Morgunblaðið - 30.07.2021, Side 1

Morgunblaðið - 30.07.2021, Side 1
F Ö S T U D A G U R 3 0. J Ú L Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 177. tölublað . 109. árgangur . FRÆKINN SIGUR BLIKA GEGN AUSTRIA WIEN EINANGRANDI SAMSKIPTI Á NETINU HALDA ÞJÓÐ- HÁTÍÐ Í GARÐ- INUM HEIMA HALASTJARNA Í HLÖÐUNNI 28 LILJA OG HALLDÓR 10MÆTA ABERDEEN NÆST 26 Sól og blíða var á höfuðborgarsvæðinu í gær. Hiti mældist hæst tuttugu stig í Reykjavík en var að jafnaði rétt undir tutt- ugu stigum frá hádegi. Margir íbúar höfuðborgarsvæðisins gerðu sér ferð á ylströndina í Nauthólsvík. Veðrið hefur ekki verið með besta móti þetta sumarið og reyna því flestir að nýta sólina þegar hún þá lætur sjá sig. Morgunblaðið/Árni Sæberg Loksins sól og blíða í borginni Esther Hallsdóttir esther@mbl.is Rafn Líndal Björnsson, læknir í Nor- egi, ætlar að óska eftir því við lækna á Covid-göngudeild Landspítalans að einangrun sonar hans verði aflétt. Sonurinn var settur í fjórtán daga einangrun vegna smits eftir komu til landsins en Rafn bendir á að sam- kvæmt reglugerð heilbrigðisráðu- neytisins ætti einangrunin í raun að- eins að vara í tíu daga þar sem drengurinn er einkennalaus og heilsuhraustur. Hann hefur nú verið í einangrun í ellefu daga. Reglugerð heilbrigðisráðuneytis- ins um sóttkví og einangrun kveður á um að þeir sem smitist af Covid-19 fari í fjórtán daga einangrun en þar af þarf viðkomandi að vera einkenna- laus í sjö daga. Í fylgiskjali hennar stendur hins vegar að „almennt hraustir einstak- lingar með engin eða væg einkenni geti útskrifast úr einangrun ef komn- ir eru að minnsta kosti 10 dagar frá greiningu/jákvæðu sýni og þeir hafa verið alveg einkennalausir í að minnsta kosti þrjá daga“. Sonur Rafns er bæði heilsuhraustur og ein- kennalaus. Rafn hefur spurst fyrir um málið hjá heilbrigðisráðuneytinu en ekki fengið svör. Í skriflegu svari heilbrigðisráðu- neytisins til Morgunblaðsins segir að viðkomandi reglugerð sé í gildi og að fylgiskjalið sé til frekari leiðbeining- ar. Hins vegar sé meginreglan sú að einstaklingur með Covid-19 þurfi að vera í einangrun í hið minnsta fjórtán daga og þar af sjö daga einkennalaus. „Telji læknir aftur á móti að þess ger- ist ekki þörf er mögulegt að einstak- lingur sæti einangrun í skemmri tíma, samanber fyrrgreint fylgiskjal 2, en um er að ræða algera undan- tekningu sem verður aðeins beitt af lækni að undangengnu hans læknis- fræðilega mati.“ Beiti ekki lögum af handahófi Rafn segir að næsta skref sé að fara formlega fram á það við lækna á Covid-deildinni að þeir sleppi drengnum úr einangrun þar sem hann uppfylli skilyrði reglugerðar- innar. „Ég skil það ekki þannig að þetta sé neitt matsatriði heldur að ef þú uppfyllir skilyrði reglugerðarinn- ar eigirðu að sleppa eftir tíu daga. Það sé ekki undantekningaratriði. Það er náttúrlega ekki eðlilegt að lög- um sé beitt af handahófi, það er jafn- ræðisregla sem gildir,“ segir hann. Lætur reyna á Covid-reglugerð - Hægt að aflétta einangrun eftir tíu daga í stað fjórtán MFær ekki svör … »6 Morgunblaðið/Sigurður Unnar Farsóttarhús Þétt bókað víða. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Mikill samdráttur hefur orðið í bók- unum hjá mörgum ferðaþjónustu- fyrirtækjum hér á landi síðastliðna viku. Nemur samdrátturinn í sum- um tilvikum mörgum tugum pró- senta. Tölur sem Morgunblaðið hefur skoðað hjá einu umsvifamesta mark- aðstorgi landsins sem þjónustar yfir þúsund íslensk ferðaþjónustu- fyrirtæki sýna að samdrátturinn er verulegur. Þegar aðilar á markaðn- um eru spurðir hvað kunni að skýra þennan mikla samdrátt rekja flestir breytta hegðun ferðamanna til ákvörðunar sem kynnt var 19. júlí síðastliðinn þess efnis að allir sem hingað leggja leið sína, einnig bólu- settir ferðamenn, þurfi að framvísa neikvæðu PCR-prófi við komuna til landsins, ætli þeir að losna við að sæta sóttkví. Í vikunni sem tilkynningin barst (mánudag) nam samdrátturinn hjá fyrrnefndu markaðstorgi 33%. Í kjölfar tilkynningar ríkisstjórnar- innar um hertar sóttvarnaaðgerðir innanlands, sem bar upp á föstudag- inn 23. júlí, hefur samdrátturinn samkvæmt tölum markaðstorgsins numið öðrum 33%. Ferðaþjónustuaðilar sem Morg- unblaðið hefur rætt við segjast flest- ir hafa fundið fyrir afbókunum und- anfarna daga. Þó birtist áhrifin ekki með afgerandi hætti þar sem mun meira sé um að fólk bóki gistingu og afþreyingu með mjög skömmum fyrirvara nú. Það sé gjörbreyting frá fyrri neysluháttum fólks. Morgunblaðið/Eggert Ferðalangar Bólusettir ferðamenn virðast vilja komast hjá PCR-prófum. PCR-prófin fæla ferðamenn frá - Bókanir dragast mikið saman

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.