Morgunblaðið - 30.07.2021, Síða 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
Verbena
hinn fullkomni
sumarilmur
Eitt mikilvægasta
mál kosninganna í haust
er bætt rekstrar-
umhverfi atvinnulífsins
á Íslandi. Blómstrandi
atvinnulíf sem skapar
áhugaverð og vel launuð
störf er grundvöllur vel-
ferðar og lífskjara í
landinu okkar. Það þarf
nýjar áherslur ef við
ætlum að laga lífskjörin
í landinu og tryggja öflugan viðsnún-
ing eftir Covid. Íslenskt atvinnulíf býr
við miklar samkeppnishindranir sem
þarf að ryðja úr vegi ef það á að stand-
ast harða samkeppni við erlend fyrir-
tæki sem búa við mun betri aðstæður
á mörgum sviðum. Það þarf kjark og
þor til að gera nauðsynlegar breyt-
ingar, stöðnun og kyrrstaða eru ekki
valkostir fyrir íslenskt atvinnulíf.
Kosningarnar í haust snúast því meðal
annars um viðreisn íslensks atvinnu-
lífs. Til að atvinnulífið blómstri þarf
ýmislegt að laga og er Viðreisn með
hugmyndir sem geta tryggt mun
betra rekstrarumhverfi og stöðugleika
fyrir fyrirtækin í landinu.
Hvað þarf atvinnulífið ekki?
Athugum fyrst hvað atvinnulífið
ætti ekki að þurfa að glíma við.
Í fyrsta lagi er óstöðug króna með
sífelldum gengissveiflum einn helsti
óvinur atvinnulífsins og eitur í beinum
flestra fyrirtækja á Íslandi. Ég þekki
það af eigin raun eftir að hafa rekið
eigið fyrirtæki í 14 ár og
starfað við stjórnun í um
40 ár. Nýleg könnun
meðal frumkvöðla sýnir
að yfir 70% þeirra telja
krónuna vera helstu
hindrun vaxtar. Öll
stærstu fyrirtækin hafa
þegar tekið upp erlenda
gjaldmiðla í uppgjörum
sínum og mörg útflutn-
ingsfyrirtæki greiða ís-
lenskum birgjum í evrum
og eru þannig í raun búin
að taka upp nýjan, stöð-
ugan gjaldmiðil sem hin fyrirtækin og
almenningur fá ekki að njóta. Greining-
araðilar telja að krónan sé þegar orðin
of sterk, að gengisfelling sé í kortunum.
Fyrirtæki og heimilin þurfa að vera sér-
fræðingar í áhættustýringu og starfa
eins og vogunarsjóðir til að geta staðið
af sér þær gengissveiflur sem eru í
kortunum.
Í öðru lagi hamla víðtæk afskipti rík-
isvaldsins vexti atvinnufyrirtækja. Þau
þurfa mörg hver að búa við verndartolla
af hráefnum til iðnaðar og innflutnings-
takmarkanir á matvöru og eru mörg
þeirra í málaferlum við ríkið um þessi
mál.
Dæmi eru um opinber fyrirtæki sem
stunda ríkisstyrkta samkeppni við fyrir-
tækin í landinu. Mörg ríkisfyrirtæki eru
að færa starfsemi frá einkageiranum
inn í ríkiskerfið, eins og sést til dæmis í
heilbrigðiskerfinu þar sem nauðsynlegt
er að stöðva aðför ríkisstjórnarinnar að
einkarekstri. Ríkisvaldið setur ýmsar
hömlur á atvinnufrelsi sem er stjórn-
arskrárvarinn réttur okkar allra.
Í þriðja lagi búa íslensk fyrirtæki við
einn hæsta fjármagnskostnað á Vest-
urlöndum, eina mestu verðbólguna og
hæstu skatta af atvinnuhúsnæði. Þetta
minnkar samkeppnishæfni þeirra.
Í fjórða lagi búa íslensk fyrirtæki við
gríðarlegar samkeppnishindranir sem
OECD benti á í skýrslu árið 2019. Þar
kemur fram að byggingariðnaður og
ferðaþjónusta, sem eru með um
fimmtung þjóðarframleiðslunnar, búi
við 676 samkeppnishindranir. Ef sama
hlutfall hindrana væri í öðrum geirum
þá væru um 3.400 samkeppnishindr-
anir í landinu sem fyrirtækin þurfa að
búa við.
Það sem atvinnulífið þarf
Það sem íslensk fyrirtæki þurfa eru
eftirfarandi atriði, en þau ríma öll vel
við stefnu Viðreisnar í málefnum at-
vinnulífsins:
Það þarf að minnka gengissveiflur
með tengingu krónunnar við stöðugan
gjaldmiðil. Það mun tryggja stöð-
ugleika, lægri vexti og aukna erlenda
samkeppni, almenningi og fyrir-
tækjum til hagsbóta. Með stöðugum
gjaldmiðli munu launasamningar í
landinu taka mið af framleiðni-
aukningunni þar sem gengisfelling er
ekki í boði til að leiðrétta mistök í
hagstjórninni.
Gengisstöðugleiki með tengingu við
evru hefur verið í Danmörku og Fær-
eyjum í áratugi sem hefur leitt til stöð-
ugleika sem við höfum mikla þörf fyr-
ir.
Með stöðugum gjaldmiðli má búast
við að erlendir bankar og trygging-
arfélög komi til landsins og bjóði fyr-
irtækjum og heimilum betri kjör á
fjármagni og tryggingum svo aðeins
tvö dæmi séu nefnd um kosti stöðugs
gjaldmiðils. Auk þess má nefna að er-
lend fjárfesting fæst oft ekki inn í ís-
lensk fyrirtæki nema hugverkarétt-
indi séu flutt í lögsögu með stöðugum
gjaldmiðli. Það hefur og verið gerð
krafa um að fyrirtæki séu flutt í er-
lenda lögsögu af þessum sökum.
Það þarf að gera fleiri viðskipta-
samninga við helstu viðskiptalönd
okkar.
Mikilvægt er að íslensk fyrirtæki
hafi greiðan, tollfrjálsan aðgang að er-
lendum mörkuðum. Góð reynsla er af
þátttöku Íslands í Fríverslunarsam-
tökum Evrópu og aðildinni að innri
markaði ESB. Enginn samningur hef-
ur aukið athafnafrelsi fyrirtækja eins
mikið og EES-samningurinn. Þetta
athafnafrelsi er ein helsta undirstaða
verðmætasköpunar og velferðar á Ís-
landi.
Opna þarf fleiri tækifæri á erlend-
um mörkuðum fyrir unnar sjávaraf-
urðir og vörur nýsköpunarfyrirtækja.
Það verður helst gert með fleiri við-
skiptasamningum.
Ísland hefur gert örfáa tvíhliða við-
skiptasamninga meðan samningar
gegnum EES og EFTA nema tugum.
Því er mikilvægt að Ísland geri samn-
inga sína með samningsstyrk okkar
samstarfsríkja í EES og EFTA.
Það þarf að lækka kostnað við
stofnun og rekstur fyrirtækja og
heimila í landinu.
Fyrirtæki á Íslandi búa við marg-
faldan fjármagnskostnað miðað við
samkeppnislöndin. Auðvelda þarf
stofnun nýrra fyrirtækja og gera hana
ódýrari. Jafnframt þarf að auka stuðn-
ing og skattaívilnanir við nýsköp-
unarstarf.
Það þarf að ryðja öllum samkeppn-
ishindrunum úr vegi.
Núverandi stjórnvöld hafa lítið
brugðist við athugasemdum OECD
um gríðarlegar samkeppnishindranir
íslenskra fyrirtækja.
Ef ekkert er að gert munu íslensk
fyrirtæki tapa viðskiptum til erlendra
samkeppnisaðila, sem eru nú þegar
komnir til landsins á sviðum flutninga,
auglýsingasölu, byggingafram-
kvæmda, byggingavörusölu, fasteign-
arekstrar, bensínsölu, heildsölu og
smásölu. Þau fyrirtæki búa við lægri
fjármagnskostnað og færri sam-
keppnishindranir vegna tenginga við
sitt heimaland, auk auðveldari fjár-
mögnunar í stöðugum gjaldmiðli.
Verkefni stjórnmálanna
í atvinnumálum
Eitt mikilvægasta verkefni stjórn-
málanna er að skapa atvinnulífinu
hvetjandi og samkeppnishæft rekstr-
arumhverfi sem fjölgar störfum,
tryggir atvinnuöryggi og eflir atvinnu-
lífið. Um þetta munu kosningarnar í
haust snúast að miklu leyti.
Fyrirtæki þurfa að hafa aðgang að
fjármagni, orku og öðrum aðföngum á
samkeppnishæfu verði og geta treyst
á öfluga innviði og fjölbreytt mennta-
kerfi. Virk og frjáls samkeppni á öllum
sviðum hagkerfisins skiptir höfuðmáli.
Viðskiptafrelsi á að vera á öllum svið-
um atvinnulífsins.
Einstaklingsframtak, frumkvöðla-
starf, atvinnu- og athafnafrelsi eru
lykilatriði fyrir atvinnulífið. Skapa
þarf tugi þúsunda nýrra áhugaverðra
starfa á næstu árum fyrir unga fólkið
okkar til að tryggja að það vilji starfa á
Íslandi í íslenskum fyrirtækjum sem
hafa möguleika á að vaxa og dafna
hér.
Auðvelda þarf stofnun nýrra fyr-
irtækja og stöðug hvatning til nýsköp-
unar þarf að vera til staðar. Öflug
frumkvöðlafræðsla í skólum og stuðn-
ingur við þróun nýrrar þjónustu og
framleiðslu ýtir undir þetta. Gera þarf
erlendum sérfræðingum auðveldara
að setjast að með sínar fjölskyldur á
Íslandi. Hér er atvinnulíf of einhæft og
það verður að tryggja aðgang að hæf-
ustu sérfræðingum á hverju sviði til
þess að hægt sé að byggja upp nauð-
synlega þekkingu og getu.
Grænn atvinnurekstur sem nýtir
sjálfbærar auðlindir landsins tryggir
okkur sérstöðu á alþjóðlegum mark-
aði. Kolefnisbinding og framleiðsla á
vetni og metanóli eru nýleg dæmi um
slík tækifæri.
Gera þarf stórátak í hagræðingu og
sparnaði í opinberum rekstri. Gefa
þarf einkarekstri aukin tækifæri til að
sinna verkefnum hins opinbera og rík-
isfyrirtæki eiga alls ekki að keppa við
einkareksturinn. Stjórnir ríkis-
fyrirtækja eiga ekki að vera mannaðar
með pólitískt ráðnum stjórnar-
mönnum. Þar eiga að vera bestu sér-
fræðingar á sviði stjórnunar og
rekstrar, ekki stjórnmálamenn. Þann-
ig má draga úr áhrifum ráðherra á
stjórnun fyrirtækjanna.
Öflugt velferðar-, mennta- og heil-
brigðiskerfi auk eflingar innviða eru
meginverkefni stjórmálanna. Það þarf
öflugt atvinnulíf til að gera það mögu-
legt.
Í kosningunum í haust mun Við-
reisn leggja sérstaka áherslu á nokkur
stór mál. Þar á meðal eru heilbrigð-
ismálin, að almannahagsmunir séu
framar sérhagsmunum, auðlindamál ,
jafnt vægi atkvæða og ekki síst betra
rekstrarumhverfi atvinnulífsins.
Eftir Thomas
Möller »Kosningarnar í haust
snúast því meðal
annars um viðreisn ís-
lensks atvinnulífs. Til að
atvinnulífið blómstri þarf
ýmislegt að laga og er
Viðreisn með hugmyndir
sem geta tryggt mun
betra rekstrarumhverfi
og stöðugleika fyrir
fyrirtækin í landinu.
Thomas Möller
Höfundur er verkfræðingur, MBA og
frambjóðandi í fjórða sæti Viðreisnar
í Suðvesturkjördæmi.
Viðreisn atvinnulífsins