Morgunblaðið - 23.07.2021, Page 13

Morgunblaðið - 23.07.2021, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 2021 Mikið úrval lita bæði á áklæði og grind. Sérsmíðum allt eftir pöntunum. Íslensk hönnun og framleiðsla frá 1960E60 Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is Stóll E-60 orginal kr. 38.600 Retro borð 90 cm kr. 142.000 (eins og á mynd) Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Norðmenn minntust þess í gær að tíu ár eru liðinn frá fjöldamorðunum í Útey og Ósló þann 22. júlí árið 2011. Fyrir áratug myrti Anders Behring Breivik, nú Fjotolf Hansen, 77 manns. Þegar klukkan var 25 mínútur gengin í fjögur föstudaginn 22. júlí árið 2011, sprakk bílsprengja í mið- borg Óslóar við skrifstofur ríkis- stjórnarinnar. Sprengjan olli tölu- verðu tjóni á byggingum og varð til þess að átta létu lífið. Um tveimur tímum síðar hóf Breivik skotárás í Útey þar sem börn og ungmenni voru saman komin á samkomustað ungliðahreyfingar norska Verka- mannaflokksins. Þar skaut hann 69 til bana og særði enn fleiri á einungis 72 mínútum. Breivik, sem var 32 ára, sagði ástæðu morðanna vera baráttu gegn fjölmenningarstefnu og trú hans væri að múslimar væru að taka yfir Evrópu. Fyrir árásirnar hlaut hann þyngsta fangelsisdóm sem norsk lög bjóða upp á, 21 ár. Dóminn verður þó hægt að framlengja þegar þar að kemur. Árás knúin af hatri Í gær flutti Erna Solberg for- sætisráðherra ávarp ásamt Astrid W.E. Hoem, formanni Ungra jafn- aðarmanna og einu af vitnum árás- anna í Útey. „Atburðir 22. júlí gerð- ust ekki af handahófi. Þetta voru ekki náttúruhamfarir. Þetta var markviss pólitísk hryðjuverkaárás, knúin af öfgakenndri hægrisinnaðri hugmyndafræði og hatri,“ sagði Hoem í ræðu sinni. Meðal við- staddra voru krónprins og krón- prinsessa Noregs, Hákon og Mette- Marit. Þá voru nöfn allra fórnar- lamba árásanna lesin upp. 77 klukkuslög Síðdegis fór fram minningarguðs- þjónusta í dómkirkjunni í Ósló þar sem Jens Stoltenberg, sem gegndi embætti forsætisráðherra þegar árásin átti sér stað, flutti ræðu. „Fyrir tíu árum síðan mættum við hatri með ást en hatrið er enn til staðar,“ sagði Stoltenberg í ræðu sinni, en fyrir nokkrum dögum var skrifað á styttu í úthverfi Óslóar: „Anders hafði rétt fyrir sér.“ Fjöldi manna hefur fordæmt skemmdar- verkin á styttunni sem er af Ben- jamin Hermansen sem var myrtur af þremur nýnasistum árið 2001. Eftir minningarguðsþjónustuna í gær hringdu kirkjuklukkur sam- tímis um allan Noreg. Um kvöldið slógu klukkur Ráðhússins í Ósló svo 77 slög, eitt fyrir hvert fórnarlamb. AFP Minningarathöfn Áratugur er frá fjöldamorðunum í Útey og Ósló. Mættu hatri með ást - Áratugur frá fjöldamorðunum í Noregi - 77 létust í árásunum - Hlaut þyngsta dóm - Lásu upp nöfn fórnarlambanna - Ráðhúsklukkur í Ósló slógu 77 högg Búið er að dæma aðgerðarsinna á Kúbu í fangelsi. Sjónlistamaðurinn, Anyelo Troya, sem kom að gerð tón- listarmyndbandsins við lagið Patria y Vida, hefur til að mynda hlotið eins árs fangelsisdóm. Lagið var ein kveikjan að mótmælunum sem geisa á götum Kúbu. Fyrr í vikunni stað- festu kúbversk yfirvöld að nú færu fram réttarhöld yfir þeim sem hafa verið handteknir fyrir að ýta undir óeirðir í samfélaginu, brotin eru af ýmsum toga en varða refsingu allt að 20 ára fangelsisvist. Kúbversk yfirvöld hafa handtekið mikinn fjölda fólks á grundvelli þess að það sé svikarar, þar af minnst hundrað mótmælendur, aðgerða- sinna og sjálfstæða blaðamenn. Efnahagsástandið á Kúbu hefur ekki verið verra frá því að komm- únistabyltingin átti sér stað. Ofan á það bætist heimsfaraldurinn sem hefur leikið þjóðina grátt. Kúbverjar mótmæla því hvernig ríkisstjórnin hefur brugðist við þessum erfiðleik- um en ganga enn lengra og krefjast frelsis og vilja binda endi á komm- úníska stjórnarhætti ríkisins. Á miðvikudaginn lýsti Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, því yfir að Bandaríkin stæðu með mótmælend- unum og tjáningarfrelsi þeirra. For- seti Kúbu, Miguel Diaz-Canel, hélt fjögurra klukkustunda langt ávarp í ríkissjónvarpinu í kjölfarið. Þar sak- aði hann Biden um hræsni þar sem Bandaríkin hertu viðskiptabannið gagnvart Kúbu undir stjórn Trumps og Biden hafi ekki enn aflétt því banni. Díaz-Canel telur að það sé stór þáttur í því slæma ástandi sem hefur verið á Kúbu. Utanríkisráð- herra Kúbu kennir einnig Banda- ríkjunum um. Sakar Banda- ríkin um hræsni - Réttað yfir mótmælendum á Kúbu AFP Mótmæli Margir hafa verið hand- teknir fyrir að ýta undir óeirðirnar. Innanríkisráðherra Bretlands, Priti Patel, hefur samið við Frakka um greiðslu upp á 54 milljónir punda, eða um níu milljarða íslenskra króna, fyrir aukna gæslu á Ermar- sundi til þess að stemma stigu við ólöglegum innflytjendum, sem reyna að komast yfir sundið á bát- kænum. Annar samningur var und- irritaður í nóvember sem hljóðaði upp á rúmar 28 milljónir punda og hefur upphæðin því tæplega tvö- faldast í nýja samningnum. Það sem af er þessu ári hafa um 8.500 innflytjendur komið til Dover á Englandi sem er meira en allt síð- asta ár. Sumir draga í efa að nýi samningurinn dugi mikið, þar sem franska strandlengjan er löng. BRETLAND AFP Ermarsund Gæsla eykst um helming. Níu milljarðar í gæslu á Ermarsundi Opnunarhátíðar- stjóri Ólympíu- leikanna í Japan, Kentaro Koba- yashi, var sagt upp í gær, aðeins einum degi fyrir opnunarhátíð leikanna.Upp- sögnina má rekja til upptöku af grínatriði sem Kobayashi setti á svið fyrir 23 ár- um. Atriðið hefur vakið mikla reiði meðal fólks sem sakar Kobayashi um að hafa gert lítið úr örlögum fórnarlamba helfararinnar með gríni sínu. Eftir að honum var sagt upp gaf Kobayashi út yfirlýsingu þar sem hann segist fullur iðrunar. „Ég skil að heimskulegt orðaval mitt á sínum tíma sé rangt og ég sé eftir þessu,“ segir hann. ÓLYMPÍUHNEYKSLI Rekinn fyrir að segja brandara Kentaro Kobayashi Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Bandaríkin og Þýskaland hafa gert með sér samning um jarðgasleiðsl- una Nord Stream 2 sem mun liggja frá Rússlandi til Þýskalands. Leiðslan mun flytja um 55 millj- arða rúmmetra af jarðgasi árlega undir Eystrasaltið til Þýskalands og annarra landa í Vestur-Evrópu. Leiðslan hefur þó ekki sefað áhyggj- ur manna af því að Rússar noti orkuna sem vopn í deilum við önnur ríki. Óttast er að Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, noti leiðsluna til þess að svipta Úkraínumenn þeim tekjum sem þeir hafa af orkusölu til Evrópu. Margir telja gasleiðsluna styrkja efnahagslegt tak Rússa á Evrópu og pólitísk áhrif. Þvingunaraðgerðir Árið 2019 beitti bandaríska þingið refsiaðgerðum gegn þeim fyrir- tækjum og einstaklingum sem komu að Nord Stream 2. Aðgerðirnar vöktu reiði Þjóðverja en þeir sögðu þær vera inngrip í innanríkismál Þýskalands. Þvingunaraðgerðirnar voru því dregnar til baka í maí á þessu ári. Í samningi Bandaríkjamanna og Þjóðverja er kveðið á um að aðgerð- irnar séu dregnar til baka gegn því að Þjóðverjar hugi að hagsmunum Úkraínu og annarra Evrópuþjóða gagnvart ógn Rússa. Þjóðverjar hafa því heitið að takmarka innflutn- ing orku frá Rússlandi ef Rússar nota orkuna sem vopn gegn Úkra- ínu. Í samningnum segir einnig að Þýskaland muni leggja fram 70 milljónir Bandaríkjadala, eða um 8,8 milljarða íslenskra króna, til að bæta öryggi orkumannvirkja Úkraínu. Utanríkisráðherrar Úkraínu og Póllands leggjast gegn lagningu gasleiðslunnar og telja samninginn vera yfirborðskenndan og ekki nægilega strangan til að verjast ógn Rússa. Standa saman um Nord Stream 2 - Gasleiðslan flytur um 55 milljarða rúmmetra af jarðgasi til Evrópu árlega AFP Gas Leiðslurnar flytja jarðgas.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.