Morgunblaðið - 30.07.2021, Page 19

Morgunblaðið - 30.07.2021, Page 19
Guðbjartur bróðir er fallinn frá, vantaði aðeins 29 daga til að fylla 9. tuginn. Við vorum níu systkinin sem fæddumst á árabilinu 1931- 1952. Nú er höggvið skarð í hóp- inn. Guðbjartur fæddist á loftinu í húsinu á Hjarðarfelli. Við ólumst upp við mikil ærsl og leik enda við þrír bræður nánast hver á sínu árinu. Við spiluðum mikið marías, rommý og kvikk. Í æsku lékum við okkur að hefðbundnum leggjum og skeljum, Bjargey frænka kom með skeljar frá Búðum. Þegar við fluttum niður að Stakkhamri 1944 er mér minnisstætt að okkur bræðrum var falið að reka kýrnar niður eftir. Enginn vegur lá þang- að og þurfti að þrælast yfir keldur við illan leik. Guðbjartur gekk í farskóla sveitarinnar sem var tvær vikur í senn, byrjaði skólaskylda við 10 ára aldur. Fyrsta veturinn fór hann í heimavist í Borgarholt, næsta vetur gengum við bræður daglega frá Hjarðarfelli að Dal og eftir að við fluttum að Stakkhamri vorum við í heimavist í Dal. Um fermingaraldur fór hann að halda utan um bókhaldið á kindunum á Stakkhamri, sem fólst í að ská fengitíma, burð og afkvæmi. Síð- ar, eftir fjárskiptin, var farið að halda utan um vænleika og slát- urvigt með stofnun sauðfjárrækt- arfélaga. Guðbjartur var fjár- glöggur og mjög áhugasamur um ræktun bæði sauðfjár og naut- gripa. Var hann um tíma með upp- gjör á skýrsluhaldi bæði sauðfjár- og nautgriparæktar fyrir Bsb. Snæfellinga. Um tvítugt fór hann nokkrar vertíðir í Keflavík í frysti- húsvinnu. Haustið 1954 fór hann á Bændaskólann á Hólum og lauk búfræðiprófi á einum vetri. Vet- urinn eftir var hann heima meðan ég fór norður að Hólum í bænda- skólann. Þegar ég kom heim gift- ist hann Elínu Rósu Valgeirsdótt- ur frá Miklaholti 1956 og flutti þangað og stofnaði nýbýli. Þau byggðu upp húsakost í Miklaholti. Land var ræst fram og tún rækt- uð. Við þessar miklu jarðabætur þurfti að létta sér störfin og keypt- um við bræður saman fyrsta jarð- vegstætarann í sveitina. Á óþurrkaárunum upp úr 1980 var komin sú nýjung að rúlla hey og árið 1984 keyptum við saman rúlluvél, þá fyrstu hérna á Snæ- fellnesi. Þau framleiddu úrvals- mjólk árum saman og voru verð- launin í röðum, litlir mjólkurbrúsar með áletrun. Guð- bjartur var mjög nákvæmur og snyrtilegur í umgengi bæði úti og inni, voru þau hjónin samhent í því. Guðbjartur hélt utan um bók- hald Laugargerðisskóla um langt árabil. Hann stóð fyrir byggingu íþróttahúss skólans kringum árið 1985. Valgeir sonur hans kenndi honum að færa bókhald í tölvu. Hann var framkvæmdastjóri og húsvörður félagsheimilisins Breiðabliks og í stjórn þess um langan tíma. Hann sá um að ráða hljómsveitir á dansleiki á Breiða- bliki. Er minnisstætt að eftir einn dansleik sat hann með Björgvini Halldórssyni og ströggluðu þeir um stefgjöld í góða stund. Guð- bjartur stóð fyrir því að byggt var við félagsheimilið Breiðablik um 1970. Hann sá um framkvæmdina, réð smiði til verksins og hélt utan um allt verkið. Marga stundina gaf Guðbjartur til samfélagsins hér í sveitinni sem seint verður fullþakkað. Kæri bróðir, ég þakka samfylgdina í gegnum árin. Bjarni Alexandersson, Stakkhamri. Guðbjartur í Miklaholti, elsti föðurbróðir okkar, kvaddi saddur lífdaga sunnudaginn 18. júlí sl. þegar heyannir standa sem hæst skv. gömlu tímatali. Stærstan hluta ævinnar var hann bóndi í Miklaholti og átti allt sitt undir sól og regni eða veðri og vindum. Miklaholt stendur á holtum í flóa undan Hafursfelli þar sem oft blæs hvössum vindum. Að koma í Miklaholt á hans búskaparárum með Ellu sinni var einstakt. Snyrtimennska og nákvæmnin er lýsandi fyrir þeirra handbragð á öllu og þau samhent í því. Áhugi á ræktun búfjár og góðra afurða var mikill og voru mjólkurbrúsarnir, verðlaunagripir fyrir framleiðslu á úrvalsmjólk árum saman, vitni um snyrtimennsku og nákvæmni, þar sem þeir voru í röðum uppi á hill- um á heimili þeirra. Allir hlutir áttu sinn stað, hvort sem var úti eða inni. Guðbjarti var falið að gæta fjárhalds Laugargerðisskóla og Breiðabliks og stóð hann fyrir byggingarframkvæmdum á hvor- um stað fyrir sig. Breiðablik og Guðbjartur voru í æsku okkar órjúfanleg heild; væri einhver við- burður á Breiðabliki þá var Guð- bjartur þar, húsvörðurinn sem opnaði húsið og læsti að lokum, hann kunni á alla takkana í hús- inu, hvort sem það var ljós, loft- ræsting eða hljóð, Valgeir sonur hans var þar ómissandi líka. Allir hlutir áttu sinn stað á Breiðabliki, hvort sem það var ryksugan, skúr- ingagræjurnar, ölið eða nammið. Þegar við komum sem gestir í Miklaholt, sem gerðist nokkuð oft þar sem Stakkhamar og Miklaholt eru í sömu sveit, þá var þar dul- arfullt herbergi með tölvu og prentara með pappír með götum á köntunum. Þarna færði hann bók- hald í tölvu langt á undan mörgum öðrum, enda var Guðbjartur óhræddur við tækninýjungar. Það birtist einnig í því að hann og pabbi keyptu saman eina af fyrstu rúlluvélum landsins árið 1984, Claas Rollant 44. Með þeirri undratækni sem rúlluvélar voru náðist saman hey á þessum rign- ingarsumrum þau árin sem erfitt hefði verið annars. Af föðursystk- inum okkar var á þessum árum mestur samgangur við Guðbjart í Miklaholti, enda hann og pabbi hvor á sínu árinu og áhugi á bú- skap og framgangi mála í sveitinni sameiginlegur. Heyskapur seinni búskaparár Guðbjartar var minni hjá honum þar sem hann var að draga saman, en við komum og heyjuðum einhver tún hjá honum handa hestunum okkar heima. Þá var komið inn í mat og kaffi sem Ella reiddi fram, Guðbjartur treysti okkur systrunum fyrir ýmsum hlutum þar sem hann vissi að við kunnum vel til verka. Guð- bjartur kenndi Sigrúnu á fjórhjól- ið sitt og hún fór um allt tún að festa enda á rúllunum. Laufey mjólkaði fyrir hann tvö mál þegar þau hjónin fóru í brúðkaup Val- geirs sonar síns og Unnar. Ófá jólaboð voru haldin í Miklaholti og síðar varð það að hefð að Guð- bjartur kom heim að Stakkhamri á Þorláksmessukvöld í heitt hangikjöt. Mörg og löng símtölin voru á milli bræðranna. Ef við svör- uðum símtalinu og pabbi var ekki heima þá spjallaði hann drjúga stund við okkur um framgang bú- starfa og veðrið. Við vonum að Guð- bjartur föðurbróðir okkar eigi nú góða daga í sumarlandinu eilífa. Laufey og Sigrún, Stakkhamri. Í dag verður kvaddur hinstu kveðju föðurbróðir minn, Guðbjart- ur Alexandersson, lengst bóndi í Miklaholti í Miklaholtshreppi. Ég man auðvitað ekki eftir mér öðruvísi en að Guðbjartur væri hluti af heimsmyndinni. Þeir bræður, faðir minn og hann, voru hvor á sínu árinu og því nánir. Hjálpsemi var mikil milli þeirra, þeir áttu ýmis tæki saman til búrekstursins og hjálpuðu hvor öðrum á víxl við margvísleg störf. Svo var samheldni mikil meðal systkinanna og er enn. Jólaboð, afmælisveislur og önnur til- efni til að koma saman voru nýtt til hins ýtrasta. Jólaboðin í Miklaholti voru haldin af miklum rausnarskap, kökur og ávextir borin fram og spil- að og hlegið langt fram á kvöld. En nú hafa slík boð verið haldin í háa herrans tíð svo góð sem þau voru. Guðbjartur tilheyrði þeirri kyn- slóð þessa lands sem byggði upp sín nærsamfélög með margvíslegu sjál- boðaliðastarfi í þágu þeirra. Hann var virkur þátttakandi í því á marg- víslegan hátt, meðal annars söng hann í kirkjukórnum, bassarödd með bróður sínum, ásamt öðrum sveitungum. Einnig sá hann um rekstur félagsheimilisins Breiða- bliks um árabil. Þar með varð hann fyrsti vinnuveitandi minn utan for- eldrahúsa. Ég sá um sjoppurekstur og samlokusölu þar hjá honum á mörgum sveitaböllum sem „hús- ið“ hélt. Þetta voru ævintýralegir tímar. Röggsemi Guðbjartar var viðbrugðið en þarna þurfti að halda í marga þræði, samskipti við lögreglu og hljómsveitir „að sunnan“, ráða starfsfólk, bæði samlokusmyrjara og dyraverði og síðast en ekki síst tjónka við mis „auðvelda“ samkomugesti. Þessi störf leysti Guðbjartur vel eins og önnur sem honum voru fal- in. Búið í Miklaholti var aldrei stórt en mikil var natni og ástund- un þeirra hjóna, Guðbjartar og El- ínar Rósu, sem féll frá langt fyrir aldur fram. Það er mér minnis- stætt hve góðum afurðum Guð- bjartur náði úr kúm sínum, með mjög lítilli kjarnfóðurgjöf. Þetta var á þeim árum þegar sérstakur skattur var lagður á kjarnfóður til að vinna gegn offramleiðslu og þótti víða vera eftirtektarverður árangur. Ég kom oft að Miklaholti sem barn og líka eftir að ég hafði lokið námi í búfræðum. Ég met það æv- inlega að Guðbjartur sýndi mér áhuga og ekki síður eftir að ég lagði búvísindin fyrir mig. Hann talaði við mig eins og jafningja um landbúnað og annað sem var efst á baugi. Stjórnmál voru þar vitaskuld á meðal, þar hafði hann mikinn áhuga og skoðanir. Börn gleyma því ekki þegar fullorðnir sýna þeim áhuga. Þannig minnist ég míns góða frænda að leiðarlok- um. Ég votta frændum mínum, Alexander og Valgeiri, og fjöl- skyldum þeirra mína dýpstu sam- úð. Hvíl í friði frændi minn. Erna Bjarnadóttir. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021 ✝ Sigrún Jonný Sigurðar- dóttir fæddist í Hafnarfirði 14. september 1936. Hún lést á Ísa- fold, Garðabæ 23. júlí 2021. Foreldrar Sig- rúnar voru Sig- urður Gíslason loftskeytamaður, f. á Minna- Knarrarnesi á Vatnsleysu- strönd 26. júlí 1903, d. 25. Hinn 28. ágúst 1954 giftist Sigrún Jonný Guðmundi Hall- dórssyni, f. 20. nóvember 1925, d. 21. apríl 1996. For- eldrar hans voru Halldór Guðmundsson frá Hellu og Amalía Gísladóttir frá Hraða- stöðum í Mosfellssveit. Börn þeirra Sigrúnar og Guð- mundar eru Þórunn Sigríður og Halldór. Barnabörn Sig- rúnar eru fimm talsins ásamt einu langömmubarni. Sigrún stundaði nám í barnaskóla Hafnarfjarðar, síðan í Flensborgarskólanum og Húsmæðraskóla Reykja- víkur. Útför Sigrúnar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 30. júlí 2021, og hefst at- höfnin klukkan 10. febrúar 1979, og Þórunn Sigurð- ardóttir hús- móðir, f. í Hafnarfirði 26. júní 1908, d. 29. júlí 1980. Systir Sigrúnar er Ásta snyrtifræðingur, f. 12. mars 1947. Uppeldisbróðir hennar var Hörð- ur Jafetsson kennari, f. 12. júní 1932, d. 4. september 2003. Þegar ég var lítil þótti mér ekkert betra en að skríða í fangið á ömmu minni sem hug- hreysti mig og kunni allra meina bót. Það var ekkert sem amma hefði ekki gert fyrir mig eða með mér. Amma bakaði fyrir mig pönnukökur í þúsundatali, lét undan og gaf mér bangsann sem ekki var hægt að skilja við í búðinni og kenndi mér að leggja kapal. Amma var alltaf tilbúin að leika og gat setið með mér tímunum saman og litað, drullumallað með mér í eldhús- inu eða, eins og ég kallaði það, að baka og setti á svið með mér leikrit og söngleiki. Allt varð ævintýri með ömmu. Einföldustu hlutir eins og að leggja á borð fyrir kaffiboð urðu samtímis æfing í natni og að njóta fegurðarinnar í minnstu smáatriðum. Ég var alltaf hálfgerð fylgja ömmu minnar og í gegnum allan leik- inn gaf amma mér veganesti út lífið sem ég mun aldrei geta þakkað henni nægilega. Nú þegar ég er orðin eldri langar mig enn að skríða í fang- ið á ömmu og hverfa inn í æv- intýraheim sem bara getur orð- ið til hjá lítilli stúlku og ömmu hennar. Sumar manneskjur skína jafn skært og sólin – þannig manneskja var amma mín, Jonný. Sigrún Jonný Óskarsdóttir. Jonný frænka, stóra systir mömmu, mamma hennar Þór- unnar frænku sem okkur fannst alltaf svo mikil skvísa og Halldórs frænda sem býr í Kaupmannahöfn og er dansk- ari en margir Danir, hefur sleppt tökum á lífinu og smellt sér yfir í sumarlandið. Þar er hún örugglega í rauðum jakka, með drykk í hönd og hlær dill- andi hlátri með ljóshærðu vel greiddu vinkonum sínum sem við munum svo undurvel eftir. Jonný frænka var, eins og mamma hennar og amma, alin upp í Alþýðuflokknum, í Kven- félagi Alþýðuflokksins sem stofnað var undir tunglmyrkva en gömul speki segir það öruggt merki stórtíðinda fyrir kvenfólk. Það var tákn um- brota og nýrra tíma og það var svo sannarlega baksagan í ævi- sögu frænku okkar sem var fædd árið 1936 og upplifði því ótrúlega miklar breytingar á samfélaginu og stöðu kvenna. Þegar við hugsum til baka þá var Alþýðuflokkurinn stór hluti af sögunni hennar, hvort sem það var að mæta á flokks- þing, baka fyrir kosninga- kaffið, nefndarstörf, hringja út eða taka sæti á lista. Já, hún frænka okkar hafði sko skoðun á málefnum og ekki síst mönn- um. Og henni leiddist ekki að segja okkur að hún hefði feng- ið jólakort frá formönnum flokksins eða ákveðnum bæj- arstjóra sem henni þótti mikið til koma. Við eigum ljúfar minningar tengdum jólunum og Jonný. Hún bakaði alltaf handa okkur brauð á jólunum sem við borð- uðum með súpunni á aðfanga- dag og með afgöngum af ham- borgarhryggnum í jóladagsboðinu, en í þeim boð- um sagði hún stundum alls konar hluti við matarborðið sem fengu suma í fjölskyld- unni til að roðna. Hún frænka okkar hafði mikinn áhuga á okkur systkinunum og á krökkunum okkar, hún spurði oft um þau og var stolt af þeim og því sem þau voru að gera. Elsku mamma, Þórunn, Halldór og fjölskyldur – það er skrýtið að hugsa til þess að þessum kafla í lífi okkar sé lokið. Bókin um Jonný frænku er komin upp í hillu, full af fal- legum minningum og myndum í huganum – Jonný og mamma, heimsóknir á Norð- urvanginn, á Suðurbrautina, úr sjoppunni og ekki síst Jonný að strauja vinnuskyrt- urnar hans pabba – minningar sem við munum eiga áfram, fyrir það erum við þakklát – það þurfa allir að eiga eina Jonný frænku. Steinunn Þorsteins- dóttir, Hálfdan Þor- steinsson og Sigurður Þorsteinsson og fjölskyldur. Sigrún Jonný Sigurðardóttir ✝ Svanhildur Erna Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 16. júlí 1935. Hún and- aðist á Sunnuhlíð 25. júlí 2021. Foreldrar hennar voru Guðrún Krist- jánsdóttir og Jón Gauti Jónatansson. Hún var gift Birgi Sigmundi Bogasyni, sem er látinn, og börn þeirra; Sigrún Elín, Kristján Einar, Jón Gauti (látinn), Sigríður Ósk og Bogi Örn. Barnabörn eru Birgir Sveinn, Katrín Lára og Jon- athan Soth. Útförin fór fram í kyrrþey. Þá er vegferðinni lokið. Rúm- lega 86 ár og ekki öllum gefið. Mamma var elst sinna systkina, ábyrgðarfull og stanslaust í kennslugírnum. Hún hélt því áfram þegar hún eignaðist sín eigin börn, leitaði uppi orð í orða- bókum, útskýrði hugtök, hafði þolinmæði fyrir píanóglamri og öðru sem smáfólkið var að taka sér fyrir hendur. Ein af okkar fyrstu minningum var að liggja undir stofuborði með pela og hlusta á enskuframburð í útvarp- inu svo og kennslu í esperanto sem var þó ekki vitað fyrr en síð- ar hvað var. Þetta voru rólegu stundirnar í Laufási þar sem allir tóku sér smá lúr. Okkar fyrsta menningarvakning. Á árunum sem við bjuggum í Laufási við Fífuhvammsveg í Kópavogi þá var mamma heima- vinnandi mestallan tímann og höldum við að pabba hafi fundist það hálfgerður lúxus. Hann hugsaði kannski ekki út í að hún væri með fjögur snarvitlaus börn yfir sér sem rifust næstum stans- laust. Hún reyndi aftur og aftur að senda okkur út að leika en var stöðugt kölluð út til að skakka leikinn. Enginn friður. Þetta var ekki auðvelt og léttir fyrir hana þegar hún komst út á vinnu- markaðinn þótt það hafi verið í frystihúsið til skamms tíma. Hún fékk fljótlega vinnu í bókhaldi hjá Toyota-umboðinu og þar með var bókaraferillinn hafinn. Við systurnar lærðum ansi mikið af henni sem við viður- kennum auðvitað ekki auðveld- lega, nema síðustu árin, og hvarflar oft að okkur að við hefð- um kannski betur hlustað aðeins fyrr. Ótrúlegt samt hvað vistað- ist í þessa litlu kolla. Hún ól okk- ur upp í því að vera sjálfstæðar og þrautseigar konur og má segja að hún hafi verið femínisti þótt það hafi kannski farið framhjá okkur á þeim tíma. Enda hugtakið ekki almennt þekkt þá. Hún stóð fyrir sínu og við sitt. Við systur höfum oft hugsað hvernig ævi hennar hefði orðið ef hún hefði getað fylgt draumum sínum og lært í Barcelona í stað þess að hefja barneignir. Í okkar huga hefði hún örugglega skapað sér nafn í þeim geira sem hún hefði valið sér. Við viljum minnast mömmu eins og hún var, hlæjandi yfir tarotspilum, gerandi stjörnukort, eldandi roast beef, eða klump eins og við kölluðum það, og leit- andi í orðabókum ef við vorum að velta einhverju fyrir okkur og hún var ekki 100% viss eða vildi bara sanna mál sitt. Afleiðingin er sú að önnur leitar í orðabækur og hin leitar á Google til að sanna mál sitt eða að finna rétt svör. Samt eru bara fjögur ár á milli okkar. Sem dæmi þá vorum við systur að leita að orðinu „ill- fygli“, til fróðleiks þá finnst orðið ekki á Google en fannst eftir mikla leit í Íslensku orðsifjabók- inni. Orðið er undir sagnorðinu „að fygla“ og hefði mamma haft mikið gaman af þessu brölti okk- ar og notið þess að sú sem leitar á Google uppötvaði að ekki finnst nú allt þar. Erfitt að kyngja samt. Við erum þakklátar fyrir leið- sögnina og það öryggi sem hún veitti okkur í uppeldinu, og kveðjum hana með kærleika, virðingu og eftirsjá. Sigrún Elín og Sigríður Ósk. Svanhildur Erna Jónsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN HULDA MAGNÚSDÓTTIR frá Hólmavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík 26. júní. Útför fór fram frá Hólmavíkurkirkju 23. júlí í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. María S. Magnúsdóttir Hreinn Hlíðar Erlendsson Gunnlaugur R. Magnússon Guðrún Helga Engilbertsdóttir Þorbjörg Magnúsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.