Morgunblaðið - 28.07.2021, Side 12

Morgunblaðið - 28.07.2021, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Í gær greindust 123 smit inn- anlands og tvö á landamærum. Aldrei áður hafa fleiri greinst hér á landi með kórónuveiruna á ein- um degi. 2.030 eru í sóttkví, 1.011 í skimunarsóttkví og 745 eru í einangrun. Það er óhætt að tala um þriðju bylguna hér á landi. Hins vegar eru 253.666 full- bólusettir í landinu og 14.164 hafa fengið fyrri skammt, sem veitir verulega vörn við bæði smiti og veikindum. 85% lands- manna 12 ára og eldri hafa verið bólusettir. Öll gögn héðan sem annars staðar benda til þess að þrátt fyrir að bólusetning veiti ekki fullkomna vörn, þá veiti hún mjög mikla vörn; dragi úr smit- dreifingu og mildi einkenni þeirra, sem þó veikjast, ákaf- lega eða alveg. Það segir sína sögu að mitt í þessari þriðju bylgju á Íslandi eru aðeins þrír á sjúkrahúsi með kórónuveiruna. Það er því rétt að fagna hversu vel bólu- setning hefur gengið hér á landi og hún hefur ótvírætt sannað gildi sitt. Tölur frá Bretlandi og Ísrael hníga í sömu átt. Þar eru inn- lagnir á sjúkrahús og dauðdag- ar af völdum kórónuveirunnar margfalt færri en í fyrri bylgj- unum, um tíu sinnum færri, jafnvel meira. Líkt og lesa má í Morgun- blaðinu í dag kann þar þó að skeika enn meiru, því gagnaleki úr heilbrigðiskerfinu í Bret- landi leiðir í ljós að meira en helmingur Covid-smitaðra á sjúkrahúsum greindist eftir innlögn af öðrum ástæðum, svo þar hafa veikindi af völdum veirunnar verið stórlega ofmet- in. Verra er að það kom ekki í ljós nema fyrir gagnaleka, líkt og einhverjir hafi viljað gera meira úr vandanum en efni stóðu til. Ekkert bendir til þess að sú sé raunin hér á landi, en samt reynist oft erfitt að særa töl- fræði út úr heilbrigðiskerfinu, líkt og sóttvarnayfirvöld séu feimin við að vekja bjartsýni með þjóðinni. Það er ástæðu- laust, Íslendingar hafa almennt hagað sér skynsamlega í far- aldrinum. Sóttvarnayfirvöld og stjórn- völd telja rétt að hafa allan vara á í þriðju bylgjunni og gripu til sóttvarnaaðgerða á ný. Þær eru ekki óhóflegar, en það verður að brýna fyrir stjórnvöldum að taka bæði tillit til sóttvarna og efnahags. Það má og á að gera hvort tveggja, en því skyldi ekki rugla saman. Forystumenn í ferðaþjónustu hafa fullan skilning á aðgerð- unum, enda hætt við að ferða- menn missi áhugann á rauð- merktu Íslandi. Í viðtali við Boga Nils Bogason, forstjóra Iceland- air, í Viðskipta- Mogganum í dag, bendir hann á að forsendurnar eru ekki hinar sömu nú og í fyrri bylgum. „Við hljótum í ljósi breyttrar stöðu, þar sem bólu- efnin eru að koma í veg fyrir al- varleg veikindi í 90% tilvika, að horfa með öðrum hætti á smit- tölur en við gerðum þegar allir voru varnarlausir gegn veir- unni.“ Og bætir við: „Að vera með litakóðunarkerfi sem bygg- ist á sömu forsendum og áður en bólusetningar urðu almennar í sumum löndum stenst illa skoð- un.“ Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og einn fremsti vísindamaður landsins, tekur í svipaðan streng í samtali við Morgun- blaðið í dag. „Við erum orðin nokkuð vel bólusett þjóð og ætt- um þar af leiðandi að geta tekið svona bylgju eins og er að ganga yfir okkur núna. Það er ekki al- veg víst en það kemur í ljós á næstu dögum.“ Með öðrum orðum að láta gögnin, þekkinguna og vísindin ráða för, fara varlega en láta óttann ekki ráða. Til þessa hafa viðbrögð við heimsfaraldrinum hér á landi lítt eða ekki verið lituð stjórn- málum. Það kann að breytast á næstu vikum eftir því sem líður að kosningum, en einnig í takt við þróunina á faraldrinum. Reynist helstu einkenni þess- arar þriðju bylgju vera ein- kennalaus smit þurfa viðbrögðin að taka mið af því, ekki stöðunni í fyrra þegar ekki mátti veita veirunni neitt viðnám nema með lokunum og innilokun. Viðbrögðin þá reyndust mis- vel, einfaldlega af því að menn vissu ekki vel við hvað var að etja. Menn hafa ekki eytt tíma í að gera það allt upp, en það er sjálfsagt að gangast við því að eitt lukkaðist og annað ekki. Ekki vegna þess að það skipti miklu máli úr því sem komið er, en það varðar traust almenn- ings á stofnunum og stjórnvöld- um, sem miklu varðar að við- halda. Ekki í blindni heldur með opinskárri umræðu um hvað tókst og hvað ekki, sem þjóðin getur þá tekið afstöðu til. Hver fyrir sig og hugsanlega í kjör- klefanum. Því ef það er rétt at- hugað hjá sóttvarnalækni, að faraldurinn sé ekki úti hér fyrr en hann er alls staðar niður kveðinn, og að þangað til geti hæglega liðið áratugur, þá er ekki hægt að láta reka á reið- anum um það árum saman, held- ur þarf þjóðin að gefa stjórn- völdum leiðbeiningu um hvert skal haldið og hvernig haga skal seglum í gegnum þessa þriðju bylgju og þær sem á eftir geta komið. Þessi bylgja er ólík hinum fyrri og það skiptir miklu máli} Þriðja bylgjan C ovid-19-veiran hefur sett svip sinn á daglegt líf fólks um allan heim í tæplega eitt og hálft ár. Veiran hefur valdið veikindum tæplega 200 milljóna jarðarbúa, dregið rúmlega 4 milljónir til dauða og sóttvarnaað- gerðir hafa haft í för með sér mikla röskun á daglegu lífi, í þeim tilgangi að hindra útbreiðslu veirunnar og vernda viðkvæma hópa fyrir af- leiðingum hennar. Bylting varð í þróun bóluefna við veirunni, en á innan við ári tókst að þróa og fá leyfi eft- irlitsstofnana fyrir notkun bóluefna gegn Co- vid-19 í mönnum, ferli sem venjulega getur tek- ið hátt í 10 ár. Það var okkar gæfa að hafa tekið þátt í sam- starfi Evrópusambandsins um öflun bóluefna. Fyrirætlanir okkar um markmið í bólusetn- ingum náðust hér á landi í sumar, það er að þorri þjóð- arinnar yrði bólusettur fyrir mitt árið 2021. Það markmið náðist raunar og gott betur en það, því 25. júní 2021 höfðu allir sem fyrirhugað var að bólusetja gegn veirunni í fyrstu atrennu, þ.e. einstaklingar 16 ára og eldri, fengið boð í fyrri skammt bólusetningar. Nú hafa rúmlega 90% 16 ára og eldri fengið a.m.k. fyrri skammt bóluefnis gegn Covid-19, og þar af eru um 85% fullbólusett. Það er árangur á heimsmælikvarða og Ísland er meðal þeirra þjóða sem gefið hafa flesta bóluefna- skammta, samkvæmt upplýsingum af Our World in Data. Þennan góða árangur Íslands má skýra á ýmsan hátt, en ég tel að tveir þættir skipti miklu. Í fyrsta lagi er ljóst að landsmenn hafa sýnt mikinn vilja til þess að mæta í bólusetningu. Það er ekki sjálf- sagt að svo sé og í sumum löndum í kringum okkur er staðan því miður ekki jafn góð hvað þetta varðar. Í öðru lagi langar mig að nefna skipulagið við framkvæmd bólusetninga, sem er ótrúlega gott og framkvæmdaaðilar sem koma að því eiga stórt hrós skilið. Okkur hefur því sem betur fer tekist að nýta bóluefni, sem við höfum fengið, mjög vel. Það er líka sérstaklega mikilvægt að lönd heimsins leggist á eitt til að tryggja aðgengi allra jarðarbúa að bóluefni gegn Covid-19 og það erum við að gera og munum sannarlega gera áfram líka, bæði í gegnum COVAX- verkefnið og með því að gefa umframskammta sem við nýtum ekki hér. Í lok júní réðumst við í afléttingar á samkomutakmörk- unum að tillögu sóttvarnalæknis. Nú hefur staðan breyst og nauðsynlegt var að herða aðgerðir á ný 25. júlí sl. Því miður er veiran óútreiknanleg og engin forskrift er til að því hvernig bregðast eigi við Covid-smitum í bólusettu þjóðfélagi. Því þurfum við, eins og við höfum gert hingað til, að fylgja ráðleggingum okkar færustu vísindamanna á sviði sóttvarna og grípa til þeirra aðgerða sem nauðsyn- legar eru til að hindra útbreiðslu veirunnar. Við kunnum það og getum það, saman. Svandís Svavarsdóttir Pistill Covid í bólusettu samfélagi Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Esther Hallsdóttir esther@mbl.is Þ au bóluefni sem notuð hafa verið hingað til við Co- vid-19 eru öll á fljótandi formi og þurfa að geymast í kulda. Það gæti breyst fljótlega því bóluefni í formi dufts og taflna eru nú í þróun víða um heim. Í Suður-Svíþjóð þróa fyrirtækin Iconovo og ISR nú saman bóluefni við Covid-19 á duftformi sem hægt verður að anda að sér í gegnum lítið innöndunartæki. Teymið sem vinnur að þróun þess vonast til þess að duft- ið geti leikið stórt hlutverk í barátt- unni við kórónuveirufaraldurinn með því að gera fólki kleift að bólu- setja sig sjálft heima hjá sér. „Þetta er auðvelt að nota og ódýrt að framleiða. Þú fjarlægir bara plasthuluna og svo seturðu tækið í munninn og dregur inn and- ann,“ segir Johan Waborg, forstjóri fyrirtækisins, í samtali við BBC. Fyrirtækið hefur til þessa framleitt innöndunartæki fyrir fólk með astma. Bóluefni sænsku fyrirtækjanna hefur aðeins verið prófað á músum hingað til en rannsóknir á virkni þess í mönnum hefjast á næstu tveimur mánuðum. Enn er óljóst hvort það muni veita sams konar vernd og önnur bóluefni sem áður hafa verið samþykkt gegn kór- ónuveirunni. Í Ísrael þróar fyrirtækið Ora- med Pharmaceuticals bóluefni við Covid-19 á töfluformi. Í mars var til- kynnt að bóluefnið, sem er útfærsla á bóluefni indverska fyrirtækisins Premas Biotech, hafi orðið til þess að mótefni myndaðist í svínum. Áætlað er að klínískar rannsóknir á því hefjist fljótlega. Oramed hefur hlotið leyfi til að hefja klínískar rannsóknir á bóluefn- inu á 24 óbólusettum sjálfboðaliðum. Fylgst verður með hvort þeir myndi mótefni í kjölfar þess að fá bóluefnið og hversu mikið magn þeir mynda. Fyrirtækið gerir ráð fyrir að hefja rannsóknina í næsta mánuði. Skiptir sköpum fyrir íbúa í fátækum ríkjum Vonir standa til að bóluefni á duftformi eða sem töflur geti nýst til að koma bóluefnum hraðar til fólks sem býr í fátækum ríkjum. Bóluefnin sem þegar eru sam- þykkt gegn kórónuveirunni þarf að geyma við allt að mínus 70 gráður al- veg þar til því er sprautað í sjúk- linga. Bóluefnaduftið sem nú er þróað í Svíþjóð á hins vegar að þola allt að 40 gráður. „Það sem skiptir sköpum er að þú gætir dreift duftbóluefninu mjög auðveldlega án þess að þurfa að halda því köldu allan tímann og það væri hægt að gefa það sjúkling- um án þess að heilbrigðisstarfsmenn þyrftu að koma að því,“ segir Ola Winquist, stofnandi IRS og prófess- or í ónæmisfræðum við Karolinska spítalann. Hann telur að bóluefnið muni gagnast sérstaklega vel til að hraða bólusetningum í Afríku þar sem hlýtt veðurfar og takmarkað fram- boð rafmagns eru stórar áskoranir þegar kemur að því að geyma og nota Covid-19-bóluefni áður en þau renna út. Að sama skapi þarf ekki að geyma bóluefnatöflurnar sem nú eru í þróun í kulda og þær þarfnast ekki aðkomu heilbrigðisstarfsfólks. „Bóluefnið okkar, sem er gefið í gegnum munn, þarf ekki að vera djúpfryst líkt og önnur bóluefni við Covid-19. Það getur verið úrslita- atriði varðandi það hvort land nái sér út úr faraldrinum eða ekki,“ sagði Nadav Kidron, forstjóri Ora- med Pharmaceuticals, í samtali við ísraelska fjölmiðla. Bóluefnatöflur stefna hraðbyri á markað AFP Bólusetning Vonir standa til að bóluefni á duftformi eða sem töflur geti nýst til að koma bóluefnum hraðar til fólks sem býr í fátækum ríkjum heims. Nokkur lyfjafyrirtæki eru með lyf í þróun til meðferðar á Covid- sjúklingum. Pfizer og Merck eru á síðustu stigum prófana og áætlar Pfizer að sitt lyf, sem er í töfluformi og er tekið tvisvar á dag, gæti komið á markað fyrir lok árs. Töflurnar eru ætlaðar þeim sem eru smitaðir af Co- vid-19 og með mild einkenni. Japanska fyrirtækið Shionogi fetar nú í fótspor Pfizer og Merck. Það hóf nýlega prófanir á mönnum fyrir nýtt lyf á töflu- formi við Covid-19. Prófanir munu líklega standa yfir fram á næsta ár. Bóluefni hafa reynst vel gegn Covid-19-sjúkdómnum en ekki vilja allir láta bólusetja sig og þá geta bólusettir einnig smitast af veirunni og fengið ein- kenni. Þessum nýju lyfjum er því ætlað að bregðast við þörf sem hefur skapast fyrir lyf til að með- höndla sjúkdóminn. Önnur lyf sem þegar eru gefin við Covid eru aðeins notuð á spítölum og virka einungis í sumum tilfellum. Ný lyf við Co- vid-19 í þróun LYFJAFYRIRTÆKI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.