Morgunblaðið - 23.07.2021, Page 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 2021
✝
Eygló Sigur-
liðadóttir
fæddist á Akureyri
9. september 1944.
Hún lést á Land-
spítalanum 13. júlí
2021.
Foreldrar
Eyglóar voru Sig-
urliði Jónasson, f.
22.06. 1911, d.
16.02. 2006, og
Jóna Gróa Að-
albjörnsdóttir, f. 5.10. 1923, d.
8.1. 2007. Börn þeirra eru auk
Eyglóar; Una Aðalbjörg, f.
19.3. 1950, og Björn, f. 14.4.
1956.
Eygló giftist Birgi R. Páls-
syni matreiðslumeistara, 28.11.
1964, f. 5.7. 1939. Foreldrar
hans voru Páll Sigurgeir Jón-
asson, f. 8.10. 1900, d. 31.1.
1951, og Þórsteina Jóhanns-
dóttir, f. 22.1. 1904, d. 23.11.
1991.
Börn Eyglóar og Birgis eru:
1) Birgir Arnar, f. 18.4. 1964,
kvæntur Sesselju Jóhannes-
Akureyri. Eygló kynntist Birgi
fyrst þegar hún vann hjá KEA
en hann var þar mat-
reiðslumaður. Þau hófu hjú-
skap í Reykjavík 1964 og eign-
uðust þá sitt fyrsta barn.
Lengst af bjuggu þau í Þrast-
arlundi 9 í Garðabæ en síðustu
árin voru þau búsett á Strand-
vegi 9.
Eygló vann alla tíð með
manni sínum við veitinga- og
þjónustustörf. Þau réðu sig til
að mynda bæði í vinnu í Lídó,
Skiphól og Glæsibæ, þar sem
Eygló vann sem smurbrauðs-
dama en Birgir sem mat-
reiðslumaður. Árið 1975 stofn-
uðu þau skemmtistaðinn
Snekkjuna og veitingastaðinn
Skútuna í Hafnarfirði ásamt
sonum sínum. Árið 1982 fluttu
þau reksturinn að Dalshrauni
15 og 10 árum seinna í eigið
húsnæði að Hólshrauni 3. Á
þessum árum sá Eygló að
mestu um reksturinn og stjórn-
aði veislusalnum en með ár-
unum hafa synirnir tekið við af
þeim.
Eygló tók einnig virkan þátt
í félagsstörfum hjá Sinawik og
hjá Kvenfélagi Heimaeyjar.
Útför Eyglóar fer fram frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í
dag, 23. júlí 2021, klukkan 15.
dóttur, f. 1965.
Þeirra börn eru a)
Arnar Páll, f. 1987,
í sambúð með An-
gelu Mariu Da C.
Dos Santos, f.
1983, börn þeirra
eru Anna María, f.
2017, og Samúel, f.
2020. b) Jóhanna
Karen, f. 1993, og
c) Eygló Björk, f.
1999. 2) Sigurpáll
Örn, f. 8.2. 1969, kvæntur Jónu
Björt Magnúsdóttur, f. 1972.
Þeirra börn eru a) Egill Örn, f.
1993, b) Ívar Már, f. 1995, son-
ur hans er Marvin Þór, f. 2018,
c) Máni Hrafn, f. 2002. 3) Ómar
Már, f. 28.1. 1975, dóttir hans
er Írena Björk, f. 1999.
Eygló ólst upp á Akureyri,
var í Lundagötu 6 en svo í
Engimýri 11, þar sem for-
eldrar hennar byggðu hús
1953. Hún lauk námi frá Gagn-
fræðaskóla Akureyrar 1961.
Hún vann fyrst í bakarínu hjá
KEA og síðar í Járn og Gler á
Elsku mamma mín hefur
kvatt okkur.
Er maður einhvern tímann
tilbúinn að kveðja ástvin? Núna
á þessari stundu er mér þakk-
læti til þín efst í huga. Við
fengum að ferðast mikið saman
í gegnum lífið, ekki bara sem
mæðgin heldur unnum við líka
saman í mörg ár. Að hafa unnið
með foreldrum sínum og fjöl-
skyldu í allan þennan tíma er
dýrmætt núna.
Þú passaðir vel upp á okkur,
varst alltaf að athuga hvort allt
væri ekki í lagi hjá okkur, al-
veg svo mikið að maður var
orðinn þreyttur á þessu en
svona varst þú, alltaf að passa
upp á allt.
Það var mikil gleði í kringum
þig, alltaf gaman að koma heim
í boð til þín. Þér fannst gaman
að ferðast og skoða nýja staði
og best ef það var á sólríkum
stað. Svo fannst þér líka alltaf
gott að eyða tíma uppi í sum-
arbústað og planta fleiri trjám.
Þú varst ákveðin og lést hlutina
gerast, það þýddi ekkert að
hangsa neitt í kringum þig,
varst dugleg að láta heyra í þér
ef þess þurfti.
Þótt móðir mín
sé nú aðeins minningin ein
mun ég ávallt minnast hennar
með glöðu geði
og dýpstu virðingu,
hugheilu þakklæti
og hjartans hlýju,
fyrir allt og allt.
(Sigurbjörn Þorkelsson)
Mamma átti erfitt ár í ár,
háði baráttu við krabbamein
sem henni hafði tekist að ná
góðum árangri við en svo gaf
líkaminn sig af álaginu.
Mamma lést í faðmi fjöl-
skyldunnar, við vorum öll hjá
henni og áttum góða stund öll
saman og fylgdum henni sein-
ustu skrefin eins og hún hefur
fylgt okkur eftir í lífinu.
Bless mamma mín.
Ómar Már.
Það er mér afar þungbært að
kveðja elsku tengdamóður mína
sem hefur verið ein af kjölfest-
unum í mínu lífi svo lengi. Jafn-
framt er ég þakklát fyrir öll ár-
in okkar saman, en hún
reyndist mér alla tíð svo góð og
milli okkar skapaðist mikil vin-
átta. Okkar samleið stóð í 40 ár
eða frá því ég kom fyrst á
hennar heimili, 16 ára gömul,
þegar við Birgir Arnar, elsti
sonur hennar, byrjuðum að
vera saman. Hún heillaði mig
frá upphafi. Hún var einstak-
lega falleg og glæsileg, með
sterkan og ákveðinn persónu-
leika. Hún var mikil smekk-
manneskja og fagurkeri, alltaf
fallega tilhöfð og heimilið
glæsilegt. Hún var dugleg,
frumkvöðull í eðli sínu og áræð-
in. Hún fylgdist vel með öllum
nýjungum og tískustraumum.
Þessir eiginleikar nutu sín vel í
rekstri fyrirtækis þeirra Birgis,
Skútunnar, sem þau stofnuðu
saman 1975 og er enn starfandi
undir stjórn sona þeirra
þriggja. Hún var glaðleg og
skemmtileg kona, þótti gaman
að klæða sig upp og skemmta
sér í góðra vina hópi. Það var
gaman að tala við hana, hún
fylgdist með öllu, var eldklár
og með ákveðnar skoðanir.
Hjónaband þeirra Birgis var al-
veg einstakt, þau voru sem eitt,
samheldin og samstíga og alltaf
jafn hrifin hvort af öðru. Þau
unnu alla tíð saman við veit-
inga- og þjónustustörf. Ég
vann um tíma hjá Eygló í Skút-
unni og kynntist af eigin raun
dugnaði hennar og metnaði við
rekstur fyrirtækisins. Hún var
afar stolt af drengjunum sínum
og barnabörnin sjö voru í miklu
dálæti hjá henni. Hún gladdist
mikið þegar í hópinn bættust
langömmubörn, nú orðin þrjú.
Hún naut þess að hitta fjöl-
skylduna og var alltaf mætt ef
eitthvað var um að vera innan
hennar. Hún og Birgir voru
mjög gestrisin og yndislegt að
koma í heimsókn til þeirra.
Minningarnar eru margar og
fallegar. Allar sumarbústaða-
ferðirnar, veisluborðin hennar,
hláturinn hennar og smitandi
gleði. Brekkusöngurinn okkar
um verslunarmannahelgina. Líf
og fjör. Áramótin hér í Hauka-
lind sem við hlökkuðum alltaf
til. Eygló átti stóran þátt í að
búa til stemninguna, kom með
freyðivínið, knöllin og góða
skapið. Ferðir til Akureyrar og
Vestmannaeyja eru ógleyman-
legar og margar fleiri. Síðasta
samtalið átti ég við hana
tengdamóður mína þar sem
hún var stödd á Akureyri með
Birgi sínum að hitta gamla
æskufélaga. Hún var glöð og
bar sig vel. Dagurinn hafði ver-
ið skemmtilegur; ferðalag um
Eyjafjörðinn í dásemdarveðri
og samvera með góðu fólki.
Fram undan var kvöldverður
með félögunum og hún hlakkaði
til. Síðustu mánuðir höfðu tekið
á Eygló, erfið meðferð að baki
en árangursrík. Hún og við,
fólkið hennar, vorum bjartsýn
og vongóð um framtíðina.
Skyndileg versnun sem leiddi
til andláts hennar var okkur því
mikið áfall. Það er þó huggun
að hún fékk að upplifa þessa
fallegu daga í lokin á æskuslóð-
unum og naut lífsins eins og
hún gat allt til enda.
Sesselja Jóhannesdóttir.
Eygló var elst af okkur
þremur systkinum sem ólumst
upp á brekkunni á Akureyri.
Hún var okkur yngri systkin-
unum fyrirmynd og stjórnaði
svo okkur fannst stundum nóg
um.
Eygló og Birgir kynntust á
Akureyri fyrir ansi mörgum ár-
um þegar hann Vestmanney-
ingurinn kom norður til að
vinna sem kokkur á Hótel
KEA. Mér litlu systur fannst
þetta mjög spennandi og fylgd-
ist vel með framvindu þessa
sambands. Þau fluttu fljótlega
til Reykjavíkur, Birgir Arnar
fæddist og fékk ég að vera
sumarpart til að hjálpa Eygló
með strákinn, eða það fannst
mér. Hún var mikill fagurkeri
og vildi bæði vera fín og hafa
fínt í kring um sig. Ég þarf
ekki nema að líta í kring um
mig hér heima hjá mér til að
sjá alla fallegu hlutina sem þau
hjón hafa gefið mér í gegnum
árin.
Heimili þeirra var opið okk-
ur fjölskyldunni alla tíð þegar
við komum að norðan og gist-
um í lengri eða skemri tíma í
Þrastarlundinum. Minnast dæt-
ur mínar þessara tíma með hlý-
hug.
Eygló og Birgir voru alltaf
nefnd saman enda afar sam-
rýmd hjón. Ég er viss um að
það eru ekki margir dagar sem
þau voru aðskilin í gegnum líf-
ið. Þau byggðu saman upp
fyrirtæki sitt Skútuna í Hafn-
arfirði og störfuðu þar sama
alla tíð og seinna með sonum
sínum sem hafa tekið við fyrir-
tækinu. Fyrir um þrjátíu árum
komu þau sér upp sumarbústað
í Grímsnesinu. Sumarbústaður-
inn var þeirra unaðsreitur og
eyddu þau þar mörgum stund-
um við skógrækt og blómarækt
sem þau höfðu mikið yndi af.
Við norðanfólkið alltaf velkom-
in þangað og áttum þar góðar
stundir.
Þau höfðu gaman af því að
ferðast eins og flest okkar og
fóru víða. Eitt sumarið fóru
þau í ferð til Þýskalands með
strákana og drifu mömmu og
pabba með í þá ferð sem varð
þeim gömlu ógleymanleg, ekki
veit ég hvað pabbi sagði mér
oft frá alls konar ævintýrum
sem þau lentu í.
Síðust vikur hafa verið okkur
fölskyldunni erfiðar. Eygló
veiktist alvarlega þegar hún
var á ferðalagi í sínum gamla
heimabæ Akureyri. Sú ferð
endaði á Landspítalanum með
viðkomu á SAK. Hún lést þann
13. júlí umvafinn sinni góðu
fjölskyldu. Elsku Birgir, Birgir
Arnar, Sigurpáll, Ómar og fjöl-
skyldur, mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Hvíldu í friði, elsku Eygló
mín.
Þín systir
Una Aðalbjörg.
Það var aldrei lognmolla þar
sem Eygló frænka kom. Hún
kunni að njóta lífsins lysti-
semda og naut þess að hafa fal-
legt í kringum sig. Hvort sem
það var heimili þeirra hjóna
eða garðurinn.
Hún lá heldur sjaldnast á
skoðunum sínum eða tilsvörum.
Einhvern tíma kvartaði ég yfir
fötum sem ég hafði verið klædd
í, þótti þau óþægileg. Eygló
frænka horfði á mig og and-
varpaði og sagði að það væri nú
ekki alltaf tekið út með sæld-
inni að vera í móð, ég var sjálf-
sagt ekki meira en 4 eða 5 ára.
Ósjaldan rifjaði hún upp við
mig söguna þegar ég fæddist.
Mamma og pabbi voru stödd
hjá þeim Birgi í Garðabænum
til að halda upp á nýárið þegar
hringja þurfti á sjúkrabíl sem
síðan villtist á leiðinni til
Reykjavíkur yfir brýrnar í
Kópavoginum sem þá voru ný
lagðar. Það var góð saga.
Einn af tilgöngum lífsins er
að búa til minningar, minningar
sem við getum gripið til á
stundum eins og þessari. Minn-
ingar um stóru systir mömmu
sem fór reglulega til útlanda og
keypti hluti sem voru framandi
í mínum augum, kastanettur,
sombrero-hatta og pils úr antil-
ópu skinni. Nýlegri minningar
eins og þegar þau Birgir komu
og heimsóttu okkur til Parísar,
þar standa upp úr ævintýrið
um leigubílstjórann sem ætlaði
að halda ferðatöskunum í gísl-
ingu þar borgað yrði tvöfalt
uppsett verð og kvöldið sem við
þvældumst um í 5. hverfi og um
rue Mouffetard, mikið sem það
var hlegið það kvöld. Samveran
í Egyptalandi í kringum gift-
inguna okkar verður einnig
dýrmætari með hverjum deg-
inum.
Elsku Birgir, Birgir Arnar,
Sigurpáll og Ómar og fjölskyld-
ur, okkar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Minningin lifir áfram,
Rósa Rut Þórisdóttir,
Marwan Soliman.
Eygló
Sigurliðadóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
stjúpmóðir, amma og langamma,
KATRÍN JÓNSDÓTTIR,
Árskógum 6, Reykjavík,
lést laugardaginn 17. júlí.
Útför hennar fer fram frá Seljakirkju
þriðjudaginn 27. júlí klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni
á Seljakirkja.is.
Eyrún Magnúsdóttir
Andrés Magnússon Áslaug Gunnarsdóttir
Jón Magnússon Guðrún Bergþórsdóttir
Ásmundur Magnússon Ásdís Þrá Höskuldsdóttir
Steinunn S. Magnúsdóttir Jesper Madsen
Sæmundur Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
VALDIMAR RITCHIE SAMÚELSSON
flugvirki,
Kleifarási 3,
lést á Landspítalanum 21. júlí. Jarðarför
fer fram frá Árbæjarkirkju fimmtudaginn 29. júlí klukkan 15.
Blóm og kransar afþakkað en þeim sem vilja minnast hans
er bent á Landsbjörg.
Guðrún Björnsdóttir
Hulda Guðrún Valdimarsd. Ragnar Páll Bjarnason
Harpa Valdimarsdóttir Ómar Einarsson
Elfa Hrönn Valdimarsdóttir Freyr Friðriksson
og barnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÞÓREY SKAGFJÖRÐ ÓLAFSDÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Hlíð 15. júlí.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 26. júlí klukkan 13.
Streymt verður frá athöfninni á facebook-síðunni
Jarðarfarir í Akureyrarkirkju – beinar útsendingar. Hjartans
þakkir til starfsfólks á Víðihlíð fyrir elskulegheit og góða
umönnun.
Stefanía Þorsteinsdóttir Gísli Pálsson
Kristín J. Þorsteinsdóttir Kristinn F. Sigurharðarson
Sigrún Hrönn Þorsteinsd. Rögnvaldur Ólafsson
Ásdís Alda Þorsteinsdóttir Árni Þór Bjarnason
Ólöf Ásta Þorsteinsdóttir Sigurþór Guðmundsson
ömmu- og langömmubörn
Ástkær eiginkona, dóttir, systir, móðir,
tengdamóðir og amma,
ÞÓRUNN EGILSDÓTTIR
alþingismaður,
Hauksstöðum,
verður jarðsungin frá Vopnafjarðarkirkju
laugardaginn 24. júlí klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið – endurhæfingu
fyrir krabbameinsgreinda.
Friðbjörn Haukur Guðmundsson
Egill Ásgrímsson Sigríður Lúthersdóttir
Egill Örn Egilsson Tiffany Starton
Kristjana L. Friðbjarnard. Axel Örn Sveinbjörnsson
Guðmundur Friðbjarnarson Guðrún Helga Ágústsdóttir
Hekla Karen Friðbjarnard.
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
GUÐBJÖRG ÁRNADÓTTIR
frá Stykkishólmi,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði þriðjudaginn
20. júlí. Útförin auglýst síðar.
Edda Ingvarsdóttir Sigurður Pétur Guðnason
Rannveig Ingvarsdóttir Hörður Sigurjónsson
Rakel Ingvarsdóttir Þorvaldur Karlsson
Gústaf Hinrik Ingvarsson
Benedikt Gunnar Ingvarsson Sigríður Haraldsdóttir
og fjölskyldur
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORGEIR BRIMIR HJALTASON,
Raufarhöfn,
lést á HSN á Húsavík þriðjudaginn 20. júlí.
Útförin verður auglýst síðar.
Signý Einarsdóttir
Þórhildur Hrönn Þorgeirsdóttir
Fjóla Björg Þorgeirsdóttir
Heiða Ingunn Þorgeirsdóttir
Hörður Ingimar Þorgeirsson
Hugrún Elva Þorgeirsdóttir
makar, barnabörn og barnabarnabörn