Morgunblaðið - 17.07.2021, Page 18

Morgunblaðið - 17.07.2021, Page 18
FRÉTTASKÝRING Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is B reiðþota af gerðinni 787 Dreamliner kom inn til lendingar á Keflavík- urflugvelli síðdegis á mið- vikudag. Um borð voru á þriðja hundrað ferðamanna frá Ísrael. Fljótt á litið virðist vélin eins og hver önnur af þessari sömu tegund en svo er alls ekki raunin. Sú sem hérna lenti er ein 12 véla sömu tegundar í flota ísraelska flugfélagsins El Al og ber einkennisheitið Hod HaSharon. Er hún nefnd eftir fornri borg í mið- hluta Ísraels. Það sem skilur þessa vél, og raun- ar allar sem fljúga undir merkjum El Al, frá öðrum farþegaþotum heims- ins (sömu ráðstafanir hafa verið gerðar varðandi vélar ísraelsku flug- félaganna Arkia og Israir), eru þær öryggisráðstafanir sem gerðar eru í kringum útgerð þeirra, bæði á jörðu niðri en ekki síður í lofti. Allt frá árinu 2004 hafa allar vélar El Al verið búnar sérstökum eld- flaugavarnabúnaði sem nefnist Flight Guard. Er þar á ferðinni radarbúnaður sem bregst við ef hita- stýrðum eldflaugum er beint að vél- unum. Verði búnaðurinn var við hættu af því tagi losar hann eins- konar blys sem gerð eru úr málmi eða magnesíum sem brennur við hærra hitastig en myndast í þotu- hreyflum vélanna. Þannig truflar búnaðurinn aðsteðjandi eldflaug sem tekur að elta hinn sleppta búnað og springur fjarri flugvélinni. Aðsteðjandi ógn Það er ekki að ástæðulausu sem Flight Guard-tækninni var komið fyrir í vélum El Al með ærnum til- kostnaði. Árið 2002 skutu hryðju- verkamenn tveimur hitastýrðum eld- flaugum að ísraelskri farþegaþotu þar sem hún var í flugtaki frá al- þjóðaflugvellinum Moi í Mombasa. Þær geiguðu en engu mátti muna að misindismönnunum tækist að granda vélinni og öllum 250 farþeg- unum sem um borð voru. El Al var stofnað árið 1948 af hinu nýstofnaða Ísraelsríki og var ein birtingarmynd þess stolts sem bjó í huga fólksins sem landið byggði. Á öllum tímum hafa öryggis- ráðstafanir verið miklar í kringum félagið, enda Ísraelar tekist á við hryðjuverkavá af ýmsu tagi, m.a. flugrán en ein þekktasta árásin af því tagi er kennd við Entebbe- flugvöllinn í Úganda og átti sér stað í júnímánuð 1976. Þaðan leystu ísr- aelskir sérsveitarmenn á þriðja hundrað farþega Air France úr haldi sem mannræningjar höfðu gripið höndum og hótuðu að myrða ef ekki yrði gengið að kröfum þeirra. Vegna ógnar af þessu tagi eru allir flugmenn El Al fyrrum hermenn í ísraelska flughernum og um borð í öllum vélum sem fljúga undir merkj- um félagsins eru tveir óeinkennis- klæddir og vopnaðir leyniþjón- ustumenn sem ferðast meðal annarra farþega og ekki er upplýst um hverjir séu. Hafa þeir heimild yf- irvalda til þess að fella hryðjuverka- menn sem gera sig líklega til þess að ná valdi á þeim vélum sem þeir gæta hverju sinni. Ráðstafanir á jörðu niðri Á jörðu niðri eru ráðstafanir einn- ig miklar og gjarnan fer fram tvöföld vopnaleit gagnvart þeim sem fara um borð í vélar El Al, og raunar ann- arra farþegaþota sem beint er á Ben Gurion-flugvöll í Tel Aviv. Á vell- inum þar í landi starfa einnig sér- þjálfaðir starfsmenn ríkisins sem yf- irheyra ferðalanga sem búa sig til innritunar í bygginguna. Hefur blaðamaður m.a. reynt það á eigin skinni. Árið 2018 var hann í hópi ferðalanga og var fyrirsvarsmaður hans dreginn til hliðar og spurður um ferðir hópsins og tilgang ferða- lagsins. Á sama tíma var annar úr hópnum dreginn til hliðar og spurður samsvarandi spurninga. Voru svörin svo borin saman. Olli það nokkrum vandkvæðum að við komuna til landsins höfðu ferðalangarnir verið 32 en við brottför aðeins 30. Tóku er- indrekar ríkisins því mátulega trú- anlegt að tveir úr hópnum hefðu ákveðið að lengja dvöl sína í landinu og halda í kjölfarið yfir til Jórdaníu. Líkt og fram hefur komið í um- fjöllun Morgunblaðsins er von á fleiri vélum úr flota El Al til landsins á komandi vikum. Þar er um að ræða leiguflug í samstarfi við ísraelska ferðaskrifstofu sem markaðssetur lúxusferðir til Íslands. Öryggisráðstafanir ólíkar öllum öðrum AFP El Al er að meirihluta í eigu einkaaðila en ísraelska ríkið á hlut í því. Floti El Al Fjöldi Boeing 787 12 Boeing 787-8 3 Boeing 737 15 Boeing 737-900ER 8 Boeing 777-200ER 6 Samtals 44 18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Því eru tak- mörk sett að líta megi svo á að Evrópusam- bandið sé stjórn- tækt og það er kominn tími til að skipta um kúrs og leggja áherslu á að draga úr miðstýringu og lárétt samstarf í stað þess að auka miðstýringuna og stigveldi þar sem valdboðið kemur að ofan. Þetta er niðurstaða þýska félagsfræðingsins Wolfgangs Streecks, sem í nýrri bók sinni, Milli alþjóðavæðingar og lýð- ræðis, segir að Evrópusam- bandið gangi ekki upp. Streeck, sem kemur af vinstri vængnum, er virtur í sínu fagi og stýrði um tíma samfélagsrannsóknum við Max Planck-stofnunina í Köln, er í viðtali í nýjasta tölublaði viku- blaðsins Der Spiegel. Þar kallar hann ESB frjáls- lynt heimsveldi vegna þess að það þurfi að tryggja samstöðu innan þess án þess að beita hernaðarlegum meðulum. Það geri miklar kröfur til þeirra meðala, sem fyrir hendi séu, peninga og fallegra orða. Þá sé mikilvægasta stjórntækið í slíku heimsveldi að stýra valda- stéttinni. Með því eigi hann við að tryggja að í aðildarríkjum ESB sé við völd pólitísk stétt, sem sé hlynnt miðstjórninni. Streeck vísar því í viðtalinu á bug að ESB sé bandalag full- valda ríkja. Þegar spyrillinn segist ekki þekkja neitt dæmi þess að í Brussel hafi verið reynt að sópa burt óvinveittri ríkisstjórn, spyr hann á móti hvort hann muni ekki hvernig komið var fram við Grikki í evr- ukreppunni eða hvernig Evr- ópusambandsríkin undir for- ystu Þjóðverja og Frakka komu Mario Monti til valda á Ítalíu. Þá sé augljóst að í Brussel sé verið að reyna að knýja fram stjórnarskipti í Pól- landi og Ungverjalandi með því að hóta að stöðva eða takmarka fjárstuðning frá Evrópusam- bandinu. Vandinn sé sá að rík- isstjórnir þessara landa hafi verið kjörnar með lýðræð- islegum hætti. Evrópusam- bandið sé að reyna að stýra ut- an og ofan frá og segja stjórn- völdum fyrir verkum og það geti komið í hausinn á því. Kveðst Streeck telja að Viktor Orban, leiðtogi Ungverjalands, muni græða pólitískt á inn- gripum Evrópusambandsins næst þegar gengið verður til kosninga þar í landi. Félagsfræðingurinn leyfir sér að auki að efast um hvort það sé verkefni Evrópusam- bandins að segja til um ágrein- ing innan landa á borð við Ung- verjaland. „Almennt held ég að borgarar lands þurfi sjálfir að berjast fyrir lýð- ræðinu. Það á einn- ig við í Rúmeníu og Búlgaríu. Ekkert slíkt land er til frambúðar stjórn- tækt að utan eftir evrópskri einingaruppskrift,“ segir hann. Streeck hefur einnig hörð orð um evruna. Hún sé upp- spretta velmegunar í Þýska- landi og lykilástæða efnahags- vanda ríkjanna við Miðjarðar- haf. Myntin kljúfi Evrópu í stað þess að sameina hana. Efnahagsstjórnmál í Evrópu hafi í það minnsta síðan í kreppunni 2008 snúist um leið- ir til þess að lappa upp á mynt- bandalagið án þess að tekið hafi verið á grundvallarvand- anum. Aðgerðir á borð við ein- skiptis innspýtingu sjóða til Ítalíu séu aðeins brot af því sem þurfi til eigi Grikkir, Ítalir og Spánverjar að geta byggt upp hjá sér að nýju mennta-, stjórn- og heilbrigðiskerfi, sem hafi skroppið saman undanfar- inn áratug vegna aðhalds- og sparnaðarkrafna myntbanda- lagsins. Streeck veltir því upp hvort í Evrópu væri mögulegt að koma á ríkjaskipan, sem ekki byggði á miðstýringu og yfir- þjóðlegu valdi heldur sam- starfi. Þegar hann er spurður hvort honum finnist Brexit vera vel heppnað dæmi um endurheimt fullveldis svarar hann að fyrir sér snúist málið um það hvort ríkisstjórnir geti staðið kjós- endum sínum lýðræðisleg reikningsskil. Án fullveldis skipti það engu. Fyrir Brexit hafi verið dæmigert að skýla sér bak við að Brussel bannaði þetta og Evrópudómstóllinn hitt, nú hafi bresk stjórnvöld engar afsakanir. Gagnrýni Streecks er hvöss og markviss. Sjónarmiðum á borð við hans er ekki oft gert hátt undir höfði í fjölmiðlum í þeim ríkjum, sem ráða ferðinni í Evrópusambandinu. Frekar er reynt að afskrifa þau með því að spyrða þau við pópúl- isma og öfgar. Stuðningsmenn inngöngu í Evrópusambandið draga upp ósvífna glansmynd, sem á ekki neina stoð í raun- veruleikanum, og reyna að láta eins og andstaða við aðild jafn- gildi steinaldarmennsku. Staðreyndin er sú að Evrópusambandið er komið fram úr sjálfu sér, íbúum aðild- arríkjanna líður mörgum eins og svo mikið vald hafi verið flutt til Brussel að lýðræði hafi verið afnumið og evran er dragbítur á efnahag fjölda ríkja innan þess. Innganga í þennan klúbb á ekkert erindi á matseðilinn fyrir næstu kosn- ingar. Miðstýring afnemur lýðræðið og sameig- inlega myntin klýfur} ESB gengur ekki upp STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Í vikunni birtist frétt um 16 milljarða viðbótarkostnað vegna nýja landspít- alans (NLSH). Þar er vitnað í fram- kvæmdastjóra NLSH sem segir að skýringin sé aukið umfangs verkefn- isins. Stærsta byggingin, meðferðarkjarninn, hafi verið stækkaður um þriðjung. Það er mjög undarleg útskýring þar sem bygging- arleyfi, sem var gefið út árið 2018, byggir á kostnaðaráætlun sem var gerð fyrir stærri gerðina af meðferðarkjarna árið 2017. Fjár- málaráðuneytið segir hins vegar að kostn- aður hafi aukist, meðal annars vegna stækk- unar húsbygginga. Framkvæmdir vegna nýja landspítalans ná alveg aftur til ársins 2010, en þá hófst und- irbúningur við byggingu sjúkrahótels sem nú er nýlokið. Það verkefni tafðist og fór 8,3% fram úr kostnaðaráætlun samkvæmt svari ráðuneyt- isins. Bygging meðferðarkjarna hefur einnig tafist og skýringarnar á því eru misvísandi. Annars vegar er sagt að fjárheimildir hafi færst á milli ára vegna tafa og hins vegar er sagt að verkefnið hafi tafist vegna flutnings fjárheimilda á milli ára. Fólk er því ekki sam- mála um hænuna og eggið – en þegar talað var við fólk sem sér um framkvæmdir þá sagði það að auðveldlega hefði mátt halda áfram framkvæmdum. Tafirnar voru sem sagt heimasmíðaðar hjá þeim sem héldu á pen- ingaveskinu, þau vildu einfaldlega ekki borga af því að efnahagurinn var á einhverri niðurleið. Þetta var fyrir heimsfaraldurinn, til þess að hafa það á hreinu. Ég hef áhuga á þessu máli af nokkrum ástæðum. Til að byrja með af því að ég er í fjárlaganefnd Alþingis og þegar það þarf allt í einu að fara að borga 16 milljarða aukalega án þess að útskýrt sé af hverju, þá verð ég frekar pirraður – faglega séð. Mér finnst einnig mjög áhugavert að eftir að staðsetning er valin fyrir NLSH þá er spítalinn stækkaður um þriðjung. Ég veit ekki hvort fólk hefur tekið eftir því en það er ekki endalaust pláss á þessum byggingarreit og þess vegna velti ég því fyrir mér að ef stærð spítalans hefði legið fyrir frá upphafi, hvort önnur staðsetning með meira pláss hefði verði valin. Ef fagleg greining hefði sagt að það þyrfti að stækka spítalann um 50% en ekki 33%, hefði þá verið pláss? Helsta ástæðan fyrir því að ég hef áhuga á þessu máli er auðvitað að ég vil fá nýjan og góðan spítala. Kostnaðurinn við að byggja spítalann er í rauninni mjög lítill í samanburði við rekstur þeirrar þjónustu sem þar fer fram og ég vil að það sé hægt að veita þá þjónustu á eins hagkvæman og faglegan hátt og mögu- legt er. Þess vegna hef ég áhyggjur af því að fá þessar útskýringar á auknum kostnaði; stærri byggingar, breytt umfang, breytt form. Ef þessi orð lýsa grund- vallarbreytingum á stuttum tíma, hvaða breytingar verða þá nauðsynlegar á næstu árum? Björn Leví Gunnarsson Pistill 26% dýrari spítali Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.