Morgunblaðið - 17.07.2021, Page 21
21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021
W W W. S I G N . I S
H
jörvar Steinn Grétarsson
komst fram hjá fyrstu
hindruninni á heimsbik-
armóti FIDE sem hófst í
Sotsjí við Svartahaf sl. mánudag.
Hjörvar vann Hvít-Rússann Kirill
Stupak, 2½:1½. Kappskákunum lauk
með jafntefli og þurftu þeir að tefla
tvær atskákir, 25-10, til að fá fram
úrslit. Hjörvar vann eftir spennandi
stöðubaráttu í fyrri viðureign þeirra.
Jafntefli dugði svo í seinni skákinni
og þar hallaði lengi vel á Hjörvar,
sem með útsjónarsemi slapp fyrir
horn og var kominn með vinnings-
stöðu en lét jafntefli duga. Hjörvar
dróst á móti rússneska stórmeist-
aranum Maxim Matlakov í 2. umferð
og tapaði fyrri skákinni á fimmtudag-
inn eftir mikla baráttu. Hann þurfti
því að vinna viðureign þeirra í gær til
að eiga möguleika á að komast áfram
í 3. umferð.
Þetta mót dregur til sína flesta úr
hópi sterkustu skákmanna heims.
Tvö efstu sætin gefa keppnisrétt í
næsta áskorendamóti. Keppt er með
útsláttarfyrirkomulagi, fyrst tvær
kappskákir og síðan skákir með
styttri umhugsunartíma ef úrslit fást
ekki í kappskákunum.
Magnús Carlsen og stigahæstu
þátttakendurnir komust beint í aðra
umferð og eru keppendur nú 128
talsins.
Þrátt fyrir öll stóru nöfnin var það
samt lítt þekktur skákmaður frá Síle
sem vakti mesta athygli í 1. umferð
fyrir glæsilega fórnarskák gegn full-
trúa Dana í mótinu:
Heimsbikarmót FIDE; Sotsjí
2021, 1. umferð:
Mads Andersen (Danmörk) –
Pablo Salinas (Síle)
Slavnesk vörn
1. Rf3 d5 2. e3 Rf6 3. c4 c6 4. Rc3
e6 5. b3 Bd6 6. d4 0-0 7. Dc2 Rbd7 8.
Be2 b6 9. 0-0 Bb7 10. Bb2 De7 11.
Had1 Had8 12. Hfe1 Hfe8
Alþekkt staða í slavnesku vörninni.
Svartur gætir þess að stilla upp
hrókum sínum eins og hvítur gerir.
13. Bf1 c5 14. cxd5 exd5 15. g3
Hc8 16. Bh3 cxd4 17. Rxd4 Bb4 18.
Rde2 Re4 19. a3?
Tapleikurinn. Best var 19. Dxe4!?
Dxe4 20. Hxd7 De5 21. Hxb7 Bxc3
22. Bxc3 Hxc3 23. Rxc3 Dxc3 24. Hd1
og hvítur hefur allgóð færi með hrók
og léttan gegn drottningu.
- Sjá stöðumynd 1 -
19. … Rxf2! 20. axb4
Ekki 20. Kxf2 Dxe3+ 21. Kg2 d4+
o.s.frv.
20. … Rxh3+ 21. Kf1 Dxe3 22. Df5
Rf6 23. Bc1
Hyggst stugga við drottningunni.
- Sjá stöðumynd 2 -
23. … Rg4! 24. Hd3
Aftur reynir hann að hrekja
drottninguna á braut.
24. … d4!
Nú er hótunin 25. … Rxh2 mát.
25. Hed1
25. … Dg1+! 26. Rxg1 Rxh2 mát.
Hrunadans Kasparovs í Zagreb
Garrí Kasparov, sem nú teflir und-
ir fána Króatíu, ákvað að taka þátt í
hraðskákhluta Grand chess tour sem
lauk í Zagreb um síðustu helgi, í fé-
lagi við nýjan landa sinn, króatíska
stórmeistarann Ivan Zaric, sem
tefldi níu atskákir. Tvö stig voru í
boði fyrir hvern vinning þar en eitt
fyrir sigur í hraðskákinni en þar var
líka tefld tvöföld umferð. Ekki verð-
ur annað sagt en að Zaric hafi skilað
keflinu á „góðum tíma“; hann hafði
hlotið 10 vinninga þegar Garrí tók við
vinningi á eftir efsta manni, Jan Ne-
pomniachtchi.
Þátttöku Kasparovs var beðið með
mikilli eftirvæntingu en hvað gerð-
ist? Eftir fyrri daginn hafði Kasparov
hlotið ½ vinning af níu. Enginn vissi
og allra síst hann sjálfur hvar
óskytjuörvar hans myndu geiga;
hann tapaði í sjö leikjum fyrir Mame-
dyarov, í 17 leikjum fyrir Korobov og
18 leikjum fyrir Nepo.
Síðari dagurinn var heldur skárri,
tveir vinningar í hús eða samtals 2½
vinningur af 18 mögulegum.
Hjörvar Steinn
komst fram hjá
fyrstu hindruninni
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Í sviðsljósinu Heimsmeistarinn Magnús Carlsen dregur til sína mikla
athygli í Sotsjí. Hann vann fyrstu skák sína.
Eitt sinn varst þú
aðeins draumur. Fal-
legur draumur í
huga Guðs. Draumur
sem rættist. Börnin
okkar eru ljóð, ort af
okkur saman. Ljóð
sem lifa. Ávöxtur
ástar, óður til lífsins.
Lífs sem við kveikt-
um saman, með Guðs
hjálp. Lífs sem held-
ur áfram og verður
aldrei afmáð.
Ljós í heiminn borið
Í skírninni samlögumst við ljósi
heimsins sem við okkur skín frá
himni og verðum við sjálf í ljósi
himinsins. Ljós í heiminn borið.
Tendruð af ljósi ljósanna. Ljós af
ljósi. Í skírninni erum við upp-
vakin til lífsins. Eilífs lífs með
frelsaranum Jesú Kristi. Því get-
ur skírnin aldrei verið bara ein-
falt formsatriði heldur varanlegt
augnablik. Ekkert fær þig hrifið
úr frelsarans fangi sem foreldrar
þínir forðum færðu þig í. Þú varst
nefnd/nefndur með nafni og nafn-
ið þitt var letrað í lífsins bók með
frelsarans hendi. Himnesku letri
sem ekki fæst afmáð og ekkert
fær eytt og ekkert strokleður
getur þurkað út. Þér var heitin
eilíf samfylgd af höfundi og full-
komnara lífsins. Þú hefur verið
grædd eða græddur á lífsins tré
og þiggur næringu þína frá stofni
lífsins. Næringuna sem viðheldur
lífinu til eilífðar. Líttu því upp,
fagnaðu og gleðstu. Þakkaðu og
lifðu. Leyfðu rótunum að dýpka
svo þú berir ávöxt.
Mikinn og góðan
ávöxt. Ávöxt sem var-
ir. Láttu því aldrei
aldrei nokkurn ein-
asta mann eða hópa
líta smáum augum á
aldur þinn og það sem
þér er gefið af Guði til
að hafa fram að færa
fólki til blessunar,
honum til dýrðar og
þannig sjálfum þér
eða sjálfri til heilla og
hamingju. Láttu held-
ur aldrei líta niður á uppruna
þinn, skoðanir, litarhátt né kyn-
ferði, þekkingu eða reynslu.
Handarfar skaparans
Í lófa Guðs er nafn þitt ritað.
Þú ert handarfar skaparans í
þessum heimi og líf þitt hið ljúf-
asta og fegursta ljóð. Heilagur
andi hefur blásið þér lífi, anda og
krafti í brjóst til að vera sá eða sú
sem þú ert. Þú er leikflétta í
undri kærleikans. Njóttu þess og
láttu muna um þig til góðs.
Með kærleiks- og friðarkveðju.
Lifi lífið!
Handarfar
skaparans
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
» Í lófa Guðs er nafn
þitt ritað. Þú ert
handarfar skaparans í
þessum heimi og líf
þitt hið fegursta ljóð.
Njóttu þess og láttu
muna um þig til góðs.
Sigurbjörn
Þorkelsson
Höfundur er ljóðskáld og rithöf-
undur og aðdáandi lífsins.
Sigurður Helgason fæddist 20.
júlí 1921 í Reykjavík og eru því 100
ár frá fæðingu hans næsta mið-
vikudag. Hann var sonur hjónanna
Helga Hallgrímssonar fulltrúa og
Ólafar Sigurjónsdóttur kennara í
Reykjavík. Sigurður var einn af
mestu áhrifamönnum íslenskrar
flugsögu og viðskiptafræði-
menntun hans frá Columbia-
háskólanum í New York og starf
hans sem framkvæmdastjóri Loft-
leiða í New York frá 1961-74 gaf
honum aðra sýn á rekstur en tíðk-
aðist á Íslandi. Áður en hann fór í
flugið var hann framkvæmdastjóri
Orku og Steypustöðvarinnar frá
1948-1961. Þá fór hann vestur um
haf og eftir árin hjá Loftleiðum í
New York tók hann við sem for-
stjóri Flugleiða og leiddi félagið til
ársins 1984, en var stjórn-
arformaður til 1991.
Framsýni Sigurðar í flugmálum
var einstök og hann byggði upp
sterkan markað í Bandaríkjunum
og var leiðin þaðan inn í Evrópu
iðulega í gegnum Ísland. Við and-
lát hans birti New York Times
minningagrein þar sem störf hans
eru rómuð og hvernig hann var
frumkvöðull í lággjaldaflugi og
hvernig hann kynnti heilli kynslóð
Bandaríkjamanna flugferðir til
Evrópu. Eiginkona Sigurðar var
Unnur Hafdís Einarsdóttir og þau
áttu fjögur börn, Ólöfu Preston,
Eddu Línu, Helga og Sigurð Ein-
ar.
Sigurður lést á Mustique, St.
Vincent, The Grenadines í Kar-
íbahafinu 8. febrúar 2009.
Merkir Íslendingar
Sigurður
Helgason
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?