Morgunblaðið - 17.07.2021, Side 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021
Elsku amma,
á þessum tíma-
punkti veit ég eigin-
lega ekki hvar ég á að
byrja. Ég er fyrst og fremst ótrú-
lega þakklát fyrir allar minning-
arnar og góðu stundirnar sem ég
átti með þér í gegnum árin, elsku
amma. Ég er líka svo þakklát fyrir
að hafa átt bæði góða og sterka fyr-
irmynd í þér. Það eru alls ekki allir
sem geta stært sig af jafn ævin-
týraríkri, hugrakkri og ákveðnari
ömmu og ég. Ég skil vel að lífið hjá
ömmu var ekki auðvelt enda tókst
hún á við ótrúlegar áskoranir á lífs-
leiðinni. Sumar áskoranir valdi hún
sjálf, eins og til dæmis að fara til
Bandaríkjanna í framhaldsnám í
hjúkrunarfræði, en öðrum áskor-
unum var þrýst á hana. Fyrir mér
var amma alltaf ofboðslega merki-
leg og mikil kona. Ó hvað ég naut
þess að hlaupa yfir í Miðleitið í
heimsókn þegar ég var nemi í MH.
En á þessum tíma nýtti ég ótal hlé
til þess að vera hjá þér í góðu
spjalli yfir kaffibolla og heitu
brauði. Þá sagði amma mér sögur
af því þegar hún var lítil stelpa á
Akureyri og svo líka sögur af því
þegar hún og afi kynntust. Mest
hafði ég þó gaman af sögunum frá
því þegar hún og Sigga sigldu á
stóra skipinu yfir hafið til Banda-
ríkjanna. Þegar amma sagði mér
sögurnar af ævintýrum þeirra þá
sá ég allt svo skýrt fyrir mér, eins
og í svarthvítri rómantískri Holly-
wood-mynd. Amma var svo glæsi-
leg á ljósmyndunum sem hún sýndi
mér samhliða sögunum. Hún var
eins og kvikmyndastjarna þar sem
hún var uppi á þaki á háhýsi í Chi-
cago. Við höfum alltaf spjallað mik-
ið um allt og ekkert.
Ég sakna þín amma. Þú varst
einhvern veginn alltaf til staðar, til
í spjall og það veitti mér ákveðna
festu í lífinu sem er núna allt í einu
horfin. Ég veit að þú verður alltaf
hjá mér og strákunum mínum. Ég
á eftir að sakna hlátursins þíns og
söngvanna sem þú sönglaðir til
mín og síðan til Bóasar og Bents.
Mest af öllu á ég eftir að sakna
óvænts símtals og sögustundanna.
Ég vildi óska þess að ég hefði tek-
ið upp sögurnar sem þú sagðir
mér í Miðleitinu en þá var tíminn
eitthvað svo endalaus. Ég elska
þig amma og veit að þú verður
alltaf hjá mér.
Sigríður (Sirrý).
Kveðja frá Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga
Sagan um hjúkrunina er jafn-
gömul manninum en sérmenntuð
hjúkrunarstétt er tiltölulega ung.
Heimildir um hjúkrun á Íslandi
fyrri tíma eru fátæklegar, ekki
þótt í frásögur færandi að konur
Sigríður Jóhanna
Jóhannsdóttir
✝
Sigríður Jó-
hanna (Sirrý)
fæddist 11. nóv-
ember 1929. Hún
lést 23. júní 2021.
Útför Sigríðar
fór fram 15. júlí
2021.
fengjust við hjúkr-
un. Félag íslenskra
hjúkrunarkvenna
var stofnað í nóvem-
ber 1919 af miklum
eldhugum. Aðal-
markmið félagsins
var að aðstoða ung-
ar stúlkur til hjúkr-
unarnáms. Málið
var erfitt vegna
skorts á sjúkrahús-
um í landinu og
nemendur urðu að fara til Dan-
merkur og Noregs til að ljúka
námi. Enginn var hjúkrunarskól-
inn, það er ekki fyrr en með stofn-
un Landspítala árið 1930 að hægt
er að stofna hjúkrunarskóla.
Hjúkrunarskóli Íslands var stofn-
aður árið 1931 og voru bæði
kennslustofur og heimavist hjúkr-
unar- og ljósmæðranema á efri
hæðum Landspítala. Fyrstu lög
Hjúkrunarskóla Íslands eru nr. 13
frá 23. júní árið 1932 og kveða á
um að ljósmæðra- og hjúkrunar-
kvennaskóli skuli starfa í
tengslum við Landspítala í
Reykjavík og lúta stjórn hans.
Hjúkrunarskólinn er því aðeins
búinn að slíta barnsskónum þegar
Sigríður hefur nám árið 1951. Eft-
ir námið árið 1954 heldur Sigríður
til Akureyrar, heimabæjarins, ári
seinna er hún flutt til Bandaríkj-
anna. Þar stundar hún nám í gjör-
gæsluhjúkrun við Presbyterian
Hospital í Chicago og lýkur því ár-
ið 1956. Meðan á dvölinni vestra
stóð vann hún einnig á North
Western Hospital í Minneapolis,
eftir flutning þangað. Sigríður
giftist Valtý Bjarnasyni árið 1956
og eignaðist með honum fjögur
mannvænleg börn. Valtýr lést árið
1983. Starfsferill Sigríðar var fjöl-
þættur, eftir heimkomuna starfar
hún bæði við sérgrein sína ásamt
því að starfa við geðendurhæfing-
ar og almenna hjúkrun. Ákveðin
vatnaskil verða þegar hún ræður
sig sem kennara að Nýja hjúkr-
unarskólanum árið 1975. Hún lýk-
ur í framhaldi námi í kennslu- og
uppeldisfræði frá Kennaraháskóla
Íslands ásamt því að stunda nám
við Nordiska hålsovårdshög-
skolan í Gautaborg. Sigríður
starfaði sem hjúkrunarforstjóri
St. Jósepsspítala í Hafnarfirði í
tvö ár áður en hún var ráðin sem
hjúkrunarkennari við Hjúkrunar-
skóla Íslands árið 1980. Í fram-
haldi tekur hún við stöðu yfir-
kennara og síðar sem skólastjóri
þegar Þorbjörg Jónsdóttir lætur
af störfum árið 1983. Þeirri stöðu
gegndi hún þar til námið var flutt í
Háskóla Íslands árið 1986. Sigríð-
ur brautskráði 202 nemendur og
stjórnaði einnig framhaldsnámi í
hjúkrunarstjórnun þar sem braut-
skráðust 30 hjúkrunarfræðingar
frá skólanum. Sigríður vann ötul-
lega að framþróun hjúkrunar og
sat í og stýrði fjölmörgum nefnd-
um þar að lútandi. Merk kona er
gengin, engum sem þekkti Sigríði
duldist dugnaður hennar, ósér-
hlífni og framsýni, við sem kynnt-
umst henni nánar vissum ekki
bara hversu fjölhæf hún var held-
ur hversu gott var að eiga hana að
og ekki spillti hennar góða skop-
skyn fyrir.
Guð blessi minningu Sigríðar
Jóhannsdóttur.
Guðbjörg Pálsdóttir,
formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga.
Mér er ljúft að minnast fé-
lagskonu okkar og vinkonu Sigríð-
ar Jóhannsdóttur sem var félagi í
Alfa-deild Delta Kappa Gamma í
alls 40 ár. Þessi samtök, sem heita
Félag kvenna í fræðslustörfum á
íslensku, eru upprunnin í Banda-
ríkjunum og var upphaflega ætlað
að styðja við konur í réttindabar-
áttu þeirra á sviði menntamála
þar sem lítið var um möguleika
þeirra á starfsframa eða góðum
stöðum. Hingað komu samtökin
með stofnun fyrstu deildarinnar,
Alfa-deildar, árið 1975. Sigríður
gekk í samtökin árið 1981 og var
þá einn helsti frumkvöðull í
menntun hjúkrunarfræðinga hér
á landi. Sigríður lauk prófi frá
Hjúkrunarskóla Íslands árið 1954
og vann ýmis hjúkrunarstörf um
skeið. Árið 1975 var hún kennari
við Nýja hjúkrunarskólann og ár-
ið 1979 réðst hún sem kennari við
Hjúkrunarskóla Íslands, síðar yf-
irkennari og loks skólastjóri 1983-
1987. Á þessum árum var mikil
gerjun í gangi varðandi menntun
hjúkrunarfræðinga og stefnan
tekin á að færa námið yfir á há-
skólastig. Gríðarlega mikil vinna
var í því fólgin að flytja heila stóra
starfsgrein á milli skólastiga og
var Sigríður þar ötul baráttukona
fyrir þessari nýju skipan. Henni
tókst að sameina allt nám hjúkr-
unarfræðinga á háskólastig og
þurfti meira en meðalmanneskju
til að ná þeirri áætlun fram. Það
verður að teljast sérstakt að vinna
að því að leggja starf sitt niður
eins og hún gerði, en þarna var
Sigríði rétt lýst. Þegar markmið-
inu var náð tók hún sér fyrir hend-
ur annað starf og var hjúkrunar-
forstjóri Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja í Keflavík 1988-1993
en þá fór hún á eftirlaun.
Sigríður var einstaklega glæsi-
leg kona, glaðleg og skemmtileg í
viðkynningu. Hún hafði mikla frá-
sagnarhæfileika og gat alltaf sagt
skemmtilegar sögur af mönnum
og málefnum. Hún dvaldi lang-
dvölum í Bandaríkjunum, starfaði
á Nortwestern Hospital í Minnea-
polis um árabil og átti marga góða
kunningja vestanhafs. Alls staðar
var hún hrókur alls fagnaðar, vin-
mörg og vinsæl.
Við kveðjum nú Sigríði með
söknuði og þökkum henni allar
góðu stundirnar sem við áttum
saman. Fjölskyldu og vinum send-
um við samúðarkveðjur okkar og
óskum þeim alls velfarnaðar.
Fyrir hönd Alfa-deildar Delta
Kappa Gamma á Íslandi,
Sigrún Klara Hannesdóttir.
Nú er móðursystir mín Sirrý
farin úr sínu jarðlega formi eftir
vel lifaðan og langan lífsferil. Fal-
lega og hlýja brosið hennar situr
fast í minni mínu, ásamt þeim
kostum sem einkenndu hana: klár
og kraftmikil, jákvæð og gefandi.
Sirrý var nútímaleg, því á tíma
sem það var enn óalgengt fór hún
til Bandaríkjanna til náms. Þá
reynslu notaði hún með sínum ein-
kennandi viljastyrk og vinnu-
hörku til að byggja upp lofsverðan
starfsferil á sviði hjúkrunar á Ís-
landi. Í mínum barnsaugum kom
reynsla Sirrýjar í útlöndum fram í
formi kalkúna og maískorna á
veisluborðum, góðgæti sem mað-
ur hafði aldrei séð áður, né bragð-
að. Þau voru ófá fjölskylduboðin
haldin hjá Sirrý í Stigahlíðinni á
uppeldisárunum okkar systra-
barnanna, sem hún undirbjó af
krafti og listfengi.
Sirrý er stólpi í lífsgrunni og
sögu fjölskyldunnar og í minni
sögu. Því mun ég hlúa að minn-
ingu hennar af ást, umhyggju og
þakklæti. Við, fjölskylda hennar
hér í Ríó de Janeiro, vottum börn-
unum Siddý, Bjarna, Jóhanni og
Valla, barnabörnum og barna-
barnabörnum okkar innilegustu
samúð. Minning hennar lifir!
Hulda Geirlaugsdóttir.
Stapahrauni 5, Hafnarfirði
Sími: 565 9775
www.uth.is - uth@uth.is
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Kristín
699 0512
Móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SIGRÚN ÁRNADÓTTIR
þýðandi,
sem lést 9. júlí, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 20. júlí kl. 15.
Árni Óskarsson
Jóna Dóra Óskarsdóttir
Völundur Óskarsson
Aagot Vigdís Óskarsdóttir
Svanhildur Óskarsdóttir
Hrafnkell Óskarsson
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
EYSTEINN LEIFSSON,
Hjallaseli 49,
lést á Landspítalanum laugardaginn 10. júlí.
Útför hans fer fram frá Langholtskirkju
þriðjudaginn 20. júlí klukkan 13.
Leifur Eysteinsson Steinhildur Hildimundardóttir
Guðrún Eysteinsdóttir Helgi Kristófersson
Auður Eysteinsdóttir Sigurður Pálmason
Margrét Eysteinsdóttir Árni Níelsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku yndislega mamma mín, amma og
tengdamamma,
SIGRÚN KARLSDÓTTIR
félagsráðgjafi,
lést á heimili sínu Eskihlíð 16a 6. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 22. júlí klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem
viljast minnast hennar er bent á Ljósið.
Ásta Sighvats Ólafsdóttir Henrik Þór Tryggvason
Birgit Elva Henriksdóttir
Pétur Kári Henriksson
Ástkær bróðir, mágur, stjúpfaðir og
móðurbróðir okkar,
PÁLL JÓNSSON,
lést laugardaginn 10. júlí.
Útförin verður auglýst síðar.
Anna Pála Vignisdóttir Páll Loftsson
Arnar Pétursson
Jóhanna Katrín Pálsdóttir
Jón Bragi Pálsson
Leifur Pálsson
Okkar ástkæri
ÁGÚST ÞÓRARINSSON
húsasmíðameistari,
Rauðalæk 73, Reykjavík,
lést á Grund föstudaginn 9. júlí.
Útförin verður auglýst síðar.
Sigríður Hanna Jóhannesdóttir
Ebba G. Guðmundsdóttir Hafþór Hafliðason
Jóhannes Þór Ágústarson Ragnhildur Lilja Ásgeirsdóttir
Hanna Hulda, Hafliði, Embla María
og Hrafnhildur Freyja
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ELÍN SIGRÍÐUR AXELSDÓTTIR
frá Ásláksstöðum í Arnarneshreppi,
andaðist á dvalarheimilinu Grund við
Hringbraut í Reykjavík 4. júlí.
Útför hennar fer fram frá Möðruvallaklausturskirkju í Hörgárdal
þriðjudaginn 20. júlí klukkan 11.00.
Þórður Ingimarsson
Björn Ingimarsson
Sveinn Ingimarsson
og fjölskyldur þeirra
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ATLI VIÐAR JÓHANNESSON
forstjóri
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 16. júlí, útför
Atla Viðars fer fram frá Akureyrarkirkju
fimmtudaginn 22. júlí klukkan 13.
Benna Stefanía Rósantsdóttir
Dagmar Ósk Atladóttir Halldór Walter Stefánsson
Inga Sigrún Atladóttir Jón Ísfjörð Aðalsteinsson
Kristjana Atladóttir Brynjar Örn Arnarson
Júlía Rós Atladóttir Hermann S. Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
JÓN HLÍÐAR RUNÓLFSSON
athafnamaður,
lést á heimili sínu í Vogum á
Vatnsleysuströnd föstudaginn 9. júlí.
Minningarathöfnin fer fram að búddískum sið í hátíðarsal
Flensborgarskólans í Hafnarfirði fimmtudaginn 22. júlí
klukkan 14.
Eygló Jónsdóttir
Eyrún Ósk Jónsdóttir Sverrir Jörstad Sverrisson
Steinn Hlíðar Jónsson Heiðdís Halla Sigurðardóttir
Sindri Hlíðar Jónsson Tamara Spell
og barnabörn
Elsku sonur okkar og bróðir,
ÞORSTEINN ATLI GÚSTAFSSON,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut mánudaginn 12. júlí.
Jarðarför Þorsteins Atla fer fram frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 21. júlí
klukkan 13.
Gústaf Helgi Hjálmarsson Sóley Erla Ingólfsdóttir
Ingólfur Orri Gústafsson Þorkell Máni Gústafsson