Morgunblaðið - 28.07.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 2021
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Sími 4 80 80 80
25 ára reynsla
INNFLUTNINGUR AF NÝJUM
OG NOTUÐUM BÍLUM
VERKSTÆÐI
VARAHLUTIR
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Meira en helmingur Covid-sjúklinga
í breska heilbrigðiskerfinu var ekki
greindur fyrr en eftir innlögn. Töl-
fræði úr breska heilbrigðiskerfinu
NHS, sem lekið var til dagblaðsins
Daily Telegraph, bendir til þess að
tugir þúsunda hafi verið skilgreindir
sem Covid-sjúklingar í opinberum
gögnum, þegar raunin var sú að þeir
hrjáðust af öðrum kvillum, sem
kröfðust sjúkrahúsmeðferðar.
Kórónuveirusmit þeirra hafi svo
greinst við reglubundna skimun við
innlögn án þess að þeir væru endi-
lega veikir af Covid-19.
Sérfræðingar segja að þetta hafi
verulega skekkt opinbera tölfræði
um faraldurinn í landinu, sem er gef-
in út daglega á vef hins opinbera, og
stjórnvöld vísa til og byggja aðgerðir
sínar á. Þær tölur hafi að líkindum
ýkt mjög álagið á NHS af völdum
kórónuveirunnar.
Um 44% lögð inn vegna Covid
Gögnin, sem lekið var til Daily
Telegraph og taka til allra heilbrigð-
isumdæma í Bretlandi, sýna að fram
til liðins fimmtudags hafi aðeins 44%
sjúklinga, sem skilgreindir voru sem
Covid-sjúklingar, verið greind með
veiruna fyrir innlögn. Meirihlutinn,
56%, var hins vegar ekki greindur
fyrr en eftir innlögn, en allir sjúk-
lingar NHS eru skimaðir við kom-
una, óháð ástæðu innlagnarinnar.
Í gögnunum er ekki að finna neina
aðgreiningu þessara sjúklinga í þá,
sem lagðir voru inn vegna alvarlegra
veikinda, sem svo eru rakin til kór-
ónuveirunnar, og hinna, sem komu á
sjúkrahús af öðrum ástæðum og
hefðu ella ekki verið greindir.
Af lekagögnunum virðist hins veg-
ar að fjöldi sjúklinga hafi verið lagð-
ur inn af öðrum ástæðum og sumir
jafnvel ekki greindir fyrr en mörg-
um vikum eftir innlögn, sem kynni
að benda til þess að einhverjir hafi
smitast á sjúkrahúsi.
Sem fyrr segir höfðu 44% greinst
með veiruna einhvern tímann síð-
ustu 14 daga fyrir innlögn, en önnur
43% voru greind innan við tveimur
dögum eftir innlögn. 13% voru
greind síðar.
Allt bendir það til þess að drjúgur
hluti þeirra, sem skilgreindir hafa
verið sem Covid-sjúklingar, hafi ekki
verið það við innlögn og í flestum til-
vikum aldrei verið Covid-sjúklingar í
eiginlegum skilningi, þótt þeir hafi
reynst smitaðir. Þeir hafi ekki verið
veikir af Covid-19, heldur veikir með
Covid-19.
Úrbóta brýn þörf
„Þessi gögn eru ákaflega mikil-
væg og þau ætti að gefa út reglu-
lega,“ hefur blaðið eftir Carl Heneg-
an, prófessor við Oxford-háskóla og
forstjóra Stofnunar gagnreyndrar
læknisfræði við skólann. „Þegar fólk
heyrir um innlögn með Covid dregur
það þá ályktun að Covid sé líkast til
ástæðan fyrir henni, en þessi gögn
sýna fram á allt annað.“
Hann hvetur stjórnvöld til þess að
gefa út skýrari gögn, þar á meðal
hvort kórónuveiran hafi verið aðal-
ástæða innlagnarinnar eða ekki.
„Það ríður á að þessu verði kippt í
liðinn,“ segir Henegan og bætir við
að gögnin, sem lögð hafi verið fram
til þessa, geti leitt almenning að
röngum niðurstöðum um faraldurinn
og álagið á heilbrigðiskerfið.
Sir Graham Brady, formaður
óbreyttra þingmanna Íhaldsflokks-
ins í neðri deild breska þingsins, seg-
ir ástandið óþolandi. „Það er fráleitt
að nærri 18 mánuðum eftir að farald-
urinn hófst skuli sundurgreindar
innlagnartölur ekki vera gefnar út
reglulega,“ segir sir Graham og bæt-
ir við: „Að telja alla sjúklinga sem
greinast með smit sem Covid-inn-
lögn er óhjákvæmilega villandi og
gefur ranga mynd af heilbrigðis-
afleiðingum veirunnar.“
Fjöldi veikra gróflega ofmetinn
- Tölfræði um útbreiðslu Covid-19 lekið úr breska heilbrigðiskerfinu - Meira en helmingur smitaðra
greindur eftir innlögn - Skilgreindir sem Covid-sjúklingar óháð veikindum eða ástæðu innlagnar
AFP
Bretland Sjúklingur færður á Royal London Hospital í Whitechapel. Breska
heilbrigðiskerfið virðist hafa skilgreint fleiri Covid-sjúklinga en tilefni var til.
Heilbrigðisgögn
» NHS hefur til þessa skil-
greint alla með Covid-smit
sem Covid-sjúklinga óháð því
hvað amaði að þeim.
» 44% smitaðra greindust 14
dögum fyrir innlögn.
» 43% greindust fyrstu tvo
dagana á sjúkrahúsi.
» 13% greindust síðar og hluti
þeirra smitaðist á sjúkrahúsi.
» Sérfræðingar segja þessa
framsetningu villandi og gefa
ranga mynd af álagi heilbrigð-
iskerfis og alvarleika faraldurs-
ins.
Ríflega tvö þúsund Indónesar létust af völdum Co-
vid-19 í gær. Það er mannskæðasti sólarhringurinn þar
í landi frá upphafi faraldurs en smitum hefur fjölgað
hratt síðustu vikur. Yfirvöld brugðu á það ráð að nota
skipið Umsini sem einangrunaraðstöðu fyrir sýkta.
Skipið rúmar 800 sjúklinga og hóf starfsemi í dag.
Faraldurinn í vexti í Suðaustur-Asíu
AFP
Indónesar taka farsóttarskip í gagnið
Einn lést, 31 slasaðist og fjögurra er
enn saknað eftir sprengingu í efna-
verksmiðju í borginni Leverkusen í
vesturhluta Þýskalands í gærmorg-
un. Hvellurinn frá sprengingunni
heyrðist í margra kílómetra fjarlægð
og sprengingin fannst á mælum 40
kílómetrum frá slysstað.
Íbúar voru beðnir að halda sig inn-
andyra á meðan svartur reykjar-
mökkur reis upp úr verksmiðjunni.
Almannavarnadeild Þýskalands
sendi út neyðarviðvörun í farsíma á
svæðinu og þar var þeim tilmælum
beint til nærstaddra að loka öllum
gluggum og hringja ekki í neyðarlín-
una nema brýna nauðsyn bæri til.
Sprengingin varð á lóð fyrirtækisins
Chempark sem rekur urðunar- og
sorpbrennslustöð í Bürrig-hverfinu í
Leverkusen.
Sprengingin olli eldsvoða í þremur
leysiefnageymum á svæðinu sem tók
nokkrar klukkustundir að slökkva.
Lögregla þurfti að loka fjölda
hraðbrauta í grendinni vegna
skemmda frá högginu. Leikvöllum í
nánd við verksmiðjuna var lokað og
fólki ráðlagt að borða ekki grænmeti
úr görðum sínum.
Yfirvöld í Þýskalandi hafa sætt
gagnrýni fyrir viðvörunarkerfin sín
eftir að rúmlega 180 manns létu lífið
í flóðum fyrr í mánuðinum. Telja
sumir þá háu tölu dauðsfalla mega
rekja til slæmra rýmingarboða. Því
hefur verið kallað eftir að rýming-
arboð verði send út með gjallarhorn-
um auk farsímaboða og sjónvarps-
og útvarpstilkynninga.
baldurb@mbl.is
Efnaverksmiðja logaði
- Sprenging olli
gífurlegu tjóni
AFP
Sprenging Slökkviliðsbílar á leið á
vettvang í Leverkusen í gær.