavöllum, Grímsnes- og Grafningshreppi, 805 Selfoss Starfsleyfisskilyrðin eru einnig aðgengileg á heimasíðu HSL: https://hsl.is/ Athugasemdum skal skilað skriflega á skrifstofu HSL að Austurvegi 65a, Selfossi. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 16. ágúst næstkomandi. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands Austurvegur 65a • 800 Selfossi • Sími: 480 8250 • https://hsl.is/ Starfsleyfi til kynningar Í umfjöllun Morgunblaðsins í gær um nýja könnun MMR í samstarfi við mbl.is og Morgunblaðið stóð að fimm flokka þyrfti til að mynda rík- isstjórn án Sjálfstæðisflokks og átta án Sjálfstæðisflokks og Pírata. Rétt er að fjóra flokka þarf í það minnsta til að mynda stjórn án Sjálfstæð- isflokksins og fimm án Sjálfstæð- isflokks og Pírata. Leiðréttist það hér með. LEIÐRÉTT Rangur fjöldi flokka til stjórnarmyndunar Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Arnari Sigurðssyni þykir ÁTVR full- snemma í því að spá fyrir um skatt- svik í ljósi þess að ekki sé komið heilt virðisaukaskattstímabil frá því að netverslunin hóf starfsemi sína. Þess þá heldur sé ekki komið að uppgjöri á slíku tímabili. Honum þykir þetta ný- tilkomna eftirlitshlutverk ekki fara ÁTVR vel. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins, ÁTVR, hefur kært Arnar Sigurðsson, auk frönsku netverslunarinnar San- tewines SAS og inn- flutningsfyrirtækisins Sante ehf. til lögreglu og skattayfirvalda fyrir meint skattsvik. Fyrirtækin eru bæði í eigu Arnars. „Það er erfitt að spá fyrir, sérstak- lega um framtíðina en þeir eru kannski betri spámenn en aðrir,“ seg- ir Arnar og vísar til stjórnenda ÁTVR. Aðspurður hvort Arnar hafi í hyggju að svíkjast undan skatti segir hann kíminn að það hafi ekki verið rætt sérstaklega innanhúss. Hann veltir fyrir sér hvort rétt sé að líta á þetta sem tillögu frá ÁTVR frekar en ásakanir. „Ef meiningin hefði verið að svíkj- ast undan skatti þá er það ekki alveg tímabært.“ Arnar bendir á að virðisaukaskatt- ur á áfengi sé ekki nema 11%, líkt og á öðrum matvælum. „Manni þætti það nú ljótur leikur að reyna að svindla á svo hógværum virðisauka- skatti.“ Númerið kemur fram Í kærunni er helst byggt á því að hið franska félag hafi hvorki íslenska kennitölu né virðisaukaskattsnúmer og því enga heimild til þess að inn- heimta hér virðisaukaskatt en þrátt fyrir það sé lagður 11% skattur á vörusölu fyrirtækisins. Arnar segir að virðisaukaskatt- snúmerið komi fram á reikningum fé- lagsins og kveðst því ekki hafa séð nein haldbær rök fyrir ásökununum. Ekki góð stjórnsýsla „Ég hef aldrei svikist undan skatti og það hefur bara ekki hvarflað að mér. Það er fangelsi við þessu og svona, ekkert mjög aðlaðandi,“ segir Arnar. Það að gefa út rangar sakargiftir að órannsökuðu máli þykir Arnari ekki góð stjórnsýsla. Nauðsynlegt sé að bregðast við og að höfðu samráði við lögfræðinga mun hann í nýrri viku leggja fram kæru á hendur forstjóra ÁTVR vegna rangra sakargifta. Hann bendir á að Sante sé að selja sömu vörur og ÁTVR á 25% lægra verði. Þetta henti ekki ÁTVR. „Þá er kannski bara hægt að grípa til róg- burðar eða rangra sakargifta.“ Að sögn Arnars hefur ÁTVR verið iðið við að blekkja almenning á Ís- landi í gegnum tíðina. „Í fyrsta lagi að stofnunin tryggi gott vöruúrval, í öðru lagi lágt vöruverð, í þriðja lagi torvelt aðgengi og svo kannski það fjórða, að allir samkeppnisaðilar þeirra séu skattsvikarar.“ Líkt og áður kom fram er ÁTVR búin að leggja fram kæru á hendur Sante bæði til lögreglu og til skatta- yfirvalda. „Eigum við ekki bara að leyfa þess- um ágætu stofnunum, sem eru sem betur fer sjálfstæðar, að vinna sína vinnu og það verður þá bara haft samband við okkur ef þau gruna okk- ur um skattsvik.“ Arnar spyr síðan hvenær ÁTVR hafi orðið að eftirlitsstofnun. „Mér sýnist þeir jafnvel lélegri í þessu en í vali á vínum.“ ÁTVR heldur því jafnframt fram að viðskipti þau sem Santewines SAS, hið franska félag, bjóði upp á sé „augljós málamyndagjörningur“ þar sem vínið sem selt er til neytenda sé flutt inn af hinu íslenska Sante ehf. en svo selt áfram til Santewines SAS sem selji það svo áfram í gegnum verslun sína á netinu á meðan vínin sitji allan tímann í sömu vörugeymsl- unni. Arnar gefur lítið fyrir þetta. Hann sé ekki að reyna að sniðganga lögin heldur séu viðskiptin sett upp með þessum hætti til þess einmitt að vera í samræmi við lög. Hér sé ekki um að ræða verslun sambærilegri þeim sem ÁTVR rekur. „Hér er bara vöruhús og netversl- un. Við erum ekki í Smáralind eða Kringlunni að trana okkur fram með útstillingargluggum, framan í andlit- ið á veiklinduðum sem eiga leið framhjá að kaupa í matinn.“ Arnar telur að stjórnendur ÁTVR ættu að líta í eigin barm og einbeita sér að því að mæta samkeppni með betri þjónustu, lægra verði og betra úrvali. „Afrakstur hjá þessu félagi verðlega, vörulega og úrvalslega er ekki í samræmi við það að yfirstjórn- in kosti 350 milljónir á ári,“ segir Arn- ar. Segir ÁTVR blekkja almenning Morgunblaðið/Eggert Víninnflytjandi Arnar Sigurðsson hjá Santé svarar kæru ÁTVR. Arnar segir undarlegt að ÁTVR snúist gegn sér en ekki öðrum netverslunum með áfengi. „Efnameiri einstaklingar hafa hingað til getað keypt vín í miklu magni af erlendum vef- síðum. Nú þegar almenningi býðst að kaupa algengar teg- undir á borð við Stellu eða Pe- roni á fjórðungi lægra verði, rís yfirstjórn ÁTVR upp á afturlapp- irnar til að verja hagsmuni sinna hilluplásshafa.“ ÁTVR gegn almenningi LÆGRA VERÐ - Eigandi Santé segir forstjóra ÁTVR stunda rógburð í garð samkeppnisaðila - Spyr hvort ÁTVR sé orðin eftirlitsstofnun í stað verslunar - Leitar réttar síns Atvinna Eftir eins og hálfs dags hlé tók eld- gosið í Geldingadölum aftur við sér í gær. Gosóróinn jókst og tók al- mennilega við sér upp úr klukkan tíu í gærmorgun. Hraunflæðismæl- ingar fara almennt fram með þeim hætti að flogið er yfir svæðið og mælt úr lofti. Vegna töluverðrar þoku undanfarna daga hefur lítið verið hægt að mæla. Í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi sagði náttúruvársérfræðingur á vakt að ætla mætti að hraunflæði væri um 10 rúmmetrar á sekúndu. Flugvél á vegum Veðurstofunnar flaug nokkrum sinnum yfir svæðið í gær og mátti sjá að gígurinn var að fyll- ast. Það var svo seinni part dags að sjá mátti á vefmyndavél mbl.is að hraun tók að flæða úr gígnum af miklum krafti. Um mikið sjónarspil var að ræða en hraunið fossaði upp úr gígnum, spýttist af krafti í allar áttir og rann inn í Meradali. Hraun rennur af full- um krafti í Meradali Kraftur Eldgosið í Geldingadölum tók aftur myndarlegan kipp í gær. Morgunblaðið/Vefmyndavél mbl. María Björk Ein- arsdóttir hefur verið ráðin fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Eimskips en Egill Örn Petersen, sem hefur verið fjármálastjóri frá ársbyrjun 2019, hefur sagt stöð- unni lausri vegna persónulegra ástæðna og mun taka við nýju starfi á Fjármálasviði, seg- ir í tilkynningu frá fyrirtækinu. María Björk hefur sl. sjö ár starf- að sem framkvæmdastjóri Ölmu íbúðafélags (áður Almenna leigu- félagið). Hún er með B.Sc. í rekstr- arverkfræði með áherslu á fjármál frá HR og próf í verðbréfavið- skiptum. María er í sambúð með Ellerti Arnarsyni, eiga þau tvö börn. María nýr fjármála- stjóri Eimskips María Björk Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.