Morgunblaðið - 23.07.2021, Side 4

Morgunblaðið - 23.07.2021, Side 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 2021 Lýsing á breytingu aðalskipulags Jörundarholt og Golfvöllur Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017, samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vinnslutillaga: Breyting á aðalskipulagi vegna stækkunar á íbúðasvæði Jörundarholts. Bæjarstjórn Akraness áformar breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 þannig að íbúðasvæði ÍB10 verði stækkað vegna áforma um byggingu íbúðakjarna. Vinnslutillaga: Breyting á aðalskipulagi vegna hótels við golfvöllinn Leyni. Bæjarstjórn Akraness áformar breytingu á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017 þannig að gefinn verði kostur á byggingu hótels við golfvöllinn Leyni. Hægt er að nálgast lýsinguna á heimasíðu Akraneskaupstaðar www.akranes.is og í þjónustuveri kaupstaðarins að Stillholti 16-18. Ábendingar eiga að vera skriflegar og berast fyrir 7. ágúst 2021 í þjónustuver Akraneskaupstaðar Stillholti 16-18 eða á netfangið skipulag@akranes.is fara að skima tíu til tuttugu þúsund manns á nokkrum dögum, eða á ein- um degi, fyrir bara þá hátíð. Það eru aðrar hátíðir í gangi líka á landinu þannig að ég sé ekki við höfum alveg getu til að gera það,“ sagði Þórólfur. „Menn geta nýtt sér hraðgrein- ingarpróf en það þarf samt gríð- arlegan mannskap til að sinna því.“ Þórólfur benti á að það sé ekki endilega verkefni sem ætti að vera á vegum sóttvarnalæknis, en að heil- brigðisyfirvöld hafi bent skipuleggj- endum á að skoða hvort þetta sé framkvæmanlegt. „Vissulega er þetta í skoðun, en þarfnast gríðarlegrar skipulagn- ingar, þetta er mjög dýrt og ég er ekki viss um að það myndi takast að útfæra þetta almennilega með svona stuttum fyrirvara.“ „Bíða og sjá“ „Við hlustuðum á fundinn, sótt- varnalæknir hefur komið með til- lögur og svo á hann eftir að taka tillit til annarra, þannig að við erum bara að tala saman og bíða og sjá,“ segir Hörður. Enn er óvíst hvort af Þjóðhátíð verður en Þór- ólfur Guðnason sótt- varnalæknir hefur sagt að eftir viðburði eins og Þjóðhátíð, þar sem þús- undir koma saman, gætu greinst hundruð eða þúsundir kórónuveirusmita. Rebekka Líf Ingadóttir rebekka@mbl.is Nokkrar útihátíðir fara fram um helgina þar sem mikill fjöldi fólks kemur saman. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur lýst áhyggj- um af mögulegri útbreiðslu kórónu- veirusmita við slíkar aðstæður. Þá eru enn fleiri hátíðir á dagskrá um verslunarmannahelgina og er þar stærst að venju Þjóðhátíð í Vest- mannaeyjum. Ein af þeim hátíðum sem fram fara um helgina er Bræðslan. Áskell Heiðar Ásgeirsson, einn skipuleggj- enda tónlistarhátíðarinnar, sagði í samtali við blaðamann í gær að sem stæði væri ekkert annað í stöðunni en að hátíðin færi fram. „Eins og staðan er núna eru engar takmarkanir, við vitum að það er umræða um þær en á meðan það er bara umræða einhvers staðar þá getum við ekki brugðist við því,“ sagði Áskell. Mikið mál að skima alla gesti Hörður Orri Grettisson, formaður þjóðhátíðarnefndar, segir að verið sé að ræða málin hvað varðar mögu- lega kröfu um að hátíðargestir fram- vísi neikvæðum niðurstöðum úr PCR-prófi fyrir kórónuveirunni áð- ur en þeir mæti í Herjólfsdalinn. Á upplýsingafundi Almannvarna í gær sagði Þórólfur Guðnason sóttvarna- læknir það í raun stórmál að skima alla hátíðargesti. „Það er svakalegt fyrirtæki að Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Þjóðhátíð 2019 Hátíðin fór ekki fram 2020 vegna faraldursins. Óvitað er hver örlög hátíðarinnar verða þetta árið. Stórar samkomur eru áfram á áætlun - Fjöldi hátíða á dagskrá um næstu og þarnæstu helgi Fabian Delph, liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar knattspyrnumanns hjá Everton, er að sögn íþrótta- fréttamiðilsins The Athletic öskuill- ur yfir því að félagið hafi ekki greint frá því með skilmerkilegri hætti að hann væri ekki leikmað- urinn sem hefði verið handtekinn vegna gruns um brot gegn ólög- ráða einstaklingi. Heimildir Morg- unblaðsins herma að Gylfi Þór sé umræddur leikmaður. Delph og Gylfi eru einu 31 árs leikmenn liðsins en í tilkynningu frá lögreglunni í Manchester var greint frá því að sá grunaði væri 31 árs og kvæntur. Hvorugur þeirra flaug með liðinu til Bandaríkjanna á æfingamót í síðustu viku en Ever- ton hefur þegar greint frá því að Delph hafi verið í sóttkví fyrir brottför. Hafi ráðið öryggisgæslu Samkvæmt The Athletic hefur Gylfi ráðið sér öryggisgæslu vegna málsins, götublöðin The Sun og Daily Mail greindu nýverið frá því að Everton hefði komið Gylfa fyrir í skjólshúsi með sólarhringsgæslu á meðan Alexandra Ívarsdóttir, eig- inkona hans, dvelur á Íslandi. Fabian Delph á að vera öskuillur yfir því hvers lags stöðu Everton kom honum og fjölskyldunni hans í með tilkynningu sinni. Hann ætli nú að hafa hljótt um sig þar til það sé algjörlega ljóst að hann er ekki sá grunaði. Erfið byrjun Everton réð nýlega nýjan stjóra, Rafael Benítez, en fyrstu vikurnar hans í starfi hafa verið erfiðar. Fé- lagið hefur neyðst til að draga sam- an seglin á samfélagsmiðlum á meðan mál Gylfa er til rannsóknar en iðulega reyna félögin að tefla fram glansmynd af leikmannahópn- um á þessum tíma árs áður er keppnistímabilið hefst. Breska götublaðið The Sun hefur greint frá erfiðri stemningu innan leikmannahóps Everton eftir upp- götvunina. Haft er eftir heimildar- manni þeirra innan Everton: „Liðs- félagar hans voru furðu lostnir, þeir höfðu ekki hugmynd um málið fyrr en félagið sagði þeim frá því. Sá handtekni er afar vinsæll innan hópsins svo þeir eiga bágt með að trúa þessu.“ Liðsfélagi Gylfa sagður öskuillur yfir ruglingnum - Ekki greint með skilmerkilegum hætti frá því að ekki væri átt við Delph Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Icelandair tapaði 6,9 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi, borið saman við 11,4 milljarða tap á sama fjórðungi í fyrra. EBIT var neikvæð á fjórðungnum um 7,8 milljarða króna og skánar um 4,5 milljarða frá fyrra ári. Félagið birti uppgjör sitt í gær- kvöldi í aðdraganda hluthafafundar sem haldinn verður síðar í dag. Þar verður borið undir hluthafa félags- ins að auka hlutafé þess og selja til Bain Capital Credit á genginu 1,43 krónur á hlut. Við lokun markaða í gær stóð gengi félagsins í sama gengi en það hefur lækkað talsvert í viðskiptum í Kauphöll frá því að Delta-afbrigði kórónuveirunnar tók að setja strik í reikninginn hér á landi. Farmiðatekjur félagsins námu 3,7 milljörðum króna á fjórð- ungnum, samanborið við 1,2 millj- arða á sama fjórðungi í fyrra. Auka- tekjur af farþegum námu 570 milljónum samanborið við 300 millj- ónir í fyrra. Þá námu tekjur af fraktflutningum 2,7 milljörðum og jukust úr 2 milljörðum á sama fjórð- ungi 2020. Aðrar tekjur námu 1,9 milljörðum króna og jukust úr 800 milljónum í fyrra. Félagið bendir á að umsvif þess hafi aukist talsvert á fjórðungnum miðað við síðasta ár. Þannig hafi fé- lagið beint vélum sínum að nýju til 15 áfangastaða og þá hafi brottfarir aukist úr 28 á viku í apríl í 160 í ný- liðnum júnímánuði. Þá segir í tilkynningu félagsins að flugframboð þess verði 43% í júlí miðað við sama mánuð 2019 en hafi einungis verið 15% miðað við sama ár í fyrra. Þá er sætanýting áætluð um 70% í júlí, samanborið við 47% í nýliðnum fjórðungi. Bókunum hefur fjölgað „Viðspyrnan er hafin og við erum að auka flugið jafnt og þétt í hverri viku. Þessi aukning í umsvifum sem og áframhaldandi áhrif af Covid-19- faraldrinum höfðu veruleg áhrif á rekstrarniðurstöðu fjórðungsins en mikil aukning bókana fyrir flug á seinni hluta ársins hafði jákvæð áhrif á handbært fé frá rekstri,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, og bendir á að það hafi numið 24 milljörðum króna á fjórð- ungnum. Handbært fé frá rekstri nam 8,2 milljörðum á fjórðungnum en hafði verið neikvætt sem nam 12,2 millj- örðum á sama fjórðungi í fyrra. Þá er lausafjárstaða félagsins sterk eða 45,6 milljarðar. Þar af er handbært fé og lausafjársjóðir 24 milljarðar. Brennir enn stórum fjárhæðum - Icelandair tapaði 6,9 milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi - Tapið 10,8 milljarðar það sem af er ári - Lausafjárstaðan jákvæð um 45,6 milljarða - Handbært fé frá rekstri 8,2 milljarðar í lok fjórðungsins „Á dauða mínum átti ég von en ekki þessu,“ segir Helgi Björns- son söngvari um þá stöðu sem komin er upp í samfélaginu. Bú- ið var að falast eftir honum á einhverjar hátíðir yfir versl- unarmannahelgina en hann hafði þá verið búinn að taka ákvörðun um að láta nægja að halda streymistónleika, líkt og hann varð frægur fyrir að gera á meðan samkomutakmarkanir voru í hámarki. Hann segist ekki hafa verið svo séður heldur hafi hug- myndin verið að bjóða upp á þennan valkost fyrir þá sem eiga ekki heimangengt eða kjósa að eyða versl- unarmannahelginni ann- ars staðar en á útihátíðum. Helgi fékk Reiðmenn vindanna til liðs við sig ásamt leynigest- um. Verslunar- manna Helgi BÚINN AÐ TAKA ÁKVÖRÐUN UM STREYMISTÓNLEIKA Helgi Björnsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.