Morgunblaðið - 28.07.2021, Blaðsíða 8
Stefán Pálsson, sagnfræðingur og
stjórnmálaskýrandi, segir æsi-
spennandi kosningabaráttu fram
undan á næstu vikum. Af niður-
stöðum skoðanakannana sé ljóst að
afar mjótt sé á munum í „fallbarátt-
unni“, en þar geti minnsta breyting
haft veruleg og víðtæk áhrif á þing-
styrk annarra flokka og hverjir
komist á þing. Þar séu og ýmsir for-
ystumenn tæpt settir.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í viðtali við Stefán í Dag-
málum um ástand og horfur í
stjórnmálum nú, tæpum tveimur
mánuðum fyrir alþingiskosningar.
Dagmál eru streymi Morgunblaðs-
ins, opið öllum áskrifendum.
Stefán telur því óvarlegt að spá
of miklu um úrslitin, en minnir á að
kannanir hafi hneigð til þess að of-
mæla suma flokka og vanmæla
aðra. Þess utan geti breytt eðli
þeirra sumra haft áhrif á kjörfylgi.
Æsispennandi
barátta fram undan
Morgunblaðið/Arnar Steinn
Dagmál Stefán Pálsson ræðir þjóðmálin við Andrés Magnússon í dag.
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 2021
Höfum opnað á Selfossi
komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegum sýningarsal okkar
GÆÐI ÞJÓNUSTA ÁBYRGÐ
www.tengi.is
Kópavogur – Smiðjuvegur 76
Akureyri – Baldursnes 6a
Selfoss – Austurvegur 69
414 1000
414 1050
414 1040
Bólusetningar gegn kórónu-
veirunni hafa gert gagn og
því fleiri sem þiggja þær, þeim
mun betri tök má ætla að náist á
faraldrinum. En
þýðir það að rík-
isvaldið ætti að
beita hvaða með-
ulum sem er til að
þvinga fólk í bólu-
setningar? Jón
Magnússon hæsta-
réttarlögmaður
fjallar um þetta
mál á blog.is og segir meðal ann-
ars: „Franska byltingin 1789
markaði tímamót. Þá varð til
stjórnarskrá sem lögfesti jafnstöðu
allra franskra borgara. Nú hefur
franska þingið ákveðið að breyta
því, að gera mun á þeim sem eru
Kóvíd bólusettir og þeim, sem eru
það ekki.
- - -
Heilbrigðisstarfsfólk er með
lögunum skyldað til að láta
bólusetja sig. Þá verða til heilsu-
passar. Án þeirra má fólk ekki
ferðast með flugvélum, járn-
brautalestum, borða á veit-
ingastöðum eða koma á ýmis söfn
eða aðra opinbera staði.
- - -
Angela Merkel Þýskalands-
kanslari boðar takmarkanir á
frelsi þeirra sem eru ekki bólu-
settir. Í Bretlandi er talað um að
setja reglur um skyldubólusetn-
ingu skólafólks.
- - -
Dómstólar eiga eftir að fjalla
um það hvort að þessi mis-
munun borgaranna samræmist
grundvallarlögum samfélagsins.“
- - -
Jón segir í lok pistilsins þá einu
von eftir að dómstólar Evrópu
„standi sig og dæmi alla þá lög-
gjöf ólöglega sem tekur af borg-
araleg réttindi þeirra sem ekki
láta bólusetja sig.“
Jón
Magnússon
Of langt gengið
í baráttunni?
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Togbáturinn Valþór GK-123 hefur
verið sviptur leyfi til veiða í atvinnu-
skyni í fjórar vikur vegna ítrekaðrar
löndunar fram hjá hafnarvog.
Fram kemur á vef Fiskistofu að
ákvörðun þessa efnis hafi verið tekin
20. júlí sl. og gildi frá og með 24. ágúst
og til og með 20. september.
Í ákvörðun Fiskistofu kemur fram
að við löndun úr skipinu hinn 28. apríl
sl. hafi hafnarstarfsmaður orðið þess
var að 572 kíló af þorski voru flutt af
löndunarstað án þess að aflinn hafi
verið veginn á hafnarvog.
Er það brot við lög um umgengni
nytjastofna sjávar þar sem mælt er
fyrir um að allur afli fiskiskips skuli
veginn á hafnarvog þegar við löndun
sem og mælt er fyrir um að ekið skuli
lönduðum afla rakleitt á hafnarvog.
Skipið hafði áður verið svipt leyfi til
veiða í atvinnuskyni í fjórar vikur fyrr
í sumar vegna sambærilegs brots.
karitas@mbl.is
Ítrekað verið landað fram hjá vigt
- Fiskistofa sviptir Valþór GK leyfi í fjórar vikur - Var svipt leyfi fyrr í sumar
Ljósmynd/Hilmar Bragi
Útgerð Fiskistofa hefur nú í tvígang í sumar svipt Valþór GK veiðileyfi.