Morgunblaðið - 28.07.2021, Qupperneq 16
16 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 2021
✝
Ragnheiður
Þórarinsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 7. apríl 1956.
Hún lést á Land-
spítalanum 18. júlí
2021.
Foreldrar henn-
ar voru Margrét
Sæmundsdóttir
saumakona og
Ólafur H. Torfason
vegaverkstjóri.
Systkini hennar sammæðra eru
Kristín Þorbjörg, f. 1959, d.
2016, Ólína Margrét, f. 1961,
og Torfi Jóhann, f. 1965. Ragn-
heiður giftist 4. desember 1976
eftirlifandi eiginmanni sínum,
Þórarni Th. Ólafssyni stýri-
manni, f. 1954. Börn þeirra eru
a) Ágústa Margrét, f. 1976.
Hennar maður er Andrew Bry-
don og börn þeirra eru Isobel
Sóley, f. 2010, og Óskar Thor,
f. 2015. b) Kristín Theódóra, f.
1980, börn hennar eru Emilía
Kumbaravogi þar til starfsemi
lauk. Árið 2006 fór hún í
sjúkraliðanám og lauk því á
tveimur árum og starfaði síðan
sem slík. Ragnheiður starfaði
talsvert að félagsmálum. Gekk
í slysavarnadeildina Björg á
Eyrarbakka fljótlega eftir að
hún hóf búskap og síðan innan
fárra ára í Kvenfélag Eyr-
arbakka og starfaði þar alla
tíð, var í stjórn í mörg ár og
formaður þess nokkur ár. Hún
vígðist inn í Oddfellow-regluna
árið 2011 í Rebekkustúkuna nr.
9 Þóru á Selfossi. Hún var í
hópi systra sem hyggjast
stofna nýja stúku nú á haust-
mánuðum. Ragnheiður veiktist
skyndilega í lok apríl sl. Hún
varð fljótt mjög veik og fékkst
ekkert við ráðið. Hún lést
sunnudaginn 18. júlí á blóð-
meinadeild Landspítalans.
Útför hennar fer fram frá
Selfosskirkju í dag, 28. júlí
2021, klukkan 14. Jarðsett
verður í Eyrarbakka-
kirkjugarði.
Slóð á streymi má finna á:
www.mbl.is/andlat/
Streymt verður frá athöfn-
inni á:
https://selfosskirkja.is/
Ólöf, f. 2007, og
Þórarinn Smári, f.
2014, unnusti
Kristínar er Egill
Harðarson. c) Ólöf
Halldóra, f. 1980,
barn hennar er
Ronja Kristín, f.
2009, sambýlis-
maður Ólafar er
Einar Storo.
Skólaganga
Ragnheiðar var í
Álftamýrarskóla og Ármúla-
skóla og eftir gagnfræðapróf lá
leiðin á vinnumarkaðinn í ýmis
störf.
Ragnheiður og Þórarinn
hófu búskap á Eyrarbakka í
desember 1975 og bjuggu þar
æ síðan. Eftir að börnin kom-
ust á leikskóla starfaði Ragn-
heiður í fiskvinnslu fyrstu 10
árin en síðan vann hún á Sól-
völlum, dvalarheimili aldraðra
á Eyrarbakka, og síðan um 10
ára skeið á hjúkrunarheimilinu
Það er virkilega erfitt að sætta
sig við það að Ragnheiður frænka
okkar sé farin, eftir stutt en erfið
veikindi. Enn einu sinni er maður
minntur harkalega á það hvað lífið
er viðkvæmt og eins gott að lifa
því og njóta hverrar stundar.
Ragnheiður kunni að lifa lífinu,
hún var einstaklega félagslynd,
elskaði góð partí og veislur. Hún
passaði sig að hafa alltaf eitthvað
skemmtilegt að hlakka til, eins og
að fara í leikhús, breyta og fegra
heimilið, en hún naut þess að hafa
fallegt í kringum sig. Ekki
skemmdi heldur fyrir að eiga eins
og einn ef ekki fleiri flugmiða. Þau
hjónin voru dugleg að ferðast,
bæði í sólina og að heimsækja
dætur sínar og fjölskyldur til
Manchester og Bergen. Síðasta
utanlandsferðin var til Færeyja
síðasta sumar, en þau tóku krók á
leið sína og fóru til Vopnafjarðar
að heimsækja Ásmund systurson
hennar og fjölskyldu. En Ragn-
heiður var sérstaklega frændræk-
in og hlúði vel að fjölskyldu sinni,
hvort sem það voru hennar börn
eða við systkinin, með heimsókn-
um og símhringingum. Hún hélt
einstaklega vel utan um okkur
þegar mamma okkar lést og pass-
aði að halda reglulegu sambandi.
Við systkinin vottum elsku
Þórarni, dætrum og fjölskyldum
þeirra okkar dýpstu samúð.
Elsku frænka okkar takk fyrir
allt og allt.
Hverfur margt
huganum förlast sýn
þó er bjart
þegar ég minnist þín.
Allt er geymt
allt er á vísum stað
engu gleymt,
ekkert er fullþakkað.
(Oddný Kristjánsdóttir)
Margrét, Ólafur, Oddný
Ása og Ásmundur.
Það er mér nánast óskiljanlegt
að Ragnheiður, bróðurdóttir mín,
sé látin, en hún háði stutta glímu
við erfið veikindi. Ótímabært and-
lát hennar fyllir mig sorg, en sár-
astur er þó missir nánustu fjöl-
skyldu hennar, sem nú sér á eftir
yndislegri eiginkonu, móður,
ömmu og systur.
Ragnheiður var smábarn þeg-
ar hún kom með mömmu sinni inn
í fjölskyldu mína, þegar þau Óli
bróðir og Margrét, sem síðar varð
eiginkona hans, urðu par. Þeim
mæðgum var vel tekið og Óli gekk
Ragnheiði í föður stað. Ragnheið-
ur varð svo stóra systir Kristínar,
sem er látin, Lóu og Torfa.
Samgangur var alltaf mikill í
fjölskyldunni og ég hef því fylgst
með Ragnheiði frá því hún var
glaðlegt barn, sem síðan varð
glaðlegur unglingur með lítil eða
engin unglingavandamál og síðan
efnileg, glaðleg kona, enn þá með
engin vandamál. Ragnheiður var
alltaf ljúf, brosmild og jákvæð og
kom eins fram við alla og gerði
engan mannamun. Hún giftist
ung Þórarni, sem hún hóf búskap
með á Eyrarbakka, þaðan sem
hann er ættaður, og þar hafa þau
búið æ síðan. Þórarinn var fyrst
framan af til sjós, enda menntað-
ur til þess, en hætti því fljótlega
og fékk sér vinnu í landi til að geta
verið með fjölskyldu sinni og tekið
þátt í lífinu með þeim. Þau eign-
uðust þrjár dætur, fyrst Ágústu
og síðar tvíburana Ólöfu og Krist-
ínu. Þetta var falleg og samheldin
fjölskylda sem gott var að vera
nálægt. Ragnheiður var stolt af
dætrum sínum þremur, enda full
ástæða til. Þær eru allar vandaðar
og vel gerðar ungar konur, sem
hafa staðið sig með mestu prýði í
lífinu og eiga falleg og mannvæn-
leg börn.
Ég kom nokkuð oft til Ragn-
heiðar, sérstaklega hér á árum áð-
ur, boðin sem óboðin og fékk alltaf
hlýjar móttökur og kom aldrei að
tómum kofanum hjá henni. Þó að
ég væri heilli kynslóð eldri en hún
hafði það ekki áhrif á samskipti
okkar. Við hringdum hvor í aðra
og skiptumst á fréttum um fjöl-
skyldurnar. Þeirra stunda mun ég
sakna sárt.
Síðustu árin, meðan Óli bróðir
lifði, sinnti Ragnheiður honum af
mikilli umhyggjusemi og natni og
þær voru ófáar ferðirnar sem þau
Þórarinn keyrðu til Reykjavíkur
til að sinna honum. Ég veit að Óli
var þeim þakklátur fyrir það og
það er ég líka. Ég er líka þakklát
fyrir allt sem Ragnheiður hefur
gert fyrir mig, en ég átti ekki von
á að ég myndi þakka henni á þess-
um vettvangi og hefði svo sann-
arlega viljað að það hefði verið á
annan veg.
Ég votta Þórarni, Ágústu,
Kristínu og Ólöfu, sem og barna-
börnum og systkinum Ragnheið-
ar, samúð mína. Hugur minn og
fjölskyldu minnar er hjá þeim.
Megi minningin um yndislega eig-
inkonu, móður, ömmu og systur
lifa með ykkur.
Helga Torfadóttir.
Það er komið að kveðjustund.
Það er með mikilli sorg og trega
sem ég sest niður og skrifa fáein
kveðjuorð um Ragnheiði Þórar-
insdóttur. Kveðjustund sem kom
allt of fljótt, hún átti eftir að gera
svo margt, það voru spennandi
tímar fram undan þar sem þau
hjónin voru bæði hætt að vinna.
Enginn ræður sínum næturstað,
almættið kallar til sín góða konu
til mikilvægra verka, eftir sitjum
við hljóð með tár á hvarmi.
Ég kynntist Ragnheiði fyrst á
skemmtunum og ferðalögum inn-
anlands og utan með bræðrum í
Oddfellow-stúkunni Hásteini. Ár-
ið 2011 leiddi ég hana inn í Odd-
fellow-regluna og þá bundumst
við góðum vinaböndum. Hún
gekk til liðs við undirbúningshóp
stofnunar nýrrar Oddfellow-
stúku á Selfossi síðla árs 2019 og
tók þar virkan þátt í öllum verk-
efnum. Til stóð að hún yrði ein af
stofnfélögum í Oddfellow-stúk-
unni Halldóru. Það er þungt högg
fyrir okkar hóp að missa hana úr
starfinu, konu með reynslu og
þekkingu til að takast á við öll
verkefni. Ragnheiður var okkur
góður félagi og vinur, hún var allt-
af fús til að taka að sér verkefni
hver sem þau voru, þegar átti að
kaupa veitingar á fundi þá stóð
hún upp við aðra systur og sagði
nei, þetta sjáum við um, allt sem
hún gerði var vel gert.
Við Halldórusystur munum
sakna okkar góðu systur, við
minnumst hennar með kærleik í
hjarta, með þakklæti fyrir allar
góðu stundirnar á lífsins vegi.
Ragnheiður verður alltaf hluti af
hópnum, hún lagði með okkur
veginn sem við munum ganga, í
okkar huga og hjarta verður hún
alltaf ein af Halldórusystrum.
Kæri Þórarinn og fjölskylda,
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur til ykkar allra, megi góður Guð
vaka yfir ykkur og styrkja.
Blessuð sé minning okkar látnu
systur.
Hljómfagrar myndir horfinna daga,
í huganum geymast sem töfrandi
glóð.
Svo er minning þín ljúf og lífs þíns
saga,
ljós þitt lifir með okkur er varst þú svo
góð.
(J.R. Lilliendahl)
Fyrir hönd verðandi Halldóru-
systra,
Margrét Katrín
Erlingsdóttir.
Okkur setur hljóð. Nú hefur
myndast skarð í hópinn okkar
góða. Ragnheiður er farin allt of
fljótt. Eftir margra ára vináttu og
gæðastundir standa eftir minn-
ingar sem hvert og eitt okkar á í
hug og hjarta. Minningar um
fundi og ferðir, afmæli og fögnuði,
helgarferðir og samveru.
Það var ekki komið að tómum
kofunum þegar veislur sem Ragn-
heiður kom að voru annars vegar,
þar lék allt í höndum hennar.
Ragnheiður hafði sterkar skoðan-
ir og lét þær óspart í ljós og stund-
um þannig að ekki líkaði öllum.
Ragnheiður var gjafmild og einn-
ig fagurkeri og hafði næmt auga
fyrir umhverfi og listum.
Þegar Ragnheiður varð sextug
hélt hún veglega afmælisveislu.
Þar hylltum við hana með glensi
og afmælissöng og setjum hér eitt
erindi úr söngnum en það lýsir
henni vel.
Hún stundum er settleg og stundum er
hvatvís,
og endalaust gefur hún lífinu lit.
Hún kann sko að vera til, alltaf svo
huggó.
Já, Ragnheiður okkar hún er bara
skvís.
Með eindæmum gestrisin alltaf hún
er.
Með kræsingar ljúfar á borðum hjá
sér.
Elsku Þórarinn vinur okkar,
dætur og fjölskyldan öll, við vott-
um ykkur innilega samúð. Bless-
uð sé minning Ragnheiðar um
ókomin ár.
Auður og Rúnar, Guð-
björt (Gúddý) og Jón
Ómar, Hafdís og Jóhann-
es (Jói), Hugborg
(Hugga) og Sig-
urmundur (Diddi), Ingi-
björg (Inga) og Páll
(Palli), Ragnheiður
(Ragga) og Birgir
(Biggi).
Ég man þegar ég sá Ragnheiði
fyrst, þá var hún nýflutt á Eyr-
arbakka með honum Þórarni Th.
Ólafssyni. Þau bjuggu fyrst á
Tjörn á Eyrarbakka, á meðan þau
voru að byggja sér framtíðarhús-
næði. Ragnheiður var glæsileg
kona með rautt hár og kvikar
hreyfingar. Hlátur hennar heyrð-
ist vel þar sem hún var, hún var
dugleg og ósérhlífin og sagði hisp-
urslaust það sem henni fannst.
Hún var nærgætin við þá sem
minna máttu sín og sýndi þeim
hlýju. Hún var mikil húsmóðir,
heimilisstörf léku í höndum henn-
ar og hún var mikill fagurkeri.
Ragnheiður byrjaði í Kvenfélagi
Eyrarbakka fljótlega eftir að hún
flutti á Bakkann og tók að sér
mörg ábyrgðarstörf innan Kven-
félagsins. Hún var formaður
kaffinefndar, var í stjórn Kven-
félagsins og seinna formaður þess
í nokkur ár. Hún átti sér áhuga-
mál fyrir hönd Kvenfélagsins fyr-
ir utan hefðbundin störf hennar
innan þess; það var að Kvenfélag
Eyrarbakka ætti sér sinn eigin
fána. Þessu markmiði sínu fyrir
hönd Kvenfélagsins náði hún og
gætti þess vel að fáninn væri hafð-
ur við merkisatburði Kvenfélags-
ins og einnig þegar kvenfélags-
kona var til grafar borin.
Undirrituð var með Ragnheiði í
einni af basarnefndum Kven-
félagsins og kynntist henni þar,
jafnframt því að þekkja hana sem
samborgara.
Með þessari kveðju langar mig,
fyrir hönd Kvenfélags Eyrar-
bakka, að þakka Ragnheiði fyrir
hennar framlag til Kvenfélags
Eyrarbakka og til samfélagsins
alls.
Kristín Eiríksdóttir,
formaður Kvenfélags
Eyrarbakka.
Brostinn er hlekkur – skarð er
fyrir skildi. Það var mikið áfall að
fá fréttir af andláti Ragnheiðar.
Hún hafði verið slöpp og veik sl.
mánuði en maður bjóst alltaf við
að hitta hana hressa á næsta
fundi. Kallið kom því eins og
þruma úr heiðskíru lofti. Kannski
svolítið líkt henni sjálfri. Hún
kom, umvafin orku hvatvísi og
glaðværðar og þegar hún kvaddi
hljóðnaði og varð tómlegt. Þannig
var Ragnheiður. Hún fyllti hvert
rými af orku sinni. Ragnheiður
var mikil fjölskyldumanneskja og
voru eiginmaður, dætur og barna-
börn henni allt. Hún var mynd-
arleg húsmóðir og fagurkeri. En
umfram allt var Ragnheiður góð-
ur og sannur vinur vina sinna. Fé-
lagslynd var hún að eðlisfari og
tók virkan þátt í samfélagi sínu.
Hún var m.a. mjög virk í kven-
félagi Eyrarbakka þar sem hún
var formaður um tíma en lengst af
í forsvari fyrir einni kaffinefnd fé-
lagsins. Þar nýtti hún styrkleika
sína vel – myndarskapur var
henni eðlislægur. Hún var hrein-
skiptin og klæddi ekki hlutina í
óþarfa umbúðir. Þá skipti álit
samferðafólks hana ekki öllu þótt
hennar verk hafi allir virt og met-
ið. Það var aldrei lognmolla í
hennar nærveru.
Þórarinn var stóra ástin henn-
ar Ragnheiðar og mátti ætíð sjá
og heyra á tali hennar hversu
sönn ást hennar var. Þau komu
fyrir sem mjög ólíkir einstakling-
ar en saman voru þau ein heild,
samofin og farsæl öllum þeim sem
á horfðu.
Þórusystur eiga eftir að sakna
hlátraskalla hennar, glaðværðar,
vináttu og félagsskapar.
Það hljóðnar í sal og sál.
Fyrir hönd Rebekkustúkunnar
nr. 9, Þóru, votta ég Þórarni,
dætrunum og fjölskyldu allri
mína dýpstu samúð og bið Guð að
varðveita minningu kærrar syst-
ur.
Þar til við hittumst að nýju, í
vináttu, kærleika og sannleika.
F.h. Þórusystra,
Elsa Ingjaldsdóttir.
Elsku vinkona.
Þá er komið að leiðarlokum, þú
kvaddir alltof fljótt. Minningarn-
ar streyma fram. Við vinkonurnar
úr Álftamýrarskóla stofnuðum
snemma saumaklúbb, vorum ekki
nema 11 ára gamlar. Sá klúbbur
entist svo sem ekki lengi. En þeg-
ar við vorum þrítugar var klúbb-
urinn endurvakinn og höfum við
gert margt skemmtilegt saman í
gegnum árin. Tónleikar, ferðarlög
og utanlandsferð. Þá er ferð okk-
ar til Vestmannaeyja sem stendur
upp úr, veðurblíðan einstök og allt
sem fylgdi þessari ferð líður seint
úr minni. Ferðin okkar til Man-
chester var einnig ógleymanleg.
Afmælisveislan þegar þú fagnaðir
60 ára afmælinu þínu gleymist
seint. Svo glæsileg þegar þú tókst
á móti öllum gestunum. Síðasta
skemmtun sem við áttum saman, í
febrúar 2020, þá fórum við út að
borða og á Stuðmannatónleikana,
já, við kunnum sko að skemmta
okkur og njóta samverunnar. Þú
varst höfðingi heim að sækja,
maður gat alltaf bankað upp á á
Túngötunni. Þín verður sárt
saknað úr saumaklúbbi 56.
Við þökkum ómetanlega vin-
áttu í gegnum árin.
Nú kveðja þig vinir með
klökkva og þrá
þá komin er skilnaðarstundin.
Sendum okkar dýpstu samúð-
arkveðjur til Þórarins, dætra
þeirra, tengdasona og barna-
barna.
Þínar vinkonur
Björg, Fríða, Helga,
Lilja, Margrét (Magga),
Svana, Svanhildur.
Ragnheiður
Þórarinsdóttir
✝
Hulda Elvý
Helgadóttir
fæddist í Reykjavík
17. febrúar 1940.
Hún lést á Landspít-
alanum 8. júlí 2021.
Hún var dóttir
Helga J. Hafliða-
sonar bifvélavirkja,
f. 1908, d. 1965, og
Sigurbjargar Jóns-
dóttur húsmóður, f.
1905, d. 1997.
Systkini Huldu eru Sigurbjörg,
Kristín, Hafdís, Hafþór, Ómar
Þór og Helgi.
Hulda var gift Ragnari Hjalta-
syni, f. 28.3. 1938. Börn þeirra
stíg í Reykjavík með eiginmanni
sínum Ragnari Hjaltasyni, þar
sem þau byrjuðu sinn búskap.
Þaðan fluttu þau til Hafn-
arfjarðar og stofnuðu Sendibíla-
stöð Hafnarfjarðar ásamt fleiri
bílstjórum, Hulda starfaði í síma-
afgreiðslu meðan á sambúðinni
stóð.
Eftir sambúðarslit flutti Hulda
í Breiðholtið með sín þrjú börn
og vann í blómabúð með Kristínu
systur sinni. Um 1990 stofnaði
Hulda hjónabandsráðgjöf og
kom mörgum pörum saman,
ásamt því að vera útivinnandi
húsmóðir. Einnig var hún virk í
félagsstarfinu Vinafélaginu, sem
hún sinnti vel og skipulagði sam-
komur kringum félagið. Á efri
árum flutti hún í Safamýri 40 og
var þar sín síðustu ár.
Útförin fer fram frá Fossvogs-
kirkju í dag, 28. júlí 2021, klukk-
an 13.
eru: 1) Ásta Björk, f.
2.10. 1960, maki
Guðmundur Guðna-
son, f. 5.1. 1961.
Þeirra börn eru Ív-
ar Þór, f. 29.5. 1984,
Elvý Ósk, f. 10.6.
1987, og Axel Örn,
f. 28.8. 1989. 2)
Helgi, f. 22.12. 1961,
hans barn er Ása
Lilja, f. 3.6. 1996. 3)
Víðir Þór, f. 4.1.
1965, d. 20.3. 1981.
Hulda ólst upp á Hverfisgötu
92a í Reykjavík og var alla sína
grunnskólagöngu í Austurbæj-
arskóla. Hún flutti á Skólavörðu-
Elsku mamma og amma, það er
alveg ofboðslega erfitt að setjast
niður og semja bréf til þín, miðað
við hvað þú varst heilsuhraust átt-
um við ekki von á að missa þig
svona snemma. Það er mikill sökn-
uður að hafa þig ekki lengur kring-
um okkur, við eigum eftir að sakna
þín mjög mikið. Þú varst alltaf til
staðar þegar eitthvað bjátaði á í
okkar lífi. Fjölskyldan var þér
mikilvægust og þú notaðir öll
tækifæri til að koma fjölskyldunni
saman. Það var auðvelt að fá þig til
að brosa og hlæja og þér þótti
gaman þegar við fífluðumst sam-
an. Það sem þú elskaðir ættfræð-
ina, þú gast talað um hana tímun-
um saman og það var ofboðslega
gaman að hlusta á þig. Þú varst
með allt á hreinu þegar það kom
að fjölskyldumeðlimum eins og
fæðingardaga og -ár hjá öllum
ættingjum. Þú sagðir okkur svo
oft einhverja hluti um ættingjana
okkar sem við höfðum ekki hug-
mynd um, oft þegar við vorum að
segja þér frá einhverjum eða
kynna þig fyrir nýju fólki þá vissir
þú alveg hvort einstaklingurinn
væri skyldmenni eða ekki. Þú áttir
líka til í að spá fyrir okkur með
bollum eða spilum og þú náðir al-
veg að fanga okkur með forvitn-
inni og oftar en ekki rættist spá-
dómurinn frá þér. Þú áttir líka til
að spila tölvuleiki með okkur og
voru það alveg góðar stundir. Bíl-
túrarnir sem við áttum til að taka
voru líka alveg æðislegir, þú tókst
þinn tíma til að segja okkur hvern-
ig hlutirnir höfðu verið í gamla
daga og hversu mikið hafði breyst
með tímanum. Þú fræddir okkur
um lífið og tilveruna í hvert sinn
sem við fórum eitthvað út. Þér
fannst svo ofboðslega gaman að
borða að það var alltaf hægt að
lokka þig með í bíltúr ef þú vissir
að það yrði einhver matur í leið-
inni. Þú varst ekkert mikið fyrir að
hafa gæludýr í kringum þig en það
var alveg ótrúlegt hvað dýrin sóttu
mikið til þín, þau hafa örugglega
skynjað hlýleikann frá þér. Við
eigum margar góðar minningar
um þig, elsku mamma og amma,
og við munum varðveita þær eins
og við getum. Takk fyrir allt sem
þú hefur gert fyrir okkur, við erum
þér ævinlega þakklát fyrir tímann
sem þú varst með okkur.
Helgi, Elvý Ósk og Ása Lilja.
Hulda Elvý
Helgadóttir