Morgunblaðið - 28.07.2021, Page 24

Morgunblaðið - 28.07.2021, Page 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. JÚLÍ 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Hryggjarstykkið í plötunni er „Ís- lenska svítan“ hennar Jórunnar Við- ar. Það var fyrsta verkið sem var valið,“ segir Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari um nýja plötu þeirra Tinnu Þorsteinsdóttur píanóleikara, Last Song. „Ég var rosalega heppin að fá að kynnast Jórunni og fara í tíma hjá henni með Nico Muhly vini mínum áður en við spiluðum „Íslensku svít- una“ á Gljúfrasteini árið 2007. Við fórum í heimsókn til hennar á Lauf- ásveginn og það var alveg rosalega gaman að spila þetta fyrir hana. Hún var náttúrlega ótrúlegur tónlistarmaður og hafði frá mörgu að segja.“ Kaflarnir í verki Jórunnar eru þjóðlegir og klassískir: vikivaki, þjóðlag, fiðlulag, óttusöngur og ávarp. „Verkið er bæði svolítið hátíð- legt því það er samið í tilefni af ellefu hundruð ára afmæli Íslandsbyggðar árið 1974 en það er líka rosalega létt yfir því. Það er kannski eitthvað sem við vorum að leitast við; að hafa svo- lítið létt yfir plötunni. Það er húmor í verkinu hennar og það er líka mikil rytmísk spenna í því. Það er ofsalega sérstakt.“ Íslensk tónskáld og erlend Þær Tinna völdu síðan lög til að hafa með verki Jórunnar. „Við vor- um með svolítinn bunka af verkum sem við höfum spilað áður. Sumt er nýtt og sumt eldra. Við tókum okkur góðan tíma til að raða þessu fallega saman.“ Útkoman varð skemmtileg blanda af verkum frá ólíkum tímum, bæði íslensk og erlend. Auk Jórunnar eiga nokkur íslensk samtíma- tónskáld verk á plötunni. „Okkur fannst fallegt að hafa Atla Heimi Sveinsson og Magnús Blöndal Jó- hannsson með,“ segir Una. Tvö verk eftir Magnús eru á plötunni og þrjár Maríubænir Atla Heimis. Auk þeirra er að finna þar verk eftir Karólínu Eiríksdóttur, sem var önn- ur íslenskra kvenna til þess að ganga í Tónskáldafélagið, næst á eftir Jórunni, og því vel við hæfi að hafa verk eftir hana með svítu Jór- unnar. Á plötunni eru síðan ýmis verk eftir erlend tónskáld frá ólíkum tím- um. Una segir að þeim Tinnu hafi þótt gaman að finna fallegan dans, sem passaði vel með verki Jórunnar, eftir Hildegard von Bingen. Sú var uppi á 12. öld og verk hennar, sem frumflutt var árið 1151, það elsta á plötunni. Einnig má finna þar tvö verk eftir Louis Couperin (1626-1661). Annað þeirra heitir „Unmeasured Prelude“ og þótti þeim Unu og Tinnu gaman að vinna í því þar sem það býður upp á þónokkurt frelsi. „Við höfum báðar verið að vinna svolítið í spuna. Verk- ið er skrifað í bollunótum svoköll- uðum, í heilnótum, og svo fá flytj- endurnir að ráða lengd nótnanna í verkinu.“ Þetta gefur tónlistar- mönnunum færi á að útsetja verkið eftir eigin höfði. Verk tileinkað Jóhanni Jóhanns Auk þess eru á plötunni verk eftir hinn norska Ole Bull (1810-1880), þáttur úr óperunni Thais eftir Jules Massenet (1842-1912), verk eftir Christoph Willibald Gluck (1714- 1787) og Claudio Monteverdi (1567- 1643). Síðasta lagið á plötunni og jafn- framt það yngsta, „Last Song before the News“, er eftir Unu sjálfa. Það er tileinkað tónskáldinu og vini Unu Jóhanni Jóhannssyni og á rætur að rekja til þess þegar Una var stödd í Hallgrímskirkju að undirbúa sig fyrir jarðarför hans. Þær Tinna unnu svo saman að því að þróa þenn- an hljóðheim og klára lagið. Skemmtileg breidd Titill þessa síðasta lags tengist þema plötunnar. „Hún er ástarjátn- ing til síðasta lags fyrir fréttir. Okkur fannst lögin á plötunni ríma svo vel við það. Öll þjóðin hlustaði á sama lag- ið á hverjum degi enda Ríkisútvarpið eina rásin á sínum tíma.“ Una segir breiddina í þessum lögum, sem spiluð voru fyrir hádegisfréttirnar á degi hverjum, hafa verið skemmtilega, en oft voru spiluð íslensk sönglög, ást- arljóð eða vögguvísur. „Platan er svo- lítill óður til línulegrar útvarps- dagskrár, sem er hrópleg tímaskekkja á öld hlaðvarpa.“ Lögin fanga á vissan hátt tilfinn- inguna sem fylgir augnablikinu rétt áður en fréttir skella á, áhyggjuleys- ið og léttleikann sem einkennir logn- ið á undan storminum. Platan var tekin upp í Sundlaug- inni Álafosskvos, sem hefur verið breytt í hljóðver. Þar tók Birgir Jón Birgisson hljóðmaður á móti þeim og segir Una það hafa verið frábært að hafa hann þeim til aðstoðar. Mikil tilraunakona Una leikur að vanda á fiðlu en Tinna spilar á dótapíanó og undir- búið píanó í verkunum. Undirbúið píanó kallast það þegar hlutum er komið fyrir á milli strengja píanósins til að breyta hljóðum þess. Auk þess spilar Tinna á strengina í flyglinum með hrosshárum. „Hún er mikil til- raunakona og við höfum ótrúlega gaman af því að bralla ýmislegt sam- an í stúdíóinu,“ segir Una um sam- starfskonu sína. Vonir standa til að þær Una og Tinna geti fagnað útgáfunni með nokkrum tónleikum á Menningar- nótt. „Við ætlum að vera á ferðinni á Menningarnótt og spila af plötunni og jafnvel vera með óskalög ef fólk vill fá að heyra eitthvað sérstakt. Við verðum í Fríkirkjunni, Mengi og Listasafni Reykjavíkur og hlökkum mikið til. Við vonum að það eigi eftir að verða að veruleika.“ Last Song er tileinkuð föður Unu, Sveinbirni Rafnssyni, sem hún segir mikinn tónlistarunnanda. „Platan er ástarjátning til síðasta lags fyrir fréttir“ - Una Sveinbjarnardóttir og Tinna Þorsteinsdóttir gefa út plötuna Last Song Blanda „Við tókum okkur góðan tíma til að raða þessu fallega saman,“ segir Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari (t.h.) um plötu þeirra Tinnu Þorsteinsdóttur píanóleikara (t.v.), sem ber titilinn Last Song og er tileinkuð föður Unu. Nóbelshöfundurinn Sir Kazuo Ishiguro gæti mögulega hreppt sín önnur Booker-verðlaun en hann er meðal 13 höfunda sem tilnefndir eru til verðlaunanna í ár. Þessi kunnu verðlaun eru veitt fyrir skáldverk á ensku sem er gefið út á Bretlandi eða Írlandi. Breski rithöf- undurinn Ishiguro, sem fæddist í Japan, hreppti verðlaunin árið 1989 fyrir The Remains Of The Day (Dreggjar dagsins) og hefur verið tilnefndur fyrir þrjár aðrar bækur sínar. Hann er nú tilnefndur fyrir sitt nýjasta verk, sem er hans átt- unda skáldsaga: Klara And The Sun. Ólíkar skáldsögur Aðrir tilnefndir höfundar nú eru Anuk Arudpragasam fyrir A Pas- sage North, Rachel Cusk fyrir Second Place, Damon Galgut fyrir The Promise, Nathan Harris fyrir The Sweetness Of Water, Karen Jennings fyrir An Island, Mary Lawson fyrir A Town Called Sol- ace, Patricia Lockwood fyrir No One is Talking About This, Nadifa Mohamed fyrir The Fortune Men, Richard Powers fyrir Bewilder- ment, Sunjeev Sahota fyrir China Room, Maggie Shipstead fyrir Great Circle og Francis Spufford fyrir Light Perpetual. Fleiri verðlaunahöfundar en Is- higuro eru meðal hinna tilnefndu en hinn bandaríski Richard Powers hefur til að mynda hlotið Pulitzer- verðlaun í heimalandinu. Þá hafa, auk Ishigurus, þau Powers, Galgut, Lawson og Sahota áður verið til- nefnd til verðlaunanna. Styttri listi sex tilnefndra bóka verður kynntur í september en verðlaunin verða síðan afhent í nóv- ember. Nemur verðlaunaféð nærri níu milljónum króna. Í fyrra hreppti Douglas Stuart Booker- verðlaunin fyrir frumraun sína, Shuggie Bain, sögu sem fjallar um dreng sem elst upp við fátækt með- al fíkniefnaneytenda í Glasgow á níunda áratug síðustu aldar. Wikipedia Vinsæll Kazuo Ishiguro í Stokkhólmi fyr- ir fjórum árum, þegar hann tók við Nóbels- verðlaununum í bókmenntum. Ishiguro enn og aftur tilnefndur til Booker-verðlauna Leikararnir Matt Damon og Abigail Breslin og leikstjórinn Tom McCarthy voru lukkuleg þegar þau mættu í fyrrakvöld til frumsýn- ingar kvikmyndarinnar Stillwater í Rose-kvikmyndahúsinu í lista- miðstöðinni Lincoln í New York. Í kvikmyndinni leikur Damon harðjaxl úr olíuiðnaðinum sem fer til Frakklands að reyna að frelsa dóttur sína sem, hefur verið hneppt í varðhald vegna gruns um að hún hafi framið morð. Þar munu vanda- mál hrannast upp, meðal annars vegna menningarlegra árekstra og flókins lagaumhverfis í Frakklandi. Í viðtali fyrir frumsýningu mynd- arinnar sagðist Damon óttast að einhverjir kynnu að halda að þetta væri upphaf hasarmyndaraðar í anda Taken-kvikmyndanna með Li- am Neeson. Svo væri ekki en Stillwater væri þó marglaga og dramatísk mynd. Stillwater frumsýnd í New York AFP Frumsýning Damon, Breslin og leikstjórinn Tom McCarthy voru kát þegar þau stilltu sér upp fyrir myndatöku. Bak við þau má sjá Damon í myndinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.