Morgunblaðið - 23.07.2021, Side 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 2021
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Sími 4 80 80 80
25 ára reynsla
INNFLUTNINGUR AF NÝJUM
OG NOTUÐUM BÍLUM
VERKSTÆÐI
VARAHLUTIR
FRÉTTASKÝRING
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Tveir ráðherrar falla út af þingi,
formaður stjórnmálaflokks er í fall-
hættu og þingflokksformaður fellur
af þingi ef skoðanakönnun, sem
MMR gerði í samstarfi við Morg-
unblaðið og mbl.is, gengur eftir.
Eins og sjá má verða töluverðar
breytingar á þingheimi til samræm-
is við það, nýir þingmenn ná kjöri
og gamlir ekki.
Áður hafa hér í blaðinu verið
kynntar niðurstöður könnunarinnar
fyrir landið allt, en ef svör úr ein-
stökum kjördæmum eru umreiknuð í
þingsæti samkvæmt kosningalögum,
breytist staðan eilítið, þannig að
Sjálfstæðisflokkur og Framsóknar-
flokkur vinna hvor sinn manninn, en
Samfylking og Píratar gefa einn eftir
hvor.
Það þýðir að ríkisstjórnin héldi
velli með 33 þingmönnum, þó að
meirihlutinn geti tæplega orðið
naumari fyrir lífvænlega ríkis-
stjórn.
Kosningakerfið á Íslandi er frek-
ar flókið miðað við hve fáir þing-
mennirnir eru og kjördæmin fá. Og
ekki verður það einfaldara við það
að flokkarnir eru svo margir.
Lög kveða á um reiknireglur
varðandi þingmannafjölda kjör-
dæma, hvernig jöfnunarsætum er
útdeilt og þar fram eftir götum.
Eins og kjósendur þekkja frá fyrri
kosningum þarf lítið að breytast til
þess að hrófla við jöfnunarsætum,
sem getur haft víðtæk áhrif.
Mikil óvissa
Rétt er að ítreka að þessir út-
reikningar og nafnaskráin að ofan
eru ekki föst í hendi. Til þess að
reikna út þingmenn eftir kjördæm-
um er miðað við kjörsókn í síðustu
kosningum, en ekkert er gefið um
að hún verði svipuð í öllum kjör-
dæmum eða nokkru í haust. Eins
munar sums staðar svo litlu að ekki
þarf nema nokkur atkvæði til eða
frá í einu kjördæmi til þess að
breyta stöðunni mikið og langt út
fyrir það kjördæmi. Sérstaklega
auðvitað ef það verður til þess að
einn eða fleiri flokkar falli af þingi,
sem gæti vel gerst. Samkvæmt
skoðanakönnuninni eru þrír flokkar
rétt fyrir ofan 5% þröskuldinn, sem
áskilinn er, og þeir flokkar eru ekki
endilega að bítast um sama fylgi.
Ekki síður þarf svo að hafa í huga
að svörin í könnuninni í hverju kjör-
dæmi eru færri en svo að unnt sé að
halda því fram að niðurstaðan sé ná-
kvæm. Að því leyti má kalla þing-
mannatalið að ofan samkvæmisleik,
en gefur þó nokkra hugmynd um
hvað kunni að vera í spilunum eftir
rúma tvo mánuði. Þau verða ekki
einföld með níu flokka á þingi.
Ráðherrar í hættu
Eins og sjá má ná framsóknar-
menn engum manni inn í Reykja-
víkurkjördæmunum samkvæmt
þessu. Þá eru tveir ráðherrar úr
leik, þau Lilja Alfreðsdóttir og Ás-
mundur Einar Daðason, sem aug-
ljóslega væri mikil blóðtaka fyrir
flokkinn ef það gengi eftir.
Varla yrðu sjálfstæðismenn kát-
ari með að missa Birgi Ármannson,
þingflokksformann sinn, af þingi
eins og þessar tölur benda til, þótt
hann hafi raunar sérstakt lag á að
lukkast inn á þing.
Sömuleiðis er Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson í hættu í Norðaust-
urkjördæmi, er ekki kjördæmakjör-
inn en kemst að sem uppbótarmað-
ur. Ef hann félli hins vegar af þingi
myndi flokkurinn falla með honum.
Jafnvel þó svo jöfnunarsætið nýttist
annars staðar yrði Miðflokkurinn
ekki samur án hans.
9
17
6 33
8
7
7
3
*Þingmenn eru reiknaðir með reiknivél Landskjörsstjórnar, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar MMR, en miðað er við kjörsókn í alþingiskosningum 2017. Svör úr kjördæmum voru mjög mismörg, svo niðurstöður smærri flokka í fámennari kjördæmum geta byggst á afar fáum svörum.Ath.: Ekki eru allir listar skipaðir enn.
24,6%
12,9%
5,2% 9,4% 5,1%
13,1%
10,7%
12,2%
5,6%
1,29%
Þingmenn kjördæma samkvæmt skoðanakönnun MMR
úr spurningavagni MMR 8.-14. júlí
SV
13 ÞINGMENN
RS
11 ÞINGMENN
RN
11 ÞINGMENN
NV
8 ÞINGMENN
NA
10 ÞINGMENN
S
10 ÞINGMENN
Kjördæmakjörnir
● Bjarni Benediktsson (D)
● Jón Gunnarsson (D)
●Willum Þór Þórsson (B)
● Þorgerður K. Gunnarsdóttir (C)
● Þórhildur SunnaÆvarsdóttir (P)
● Þórunn Sveinbjarnardóttir (S)
● Guðmundur I. Guðbrandsson (V)
● Bryndís Haraldsdóttir (D)
● Óli Björn Kárason (D)
● Ágúst Bjarni Garðarsson (B)
● Sigmar Guðmundsson (C)
Jöfnunarsæti
● Gísli Rafn Ólafsson (P)
● Elín Anna Gísladóttir (C)
Kjördæmakjörnir
● Svandís Svavarsdóttir (V)
● Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (D)
● Björn Leví Gunnarsson (P)
● Kristrún Frostadóttir (S)
● Orri Páll Jóhannsson (V)
● Hildur Sverrisdóttir (D)
● Hanna Katrín Friðriksson (C)
● Inga Sæland (F)
●Arndís A. Kristínar- Gunnarsd. (P)
Jöfnunarsæti
● Daníel E.Arnarson (V)
●— (F)
Kjördæmakjörnir
● Guðlaugur Þór Þórðarson (D)
● Halldóra Mogensen (P)
● Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir (C)
● Helga Vala Helgadóttir (S)
● Diljá Mist Einarsdóttir (D)
● Katrín Jakobsdóttir (V)
● Brynjar Níelsson (D)
●Andrés Ingi Jónsson (P)
● Jón Steindór Valdimarsson (C)
Uppbót
●— (J)
● Jóhann Páll Jóhannsson (S)
Kjördæmakjörnir
● Þórdís K. R. Gylfadóttir (D)
● Stefán Vagn Stefánsson (B)
●Valgarður L. Magnússon (S)
● Haraldur Benediktsson (D)
● Lilja Rannveig Sigurðardóttir (B)
● Teitur Björn Einarsson (D)
● Bergþór Ólason (M)
Jöfnunarsæti
●— (J)
Kjördæmakjörnir
● Ingibjörg Ólöf Isaksen (B)
● Logi Einarsson (S)
● Njáll Trausti Friðbertsson (D)
● Líneik Anna Sævarsdóttir (B)
● Óli Halldórsson (V)
● Þórarinn Ingi Pétursson (B)
●— (J)
● Hilda Jana Gísladóttir (S)
● Berglind Ósk Guðmundsdóttir (D)
Jöfnunarsæti
● SigmundurDavíðGunnlaugsson (M)
Kjördæmakjörnir
● Guðrún Hafsteinsdóttir (D)
● Sigurður Ingi Jóhannsson (B)
●Vilhjálmur Árnason (D)
● Álfheiður Eymarsdóttir (P)
● Oddný G. Harðardóttir (S)
● Ásmundur Friðriksson (D)
● Ásthildur Lóa Þórsdóttir (F)
● Birgir Þórarinsson (M)
● Jóhann Friðrik Friðriksson (B)
Jöfnunarsæti
● Hólmfríður Árnadóttir (V)
D
B
M
C F
S
V
P
J
Mjótt á milli feigra
og ófeigra flokka
- Fylgi má lítið hreyfast til að menn eða flokkar falli af þingi
Morgunblaðið/Eggert
Alþingi Gengið verður til alþingiskosninga hinn 25. september næstkom-
andi, en þá taka kjósendur að sér að vísa þessu fólki til sætis. Eða á dyr.