Morgunblaðið - 23.07.2021, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 23.07.2021, Blaðsíða 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 2021 Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is Verbena hinn fullkomni sumarilmur Sigurður Jónsson, fyrrverandi varafor- maður Landssam- bands eldri borgara (LEB) og fyrrverandi bæjarstjóri í Garði fyrir hönd Sjálfstæðis- flokksins, skrifaði grein sem birt var í Morgunblaðinu 9. júlí með fyrirsögninni „Sterkari Sjálfstæðis- flokkur nauðsyn- legur“. Þar hrósar hann Sjálfstæð- isflokknum og gerir lítið úr öðrum flokkum. Í greininni gagnrýnir hann meðal annars dómsmál sem Flokkur fólksins vann fyrir hönd ellilífeyrisþega. Hann skrifar: „Flokkur fólksins hefur helst afrek- að það á kjörtímabilinu að fara í mál við ríkið vegna klaufaskapar Alþingis í lagasetningu um al- mannatryggingar. Málið vannst og var þar með hægt að færa tekju- hæstu lífeyrisþegum milljarða í bætur.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sigurður og aðrir varðhestar fjórflokkanna deila þessari fölsku og ósanngjörnu frásögn og þetta er án efa ekki í síðasta sinn sem þörf er fyrir að hrekja þessa dæmalausu þvælu. Í málinu sem Sigurður nefnir komst Landsréttur að þeirri nið- urstöðu að ríkið hefði brotið gegn eldri borgurum með því að skerða greiðslur til þeirra með afturvirkri og íþyngjandi löggjöf. Niðurstaðan í þessu máli varð til þess að ríkið greiddi 32.000 eldri borgurum um sjö milljarða króna með vöxtum. Langflestir sem fengu þessa leið- réttingu voru fólk með lágar eða meðaltekjur. Burtséð frá því hverj- ir hafa fengið hvað, þá er það gjör- samlega óviðeigandi að fyrrverandi varaformaður LEB tali það niður að Landsréttur hafi dæmt eldri borgurum í vil. Þetta mál snýst um ólögmætar skerðingar á greiðslum til ellilífeyrisþega og fólk ætti að fagna því að einhver hafi tekið það að sér að verja réttindi aldraðra. Einnig er rangt að segja að þetta dómsmál sé eina afrek Flokks fólksins á kjörtímabilinu. Á síðasta þingfundi kjörtímabilsins voru tvö baráttumál Flokks fólksins sam- þykkt; að stofna hagsmunafulltrúa eldra fólks og að blindum og sjón- skertum standi til boða að fá leið- söguhund sér að kostnaðarlausu. Að ná þessum málum í gegn er fagnaðarefni fyrir flokkinn enda koma þingmál stjórnarandstöðu- flokka sjaldan til atkvæða og eru nánast aldrei samþykkt. Flokkur fólksins hefur lagt fram á fjórða tug þingmála, bæði frumvörp og þingsályktunartillögur, sem nær undantekningalaust hafa verið „svæfð í nefnd“ ár eftir ár og hafa því aldrei komist til atkvæða- greiðslu. Því er það afar merkilegt að Alþingi hafi samþykkt þessi tvö þingmál flokksins. Þessi tvö mál eru ekki þau fyrstu sem Flokkur fólksins hefur fengið samþykkt á Alþingi. Árið 2018 náðu þingmenn flokks- ins að fella niður skerðingar á styrkjum, sem öryrkjar og lífeyr- isþegar fá, til að standa straum af kostnaði við útgjöld vegna veikinda. Með þessu var hætt að skerða lífeyri vegna hjálpartækjastyrkja, lyfjakaupastyrkja og bensínstyrkja. Þessi breyting sparar 6.000 öryrkjum og eldri borgurum að meðaltali um 120.000 kr. á hverju ári. Flokkur fólksins hefur staðið vörð um hagsmuni eldra fólks á liðnu kjörtímabili. Í stað þess að veita þessari baráttu stuðning hafa Sigurður Jónsson, og hans fyrrver- andi samstarfsmaður og fyrrver- andi formaður LEB, Þórunn Svein- björnsdóttir, sem er nú í framboði fyrir Framsóknarflokkinn, stöðugt streist á móti þessari baráttu. Þau hafa gagnrýnt allan þann árangur sem Flokkur fólksins hefur afrekað og hunsað fjölda umsagnarbeiðna frá Alþingi um þingmál flokksins. Þar á meðal eru þingmál um bú- setuöryggi í dvalar- og hjúkrunar- rýmum, frumvarp um 100.000 kr. frítekjumark vegna lífeyristekna, frumvarp um að lífeyrir almanna- trygginga fylgi ávallt launaþróun eins og hún kemur fram í launa- vísitölu, frumvarp um að hjálpar- tæki verði undanþegin virðis- aukaskatti, frumvarp um eignarrétt og erfð lífeyris, tillaga um afnám vasapeningafyrirkomulagsins, til- laga um aukið lýðræði og gagnsæi í lífeyrissjóðum og frumvarp um af- nám skerðinga vegna launatekna aldraðra. Það er sárara en tárum taki að fólk sem hefur tekið virkan þátt í hagsmunabaráttu aldraðra beiti svona pólitískum brögðum til þess að koma í veg fyrir samstöðu í þeim sanngirnis- og réttlætismálum sem Flokkur fólksins hefur verið að mæla fyrir á Alþingi. Það liggur í hlutarins eðli að við náum frekar árangri sameinuð en sundruð. Svar við grein Sigurðar Jónssonar Eftir Sigurjón Arnórsson » Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Sigurður og aðrir varðhestar fjórflokkanna deila þessari fölsku og ósanngjörnu frásögn. Sigurjón Arnórsson Höfundur er framkvæmdastjóri Flokks fólksins. Hver er tilgangurinn með fyrirsögn fjölmiðla eins og; „…grunaður um að hafa brotið gegn barni“ þegar um ungling er að ræða. Þegar rætt er um börn í þessu samhengi verður manni illa brugðið. Barn fyrir mér í þessu samhengi er ekki 16 ára ung- lingur, þó svo að samkvæmt ís- lenskum lögum sé unglingurinn barn til 18 ára aldurs. Samkvæmt almennum hegningarlögum er það lögbrot að hafa samræði eða önnur kynferðismök við barn sem er yngra en 15 ára. Hvers vegna er viðmiðið í hegningarlögunum 15 ár? Mögulega er það vegna þess að vit- að er að börn á aldrinum 15-17 ára eru mörg hver vel virk kynferðis- lega. Dregnar eru upp svörtustu myndir af máli til að hneyksla og til að fá sem flest „klikk“ á fyrirsögn. Nokkurra ára gamalt mál er af ein- hverjum undarlegum hvötum dreg- ið upp og menn teknir af lífi nánast í beinni fyrir tilstuðlan slúðurs ásamfélagsmiðlum. Aðgát skal höfð og gæta þarf sannmælis í notkun orða. Saklaus þar til sekt er sönnuð. Sigríður. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Villandi fyrirsagnir og æsifréttastíll Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hæstiréttur Hafa skal í huga að ein- staklingur er saklaus þar til sekt er sönnuð. Fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.