Morgunblaðið - 17.07.2021, Síða 37

Morgunblaðið - 17.07.2021, Síða 37
VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Dýrið, fyrsta kvikmynd Valdimars Jóhannssonar í fullri lengd, var val- in í keppnisflokkinn Un certain reg- ard á kvikmyndahátíðinni í Cannes sem nú stendur yfir og hefur mynd- in vakið þó nokkra athygli og dreifingarsamningum verið landað. Valdimar og fleiri úr tökuliði myndarinnar voru viðstaddir frum- sýningu hennar á miðvikudaginn og segir leikstjórinn viðtökur bíógesta hafa verið mjög góðar. Þetta er fyrsta ferð Valdimars til Cannes og segir hann mikinn heiður að vera boðið á hátíðina og sérstaklega í ár þar sem óvenjumargir hafi reynt að komast í þennan keppnisflokk með kvikmyndir sínar. „Við erum öll bara mjög þakklát fyrir þetta,“ segir Valdimar og á þar við sig og aðra sem komu að gerð myndarinnar, en handritið skrifaði hann með Sjón og með aðalhlutverk fara sænska leikkonan Noomi Ra- pace, Hilmir Snær Guðnason, Björn Hlynur Haraldsson og Ingvar E. Sigurðsson. Valdimar segir þau Hilmi og Noomi hafa veitt honum mikinn stuðning og hjálp við tök- urnar sem hafi reynst ómetanlegt. Í mörgum deildum Valdimar hefur verið viðloðandi kvikmyndabransann í um 20 ár og hefur þar sinnt ólíkum störfum. „Ég er búinn að vinna í mjög mörgum deildum. Ég hef verið í ljósadeild, „grippi“, leikmynd og „special eff- ects“,“ telur Valdimar upp og eins og sjá má á vefsíðunni Internet Movie Database hefur hann komið að fjölda verkefna. Þeirra á meðal eru tvær stuttmyndir sem hann leikstýrði, Harmsaga og Dögun. Valdimar stundaði nám við Kvik- myndaskóla Íslands og síðar kvik- myndaskóla hins kunna, ungverska leikstjóra Béla Tarr í Sarajevo, Film Factory, en Tarr er einn meðfram- leiðenda Dýrsins. Valdimar segir skóla Tarr hafa verið frábæran og kennarar í honum þekkt fólk úr kvikmyndageiranum, til að mynda skoska leikkonan Tilda Swinton. „Þessi skóli var settur upp þannig að kennararnir komu kannski í viku og nemendur voru með þeim allan daginn og líka á kvöldin. Þetta var svolítið öðruvísi og maður sá að það voru allir að vinna með ólíkum hætti,“ segir Valdimar um hið óhefðbundna fyrirkomulag kennsl- unnar. Tarr hafi enda lagt áherslu á þessa fjölbreytni og að hægt væri að fara ólíkar og margar leiðir í kvik- myndalistinni. Valdimar segir það hafa hjálpað mikið til við fjármögnun Dýrsins að hafa Tarr sem meðframleiðanda og ekki hefur heldur sakað að vera með kvikmyndastjörnuna Rapace í burð- arhlutverki. „Hún hefur aldrei unnið með svona litlu tökuliði,“ segir Vald- imar kíminn um Rapace sem talar lýtalausa íslensku enda ólst hún upp hér á landi með móður sinni og ís- lenskum stjúpföður. Varúð, spilliefni! Manneskjur er fáar í myndinni en þeim mun fleiri dýr og svo vera sem birtist á bænum. Vera þessi er blanda af barni og lambi, eins og enski titillinn Lamb gefur til kynna. Líklega hefði verið betra fyrir þá sem ætla að sjá myndina að vita það ekki en erlendir miðlar hafa þegar leyst frá skjóðunni. Valdimar segir skemmtilegustu bíóupplifunina að vita sem minnst um myndina, líkt og frumsýningargestir í Cannes. En um hvað er myndin, í mjög stuttu máli og án þess að skemma frekar fyrir upplifuninni? „Dýrið er mynd sem fjallar um sauðfjárbænd- ur, Maríu og Ingvar, sem búa á frekar afskekktum bæ. Einn daginn kemur óvænt vera inn í líf þeirra,“ svarar Valdimar, stutt og laggott. Myndin var tekin upp í Hörgárdal á bæ sem heitir Flaga og hefur ekki verið búið á lengi. Í myndinni er staðurinn þó ónefndur og óstað- settur en þó augljóslega á Íslandi. Segir Valdimar leitina að rétta töku- staðnum hafa verið langa en á end- anum hafi hann þó fundið hinn full- komna stað. Veran var mesta áskorunin Valdimar er spurður að því hver hafi verið mesta áskorunin við gerð myndarinnar, fyrir hann sem leik- stjóra. „Ætli það hafi ekki verið að búa til þessa veru. Við vorum með margt flott fólk með okkur, Fredrik Nord og Peter Hjort sem eru mjög flottir effektamenn og svo unnum við með fyrirtæki í Svíþjóð, The Chimney Pot. Það held ég að hafi valdið okkur mestum áhyggjum, hvernig það kæmi út,“ svarar Valdi- mar. Hann segir myndina ekki falla auðveldlega í ákveðinn flokk kvik- mynda. „Það eru allir að flokka hana á mismunandi hátt en fyrir okkur hefur þetta alltaf verið listræn mynd. Það er mjög mikið verið að setja hana í alls konar flokka hérna og maður hefur heyrt talað um horr- or. Það eru alls konar útskýringar á því hvar hún stendur og ég held að fólk viti ekki hvar það eigi að stað- setja hana.“ Hvað innblástur varðar við gerð myndarinnar og undirbúning segir Valdimar margar bækur og kvik- myndir hafa haft áhrif en þó ekkert eitt verk frekar en annað. „Við Sjón gáfum okkur svo langan tíma í þetta, unnum þetta á þægilegum hraða,“ segir hann. Í upphafi ferlis- ins hafi hann verið búinn að búa til skissubók með alls konar myndum og teikningum og óljósri sögu. Framleiðendur myndarinnar, Hrönn Kristinsdóttir og Sara Nas- sim, hafi þá kynnt hann fyrir Sjón og þeir hist í kaffi. Hann hafi sýnt Sjón þessar hugmyndir sínar og þeir svo farið að hittast reglulega, einu sinni til tvisvar í viku. Nokkr- um árum síðar hafi þeir skrifað „treatment“, þ.e. nákvæma lýsingu á sögunni og eftir það hafi Sjón tek- ið við og skrifað handritið að mynd- inni. Mikil virðing borin fyrir kvikmyndinni sem listformi –Það hefur verið mikill áhugi fyr- ir þessari mynd í Cannes, eftir því sem ég hef lesið og heyrt og þú hef- ur verið mjög upptekinn við funda- höld? „Já, við erum búin að vera að stanslaust frá því við komum,“ segir Valdimar og á þar við þau Hrönn, sem er eiginkona hans, og Söru sem er stjúpdóttir hans. Þær eru fram- leiðendur myndarinnar. „Ég held að við séum búin að selja myndina til dreifingar um alla Evrópu, Norður- Ameríku og Japan,“ segir Valdimar. „Við erum mjög hamingjusöm yfir því að þessi mynd sé að fara í bíó og að fólk um allan heim getið farið í bíó að horfa á hana.“ En hvenær á að frumsýna Dýrið á Íslandi? „Við stefnum á september,“ svarar Valdimar og að eftir Cannes verði kvikmyndin sýnd víða um lönd. „Við erum búin að fá ótrúlega mörg boð um að sýna hana á alls konar hátíðum sem við erum að skoða. Þetta lítur vel út, held ég.“ Valdimar er að lokum spurður hvort eitthvað hafi komið honum á óvart við hátíðina í Cannes. „Það sem mér finnst svo ótrúlega heill- andi er hversu rosalega mikil virð- ing er borin fyrir þessu listformi, kvikmyndinni,“ svarar hann og þótt kvikmyndastjörnur séu á hverju götuhorni hafi honum þótt skemmti- legast að hitta tökulið Dýrsins í strandbænum fræga. Úr Dýrinu Hilmir Snær Guðnason og Noomi Rapace í kvikmyndinni Dýrið eða Lamb eins og hún heitir á ensku. AFP Í Cannes Hilmir Snær, Valdimar, Rapace og Björn Hlynur prúðbúin. Af mönnum, dýrum og óvæntri veru - Dýrið hefur vakið athygli í Cannes og samið hefur verið um dreifingu í Evrópu, Japan og Norður- Ameríku - „Við erum öll bara mjög þakklát fyrir þetta,“ segir leikstjórinn um hinar góðu viðtökur MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021 Jazz undir fjöllum, árleg djasshátíð í Skógum undir Eyjafjöllum, verð- ur haldin í sextánda sinn í dag, 17. júlí. Aðaltónleikar hátíðarinnar fara fram í félagsheimilinu Fossbúð kl. 21 og kemur þá fram kvartett söngkonunnar Stínu Ágústsdóttur en hann skipa með henni þeir Agn- ar Már Magnússon á Hammond- orgel, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar og Jóhann Hjörleifsson á trommur. Í Skógakaffi verða tón- leikar frá kl. 14 til 17 og verða þeir óformlegri eða spunalota. Sig- urður Flosason leikur á saxófón, Snorri Sigurðarson á trompet, Andrés Þór Gunnlaugsson á gítar, Agnar Már Magnússon á Hamm- ond-orgel og Jóhann Hjörleifsson á trommur. Þeir munu flytja fjöl- breytta efnisskrá og Andrés og Agnar munu líka leika lög af nýút- kominni plötu þeirra Aldarfar. Ókeypis er inn á þessa tónleika. Aðgangur er ókeypis í Skógakaffi en aðgangseyrir 2.900 kr. í Foss- búð. Djassað undir Eyjafjöllum í dag Á aðaltónleikunum Stína Ágústsdóttir söngkona kemur fram með kvartett. Tónlistarhátíðin Englar og menn hefst að nýju eftir árslangt hlé í Strandarkirkju í Selvogi á morg- un, sunnudag, með tónleikum sem hefjast kl. 14. Á þeim koma fram sunnlensku einsöngvararnir María Sól Ingólfs- dóttir sópran og Gunnlaugur Bjarnason barítón og Einar Bjart- ur Egilsson leikur með þeim á pí- anó og harmóníum. Á efnisskrá verða íslensk sönglög eftir Jórunni Viðar, Sigfús Halldórsson og Meg- as ásamt ljóðasöngvum eftir Franz Schubert. Þessi lög eiga það sam- eiginlegt að fjalla um líf fólks, til- finningar þess og hugarheima á einlægan og heillandi máta og tóna þau vel við kirkjuna og henn- ar einstöku sögu, eins og segir í tilkynningu. Hátíðin stendur yfir til 15. ágúst og verða tónleikar haldnir 25. júlí, 8. og 15. ágúst. Aðgangseyrir á tónleika er 3.000 krónur og er hátíðin styrkt af Tónlistarsjóði Rannís og Sam- bandi sunnlenskra sveitarfélaga. Listrænn stjórnandi hátíð- arinnar er, líkt og fyrri ár, Björg Þórhallsdóttir. Íslensk sönglög í upphafi hátíðar Sönglög María Sól Ingólfsdóttir kemur fram á tónleikum með Gunnlaugi Bjarna- syni og Einari Bjarti Egilssyni á upphafs- tónleikum Engla og manna í Strand- arkirkju í Selvogi á morgun. Þriðju tónleikar sumarsins í tón- leikaröðinni Velkomin heim fara fram á morgun, sunnudag, kl. 16 í Hörpuhorni í Hörpu. Jóna G. Kolbrúnardóttir sópransöngkona og Elena Postumi píanóleikari halda langþráða ljóðatónleika saman, segir í tilkynningu, þar sem efnisskráin samanstendur af ástríðufullum ljóðum ólíkra landa. Þar á meðal verða ljóð eft- ir Schubert, Debussy, Grieg og Sibelius. Langþráðir tón- leikar í Hörpuhorni Samstilltar Jóna og Elena leika í Hörpu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.