Morgunblaðið - 23.07.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.07.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 2021 Enginn er alvitur eða sér alla framtíð í hendi sér. Jafnvel ekki staksteinar sem eru þó bratt- ir og góðir með sig. Ambrose Pritchard, viðskiptaritstjóri The Telegraph, hefur þó verið hittnari en margir þeirra sem véla um heimsmál í víð- lesnum pistlum. - - - Nú síðast segir hann pólskan ráðherra jafna langt til er hann nefni samninginn um rússnesku gas- leiðsluna til Þýska- lands í höfuðið á Molotov-Ribben- trop, sem páruðu forðum undir ill- ræmdan griðasátt- mála Stalíns og Hit- lers. - - - Joe Biden hafði áður fordæmt þennan gassáttmála, eins og Trump á undan honum, en síðan kúvent eins og „Tony“ boðaði í Hörpu, og kallaði Björn Bjarnason að Blinken hefði þar og þá lagt gull í lófa Lavrovs. - - - Og nú minnir Björn á sjónarmið Pritchards um að ESB geti ekki lengur leikið tveimur skjöld- um í málinu og síst eftir að Pól- verjar hafi unnið lykilmál fyrir ESB-dómstóli, sem sagði ESB framvegis skylt að horfa til áhættu allra aðildarríkjanna í orkumálum. - - - Telji Pritchard þau úrslit gjör- breyta myndinni. Gas- skömmtun Pútíns stangist á við dóminn og von hans sé að geta þvingað ESB til að hafa niður- stöðu eigin dómstóls að engu. - - - Í því felist í raun tilvistarógn við ESB. Ambrose Evans-Pritchard Gasaleg úrslit STAKSTEINAR Björn Bjarnason Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ OTTA VÖ TÆ Af . . NÝ SENDING AF REGNJÖKKUM OG REGNBUXUM Stærðir 14-32 eða 42-60 w. veg . . Hreyfils sið v/Grensásveg , 108 Reykjavik | Sími 581-1552 | www.curvy.is Skötumessan í í Gerðaskóla í Garði úthlutaði styrkjum að uppphæð rúm- ar fimm milljónir króna til góðra málefna þegar hin árlega Skötu- messa var haldin á miðvikudags- kvöld. Ásmundur Friðriksson alþingis- maður hefur leitt Skötumessuna frá upphafi. Hann sagði að stærsta verk- efnið sem nú var styrkt sé að útbúa sérhönnuð samskiptaskilti. Þau verða sett upp hjá öllum grunnskól- um á Suðurnesjum. Skiltin eiga að auðvelda tjáskipti nemenda með ólík- an bakgrunn og tungumálakunnáttu. Þá fékk Velferðarsjóður Suður- nesja myndarlegan styrk til að hjálpa þeim nemendum í FSS sem þess þurfa með að kaupa mat í skól- anum. Einnig voru margir einstak- lingar styrktir til náms eða vegna annarra þarfa sem gerð var nánari grein fyrir við úthlutunina. Fjölbreytt skemmtiatriði voru að vanda. Dói og Baldvin léku á harm- ónikkur, Páll Rúnar Pálsson frá Heiði í Mýrdal söng og eins tóku lag- ið félagarnir Davíð og Óskar. Jarl Sigurgeirsson leiddi fjöldasöng og Karen Guðmarsdóttir tók nokkur lög. Rúnar Þór og hljómsveit léku. Ræðumaður kvöldsins var Óttar Guðmundsson geðlæknir sem talaði um Þorlák helga. gudni@mbl.is Skötumessan styrkti góð málefni - Rúmlega fimm milljónum króna var úthlutað á messunni í Gerðaskóla Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Skötumessa Ásmundur Friðriks- son afhenti styrkina. Ívar J. Arndal, forstjóri ÁTVR, hef- ur tekið ákvörðun um að tjá sig ekki um kæruna, sem Arnar Sigurðsson, eigandi Santewines lagði fram til lögreglu á hendur honum. Þar er hann sakaður um vísvitandi rangar sakargiftir eftir að hafa kært Arnar og tvö félög í hans eigu, Sante SAS og Santewines ehf., fyrir meint skattsvik. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, að- stoðarforstjóri ÁTVR, segir að Ívar hafi aðeins skrifað undir kæruna sem forstjóri, fyrir hönd ÁTVR. Kæran sem varðar vísvitandi rangar sakargiftir beinist aftur á móti að honum persónulega og því vill Sigrún ekki tjá sig um hana. „Þetta hefur bara sína leið í kerf- inu, málin eru í vinnslu hjá lögreglu og skattayfirvöldum,“ segir Sigrún og bætir við að málin verði ekki rek- in í fjölmiðlum. ÁTVR byggði ásakanir sínar á því að Sante væri ekki með virðisauka- skattsnúmer og hefði því ekki goldið skatt af sölunni. Arnar benti á að fé- lagið væri víst með slíkt númer og auk þess fullsnemmt að saka menn um skattsvik áður kæmi að uppgjöri tímabilsins. Sigrún vildi ekki heldur tjá sig um þetta fyrir hönd ÁTVR. Lögregla hefur nú á sínu borði bæði kæru vegna skattsvika og kæru vegna rangra sakargifta og er það undir henni komið hvort rann- sókn fari fram. ÁTVR hefur lýst þeirri afstöðu sinni að netverslun á við þá sem Arnar rekur, feli í sér ólöglega starf- semi og um sé að ræða augljósan málamyndagerning. Arnar segist aftur ekki vera að sniðganga lögin heldur laga starfsemina að þeim. Ívar Arndal ætlar ekki að tjá sig - Tvö mál á borði lögreglu og eitt hjá skattayfirvöldum Ríkið Ívar J. Arndal, forstjóri ÁTVR, vill ekkert segja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.