Morgunblaðið - 30.07.2021, Side 16

Morgunblaðið - 30.07.2021, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021 Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is Verbena hinn fullkomni sumarilmur Eitt mikilvægasta mál kosninganna í haust er bætt rekstrar- umhverfi atvinnulífsins á Íslandi. Blómstrandi atvinnulíf sem skapar áhugaverð og vel launuð störf er grundvöllur vel- ferðar og lífskjara í landinu okkar. Það þarf nýjar áherslur ef við ætlum að laga lífskjörin í landinu og tryggja öflugan viðsnún- ing eftir Covid. Íslenskt atvinnulíf býr við miklar samkeppnishindranir sem þarf að ryðja úr vegi ef það á að stand- ast harða samkeppni við erlend fyrir- tæki sem búa við mun betri aðstæður á mörgum sviðum. Það þarf kjark og þor til að gera nauðsynlegar breyt- ingar, stöðnun og kyrrstaða eru ekki valkostir fyrir íslenskt atvinnulíf. Kosningarnar í haust snúast því meðal annars um viðreisn íslensks atvinnu- lífs. Til að atvinnulífið blómstri þarf ýmislegt að laga og er Viðreisn með hugmyndir sem geta tryggt mun betra rekstrarumhverfi og stöðugleika fyrir fyrirtækin í landinu. Hvað þarf atvinnulífið ekki? Athugum fyrst hvað atvinnulífið ætti ekki að þurfa að glíma við. Í fyrsta lagi er óstöðug króna með sífelldum gengissveiflum einn helsti óvinur atvinnulífsins og eitur í beinum flestra fyrirtækja á Íslandi. Ég þekki það af eigin raun eftir að hafa rekið eigið fyrirtæki í 14 ár og starfað við stjórnun í um 40 ár. Nýleg könnun meðal frumkvöðla sýnir að yfir 70% þeirra telja krónuna vera helstu hindrun vaxtar. Öll stærstu fyrirtækin hafa þegar tekið upp erlenda gjaldmiðla í uppgjörum sínum og mörg útflutn- ingsfyrirtæki greiða ís- lenskum birgjum í evrum og eru þannig í raun búin að taka upp nýjan, stöð- ugan gjaldmiðil sem hin fyrirtækin og almenningur fá ekki að njóta. Greining- araðilar telja að krónan sé þegar orðin of sterk, að gengisfelling sé í kortunum. Fyrirtæki og heimilin þurfa að vera sér- fræðingar í áhættustýringu og starfa eins og vogunarsjóðir til að geta staðið af sér þær gengissveiflur sem eru í kortunum. Í öðru lagi hamla víðtæk afskipti rík- isvaldsins vexti atvinnufyrirtækja. Þau þurfa mörg hver að búa við verndartolla af hráefnum til iðnaðar og innflutnings- takmarkanir á matvöru og eru mörg þeirra í málaferlum við ríkið um þessi mál. Dæmi eru um opinber fyrirtæki sem stunda ríkisstyrkta samkeppni við fyrir- tækin í landinu. Mörg ríkisfyrirtæki eru að færa starfsemi frá einkageiranum inn í ríkiskerfið, eins og sést til dæmis í heilbrigðiskerfinu þar sem nauðsynlegt er að stöðva aðför ríkisstjórnarinnar að einkarekstri. Ríkisvaldið setur ýmsar hömlur á atvinnufrelsi sem er stjórn- arskrárvarinn réttur okkar allra. Í þriðja lagi búa íslensk fyrirtæki við einn hæsta fjármagnskostnað á Vest- urlöndum, eina mestu verðbólguna og hæstu skatta af atvinnuhúsnæði. Þetta minnkar samkeppnishæfni þeirra. Í fjórða lagi búa íslensk fyrirtæki við gríðarlegar samkeppnishindranir sem OECD benti á í skýrslu árið 2019. Þar kemur fram að byggingariðnaður og ferðaþjónusta, sem eru með um fimmtung þjóðarframleiðslunnar, búi við 676 samkeppnishindranir. Ef sama hlutfall hindrana væri í öðrum geirum þá væru um 3.400 samkeppnishindr- anir í landinu sem fyrirtækin þurfa að búa við. Það sem atvinnulífið þarf Það sem íslensk fyrirtæki þurfa eru eftirfarandi atriði, en þau ríma öll vel við stefnu Viðreisnar í málefnum at- vinnulífsins: Það þarf að minnka gengissveiflur með tengingu krónunnar við stöðugan gjaldmiðil. Það mun tryggja stöð- ugleika, lægri vexti og aukna erlenda samkeppni, almenningi og fyrir- tækjum til hagsbóta. Með stöðugum gjaldmiðli munu launasamningar í landinu taka mið af framleiðni- aukningunni þar sem gengisfelling er ekki í boði til að leiðrétta mistök í hagstjórninni. Gengisstöðugleiki með tengingu við evru hefur verið í Danmörku og Fær- eyjum í áratugi sem hefur leitt til stöð- ugleika sem við höfum mikla þörf fyr- ir. Með stöðugum gjaldmiðli má búast við að erlendir bankar og trygging- arfélög komi til landsins og bjóði fyr- irtækjum og heimilum betri kjör á fjármagni og tryggingum svo aðeins tvö dæmi séu nefnd um kosti stöðugs gjaldmiðils. Auk þess má nefna að er- lend fjárfesting fæst oft ekki inn í ís- lensk fyrirtæki nema hugverkarétt- indi séu flutt í lögsögu með stöðugum gjaldmiðli. Það hefur og verið gerð krafa um að fyrirtæki séu flutt í er- lenda lögsögu af þessum sökum. Það þarf að gera fleiri viðskipta- samninga við helstu viðskiptalönd okkar. Mikilvægt er að íslensk fyrirtæki hafi greiðan, tollfrjálsan aðgang að er- lendum mörkuðum. Góð reynsla er af þátttöku Íslands í Fríverslunarsam- tökum Evrópu og aðildinni að innri markaði ESB. Enginn samningur hef- ur aukið athafnafrelsi fyrirtækja eins mikið og EES-samningurinn. Þetta athafnafrelsi er ein helsta undirstaða verðmætasköpunar og velferðar á Ís- landi. Opna þarf fleiri tækifæri á erlend- um mörkuðum fyrir unnar sjávaraf- urðir og vörur nýsköpunarfyrirtækja. Það verður helst gert með fleiri við- skiptasamningum. Ísland hefur gert örfáa tvíhliða við- skiptasamninga meðan samningar gegnum EES og EFTA nema tugum. Því er mikilvægt að Ísland geri samn- inga sína með samningsstyrk okkar samstarfsríkja í EES og EFTA. Það þarf að lækka kostnað við stofnun og rekstur fyrirtækja og heimila í landinu. Fyrirtæki á Íslandi búa við marg- faldan fjármagnskostnað miðað við samkeppnislöndin. Auðvelda þarf stofnun nýrra fyrirtækja og gera hana ódýrari. Jafnframt þarf að auka stuðn- ing og skattaívilnanir við nýsköp- unarstarf. Það þarf að ryðja öllum samkeppn- ishindrunum úr vegi. Núverandi stjórnvöld hafa lítið brugðist við athugasemdum OECD um gríðarlegar samkeppnishindranir íslenskra fyrirtækja. Ef ekkert er að gert munu íslensk fyrirtæki tapa viðskiptum til erlendra samkeppnisaðila, sem eru nú þegar komnir til landsins á sviðum flutninga, auglýsingasölu, byggingafram- kvæmda, byggingavörusölu, fasteign- arekstrar, bensínsölu, heildsölu og smásölu. Þau fyrirtæki búa við lægri fjármagnskostnað og færri sam- keppnishindranir vegna tenginga við sitt heimaland, auk auðveldari fjár- mögnunar í stöðugum gjaldmiðli. Verkefni stjórnmálanna í atvinnumálum Eitt mikilvægasta verkefni stjórn- málanna er að skapa atvinnulífinu hvetjandi og samkeppnishæft rekstr- arumhverfi sem fjölgar störfum, tryggir atvinnuöryggi og eflir atvinnu- lífið. Um þetta munu kosningarnar í haust snúast að miklu leyti. Fyrirtæki þurfa að hafa aðgang að fjármagni, orku og öðrum aðföngum á samkeppnishæfu verði og geta treyst á öfluga innviði og fjölbreytt mennta- kerfi. Virk og frjáls samkeppni á öllum sviðum hagkerfisins skiptir höfuðmáli. Viðskiptafrelsi á að vera á öllum svið- um atvinnulífsins. Einstaklingsframtak, frumkvöðla- starf, atvinnu- og athafnafrelsi eru lykilatriði fyrir atvinnulífið. Skapa þarf tugi þúsunda nýrra áhugaverðra starfa á næstu árum fyrir unga fólkið okkar til að tryggja að það vilji starfa á Íslandi í íslenskum fyrirtækjum sem hafa möguleika á að vaxa og dafna hér. Auðvelda þarf stofnun nýrra fyr- irtækja og stöðug hvatning til nýsköp- unar þarf að vera til staðar. Öflug frumkvöðlafræðsla í skólum og stuðn- ingur við þróun nýrrar þjónustu og framleiðslu ýtir undir þetta. Gera þarf erlendum sérfræðingum auðveldara að setjast að með sínar fjölskyldur á Íslandi. Hér er atvinnulíf of einhæft og það verður að tryggja aðgang að hæf- ustu sérfræðingum á hverju sviði til þess að hægt sé að byggja upp nauð- synlega þekkingu og getu. Grænn atvinnurekstur sem nýtir sjálfbærar auðlindir landsins tryggir okkur sérstöðu á alþjóðlegum mark- aði. Kolefnisbinding og framleiðsla á vetni og metanóli eru nýleg dæmi um slík tækifæri. Gera þarf stórátak í hagræðingu og sparnaði í opinberum rekstri. Gefa þarf einkarekstri aukin tækifæri til að sinna verkefnum hins opinbera og rík- isfyrirtæki eiga alls ekki að keppa við einkareksturinn. Stjórnir ríkis- fyrirtækja eiga ekki að vera mannaðar með pólitískt ráðnum stjórnar- mönnum. Þar eiga að vera bestu sér- fræðingar á sviði stjórnunar og rekstrar, ekki stjórnmálamenn. Þann- ig má draga úr áhrifum ráðherra á stjórnun fyrirtækjanna. Öflugt velferðar-, mennta- og heil- brigðiskerfi auk eflingar innviða eru meginverkefni stjórmálanna. Það þarf öflugt atvinnulíf til að gera það mögu- legt. Í kosningunum í haust mun Við- reisn leggja sérstaka áherslu á nokkur stór mál. Þar á meðal eru heilbrigð- ismálin, að almannahagsmunir séu framar sérhagsmunum, auðlindamál , jafnt vægi atkvæða og ekki síst betra rekstrarumhverfi atvinnulífsins. Eftir Thomas Möller »Kosningarnar í haust snúast því meðal annars um viðreisn ís- lensks atvinnulífs. Til að atvinnulífið blómstri þarf ýmislegt að laga og er Viðreisn með hugmyndir sem geta tryggt mun betra rekstrarumhverfi og stöðugleika fyrir fyrirtækin í landinu. Thomas Möller Höfundur er verkfræðingur, MBA og frambjóðandi í fjórða sæti Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi. Viðreisn atvinnulífsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.