Morgunblaðið - 28.07.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 28.07.2021, Síða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 2021 40 ÁRA Jónas Elí fæddist í Reykjavík, en var fyrsta árið í Ólafsvík þar sem faðir hans var kaupfélagsstjóri. Fjölskyldan flutti síðan í Breiðholtið og hann gekk í Fellaskóla. Þaðan fór hann í Fjöl- braut í Breiðholti og útskrifaðist þaðan sem rafvirki. Frá unga aldri hafði hann mikinn áhuga á tónlist. „Pabbi hefur alltaf spilað á gítar og mamma var alveg sjúk í tónlist, svo þetta kom eiginlega í vöggu- gjöf.“ Jónas Elí var byrjaður að koma fram og spila og kenna í Gítarskóla Íslands þegar hann ákvað að fara til London og læra meira og lauk við BA-gráðu í Uni- versity of East London and Insti- tute of Contemporary Music árið 2010. „Ég var þar í hartnær 8 ár og ég lærði mikið, bæði í tónlist- inni og ekki síður á lífið.“ Með- fram náminu var hann að vinna, spila á gítar mestmegnis og kenna. Hann spilar alls konar tón- list en er mest fyrir djass og blús. „London er mjög spennandi borg, en það er gífurleg harka á mark- aðnum.“ Jónas Elí kynntist konu sinni í London í gegnum sameig- inlega vini, en hún er frá Limerick í Írlandi. Þau ákváðu að flytja saman til Óslóar, og þar fór Jónas Elí að vinna sem rafvirki og spila samhliða því. „Það var fínt í Nor- egi og ég var farinn að spila með íslenska bandinu Sinnep þar til hluti bandsins flutti heim.“ Núna er fjölskyldan komin til Íslands og er að koma sér fyrir á Selfossi og líst mjög vel á. FJÖLSKYLDA Eiginkona Jón- asar Elí er Marina Kelly, f. 9.10. 1982, en hún er nýkomin með vinnu á Hótel Selfossi. Börn þeirra eru Killéan Kári, f. 2016, og Saoirse Magnea, f. 2019. For- eldrar Jónasar eru hjónin Helga Magnea Kristjánsdóttir, spákona og verslunarmaður, f. 1945, d. 2010, og Bjarni Sigmar Kjart- ansson fiskfarandsali, f. 1949. Jónas Elí Bjarnason Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Svo virðist sem vandamál hjartans séu ekki alvarlegri en svo, að á þeim megi sigrast með réttu tónlistinni, góðum mat og fjörugum félagsskap. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú gætir fengið tækifæri til að gefa einhverjum þér yngri góð ráð eða kenna viðkomandi eitthvað mikilvægt. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Það þarf ýmislegt að leggja á sig til þess að halda sambandi við annað fólk gangandi. Leyfðu hlutunum að jafna sig áð- ur en þú hefur máls á óánægju þinni. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Samræmi skiptir máli. Ef þú vinnur vel muntu uppskera samkvæmt því. Bættu skipulagið hins vegar svo þú náir betri ár- angri. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Menn geta haft skiptar skoðanir á málum þótt þeir stefni allir að sama marki. Láttu það samt ekki draga þig niður því þegar allt kemur til alls þá ert þú þinnar eigin gæfu smiður. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Dagdraumar geta verið skemmti- legir en best er þó að sinna sínu í raunveru- leikanum og uppskera þar árangur erfiðis síns. 23. sept. - 22. okt. k Vog Hvaða ánægju leitar þú? Hafðu ávallt í huga að leggja þig allan fram til að ná henni. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú þarft að taka á honum stóra þínum í dag því náinn vinur mun ald- eilis reyna á þolrifin í þér. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Hugsaðu vel um þína eigin vel- ferð, notaðu því daginn til dagdrauma og slakaðu á. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Ef þú hefur undanfarið átt erfitt með að sjá fyrir þér þína björtu framtíð, þá birtir núna til. Byrjaðu smátt og þá vex þér styrkur til að takast á við stærri mál. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þótt þú hafir í mörg horn að líta máttu aldrei gleyma því að gera sjálfum þér eitthvað til góða. Leggðu þig fram um að sýna sjónarmiðum annarra þá virðingu sem þú vilt þér til handa. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Það er fleira um að hugsa en ver- aldleg verðmæti, þótt þeirra þurfi líka við. Láttu þetta samt ekki trufla þig, haltu þínu striki. haldsfélagi Kringlunnar, sem aðstoðarmaður framkvæmdastjóra árið 1998. Árið 2000 sameinaðist það félag Þyrpingu og tók ég þá við stöðu framkvæmdastjóra fjár- málasviðs í sameinuðu félagi. Árið 2002 fékk ég það tækifæri að koma að stofnun Eikar fasteignafélags og leiða það áfram. Eik fasteignafélag ári eignaðist ég mitt fyrsta barn, Agnesi Önnu, og síðan komu bræð- urnir Alex Baldur 2005 og Rík- harður 2006 og núna síðast eign- aðist ég Nadju Lillínu árið 2020.“ Eftir að heim var komið hellti Garðar sér í viðskiptalífið af mikl- um krafti. „Ég hóf feril minn í fast- eignageiranum hjá Eignar- G arðar Hannes Frið- jónsson fæddist á Fæðingarheimilinu í Reykjavík 28. júlí 1971. Hann ólst upp í Ljósheimunum til sex ára aldurs, en þá flutti fjölskyldan í Vestur- bæinn og hann gekk í Melaskóla, Hagaskóla og fór síðan í Verslunar- skóla Íslands. Garðar segir að það hafi verið gott að alast upp í Vest- urbænum. „Ég var meira í tónlist en íþróttum og lærði bæði á blokk- flautu og lúður.“ Þegar Garðar fór í Verslunar- skólann byrjaði hann að læra klass- ískan söng samhliða náminu. „Ég var í Nýja tónlistarskólanum og lærði að mestu leyti hjá Alinu Dub- ik. Ég tók þátt í nemendaóperum tónlistarskólans og söng meira að segja hlutverk Papagenos í Töfra- flautunni eftir Mozart, sem sett var upp í Tjarnarbíói.“ Eftir stúdentsprófið var Garðar ekki alveg viss um hvert stefna skyldi, en ákvað að leita í smiðju helstu hugsuða sögunnar og sjá hvað þeir gætu kennt honum. „Ætli það séu ekki heimspekingarnir Ari- stoteles, John Stuart Mill, Fried- rich W. Nietzsche og Jean-Paul Sartre sem hafa haft hve mest áhrif á mig. Það var í raun og veru ekki fyrr en síðar í lífinu sem ég gerði mér grein fyrir því hvað sú menntun hafði jákvæð áhrif á mig og hvað hún hefur nýst mér mikið í starfi. Að mínu mati eiga flestar nútímastjórnunarkenningar sér rætur í heimspeki síðustu og þar síðustu aldar. Jafnframt tel ég það hafa verið mikið lán að fá að alast upp í heimspeki með köppum eins og Páli Skúlasyni og Þorsteini Gylfasyni.“ Garðar útskrifaðist með BA-gráðu í heimspeki árið 1995 frá Háskóla Íslands. Garðar segir að alla tíð hafi hann verið góður í tölum og haft áhuga á viðskiptum á sama tíma og heim- spekin og tónlistin hafi alltaf heill- að líka. Það varð því úr að ári eftir útskrift úr HÍ hélt hann utan til náms og útskrifaðist með MBA- gráðu frá háskólanum í Salford í Bretlandi árið 1997. „Á því sama var stofnað af Lýsingu hf. Gangur félagsins hefur verið góður og hef- ur það alltaf skilað hagnaði frá stofnun að undanskildum þremur árum við og eftir efnahagshrunið 2008. Félagið var skráð á aðallista Nasdaq Nordic-kauphallarinnar ár- ið 2015 og nema eignir félagsins nú yfir hundrað milljörðum króna. Í Garðar Hannes Friðjónsson forstjóri Eikar fasteignafélags – 50 ára Rómantíkin Hjónin Zemfira og Garðar í fallega bænum Annecy í Frakklandi árið 2019 á afmælisdegi Garðars. Eikin með rætur í heimspekinni Kauphöllin Eik var skráð á aðallista Nasdaq í kauphöllinni árið 2015. Fjölskyldan Fjör í Bled í Slóvaníu. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.