Morgunblaðið - 28.07.2021, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 2 8. J Ú L Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 175. tölublað . 109. árgangur .
ÓÐUR TIL
LÍNULEGRAR
DAGSKRÁR
FJÓRIR
ÍSLENDINGAR
Á HEIMSLEIKUM
BROTHÆTT
STAÐA HJÁ
HÓTELKEÐJUM
BJÖRGVIN LÍKLEGUR 9 VIÐSKIPTAMOGGINNNÝ PLATA UNU OG TINNU 24
Hörður Orri
Grettisson, for-
maður þjóðhátíð-
arnefndar, segir
nefndina skoða
það að sækja um
ríkisstyrk eftir að
þurfti að fresta
Þjóðhátíð í Eyj-
um annað árið í
röð eftir að innan-
landstakmarkan-
ir voru hertar í síðustu viku.
„Það er ómögulegt að segja hvort
við fáum einhvern styrk frá ríkinu,
en okkur fyndist það eðlilegt þegar
lokað er á hátíðina með viku fyrir-
vara. Það er stjórnvaldsaðgerð og
því hljóta yfirvöld að hafa tekið
áhrifin af henni með í reikninginn.
Ríkisstjórnin hlýtur að hafa gert
það,“ segir hann við í samtali við Við-
skiptamoggann.
ÍBV fékk enga ríkisstyrki í fyrra
vegna tekjutapsins sem varð en á
móti kom að félagið fékk styrki úr
ýmsum áttum í fyrra; Vestmanna-
eyjabær styrkti það um 20 milljónir
króna og einnig nokkur stöndug
fyrirtæki í Vestmannaeyjum. „Þess-
ir styrkir komu okkur fyrir horn í
fyrra og við náðum rétt svo að lifa
þetta af. Það óskuðu einhverjir í
fyrra eftir því að flytja miðana sína í
staðinn fyrir endurgreiðslu svo fé-
lagið gat flotið áfram á þeim aurum.“
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri
Vestmannaeyja, segir mikið áfall
fyrir samfélagið allt að hátíðinni
skuli vera frestað annað árið í röð.
Ekki er hafið samtalið um það hvort
bærinn þurfi að bregða á það ráð að
styrkja félagið til þess að tryggja að
barna- og unglingastarf geti haldið
áfram. „Ríkið kom ekkert inn í þetta
í fyrra og mér finnst eðlilegt að fé-
lagið taki það samtal við ríkið enda
allt aðrar aðstæður en voru þá. En
eðlilega hefur þetta gríðarlega mikil
áhrif ef það verður engin Þjóðhátíð.“
Skoða að sækja
um ríkisstyrk
- Mikið áfall að þurfa að fresta Þjóðhátíð
Mikil stemning í
dalnum 2019.
Töluverður erill var í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í gær. Röð
myndaðist við innritun um morguninn sem náði út fyrir dyr
byggingarinnar. Einnig tóku gildi á miðnætti í fyrradag nýjar
reglur fyrir komufarþega. Nú þurfa bólusettir farþegar og
farþegar með staðfesta fyrri sýkingu að sýna fram á neikvætt
Covid-19-próf áður en komið er til landsins. Mikill þungi er á
farsóttarhúsum Rauða krossins vegna anna. 180 óbólusettir
ferðamenn klára sína sóttkví þar vegna þess að önnur hótel
eru talin vísa þeim á brott. »4
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Miklar annir eru í Leifsstöð bæði vegna innritunar og komufarþega
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Ljóst er að forsendur lífskjarasamn-
ingsins um lækkun vaxta og aukn-
ingu kaupmáttar standast, að sögn
Halldórs Benjamíns Þorbergssonar,
framkvæmdastjóra Samtaka at-
vinnulífsins. „Efndir á fyrirheitum
stjórnvalda í tengslum við samning-
inn eru túlkunaratriði sem samn-
ingsaðilar eiga eftir að ræða,“ sagði
hann í samtali við Morgunblaðið.
Í samningnum er m.a. kveðið á um
að í september 2021 skuli launa- og
forsendunefnd meta hvort forsenda
lífskjarasamningsins um kaupmátt
launa, vexti og yfirlýsingar ríkis-
stjórnarinnar um stjórnvaldsaðgerð-
ir hafi staðist. Nefndin á að tilkynna
niðurstöðu fyrir lok september.
Talsmenn verkalýðshreyfingar-
innar hafa í viðtölum við Morgun-
blaðið gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir
að hafa ekki staðið við allt sem lofað
var við gerð lífskjarasamningsins.
Halldór Benjamín sagði ljóst að
stjórnvöld hefðu til dæmis ekki stað-
ið við að gera breytingar á löggjöf
um lífeyrissjóði. Það mál dagaði enn
einu sinni uppi við þinglok í vor,
þrátt fyrir fögur fyrirheit um annað.
„Ég tel að við getum slegið því
föstu að ríkisstjórnin hafi sýnt þau
spil sem hún hyggst efna í tengslum
við lífskjarasamninginn. Um leið er
ljóst að efndirnar urðu ekki þær sem
ríkisstjórnin lofaði. Það mun vafalít-
ið setja mark sitt á næstu kjaravið-
ræður,“ sagði Halldór Benjamín.
Hann telur að næstu kjaraviðræð-
ur geti orðið mjög snúnar. Kaup-
máttur hafi aukist en það sé ljóst að
sumar atvinnugreinar standi ekki
undir hærra launastigi. „Staða at-
vinnugreinanna er mjög misjöfn.
Það er erfitt að útkljá síkt misgengi
við kjarasamningaborðið,“ sagði
Halldór Benjamín. Hann óttast að
atvinnuleysi kunni að vaxa og telur
að atvinnustigið eigi að vera í for-
grunni næstu kjaraviðræðna til að
tryggja fulla atvinnu á Íslandi.
Atvinnustig fari í for-
grunn kjaraviðræðna
- Stjórnvöld efndu ekki öll fyrirheit við gerð lífskjarasamnings
Morgunblaðið/Golli
Atvinnuleysi Framkvæmdastjóri
SA kveðst óttast aukið atvinnuleysi.
MAukið atvinnuleysi »6