Morgunblaðið - 30.07.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021
Sími 555 3100 www.donna.isVefverslun: www.donna.is
Honeywell gæða viftur
Margar gerðir – Láttu gusta umþig!
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Verslunarmannahelgin er fram und-
an og eflaust margir sem vilja stinga
af með fjölskyldunni í tjaldútilegu.
Nú gildir þó 200 manna samkomu-
bann og því ljóst að snúið verður að
finna pláss.
„Mjög mörg tjaldsvæði eru með
hólfaskiptingu en við getum það
ekki, því miður,“ segir Sigrún Sig-
urgeirsdóttir, rekstrarstjóri minja-
gripa hjá Vatnajökulsþjóðgarði, um
tjaldsvæðið í Skaftafelli. Því sé að-
eins pláss fyrir 200 manns. Hún seg-
ir snyrtiaðstöðuna í Skaftafelli vel
hannaða til að halda inni varma en
illa þegar kemur að hólfaskiptingu.
„Sóttvarnahólf miðast við að það sé
ekki samgangur á milli hólfa og
þarna er öll snyrtingin á sama stað.
Þannig að þú kannski bíður eftir kló-
setti með öðrum úr hinu hólfinu,“
segir Sigrún en mikil aðsókn er í
Skaftafell allan ársins hring.
Um verslunarmannahelgina sem
nú er á næsta leiti segir Sigrún að
hún verði í rólegri kantinum. „Við
verðum bara með fáa gesti. Þegar
200 manna hámarksfjölda er náð þá
verður bara fullt. En auðvitað koma
líka aðrir gestir yfir daginn sem eru
í gistingu annars staðar, til að ganga
að Svartafossi eða öðrum nátt-
úruperlum“ Spurð hvernig versl-
unarmannahelgin hefur verið síð-
ustu ár segir Sigrún vanalega mikið
um að vera. „Við höfum verið með
marga gesti yfirleitt.“ Þá hefur ver-
ið leikjadagskrá, brenna og söngur,
auk ferða upp að Svartafossi með
frírri leiðsögn. Ekkert svoleiðis
verður í ár. „Það verður engin
skipulögð dagskrá í ár, því miður,“
segir Sigrún og vonar að það verði
hægt að ári liðnu.
Fyllist fljótt á Norðurlandi
Svipað er upp á teningnum á tjald-
svæðinu í Ásbyrgi. „Nei, við getum
því miður ekki hólfaskipt út af sam-
eiginlegri snyrtiaðstöðu þannig að
við erum bara með 200 manna há-
marksfjölda,“ segir Hlynur Að-
alsteinsson, landvörður á tjaldsvæð-
inu, í samtali við Morgunblaðið.
Mikil aðsókn hefur verið að tjald-
svæðinu í allt sumar vegna blíð-
viðris á Norðausturlandi og um 500-
600 manns þegar mest lét. Nú sé
aðra sögu að segja. „Síðustu tvær
nætur hafa verið rétt rúmlega
hundrað manns,“ segir Hlynur.
Veðrið spili þó einnig inn í. „Maður
býst við rólegri verslunarmanna-
helgi.“
Auk þess er útlit fyrir að það
muni þurfa að vísa fólki frá. „Ég
geri ráð fyrir því já. Við þurftum að
gera það núna fyrstu dagana eftir
að settar voru á takmarkanir.“
Nýtt bókunarkerfi gerði fólki
kleift að panta pláss fram í tímann
og kláruðust plássin um fjögur-
leytið. „Þannig að öllum sem komu
og voru ekki bókaðir eftir það þurfti
því miður að vísa frá.“
Spurður hvort það sé orðið upp-
bókað um helgina segir hann að það
séu komnar inn bókanir en enn sé
hægt að bóka pláss. „Maður býst samt
alveg við því að það þurfi að vísa ein-
hverjum frá núna um helgina.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Ásbyrgi Á annatímum hafa verið 500-600 manns á tjaldsvæðinu en þar verða nú aðeins 200 um helgina.
Fámennt en góðmennt
á tjaldsvæðum landsins
- Erfitt að hólfaskipta - Engin skipulögð dagskrá í ár
Esther Hallsdóttir
esther@mbl.is
Rafn Líndal Björnsson læknir, sem
hefur starfað í Noregi undanfarin 23
ár, segir mikilvægt að reglugerðum
um einangrun vegna Covid-19 sé
ekki beitt af handahófi. Sonur hans
var settur í fjórtán daga einangrun
vegna smits en Rafn bendir á að
samkvæmt reglugerð ætti einangr-
unin aðeins að vara í tíu daga þar
sem drengurinn er einkennalaus og
heilsuhraustur.
Fjölskyldan kom til landsins fyrr í
mánuðinum til að jarða móður
Rafns. Sonur hans hafði farið í ferð
með vinum sínum til Króatíu og kom
seinna til Íslands, eða á mánudaginn
í síðustu viku. Þá reyndist hann
smitaður af Covid-19, þrátt fyrir að
hafa greinst neikvæður í prófi í Nor-
egi tveimur dögum fyrir Íslandsferð-
ina. „Eins og skiljanlegt er var hann
keyrður til Reykjavíkur í blóðprufu
og beint inn á Hótel Lind í einangr-
un,“ segir Rafn.
Geti útskrifast eftir tíu daga
Í kjölfarið kynnti Rafn sér gild-
andi reglur um einangrun. Í reglu-
gerð heilbrigðisráðuneytisins um
sóttkví og einangrun er kveðið á um
14 daga einangr-
un í kjölfar smits
en þar af þarf við-
komandi að vera
einkennalaus í sjö
daga.
Í fylgiskjali
hennar stendur
hins vegar að „al-
mennt hraustir
einstaklingar
með engin eða væg einkenni geti út-
skrifast úr einangrun ef komnir eru
að minnsta kosti 10 dagar frá grein-
ingu/jákvæðu sýni og þeir hafa verið
alveg einkennalausir í að minnsta
kosti þrjá daga“. Sonur Rafns er
bæði heilsuhraustur og einkenna-
laus. Rafn hefur leitað svara vegna
þessa en komið að lokuðum dyrum.
„Þessi undantekning birtist ekki á
covid.is. Ég sendi skilaboð og spurði
út í þetta, hvort þau hefðu gleymt að
setja inn undantekninguna, sleppt
henni viljandi eða hvort það væri bú-
ið að breyta reglugerðinni. Þau gátu
ekki svarað og vísuðu mér áfram,“
segir hann. Þá hafði hann samband
við heilbrigðisráðuneytið en hefur
ekki fengið svör þrátt fyrir ítrekun.
Hann segir son sinn bera sig vel
og kvarti ekki. Þetta hafi hins vegar
töluverð áhrif á hans líf. „Hann átti
að fara til Noregs í gær og fara í
skólann í næstu viku, hann átti líka
að taka við íbúð í næstu viku í Þránd-
heimi þannig að fyrir hann er þetta
náttúrlega mikið mál.“ Fjölskyldan
ætlaði að halda út til Noregs í gær en
bíður nú á Íslandi eftir því að dreng-
urinn losni úr einangrun.
Í skriflegu svari heilbrigðisráðu-
neytisins til Morgunblaðsins segir að
viðkomandi reglugerð sé í gildi. Hins
vegar sé meginreglan sú að einstak-
lingur með Covid-19 þurfi að vera í
einangrun í hið minnsta 14 daga og
þar af sjö daga einkennalaus. „Telji
læknir aftur á móti að þess gerist
ekki þörf er mögulegt að einstakling-
ur sæti einangrun í skemmri tíma,
samanber fyrrgreint fylgiskjal 2, en
um er að ræða algera undantekningu
sem verður aðeins beitt af lækni að
undangengnu hans læknisfræðilega
mati.“
Fer fram á afléttingu
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir,
staðgengill sóttvarnalæknis, segir að
hætt hafi verið að útskrifa einstak-
linga eftir tíu daga þegar Alfa-af-
brigðið tók að breiðast út. „Við höf-
um ekki mikið notað þetta
undanfarna mánuði, þetta var meira
í notkun í vetur. Það er alltaf læknir
á Covid-göngudeildinni sem ákveður
hvenær er viðeigandi að aflétta ein-
angrun,“ segir hún.
Rafn segir að næsta skref sé að
fara formlega fram á það við Covid-
deildina að þeir sleppi drengnum úr
einangrun þar sem hann uppfylli
skilyrði reglugerðarinnar. „Ég skil
það ekki þannig að þetta sé neitt
matsatriði heldur að ef að þú upp-
fyllir skilyrði reglugerðarinnar eig-
irðu að sleppa eftir tíu daga. Það sé
ekki undantekningaratriði. Það er
náttúrlega ekki eðlilegt að lögum sé
beitt af handahófi, það er jafnræð-
isregla sem gildir,“ segir hann.
Fær ekki svör um Covid-reglugerð
- Samkvæmt reglugerð geta hraustir einstaklingar með engin eða væg einkenni útskrifast úr ein-
angrun vegna Covid-19 tíu dögum eftir greiningu hið minnsta í stað fjórtán - Læknir lætur á það reyna
Morgunblaðið/Ásdís
Reglur Sonur Rafns hefur dvalið í farsóttarhúsi vegna Covid-19 í 11 daga.
Rafn L. Björnsson
Tjaldsvæðinu á Hömrum hefur verið
skipt upp í fjögur sóttvarnahólf og
geta mest 200 gestir dvalið í hverju
hólfi. Tjaldsvæðið við Þórunnar-
stræti tekur um 200 gesti og er því
eitt sóttvarnahólf. Hertar sam-
komutakmarkanir vegna Covid-19
hafa mikil áhrif á starfsemi tjald-
svæða bæjarins og getu þeirra til að
taka á móti gestum.
Tryggvi Marinósson, fram-
kvæmdastjóri Hamra, útilífs- og um-
hverfismiðstöðvar skáta, segir að
búist sé við þó nokkrum fjölda gesta
um helgina þó svo að hátíðinni Ein
með öllu hafi verið aflýst.
„Það koma alltaf margir gestir á
tjaldsvæðin þótt ekki sé nein sérstök
hátíð í gangi. Það verður ýmislegt
um að vera í bænum,“ segir hann.
Heimamenn sækja í töluverðum
mæli inn á svæðið við Hamra á góð-
viðrisdögum en í ljósi breyttra að-
stæðna eru þeir nú beðnir að njóta
útivistar á öðrum svæðum á meðan
þetta ástand varir. Mikill fjöldi gesta
hefur verið á tjaldsvæðunum í sum-
ar, sem dæmi voru gistinætur Ís-
lendinga um 13 þúsund fleiri fyrstu
15 daga mánaðarins en voru í fyrra
og 1.700 fleiri gistinætur hjá útlend-
ingum á sama tíma. „Það hefur verið
nokkuð þétt á báðum svæðum í sum-
ar,“ segir Tryggvi en í gær var eitt
hólf af fjórum orðið vel fullt og búist
við fjölgun um helgina.
Skipt upp í fjögur
hólf á Hömrum
- Tjaldsvæðin á Akureyri mjög vel sótt
Hamrar Börn að leik í blíðviðrinu.
Morgunblaðið/Margrét Þóra