Morgunblaðið - 17.07.2021, Page 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021
510 7900
Bæjarlind 4 / 201 Kópavogur
www.FASTLIND.is
Heklubyggð í nágrenni Heklu
STÆRÐ: 86 FM SUMARHÚS
SUMARHÚS Á EIGNARLÓÐ
Heyrumst
Lára Þyri
Löggiltur fasteignasali
899 3335
lara@fastlind.is
LIND fasteignasala kynnir fallegt sumarhús á eignarlóð í Heklu-
byggð í nágrenni Heklu, ca 110 km fjarlægð frá Reykjavík.
Glæsilegt útsýni. Húsið er 86 fm að stærð, á steyptum sökkli, hiti
í gólfum, tvö svefnherbergi, rúmgott baðherbergi, geymsla og
stór pallur. Lítill útiskúr undir grill o.fl. Húsið er nýmálað að innan
og var málað að utan fyrir þremur árum. Þakjárn var endurnýjað
2020. Lóðin er 1,6 hektara eignarlóð. Svæðið er hluti af Suður-
landsskógum. Innbú má fylgja með að mestu.
Urður Egilsdóttir
Rebekka Líf Ingadóttir
Yfir 120 manns hafa látist í flóðum í
Vestur-Evrópu. Fjölda fólks er enn
saknað. Ástandið er einna verst í
vesturhluta Þýskalands en yfir 100
hafa látist þar og mikill fjöldi hefur
þurft að yfirgefa heimili sín.
Þá eru að minnsta kosti 22 látnir í
Belgíu en flóðin hafa einnig áhrif á
Holland, Lúxemborg og Sviss. Fjöl-
mörg íbúðarhús hafa borist með flóð-
unum og enn fleiri hús hafa hrunið.
Flætt hefur yfir götur og bifreiðar
borist með strauminum. Víða er raf-
magnslaust.
Stjórnmálamenn benda á lofts-
lagsbreytingar sem raunverulega
ástæðu flóðanna en vísindamenn
hafa lengi bent á að með breyting-
unum megi búast við úrhellisrign-
ingum líkt og þessum.
Hefði getað farið verr
„Við erum rosalega heppin þar
sem þetta gerðist rosalega hratt. Ég
hefði ekki viljað spyrja að leikslokum
ef þetta hefði gerst um nóttina,“ seg-
ir Sjöfn Mueller Thor prestur, en
hún býr ásamt fjölskyldu sinni í vest-
urhluta Þýskalands í bænum Inden.
„Maður áttaði sig fljótlega á því að
það var ekkert sem við gátum gert
nema að hjálpa eldri nágrönnum að
komast út,“ segir Sjöfn og bætir við
að kjallarinn á heimili hennar hafi
fyllst af vatni. „Ég er ekki einu sinni
farin að sjá ofan í kjallarann, vatnið
hefur lítið minnkað en ég reikna með
að gólfið þar sé allt ónýtt,“ segir
Sjöfn og bætir við að það eina sem
hún hafi náð að bjarga var jóla-
skrautið.
Þá segir Sjöfn að heimili hennar sé
vatns- og rafmagnslaust og því hafi
fjölskylda hennar þurft að gista í
kirkju í nágrannabæ en maður
Sjafnar er einnig prestur. Hún segir
mikla samstöðu vera hjá nágrönnum
hennar og fólk hjálpist nú að við að
bera út dót þar sem búið sé að
pumpa vatni úr kjöllurum. „Maður
er bara fegin að þetta fór ekki verr
hjá okkur,“ segir Sjöfn.
Aurskriða féll í bænum Erftstadt-
Blessem í gær. Fjöldi húsa hrundi og
fengu björgunaraðilar mörg neyðar-
köll frá fólki sem var festist vegna
flóðanna. „Ég óttast að við eigum að-
eins eftir að sjá afleiðingar þessara
hörmunga á næstu dögum,“ segir
Angela Merkel Þýskalandskanslari.
AFP
Aurskriða Yfir 120 manns hafa látist í flóðunum í Vestur-Evrópu. Ástandið er einna verst í vesturhluta Þýskalands en yfir 100 hafa látist þar. Fjöldi fólks hefur þurft að yfirgefa heimili sín og
mörg svæði eru án rafmagns. Í bænum Erftstadt-Blessem nálægt borginni Bonn féll aurskriða í gær sem olli gríðarlegri eyðileggingu. Mörg neyðarköll bárust frá fólki sem festist vegna flóða.
„Þetta gerðist rosalega hratt“
- Yfir 120 látist og fjölda fólks enn saknað - Fjölmörg íbúðarhús borist með flóðunum eða hrunið
Úrhellisrigning Flætt hefur yfir götur og bifreiðar borist með strauminum.
Dómstóll í Hvíta-Rússlandi sak-
felldi í gær ellefu háskólanem-
endur og tvo kennara þeirra fyrir
þátttöku í mótmælum gegn
stjórnvöldum eftir sigur Alexand-
er Lukasjenkó í forsetakosningum
í fyrra. Forsetinn situr nú sitt
sjötta kjörtímabil. Nemendurnir
hlutu dóma allt frá sex mánuðum
upp í tveggja ára fangelsi. Há-
skólanemar hafa verið at-
kvæðamiklir í mótmælum gegn
Lukasjenkó og telur Amnesty Int-
ernational að nokkur hundruð
þeirra hafi verið teknir höndum,
sektaðir og jafnvel reknir úr skól-
um fyrir þátttökuna.
Þá voru ellefu nemendur til við-
bótar handteknir og ráðist var
inn á heimili 18 blaðamanna, að
minnsta kosti þrír þeirra voru
handteknir fyrir andstöðu við
stjórnvöld.
HVÍTA-RÚSSLAND
Handtaka háskólanema og blaðamenn
AFP
Mótmæli Fjölmenn mótmæli spruttu
upp eftir forsetakosningar í landinu.
Forseti Suður-Afríku, Cyril Ramaphosa, segir víst að
óeirðirnar sem staðið hafa yfir í landinu frá því í síðustu
viku, þegar fyrrverandi forseti landsins Jacob Zuma var
handtekinn, séu skipulagðar. „Það er alveg ljóst að þessi
ófriður var skipulagður af einstaklingum sem samrýma
aðgerðir. Við munum elta þá uppi, við höfum nú þegar
borið kennsl á fjölda þeirra. Við munum ekki leyfa
stjórnleysi og óreiðu að þróast í landinu okkar,“ segir
Ramaphosa. Að minnsta kosti 212 eru látnir af völdum
óeirðanna, sumir hafa orðið fyrir skoti en aðrir látist
vegna troðninga. Ramaphosa fór til KwaZulu-Natal-
héraðs og hélt blaðamannafund í gær en héraðið er
heimahérað Zuma og sætir hann þar fangelsi. Óeirðirnar hafa verið einna
blóðugastar í héraðinu. Ramaphosa hefur líst ofbeldinu í héraðinu sem því
versta sem íbúar Suður-Afríku hafa upplifað í þrjá áratugi.
SUÐUR-AFRÍKA
Segir óeirðirnar vera skipulagðar
Cyril
Ramaphosa