Morgunblaðið - 23.07.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 23.07.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 2021 ALMERÍA 27. JÚLÍ - 06. ÁGÚST | 10 DAGAR FLUG & GISTING VERÐ FRÁ: 79.500 KR. *Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN. INNIFALIÐ Í VERÐI FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR INNIFALIÐ Í VERÐI FLUGSÆTI BÁÐAR LEIÐIR FLUG OG HANDFARANGUR BEINT FLUG VERÐ FRÁ: 39.900 KR.* WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Viðbragðsstjórn Landspítala ákvað í gær að hættustig myndi taka gildi á Landspítala frá miðnætti í gær, 22. júlí. Viðbragðsstjórnin tók umrædda ákvörðun í ljósi þess að faraldurinn er í veldisvexti, verkefni Covid- göngudeildar aukast daglega í samræmi við það, fleiri sjúklingar í eftirliti eru veikir, fjöldi starfsfólks er í sóttkví vegna útsetninga og nýlegrar komu erlendis frá, mönnun er með minnsta móti vegna sumarleyfa auk þess sem mikil óvissa ríkir um þróun faraldursins, innlagna- tíðni og alvarleika veikinda. Fimm starfsmenn á spítalanum eru í einangrun, 10 í sóttkví A og alls 225 í vinnusóttkví, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landspítala. „Í raun hefur spítalinn verið að færast af óvissustigi á hættustig undanfarna tvo sólarhringa með daglegum fundum viðbragðsstjórnar og farsóttanefndar og hertum sóttvarnaraðgerðum innan spítalans. Það er því eðlilegt að uppfæra viðbúnaðarstig til samræmis við þær aðgerð- ir.“ Gripið er til þess að lýsa yfir hættustigi þegar at- burður kallar eftir því að starfað sé eftir viðbragðsáætl- un. Þá er aukið og breytt álag á fjölmargar starfsein- ingar. Þetta getur falið í sér bæði breytta starfsemi og tilflutning á verkefnum og starfsfólki. Farsóttanefnd spítalans ákvað á miðvikudag að herða sóttvarnarráðstafanir vegna uppsveiflu faraldurs- ins. Þannig má einungis einn gestur heimsækja hvern sjúkling á hverjum degi. Mælst er til þess að börn yngri en 12 ára komi ekki í heimsóknir nema í samráði við stjórnendur viðkomandi deilda. Þeir sjúklingar sem koma á deildir í viðtöl, meðferð eða rannsóknir að koma einir nema brýna nauðsyn beri til. Inniliggjandi sjúklingar munu almennt ekki fá leyfi nema það sé hluti af útskriftarundirbúningi eða endur- hæfingu. Landspítali færður af óvissustigi á hættustig - Mikil óvissa sögð ríkja um innlagnatíðni og veikindi Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson Frá Landspítala Verkefni Covid-göngudeildar aukast daglega í samræmi við fjölgun smita. Runólfur Pálsson, yfirlæknir á Covid-göngudeild Landspítala, staðfesti í gær að óbólusettur ein- staklingur undir 60 ára aldri væri á leið á Landspítala vegna Covid-19, þó ekki á gjörgæslu. Fyr- ir var annar með virkt smit, einnig óbólusettur, merktur rauður sam- kvæmt litakóðunarkerfi sem notað er til að meta einkenni einstakl- inga sem liggja ekki á spítala. Þrír eru merktir gulir og eru þeir allir bólusettir. Aðrir eru merktir grænir, en virk smit eru alls 296 talsins. Grænir eru þeir sem eru með væg eða lítil einkenni Covid-19, gulir eru þeir sem eru með aukin og svæsnari einkenni og rauðir eru þeir sem eru með mjög mikil einkenni, veruleg and- þyngsli og mikinn hita til að mynda. Ef viðkomandi er svo lagð- ur inn á sjúkrahús fellur hann úr litakóðun göngudeildar. Rauðir, gulir og grænir LITAKÓÐUNARKERFIÐ Esther Hallsdóttir Unnur Freyja Víðisdóttir Farið var yfir stöðu kórónuveiru- faraldursins og þróun hans á upplýs- ingafundi Almannavarnadeildar rík- islögreglustjóra og embættis land- læknis í gær en smitum á Íslandi hefur fjölgað́ ört síðustu daga. Á miðvikudag greindust 78 kórónuveirusmit innanlands. Þar af voru nítján í sóttkví við greiningu og 59 utan sóttkvíar. Af þeim sem greindust voru 58 fullbólusettir. Þegar þessi frétt er skrifuð eru 287 í einangrun og 723 í sóttkví. Sam- kvæmt upplýsingum af covid.is hafa 85,3% einstaklinga 16 ára og eldri hér á landi verið fullbólusett gegn veirunni. Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir sagði á upplýsingafundinum í gær að ráðstafanir á landamærunum myndu einar og sér ekki duga til að hefta útbreiðslu veirunnar innan- lands. Því legði hann til aðgerðir inn- anlands. Þórólfur telur að aðgerðirn- ar sem hann leggur til ættu að taka gildi eins fljótt og hægt er, en vildi ekki greina frá hverjar þær væru. „Ég tel að ef menn ákveða sig um ákveðnar aðgerðir þá sé ekki eftir neinu að bíða. Þá held ég að menn eigi að láta það taka gildi eins fljótt og mögulegt er,“ sagði hann. Janssen-þegar bólusettir aftur Þá sagði Þórólfur vernd bóluefna gegn smiti vera minni en talið var, þó að vernd gegn alvarlegum veikind- um sé talin vera 90%. Þá muni þeir sem bólusettir voru með Janssen fá aðra bólusetningu sem og þeir sem hafa ef til vill ekki svarað bólusetn- ingu nægilega vel. Bóluefni Pfizer verður líklega notað og segir Þórólf- ur að nóg af því sé til á landinu. Áætl- anirnar koma ekki til framkvæmda fyrr en eftir miðbik ágústmánaðar þar sem ákveðinn tími þurfi að líða frá síðasta skammti bóluefnis þar til örvunarskammtur er gefinn að sögn Þórólfs. „Þetta er ekki þannig að það þurfi bara að drífa í því, við verðum að tryggja að árangurinn verði eins góður og hægt er,“ sagði Þórólfur. Nýjar upplýsingar frá Ísrael bendi til að vernd bóluefna gegn Delta-afbrigði veirunnar sé minni en talið hafi verið. Ekki hefði þó verið birt hve margir þeirra, sem veikst hefðu alvarlega í Ísrael, væru bólu- settir, og sama ætti við umBretland, þar sem hlutfall bólusetninga er einnig hátt. Delta-afbrigðið sé í mik- illi sókn í flestum löndum Evrópu og fjölgunar gæti í innlögnum á sjúkra- hús. Þetta þýði að hér á landi gætum við séð útbreitt smit meðal bólu- settra og verði útbreiðslan nógu mik- il gætum við séð aukningu í alvar- legum veikindum og innlögnum. Hér á landi hafi tveir fullbólusettir þurft á innlögn að halda á síðastliðnum vikum. Þá séu sex undir nánu eftirliti Covid-göngudeildar Landspítalans og gætu þurft á innlögn að halda á næstunni. „Ég held að við þurfum að horfast í augu við það að Covid lýkur ekki fyrr en því lýkur í öllum heiminum. Við erum margbúin að tyggja þetta, en það er eins og menn telji það hér á Íslandi, að það sé nóg að hefta út- breiðsluna hér og þá sé Covid lokið, en það er bara ekki þannig,“ sagði Þórólfur. „Ef við ætlum að hafa litlar takmarkanir innanlands þá þurfum við að hafa góð tök á landamærun- um. Annars fáum við bara veiruna aftur inn og útbreiðslu. Við þurfum að hafa það í huga. Hversu lengi við þurfum að búa við það? – ég held að það gæti verið, í einhverri mynd, í marga mánuði í viðbót. Við þurfum að reyna að koma því þannig fyrir að það verði sem minnst íþyngjandi fyr- ir alla og við þurfum virkilega að horfast í augu við það að þetta er ekki bara einhver nokkurra vikna barátta sem lýkur svo og við getum tekið upp fyrra líf. Að mínu mati er óskynsamlegt að hugsa þannig. Þetta er lengri barátta en svo,“ sagði Þórólfur. Leggur til hertar aðgerðir á ný - Ný bylgja er hafin í faraldrinum en mikill veldisvöxtur hefur verið á fjölda smitaðra undanfarna daga - Sóttvarnalæknir telur hertar aðgerðir á landamærunum ekki duga til að draga úr útbreiðslu smita 2 6 4 3 9 17 14 22 16 16 44 58 75 Fjöldi smita frá 9. júlí Heimild: covid.is Heimild: LSH 252.152 einstak- lingar eru fullbólusettir en alls 267.154 hafa fengið að minnsta kosti einn skammt 78 ný innanlandssmit greindust sl. sólarhring 287 eru með virkt smit og í einangrun 723 einstaklingar eru í sóttkví Innanlandssmit Fullbólusettir Bólusetning hafin Óbólusettir Skimun á landamærum 9. júlí 10. júlí 11. júlí 12. júlí 13. júlí 14. júlí 15. júlí 16. júlí 17. júlí 18. júlí 19. júlí 20. júlí 21. júlí Einstaklingar undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH 296 einstaklingar eru undir eftirliti Covid- göngudeildar LSH Væg eða engin einkenni Aukin einkenni Alvarlegri einkenni, s.s. mikil andþyngsli og hár hiti 10 7 6 7 9 9 24 11 43 18 52 Samantekt » Vernd bóluefna gegn smiti er minni en talið var. » Sóttavarnalæknir telur að- gerðir á landamærum einar og sér ekki duga til að stöðva út- breiðslu nýrra afbrigða veir- unnar. » Þórólfur leggur til að að- gerðir innanlands verði hertar á ný sem allra fyrst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.