Morgunblaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000 – www.kemi.is - kemi@kemi.is
NÚ FÁST BOSCH
BÍLAVARAHLUTIR HJÁ KEMI
TUNGUHÁLSI 10
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Hljómsveitin amiina hefur nú sentfrá
sér nýja plötu, eftir fimm ára út-
gáfuhlé. Stuttskífan ber titilinn
Pharology, kom út 26. júní og á henni
er að finna þrjú tiltölulega löng lög.
Eins og glöggir tónlistarunnendur
muna þá var amiina stofnuð sem
strengjakvartett undir lok síðustu
aldar og voru stofnendur María Huld
Markan Sigfúsdóttir, Sólrún Sumar-
liðadóttir, Hildur Ársælsdóttir og
Edda Rún Ólafsdóttir. Síðar bættust
í hópinn þeir Magnús Trygvason
Eliassen slagverksleikari og Guð-
mundur Vignir Karlsson raftónlistar-
maður, sem einnig er þekktur undir
nafninu Kippi Kaninus. Þær Hildur
og Edda sögðu svo skilið við sveitina
fyrir nokkrum árum og amiina því
orðin kvartett á ný.
Titlar fengnir út vitafræðum
María Huld sagði blaðamanni frá
tildrögum plötunnar: „Tónlistin varð
til í kjölfar þess að við amiinu-fólk
vorum fengin til þess að gera verk á
listahátíð í Danmörku, í vita í þorpinu
Gilleleje. Þar vorum við beðin um að
gera „performance“-verk á staðnum
og svo innsetningu sem átti að vera
allt sumarið.“
Þaðan dregur platan nafn sitt
Pharology, sem þýða mætti sem vita-
fræði. María útskýrir að titlarnir á
lögunum þremur á plötunni séu feng-
in úr vitafræðum. „Beacon“ sé viti,
„Refraction“ sé ljósbrotið í keilunni
og „Aton“ sé heiti á ákveðnu neyðar-
kalli. „Tónlistin sem við fluttum eftir
að hafa dvalið í þessum vita að búa til
og semja var í rauninni nokkurn veg-
inn það sem er á plötunni. Svo kom-
um við bara til Íslands og tókum
þetta upp. Efniviðurinn er lauslega
tengdur við þessa dvöl, að vera í vita,
í ljóskeilunni að horfa út á hafið.
Fyrsta lagið, „Beacon“, er til dæmis
byggt upp á morskóða sem er einmitt
tengdur vita.“
María segir þetta ekki vera í fyrsta
sinn sem vitar koma við sögu hjá ami-
inu og á þá við plötuna Lighthouse
Projekt frá árinu 2013. „Hún var
gerð í tengslum við það þegar við
ferðuðumst hringinn í kringum land-
ið og spiluðum í vitum. Þannig að við
höfum verið svolítið á þessum slóð-
um, af og á, í gegnum tíðina.“
Gaman að koma saman
Liðin eru fimm ár frá síðustu út-
gáfu amiinu og plötunnar Pharology
því beðið með eftirvæntingu. María
segir ýmislegt skýra þetta hlé. Eftir
útgáfu plötunnar Fantomas árið 2016
hafi hljómsveitin varið miklum tíma í
tónleikaferðalög. Tónlistin á þeirri
plötu hafi verið samin við klukkutíma
langa kvikmynd frá 1913 og hljóm-
sveitin farið víða um heim, spilað
kvikmyndina og flutt tónlistina með.
„Svo vorum við komin í gírinn að
fara að gera ýmislegt, þá flutti einn
meðlimur erlendis og síðan kom
Covid. Svo eru liðsmenn hljómsveit-
arinnar mikið í öðrum verkefnum.
Magnús trommar held ég bara með
flestöllum á Íslandi og svo framveg-
is,“ segir hún og hlær. „En okkur
þykir rosalega gaman þegar við kom-
um saman. Það verður mikið til á
mjög stuttum tíma þegar við gefum
okkur tíma til að sinna amiinu.“
Spurð um tónleikahald í kringum
þessa útgáfu segir María: „Við vorum
með bókaðan túr í maí á síðasta ári
sem átti einmitt að vera þessi plata,
sitt lítið af hverju annað og nokkur
ný lög. Svo við erum bara að sjá til
hverjir af þessum prómótúrum koma
lifandi út úr Covid.“ Hljómsveitin átti
ýmsa tónleika bókaða í Suður-
Evrópu, á Ítalíu, Grikklandi og
Spáni, þar sem ástandið er enn nokk-
uð slæmt. „Okkur langar mjög mikið
að halda okkar striki og vonandi fara
að túra um Evrópu í byrjun næsta
árs. Síðan langar okkur líka til þess
að halda eitthvað smávegis í kringum
Airwaves,“ segir hún.
„Magnað myndbandsverk“
Heimir Freyr Hlöðversson hefur
gert myndbandsverk, sem kalla má
kvikmyndaljóð, við plötuna. María
segir að upprunalega hafi
myndbandið einungis átt að vera við
eitt lag. „Síðan vorum bæði við og
hann svo spennt yfir því hvað þetta
kom vel út saman, svo þetta endaði
með því að hann gerði rosalega
magnað myndbandsverk fyrir alla
plötuna.“ Verkið var frumsýnt þann
19. júní í Bíó Paradís. „Það var rosa-
lega magnað því þá var það í „sur-
round“-hljóði og okkur langar til að
gera þetta aftur í kringum Airwa-
ves,“ segir María og bætir við að þá
stefni þau bæði á að halda tónleika og
útbúa einhvers konar innsetningu
eða litla viðburði þar sem myndefnið
fær að rúlla. „Þá munum við koma
saman og halda almennilega upp á
þetta,“ segir María og bætir hlæjandi
við: „Í þriðja sinn.“
Platan er gefin út á 10 tommu vínyl
sem er að sögn Maríu mjög eigulegur
og fallegur gripur sem fæst í öllum
betri plötubúðum, „eða þeim plötu-
búðum sem eftir eru“ bætir hún við.
Auk þess er platan fáanleg bæði staf-
rænt og á vínyl á Bandcamp.is.
Ljósmynd/Juliette Rowling
Kvartett „Það verður mikið til á mjög stuttum tíma þegar við gefum okkur tíma til að sinna amiinu,“ segir María Huld Markan um samstarfið.
Í ljóskeilunni að horfa út á hafið
- Pharology er ný plata hljómsveitarinnar amiinu - Fyrsta útgáfa sveitarinnar í fimm ár er inn-
blásin af dvöl í vita í dönsku þorpi - Heimir Freyr Hlöðversson hefur gert kvikmyndaljóð við plötuna
Hrafnhildur Arnardóttir/
Shoplifter mun í dag kl. 16 ganga
um Hrútey við Blönduós og spjalla
um sýningu sína Boðflennu sem þar
er. Leiðsögnin fer fram á íslensku
og verður endurtekin á ensku kl.
17. Boðflenna var opnuð 3. júlí, er
opin allan sólarhringinn og mun
standa opin til 28. ágúst. Verkið er
víðs vegar um eyjuna sem er í
Blöndu, og er unnið úr hári sem er
ýmist gervihár eða mannshár.
Hrafnhildur er þekktust fyrir að
hafa verið fulltrúi Íslands á Fen-
eyjatvíæringnum 2019 þar sem hún
sýndi verkið Chromo Sapiens sem
var stór innsetning eingöngu úr
gervihári. Verk hennar fjalla um
fyrirbæri á borð við hégóma, sjálfs-
mynd, tísku, fegurð og goðsagnir
poppmenningarinnar, eins og segir
í tilkynningu. Hjónin Áslaug
Thorlacius og Finnur Arnar standa
að sýningunni.
Í Hrútey Hluti af verki Hrafnhildar.
Hrafnhildur segir frá Boðflennu
Erla Lilliendahl opnar í dag sína
fyrstu myndlistarsýningu, Candy-
floss, í Gallery Grásteini, Skóla-
vörðustíg 4. Á henni sýnir hún olíu-
málverk, skúlptúra, klippimyndir
og útsaumsverk þar sem áhersla er
lögð á endurnýtingu og óhefðbund-
inn efnivið. „Þessi fyrsta sýning
mín sækir innblástur í barnæskuna;
ævintýri, sakleysi en líka hið dulda
og myrka. Ég notast mikið við end-
urnýttan efnivið bæði í myndir mín-
ar og skúlptúra, enda hef ég alltaf
verið hugfangin af gömlum hlutum
sem hvísla sögur úr fortíðinni.
Undantekningin á þessu eru staf-
rænu klippimyndirnar mínar, þótt
svo að myndefnið sjálft sé oftar en
ekki hlutir sem finnast á háaloftum
og í rykfylltum geymslum, eins og
styttur og gamalt skart,“ skrifar
Erla um sýninguna.
Litríkt Eitt verka Erlu á sýningunni.
Ævintýri og sakleysi en líka hið myrka