Morgunblaðið - 30.07.2021, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 30.07.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021 AFLÝST Borgarnes | Á einum góðviðrisdegi var gamli fréttaritari Morgunblaðs- ins í Borgarnesi að vinna í garð- inum heima hjá sér sem er við sjáv- arsíðuna, ofan við göngustíg sem liggur meðal annars að Bjössaróló. Kemur þá erlendur maður að rekkverkinu með plastdollu og bið- ur um vatn. Í ljós kom að hann ætl- aði ekki að drekka vatnið heldur var þarna um listamann að ræða sem var að mála vatnslitamyndir. Eftir að hafa fært honum vatnið fór ég að skoða myndirnar og ræða málin. Maðurinn er lærður myndlistar- maður og heitir Igor Gaivoronski, hann var þarna á ferðalagi með konu sinni, sem heitir Larisa. Eftir að hafa keypt myndina sem hann var með á trönunum var þeim hjónum boðið í kaffi. „Hann er símálandi hvar sem við förum, hann finnur alltaf eitthvað sem hann verður að mála og það á staðnum,“ sagði frúin. Þau eru frá Lettlandi en hafa búið á Íslandi í átta ár og líkar vel. Hjónin voru sammála um að Eng- lendingavíkin væri mjög sérstök og útsýnið stórbrotið yfir Brákar- sundið og til Hafnarfjallsins. Sögðust þau ákveðin í því að koma aftur til að mála fleiri myndir. Báðu um vatn en enduðu í kaffi Morgunblaðið/Theódór Kr. Þórðarson Borgarnes Igor Gaivoronski vatnslitamálari frá Lettlandi við Englendingavík ásamt konu sinni, Larisu. Umræða hefur verið um hvort kom- inn sé tími til að hefja bólusetn- ingar á börnum gegn Covid-19. Ný- lega birtist stutt grein í blaðinu Pediatric Infectious Disease Journ- al (PIDH) eftir prófessorana Ás- geir Haraldsson, Þorvarð Jón Löve og Valtý Stefán Thors. Í greininni lýsa þeir niðurstöðum tveggja rann- sókna sem gerð- ar voru á Íslandi um afstöðu for- eldra til bólu- setninga barna. Í fyrri rannsókninni fengu þeir svör um 3.400 foreldra barna yngri en 16 ára um það hvort þeir myndu þiggja bólusetningar fyrir börn sín. 80% foreldra svöruðu því jákvætt (líklega, mjög líklega og örugglega). Í seinni rannsókninni fengu þeir svör nær 2.500 foreldra barna yngri en fjögurra ára um hvort þeir myndu þiggja bólusetningu gegn Covid-19 fyrir börn sín. Tæplega 70% svöruðu jákvætt. Könnunin var gerð í febrúar og mars, þ.e. áður en umræða um bólusetningar barna gegn Covid-19 hófst að marki. „Í raun og veru snýst þetta ann- ars vegar um bólusetningar al- mennt og að það stendur til að út- rýma Covid, hvort sem það síðan tekst eða ekki. Til þess að verja alla þá þarf að bólusetja alla,“ segir Val- týr Stefán Thors, prófessor og barnasmitsjúkdómalæknir og einn höfunda greinarinnar. „Þessi um- ræða um bólusetningar hjá börnum er í raun og veru sú að börn svara bóluefnum yfirleitt mjög vel og við gerum ráð fyrir að þau muni mynda gott ónæmi og vera vel varin.“ Valtýr segir langlíklegast að þessi bóluefni séu algjörlega örugg fyrir börn, þótt það sé ekki algjör- lega ljóst ennþá. Hann segir að þess vegna telji þeir að það þurfi að stíga varlega til jarðar í þeim efnum að fara strax af stað. „Ekki síst vegna þess að börnum farnast almennt mjög vel ef þau smitast af Covid. Þá eru þó aðrir þættir eins og langvar- andi afleiðingar af Covid-sýkingum sem er ekki alveg vitað hvernig eru hjá börnum sem við erum einmitt að rannsaka núna.“ rebekka@mbl.is Taka vel í bólu- setningar barna - „Bólusetja þurfi alla til að verja alla“ Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Bólusetning Foreldrar taka já- kvætt í bólusetningar barna. Valtýr Stefánsson Thors

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.