Morgunblaðið - 30.07.2021, Side 2
Eldgosið í Geldingadölum 19. mars -27. júlí
Flatarmál hrauns, km2
Rúmmál hrauns, milljónir m3
4,28
109,1
11,3
Myndataka úr lofti
Pleiades gervitungl
TF-FMS sniðmælingar
Riegel Lidar
27. júlí var flatarmál hraunsins
4,28 ferkílómetrar sem er
á við meira en
600 Laugardalsvelli
Hraunið er orðið um
109,1 milljón
rúmmetrar
Hraunrennslið er um
11,3 rúmmetrar á sek-
úndu sem eru yfir
45 vörubílshlöss á mínútu
Ný gosop
Heimild: Jarðvísinda-
stofnun HÍ, Náttúru-
fræðistofnun Íslands og
Landmælingar Íslands
19.3. 1.4. 1.5 1.6 1.715.4. 15.5 15.6 15.7
19.3. 1.4. 1.5 1.6 1.715.4. 15.5 15.6 15.7
19.3. 1.4. 1.5 1.6 1.715.4. 15.5 15.6 15.7
Hraunflæði, m3/s
Það myndi því fylla
yfir 100 þúsund
Laugardalslaugar
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Meðalhraunrennsli úr gígnum í
Geldingadölum frá 2. júlí til 27. júlí
var um 11 m3/sek. Nýjar mælingar
voru gerðar þriðjudaginn 27. júlí
þegar teknar voru loftmyndir með
myndavél Náttúrufræðistofnunar úr
flugvél Fisfélagsins. Hraunið hefur
streymt í Meradali og þykknaði
hraunið þar að meðaltali um einn
metra á dag síðustu 8-10 daga, að
sögn Jarðvísindastofnunar HÍ.
Gosið hefur sést vel frá höfuðborg-
arsvæðinu undanfarið eftir að það
skyggir á kvöldin. „Þetta gos er bara
í góðum gír,“ segir Þorvaldur Þórð-
arson, prófessor í eldfjallafræði við
HÍ. „Takturinn í gosinu er bara eins
og hann hefur verið. Hann er mjög
reglulegur. Það koma hrinur og svo
róast yfirborðsvirknin á milli. Það
eru engir púlsar, heldur stöðug
virkni á meðan hrinan er í gangi. Ég
held að gosið stoppi ekki á meðan.
Það heldur áfram að pumpa hrauni í
gegnum innri rásirnar. Ég tel að
þegar yfirborðsvirknin stoppar þá sé
gígurinn að hlaða gasi inn í grunna
kerfið. Stórar gasbólur sem rísa
hraðar en kvikan viðhalda kviku-
strókunum. Gasbólurnar rísa mun
hraðar en bráðin og sleppa hraðar en
restin af kvikunni. Eftir smá tíma er
þarna afgasað magn af kviku sem
ekki hefur farið hratt af stað. Þá
tæmist byssan og kerfið þarf að
hlaða hana aftur. Ég held að þetta
geti skýrt þessar hrinur.“
Lítið gat á stórum geymi
Þorvald grunar að meginflæðið í
gegnum undirrásirnar hafi færst yfir
í Meradali. Yfirflæðið uppi við gíginn
og straumur í Meradali sé vegna
þess að hraunflæðið hafi verið of
mikið fyrir flutningskerfið undir
yfirborðinu. „Að sjálfsögðu getur
þetta gos hætt á morgun, en mín til-
finning er sú að þetta geti verið með
okkur í einhver ár. Það byggi ég
fyrst og fremst á því hversu stöðugt
flæðið er og eins því hvernig gosið
byrjaði. Það hefur haldið sömu fram-
leiðslu nokkurn veginn. Mér finnst
það benda til þess að það hafi orðið
til lítið gat á stóran geymi. Það lekur
hægt úr honum.“
Þorvaldur segir að venjulega komi
stórt gat á kvikugeyminn í eldgos-
um. Þau byrji með töluverðum látum
og geymirinn tæmist tiltölulega
fljótt. Nú rennur hraun úr geymi
sem er á um 17 km dýpi undir Fagra-
dalsfjalli. Safnast hefur í hann í þús-
undir ára.
Langvinn eldgos eru þekkt á okk-
ar dögum. Þorvaldur nefnir til dæm-
is Pu‘u ‘Ô‘ô-eldgosið á Havaí sem
stóð í 35 ár, frá 1983 til 2018. Slík eld-
gos eru oft dyngjuleg og svipar til
gossins í Fagradalsfjalli. Nóg er til
af íslenskum jarðmyndunum eftir
svipuð gos eins og Hallmundar-
hraun, Litla-Dyngja og Svarta-
Dyngja. Einnig Leitahraun úr Leit-
inni austan við Lambafell sem m.a.
myndaði Rauðhóla. Það rann bæði til
Þorlákshafnar og ósa Elliðaánna.
Gosið getur staðið í einhver ár
- Hraunflæðið hefur haldist mjög jafnt frá byrjun gossins - Takturinn er reglulegur og eins og hann
hefur verið - Langvinn dyngjuleg gos eru þekkt á okkar dögum - Mörg merki um slík gos á Íslandi
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
Eldfjallafræðingur „Þetta gos er bara í góðum gír,“ sagði Þorvaldur Þórðarson prófessor um eldgosið í Geld-
ingadölum sem hefur staðið í 134 daga. Hann sagði að eldgosið gæti hætt á morgun en líka staðið í einhver ár.
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021
TENERIFE
04. - 11. ÁGÚST
FLUG & GISTING
VERÐ FRÁ:
59.900 KR.
*Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
OG 2 BÖRN. INNIFALIÐ Í VERÐI
FLUG, GISTING, INNRITAÐUR
FARANGUR OG HANDFARANGUR
INNIFALIÐ Í VERÐI
FLUGSÆTI BÁÐAR LEIÐIR
FLUG OG HANDFARANGUR
FLUG 04. -11. ÁGÚST
VERÐ FRÁ:
49.900 KR.*
WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Mikið álag hefur verið á farsóttar-
húsunum og opnaði Rauði krossinn
þriðja slíka húsið á dögunum. Það
virðist ekki duga mikið lengur því
allt stefnir í að húsin verði stútfull
í dag eða á morgun, en nú eru 250
manns í einangrun í farsóttarhús-
unum. Rauði krossinn sér líka um
ferðamenn í skimunarsóttkví og
eru þeir nú um 170. Að auki eru 30
manns í sóttkví í farsóttarhús-
unum.
„Ef plássin fyllast þýðir það að
annaðhvort þurfum við að fækka
þeim plássum sem við höfum fyrir
ferðamennina eða grípa til annarra
ráða sem við höfum ekki á þessari
stundu,“ segir Gylfi Þór Þorsteins-
son, umsjónarmaður farsóttarhúsa.
Hann skorar á ferðaþjónustuna
að leggja hönd á plóg og taka á
móti ferðamönnum í skimunar-
sóttkví til að létta aðeins farginu
af farsóttarhúsunum.
„Hótel gætu hugsanlega tekið
eina til tvær hæðir undir þessa
farþega sem eru í fimm daga
sóttkví og rukkað þá sérstaklega
fyrir það. Þetta gæti verið dýrari
gisting því þeir þurfa meiri þjón-
ustu. En það er
auðvitað undir
ferðaþjónustunni
komið hvort hún
telur það rýmast
innan sinnar
starfsemi eða
ekki.“
Gylfi segist
vera í stöðugum
vandræðum með
pláss og líklegt
að öll pláss verði full á morgun.
„Við vitum að veiran er að breið-
ast út og að fólk er að koma sam-
an í stórum stíl á stöðum eins og
til dæmis í Nauthólsvík í dag. Á
meðan jákvæð sýni greinast yfir
hundrað á dag eins og undanfarið
er ástandið alvarlegt.“
Gylfi segir stjórnvöld þurfa að
búa til langtímaáætlun um hvernig
bregðast skuli við fjölgun smita og
skorti á einangrunarplássum.
„Þeir sem hafa verið að koma til
okkar í einangrun eru aðilar sem
geta ekki verið heima hjá sér.
Þarna innan um eru líka einhverjir
sem annars myndu enda inni á
Landspítala, ekki vegna veikinda
heldur heimilisaðstæðna þeirra, og
þá þyrfti Landspítalinn að taka á
móti þeim. Við erum að verja
Landspítalann með okkar aðgerð-
um og nú þarf að gera langtíma-
áætlanir um hvernig þetta á að
vera, í það minnsta út ágúst.“
Gylfi segir starfsmannavanda
plaga farsóttarhúsin og erfitt sé að
finna tíma til þess að þjálfa starfs-
fólk.
„Okkur gengur jafn illa og öðr-
um að finna starfsmenn, við héld-
um að við værum komin nokkurn
veginn fyrir vind og búin að ráða
nógu marga, en á meðan fjölgunin
er svona mikil þurfum við alltaf að
bæta við starfsmönnum.“
Gylfi segir að ef smittölur verði
áfram háar og faraldurinn haldi
áfram á mikilli siglingu sé ástandið
dökkt næstu vikur.
„Það eru fleiri innlagnir þannig
að aukin veikindi eru að gera vart
við sig. Við sjáum að miðað við
innlagnir – og spítalinn er nú
þegar á neyðarstigi – þá stefnum
við inn í mjög erfiðar vikur,“ segir
Gylfi.
logis@mbl.is
Alvarlegt ástand á
farsóttarhúsunum
- Fyllist líklega á morgun - Skorar á ferðaþjónustuna
Gylfi Þór
Þorsteinsson