Morgunblaðið - 17.07.2021, Síða 40

Morgunblaðið - 17.07.2021, Síða 40
Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is „Ég er búin að vera hérna und- anfarnar fimm vikur að vinna í garðinum, allt sumarfríið bara,“ segir Vilborg Arnarsdóttir, en hún stendur í ströngu þessa dagana við að taka aðgengismálin í gegn í Raggagarði á Súðavík. Raggagarður er áhugamanna- félag sem stofnað var í kringum uppbyggingu garðsins fyrir rúm- lega 15 árum. Markmiðið með garð- inum var að hlúa að fjölskyldum og efla útiveru og stuðla að ánægju- legri samveru foreldra og barna. Nafn garðsins er þannig tilkomið að Vilborg, sem er frumkvöðull fé- lagsins og formaður, fór af stað með verkefnið til minningar um son sinn Ragnar Frey Vestfjörð sem lést í bílslysi árið 2001, aðeins sautján ára gamall. Vilborg segir nafnið þó hafa fest í sessi, að vissu leyti óvart. „Ég var að vinna í svo mörgum görðum á þessum tíma þannig að þetta nafn var nú bara eitthvað sem ég sagði við börnin mín til þess að láta vita hvar ég væri.“ Síðar var haldin nafnakeppni og þá var nafnið Raggagarður farið að spyrjast út og að endingu vann nafnið í keppninni. Nýtt listaverk Að undanförnu hefur garðurinn verið tekinn í gegn, m.a. með aðstoð unglinga úr vinnuskólunum á Ísa- firði, Bolungarvík og Súðavík. Og í dag, laugardag, verður haldin hátíð í garðinum en tilefnið er afhjúpun útilistaverks sem garðurinn fékk að gjöf. Listaverkið er eftir Jón Gunnar Árnason, en hans þekktasta verk er án efa Sólfarið, sem stendur við Sæbraut í Reykjavík. „Listaverkið var fyrir utan heimahús á Seltjarnarnesi, svo flutti fólkið og bauð Raggagarði verkið,“ segir Vilborg. Hátíðarhöldin hefjast klukkan tvö en þá mun Einar Mikael töframað- ur kenna börnunum töfrabrögð. Klukkan hálf þrjú verður listaverk- ið svo afhjúpað og einnig verða ræðuhöld. Einar Mikael stígur svo aftur á svið og verður með sýningu. Að lokum mun Benedikt Sigurðs- son, tónlistarmaður frá Bolung- arvík, halda uppi stemmingu með brekkusöng. Raggagarður fær lista- verk eftir Jón Gunnar - Hátíðarhöld og afhjúpun í garðinum í dag Listaverk Vilborg Arnarsdóttir með myndhöggvaranum Gerði Gunn- arsdóttir en hún gaf Raggagarði myndverkið Æsku á síðasta ári. Skemmtigarður Unnið hefur verið að því í sumar að bæta aðstöðuna í Raggagarði í Súðavík og í dag verður haldin hátíð í garðinum. Hrafnhildur Schram fjallar um Nínu Hrafnhildur Schram listfræðingur mun fjalla um Nínu Sæmundsson myndhöggvara (1892-1965) að Kvoslæk í Fljótshlíð í dag, laugardag, kl. 15, en hún ritaði ævisögu Nínu sem Crymogea gaf út árið 2015. Nína fæddist í Nikulásarhúsum sem eru skammt austan við Hlíðarenda í Fljótshlíð og er þar Nínulundur til minningar um hana, fyrstu íslensku konuna sem helgaði sig höggmyndalist. LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 198. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Breiðablik gæti átt mesta möguleika af íslensku knatt- spyrnuliðunum þremur sem eru komin í aðra umferð Sambandsdeildar karla þrátt fyrir að mótherjar þeirra séu hið fornfræga lið Austria Vín. Bæði Valur og FH mæta öflugum norskum liðum, Bodö/Glimt og Rosen- borg, og hingað til hafa íslensk félög aldrei slegið norsk út í Evrópukeppni. »33 Á Breiðablik mestu möguleikana? ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.