Morgunblaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 16
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gunnar Thoroddsen, eigandi og
stjórnarformaður hjá Íslenskum
fasteignum, segir búið að selja íbúðir
á Austurhöfn fyrir tæpa fjóra millj-
arða króna eða um þriðjung af íbúð-
unum. Alls eru þar 67 íbúðir auk
fjögurra þakíbúða við Bryggjugötu.
„Það er góður gangur í sölunni.
Við erum alsælir
enda gengur
þetta í raun hrað-
ar en við áætluð-
um. Við höfum til
dæmis selt sex
íbúðir í júlí fyrir
rúma 1,2 millj-
arða,“ segir
Gunnar. Þá sé bú-
ið að selja at-
vinnuhúsnæði á
jarðhæð fyrir tvo milljarða. Sölu-
verðmæti íbúða og atvinnuhúsnæðis
nálgast því sex milljarða.
Um fimmti hver kemur að utan
– En hverjir skyldu vera að kaupa
íbúðirnar?
„Það eru bæði Íslendingar og út-
lendingar. Um fimmti hver kaupandi
er erlendur.“
– Hvað segja erlendir kaupendur?
Ætla þeir að dvelja hér á sumrin?
„Það er allur gangur á því. Sumir
eru með annan fótinn hér á landi,
hafa miklar tengingar við landið og
eiga fjölskyldu á Íslandi. Aðrir hugsa
sér þetta sem stað til að dvelja á
þegar þeir eru í fríi á Íslandi.“
– Hvað segja Íslendingarnir? Er
þetta fólk sem er að minnka við sig
eða býr það jafnframt erlendis?
„Það er sömuleiðis allur gangur á
því. Þetta er fólk sem er að minnka
við sig og fólk sem er að fjárfesta. Og
fólk sem er að fara úr einni í íbúð í
aðra. Það sem fólk er almennt að
segja við okkur er að gæði íbúðanna,
staðsetningin og varan öll sé þannig
að fólk sjái verðmæti í að eiga íbúð á
þessum stað. Telur það góða fjár-
festingu. Þess má geta að söluverðið
er nánast 100% af listaverði. Við höf-
um ekki gefið afslátt heldur kaupir
fólk íbúðirnar á uppsettu verði.“
– Hvað með þakíbúðirnar? Til
dæmis stóru þakíbúðirnar fjórar við
Bryggjugötu hafnar megin?
„Þessar fjórar íbúðir eru óseldar.
Hins vegar höfum við selt þakíbúð
við Reykjastræti á 295 milljónir.“
– Gangið þið út frá því að allar
íbúðirnar verði seldar á næsta ári?
„Já. Það er raunhæft miðað við
ganginn að undanförnu, að stór hluti
verkefnisins verði seldur nú í haust.“
– Hafa verðhækkanir á sérbýli
orðið til að örva söluna?
„Ég ætla það. Hin almenna verð-
hækkun á sérbýli og fjölbýli hefur
stutt við söluna. Svo hefur vaxta-
stigið haft áhrif og takmarkað fram-
boð á íbúðum,“ segir Gunnar.
Kosta 14-15 milljarða
Áætlað var í ViðskiptaMogganum
í desember að söluverðmæti um 70
íbúða á Austurhöfn væri rúmlega
13,1 milljarður króna. Verðlistinn
hafði þá verið kynntur en verð íbúða
á efstu hæð var ekki gefið upp.
Síðan kom fram í ViðskiptaMogg-
anum 28. apríl að verð dýrustu þak-
íbúðarinnar væri um 500 milljónir.
Má því ætla að samanlagt kosti íbúð-
ir 14-15 milljarða, að sjö þakíbúðum
meðtöldum. Við það bætist að at-
vinnuhúsnæðið kostaði tvo milljarða.
Salan nálgast fjóra milljarða
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Horft til vesturs Hægra megin eru tveggja hæða þakíbúðir í bakgarði.
- Búið er að selja rúmlega fjórðung íbúða á Austurhöfn - Söluverðmætið nálgast fjóra milljarða
- Innlendir og erlendir kaupendur - Þakíbúð seld á 295 milljónir - Íbúðir keyptar sem fjárfesting
Gunnar
Thoroddsen
Sýningaríbúð Fullbúin stofa með
listaverkum og steyptu sófaborði.
Þakíbúð Horft til suðurs, í átt að Geirsgötu, frá neðri hæðinni í tveggja
hæða þakíbúð. Mikil lofthæð er í þakíbúðum í þessum hluta Austurhafnar.
16 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
hafnar. Við opnunina á Austurhöfn
verði tekið mið af opnun fyrirhug-
aðs lúxushótels Marriott Edition
milli Austurhafnar og Hörpu.
„Við reiknum með að opna seint í
haust þegar hótelið hefur verið
opnað,“ segir Helgi um Austurhöfn.
Hann segir aðspurður að endur-
gerð Kolaportsins í Hafnarþorpið
muni styrkja svæðið enn frekar í
sessi sem þjónustukjarna.
Á næstu vikum sé meðal annars
stefnt að því að opna Levi’s-verslun
á Hafnartorgi.
„Við erum að
bíða eftir því að
línur fari að
skýrast og erum
að meta hvenær
skynsamlegt er
að fara í gang.
Þegar við förum
í gang þá klárum
við verkefnið, því
við erum búin að
leigja nánast allt
út,“ segir Helgi um rými Regins á
jarðhæð Hafnartorgs og Austur-
Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Reg-
ins, segir umskiptin í ferðaþjónustu
hafa haft mikil áhrif á rekstur
fyrirtækja á Hafnartorgi. Það sé
greinilegur stígandi í veltunni.
Handan Geirsgötu er Reginn
jafnframt með jarðhæðina á
Austurhöfn. Verða þar annars
vegar matarmarkaður og veitinga-
hús og hins vegar verslanir.
Helgi segir aðspurður að þessi
rými verði tekin í notkun þegar
óvissan varðandi kórónuveiru-
faraldurinn er endanlega að baki.
Opna markaðinn í haust
- Reginn bíður eftir því að lúxushótelið verði opnað
Austurhöfn Jarðhæðin verður leigð undir veitingarými og verslanir.
Helgi S.
Gunnarsson
Unnur Sverris-
dóttir, forstjóri
Vinnumálastofn-
unar, segir útlit
fyrir að áfram
muni draga úr at-
vinnuleysi á Suð-
urnesjum. Fram
kom í júnískýrslu
Vinnumálastofn-
unar að í maí
mældist 18,7% at-
vinnuleysi á svæðinu. Það hafði svo
lækkað í 13,7% í júní og telur Unnur
raunhæft að talan verði komin niður
í eins stafs tölu í haust.
„Ef fram heldur sem horfir og við
getum haft landamærin opin, og
tekið á móti öllu þessu fólki, er ég
nokkuð viss um að þessi tala muni
lækka,“ segir Unnur um atvinnu-
leysið suður með sjó. Svæðið er háð
ferðaþjónustu og varð því fyrir
þungu höggi í faraldrinum.
Heildartalan muni lækka
Varðandi horfurnar á landinu öllu
í haust segir Unnur að Vinnumála-
stofnun sé almennt hikandi við að
gefa út spár um atvinnuþróun.
„Ég er samt sem áður nokkuð viss
um að heildartalan muni lækka fram
í september,“ segir Unnur.
Skráð atvinnuleysi í júní var 7,4%,
samkvæmt skilgreiningu Vinnu-
málastofnunar, og telur Unnur að-
spurð ekki útilokað að sú tala verði
komin niður í 6-7% í haust. Um
14.300 voru án vinnu í haust.
Að sögn Unnar er áætlað að annað
hvert starf sem hafi skapast á síð-
ustu vikum sé í ferðaþjónustu.
Samhliða fjölgun starfa í ferða-
þjónustu hafi margir verið endur-
ráðnir í kjölfar þess að íþróttastarf,
menningarstarf, tónleikahald, veit-
ingarekstur og önnur þjónusta tók
við sér á nýjan leik.
Unnur segir aðspurð líkur hafa
minnkað á að kórónukreppan hafi
langvarandi áhrif á atvinnustigið.
„Ég sannarlega vona það. Við-
spyrnan er hraðari en við bjuggumst
við,“ segir Unnur. baldura@mbl.is
Áfram muni draga hratt
úr atvinnuleysi á Íslandi
Unnur
Sverrisdóttir
- Forstjóri VMST áætlar að það verði komið niður í 6-7% í haust