Morgunblaðið - 23.07.2021, Page 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 2021
✝
Sverrir Hauk-
ur Halldórsson
fæddist á Blöndu-
ósi þann 19. mars
1943. Hann lést á
hjartadeild Land-
spítalans þann 17.
júlí 2021.
Foreldrar hans
voru hjónin Krist-
jana Guðmunds-
dóttir, f. 1909, d.
2005, og Halldór
Albertsson, f. 1886, d. 1961.
Systkini hans voru Guðrún, f.
1928, d. 2020, Jón Albert, f.
1930, d. 1930, Kristján Albert,
f. 1932, Haukur, f. 1938, d.
1942, Dóra, f. 1947, og Haukur,
f. 1949.
Þann 27.12. 1969 kvæntist
hann Dýrunni Ragnheiði Stein-
dórsdóttur, Díu, frá Brautar-
landi í Vestur-Húnavatnssýslu,
f. 1945, d. 2019. Hún starfaði
sem snyrtifræðingur. Foreldrar
hennar voru Sigurbjörg Þórð-
ardóttir, f. 1907, d. 1990, og
Steindór Benediktsson, f. 1898,
d. 1971.
Dætur Sverris og Díu eru
tvær:
1. Anna Rut Sverrisdóttir, f.
1966, ljósmóðir og hjúkrunar-
fræðingur, gift Birgi Þórarins-
syni. Synir þeirra eru: Sverrir
Birgisson, f. 1990, í
sambúð með Írisi
Björk Rúnars-
dóttur, f. 1992, og
eiga þau dótturina
Díönu Sverris-
dóttur, f. 2020,
Þórarinn Birg-
isson, f. 1995, í
sambúð með Sól-
eyju Baldurs-
dóttur, f. 1996, og
Hjalti Birgisson, f.
2005.
2. Eydís Dóra Sverrisdóttir,
f. 1971, félagsráðgjafi. Á hún
synina Jóel Bernburg, f. 2001,
og Atla Hrafn Bernburg, f.
2005.
Sverrir ólst upp á Blönduósi.
Hann vann á sjó sem ungur
maður á togurum, millilanda-
skipum og hjá Landhelgisgæsl-
unni. Starfaði síðan alla tíð hjá
Pósti og síma. Vann hann víða
um land við línulagnir. Eftir að
hann lauk námi sem rafeinda-
virkjameistari starfaði hann við
hönnun línukerfa og sem yfir-
deildarstjóri.
Sverrir og Día bjuggu ásamt
dætrum sínum allan sinn bú-
skap í Reykjavík.
Útför Sverris verður gerð
frá Neskirkju í dag, 23. júlí
2021, kl. 13.
Ég minnist Sverris, tengda-
föður míns til tæplega 40 ára,
með þakklæti og virðingu.
Sverrir var traustur maður, vel
lesinn, fróður um margt, skipu-
lagður og hafði góða frásagn-
arhæfileika. Bókalestur var eitt
af hans áhugamálum. Hann var
sjálfur vel ritfær og skrifaði
meðal annars æviminningar afa
síns, Alberts Jónssonar, og
studdist þar við áhugaverðar
dagbækur hans. Sverrir ritaði
einnig sínar eigin æviminningar
um vegavinnu sem unglingur í
Húnavatnssýslunni og um þátt-
töku sína í þorskastríðinu, þá
ungur háseti hjá Landhelgis-
gæslunni.
Hann lýsir því með eftir-
minnilegum hætti þegar hann
fór um borð í breska togarann
Wyre Mariner árið 1962, þá 19
ára að aldri, og dvaldi þar í um
hálfan sólarhring. Togarinn var
tekinn við ólöglegar veiðar á
Selvogsbanka. Um borð stóðst
hann ekki freistinguna að þiggja
tesopa þrátt fyrir að það hafi
verið óheimilt af hálfu Gæslunn-
ar að þiggja nokkuð af Bret-
unum. Tesopanum lýsir hann vel
og sagði hann þann besta sem
hann fékk um ævina. Einnig
lagði hann sig í hættu við björg-
un norska síldarflutningaskips-
ins Talis árið 1961. Áhugaverðar
og vel skrifaðar frásagnir af æv-
intýralegri reynslu ungs manns.
Sverrir var listfengur og sótti
fjölmörg myndlistarnámskeið í
gegnum tíðina. Eftir hann liggja
fallegar vatnslitamyndir. Auk
þess skar hann út í tré á efri ár-
um.
Fjölskyldusamvera var
Sverri ávallt ofarlega í huga.
Fastir liðir hjá fjölskyldunni á
sunnudögum voru fjallgöngur
og útivist. Þau hjónin stunduðu
sund daglega til fjölmargra ára.
Sverrir var myndarlegur á velli
og líkamlega vel á sig komin,
þrátt fyrir að hafa orðið fyrir
slæmu vinnuslysi sem ungur
maður. Slysi sem tók sinn toll af
heilsufari hans.
Hann var ræktarsamur við
ættingja og vini og átti kær-
leiksríkt samband við móður
sína.
Snyrtimennska einkenndi
Sverri alla tíð. Hann sótti rak-
arastofuna oftar en flestir. Elvis
Presley var hans maður enda
bar hárgreiðslan alla tíð þess
merki. Þrátt fyrir að vera
kvæntur snyrtifræðingi, sem
notaði öll dýrustu og bestu
frönsku kremin á markaðnum,
kom ekkert annað til greina af
hans hálfu en að nota Nivea-
krem, sem er eflaust besta
kremið eftir allt saman, þar sem
hann var nær hrukkulaus fram í
andlátið. Bílarnir hans voru síð-
an sér kapítuli þar sem snyrti-
mennskan náði nýjum hæðum.
Dætur hans, Anna Rut og Ey-
dís, kölluðu hann gjarnan pabba
pena.
Tengdaforeldrar mínir,
Sverrir og Día, voru glæsileg
hjón og sálufélagar. Þau hafa nú
bæði kvatt þessa jarðvist með
stuttu millibili. Ég þakka þeim
samfylgdina til margra ára, vel-
vildina í minn garð, hvatninguna
til góðra verka og ánægjulega
samveru, sem ég sakna. Guð
blessi minningu þeirra.
Birgir
Þórarinsson.
Sverrir mágur okkar hefur nú
kvatt jarðlífið. Heilsu hans hafði
hrakað mikið nú síðustu miss-
erin. Ekki höfðum við samt gert
okkur grein fyrir því að fráfall
hans bæri svo brátt að eins og
raun bar vitni. Aðeins er liðið
rúmlega eitt og hálft ár síðan
konan hans lést, hún systir okk-
ar. Vafalaust hafa veikindi
hennar síðustu árin sem hún
lifði haft veruleg áhrif á hans
heilsu. Sverrir, ásamt dætrun-
um tveimur, var ötull við að
sinna henni svo eftir var tekið í
þeim veikindum sem hún glímdi
við síðustu árin.
Sverrir var góður handverks-
maður. Eitt af því sem hann tók
sér fyrir hendur var að fara á
ýmis myndlistarnámskeið og
málaði hann myndir í framhaldi
af þeirri menntun sinni. Þegar
hann var svo kominn á eftirlaun
lærði hann tréútskurð. Meðal
annars eru í eigu okkar listilega
útskornir plattar unnir af hon-
um, sem þau hjónin gáfu okkur í
tækifærisgjafir. Þá var ættfræð-
in honum hugleikin. Í því sam-
bandi er óhjákvæmilegt að
minnast á samantekt hans á
æviminningum föðurafa hans,
Alberts Jónssonar, frá Stóru-
völlum í Bárðardal. Þessar ævi-
minningar voru að mestum
hluta byggðar á dagbókum Al-
berts, sem Sverrir gróf upp í
Þjóðarbókhlöðunni. Þessa sam-
antekt lét Sverrir prenta og gaf
út í takmörkuðu upplagi fyrir
ættingja og vini.
Að lokum kveðjum við Sverri
með virðingu og hlýju. Blessuð
sé minning hans.
Við ásamt fjölskyldum okkar
færum dætrunum og fjölskyld-
um þeirra innilegar samúðar-
kveðjur.
Benedikt og
Ingólfur.
Í dag kveðjum við Sverri
Halldórsson, samstarfsmann
okkar til margra ára hjá Síman-
um. Með honum er genginn
tryggur vinur og samferðamað-
ur. Við Sverrir kynntumst fyrst
1967 þegar hann var í síma-
vinnuflokk Kjartans Sveinsson-
ar í þá daga var gist í tjöldum og
unnið við loftlínur sem voru fyr-
ir gamla sveitasímann. Ég man
vel eftir óhappi þegar Sverrir
féll til jarðar úr símastaur sem
brotnaði og hann slasaðist á
fæti, hann náði aldrei fullum
bata á fætinum.
Sverrir vann margvísleg störf
hjá Símanum og Mílu í áratugi
hann var vel liðinn og afar vin-
sæll meðal samstarfsmanna
sinna enda léttur, þægilegur og
traustur félagi.
Síðustu samskipti okkar
Sverris voru þegar ég sendi
honum mynd frá Mývatni 24.
júní sl. Myndin sem ég sendi
honum var af minnisvarða um
félaga okkar og vini sem létust
af slysförum við lagningu ljós-
leiðara yfir Mývatn árið 1999,
Sverrir svaraði með skilaboðum
til baka svo ég vissi að honum
þótti vænt um að sjá þessa
mynd.
Vottum fjölskyldu Sverris
innilega samúð.
Blessuð sé minning Sverris
Halldórssonar.
Gunnar
Þórólfsson.
Sverrir Haukur
Halldórsson
✝
Vigdís var
fædd á Vopna-
firði 28. september
1926. Hún lést 5.
júlí 2021.
Móðir hennar
var Stefanía Guð-
rún Pétursdóttir,
fædd 8. apríl 1896,
dáin 30. maí 1972.
Faðir hennar var
Stefán Þórðarson,
fæddur 18. júní
1877, dáinn 10. september
1952.
Hún átti eina hálfsystur,
Friðbjörgu Friðbjörnsdóttur, f.
11. janúar 1922, d. 22. október
2009. Vigdís eignaðist Gunnar
Stefán Magnússon, f. 21. nóv-
ember 1950, d. 27. janúar 1977.
Eiginmaður Vigdísar var Ei-
ríkur Ísaksson, f. 24. júní 1931,
d. 18. maí 2008.
Börn þeirra eru:
Kristín Eiríks-
dóttir, f. 7. mars
1954. Kristín er
gift Ingemar Ja-
resten, f. 29. ágúst
1952, og eiga þau
4 drengi; Gunnar,
f. 30. júní 1979,
Kristoffer, f. 28.
desember 1984,
Markus, f. 23.
mars 1989, Rickard, f. 23. mars
1989.
Sigrún Eiríksdóttir, f. 22.
júlí 1961. Sigrún er gift Þor-
steini Þórhallssyni, f. 6. ágúst
1962, og eiga þau þrjú börn:
Eirík, f. 25. mars 1982, Davíð,
f. 18. júní 1985, Ásdís, f. 18.
júní 1985. Vigdís átti síðan 13
barnabarnabörn.
Elsku mamma!
Þú varst jörðuð í kyrrþey
föstudaginn 9. júlí. Þú varst
orðin háöldruð, hefðir orðið 95
ára í haust, og varðst þess
vegna hvíldinni fegin. Minning-
arnar um þig eru okkur systr-
um ríkar í huga. Við fæddumst
að Ási í Ásahreppi og bjuggum
þar með ykkur í nokkur ár eða
þar til við fluttumst að Rauða-
læk í Holtum. Ég, Kristín, var
þá 10 ára, Gunnar fjórum árum
eldri og Sigrún aðeins 3 ára.
Pabbi tók þar við Kaupfélaginu
af afa okkar. Þið pabbi bjugguð
okkur systkinum gott heimili
og er margs að minnast úr
æsku okkar. Þegar við syst-
kinin komust á legg og urðum
fullorðin fluttist ég dóttir þín,
Kristín, til Noregs. Bróðir okk-
ar og einkasonur þinn Gunnar
dó ungur að aldri, aðeins 27
ára. Blessuð sé minning hans.
Þið pabbi fluttust síðan frá
Rauðalæk og í Hafnarfjörð.
Sigrún var þá aðeins 18 ára og
fluttist hún með ykkur. Stuttu
seinna kynnist Sigrún manni
sínum Þorsteini og byrja þau
ung að búa. Á sama tíma flutt-
ist Kristín heim frá Svíþjóð
með manni sínum Ingemar og
syni þeirra Gunnari. Við systur
og fjölskyldur áttum yndisleg-
ar stundir með ykkur hérna
heima á þessum árum. Kristín
fluttist síðan með sína fjöl-
skyldu til Svíþjóðar 1986. Þið
pabbi komuð til Kristínar og
fjölskyldu til Svíþjóðar á
hverju ári og dvölduð þið þá yf-
ir lengri tíma á heimili okkar,
okkur og börnum til mikillar
ánægju. Börnin okkar systra
eiga hlýjar og góðar minningar
um góða ömmu. Þú hafðir líka
mikla ánægju af að koma í
sumarbústaðinn með pabba á
Rauðalæk og dvelja þar í sveit-
inni ykkar. Þið pabbi höfðuð
unun af að ferðast, fóruð oft í
hitann á Spáni.
Við söknum þín, elsku
mamma, og munum alla tíð
geyma þig í hjörtum okkar.
Hvíl í friði.
Dætur þínar,
Kristín Eiríksdóttir og
Sigrún Eiríksdóttir.
Vigdís
Stefánsdóttir
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr
minningargreinum til birt-
ingar í öðrum miðlum nema
að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einn-
ig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu
ekki lengri en 3.000 slög. Ekki
er unnt að senda lengri grein.
Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að
senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja viðhengi
við síðuna.
Minningargreinar
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
ÁSTHILDAR SIGURRÓSAR
ÓLAFSDÓTTUR
læknaritara,
Ísafirði,
sem var jarðsungin 13. júlí.
Guðjón Bjarnason
Elín Árnadóttir Ólafur Jóhann Sæmundsson
Unnur Árnadóttir Sigurður Arnar Jónsson
Sigríður Guðjónsdóttir
og barnabörn
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vináttu við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
GEIRS ÓLAFS ODDSSONAR
húsasmíðameistara,
áður til heimilis að Nýhöfn 3,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir
góða umönnun og alúð.
Sigurður Ingi Geirsson Katrín Davíðsdóttir
Kristjana Geirsdóttir Tómas Freyr Marteinsson
Gunnar Þór Geirsson Elísabet Pálmadóttir
Arna Guðrún Geirsdóttir Ævar Björn Þorsteinsson
afa- og langafabörn
Ástkær eiginmaður minn,
EYÞÓR BJÖRGVINSSON
læknir,
Kópavogstúni 9, Kópavogi,
lést á blóðlækningadeild Landspítala
fimmtudaginn 22. júlí.
Útförin verður auglýst síðar.
Ágústa Benný Herbertsdóttir
Ástrík eiginkona, móðir og amma,
RAGNHEIÐUR ÞÓRARINSDÓTTIR
sjúkraliði,
lést sunnudaginn 18. júlí á Landspítalanum.
Útför hennar verður gerð frá Selfosskirkju
miðvikudaginn 28. júlí klukkan 14.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað, en bent á líknarsjóði
Oddfellow-reglunnar.
Þórarinn Th. Ólafsson
Ágústa M. Þórarinsdóttir Andrew Brydon
Kristín Th. Þórarinsdóttir Egill Harðarson
Ólöf H. Þórarinsdóttir Einar Espólín Storo
og barnabörn
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓN VILBERG KARLSSON,
óðalsbóndi
í Hala, Háfshverfi,
lést þriðjudaginn 29. júní.
Útför fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Finnbogi Jóhann Jónsson Bettina Wunsch
Níls Bjarni Jóhannsson
Irena Sól Nílsdóttir
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir,
tengdamóðir, amma og systir,
SVALA ÍRIS SVAVARSDÓTTIR,
Huldugili 6, Akureyri,
lést af slysförum miðvikudaginn 21. júlí.
Jarðarförin fer fram í kyrrþey.
Friðgeir Vilhjálmsson
Kolbrún Halldórsdóttir Svavar Sigurðsson
Eva Rut Friðgeirsdóttir
Sandra Sif Friðgeirsdóttir Sigmar Ari Valdimarsson
barnabörn og systkini