Morgunblaðið - 30.07.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021
Hæ sæti
– hvað vilt þú borða!
Bragðgott, hollt
og næringarríkt
Smáralind, Kringlunni, Spönginni, Reykjanesbæ og Akranesi – dyrabaer.is
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Byko, Selfossi | Garðheimar | Heimkaup |Dýrabær
„HÆTTU AÐ ÖSKRA, MAÐUR! ÉG ER BARA
AÐ HREINSA GLERAUGUN MÍN!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... það sem okkur finnst
best.
ÉG HELD
MATARDAGBÓK
ÞÁ ER MORGUNMATURINN
SKRÁÐUR … ÞÁ ER ÞAÐ BARA
MORGUNSNARLIÐ!
SVONA, ELSKAN!
KOMDU MEÐ Í
RÁNSFERÐ!
ÉG HÉLT AÐ ÞÚ
ÆTLAÐIR AÐ VERA
HEIMA Í DAG!
RÁNSFERÐ
UM BÚRIÐ!
TIL ER ÉG!
„BYRJUM Á AÐ RÆÐA STJÓRNMÁL. ÞAÐ
VIRÐIST ALLTAF LAÐA ÞAÐ VERSTA
FRAM Í FÓLKI.“
mínir orðnir alveg jafn brjálaðir og
afi í boltanum.“
Arnór hefur fengist við ýmsa
hluti eftir að fótboltaferlinum lauk
og m.a. hefur hann búið til hvatn-
ingarspil. „Ég skrifa út frá fótbolta-
heiminum, en þetta er góð leið til
þess að tengjast sjálfum sér og
hefja svona innra samtal um hvern-
ig hægt sé að takast á við ýmislegt í
daglegu lífi.“ Hann segist vera mjög
ánægður með hvað fólk sem sé að
nota spilin sé ánægt. „Það er ótrú-
legt hvað þetta er markvisst.“
Núna á golfið hug hans allan.
„Það veitir mér gífurlega ánægju og
við erum saman í þessu hjónin. Ég
nöldraði í henni í tvö ár að koma, en
núna er hún farin að banka í mig á
morgnana til að fara í golf.“
Fjölskylda
Eiginkona Arnórs er Anna Borg,
f. 28.5. 1966. Foreldrar hennar eru
Kjartan Borg, f. 21.2. 1939, og Arn-
heiður Björnsdóttir, f. 20.1. 1944.
Áður var Arnór giftur Ólöfu Ragn-
heiði Einarsdóttur, f. 19.3. 1962, og
saman eiga þau soninn Eið Smára
Guðjohnsen, f. 15.9. 1978, en hann á
börnin Svein Aron, f. 12.5. 1988;
Andra Lucas, f. 29.1. 2002; Daníel
Tristan, f. 1.3. 2006, og Ólöfu Thal-
íu, f.1.4. 2015. Börn Arnórs og
Önnu eru Kjartan Borg Guðjohn-
sen, f. 23.7. 1993, og Arnór Borg
Guðjohnsen, f. 16.9. 2000. Systur
Arnórs eru Ragnheiður Eiðsdóttir
Guðjohnsen, f. 20.1. 1963; Sigríður
Matthildur Guðjohnsen, f. 19.6.
1965, og Þóra Kristín Eiðsdóttir, f.
3.8. 1967.
Foreldrar Arnórs eru Eiður
Guðjohnsen, f. 22.10. 1941, og Arn-
rún Sigríður Sigfúsdóttir, f. 8.2.
1945, d. 19.6. 1914.
Arnór
Guðjohnsen
Guðrún Elísabet Magnúsdóttir
húsfreyja og verkakona á Húsavík
Arnór Kristjánsson
sjómaður og verkamaður á Húsavík
Sigríður Matthildur Arnórsdóttir
deildarstjóri á Húsavík
Sigfús Pétursson
frá Húsavík fluttist til Bandaríkjanna
og var þar trésmiður
Arnrún Sigríður
Sigfúsdóttir
leiðbeinandi í skóla og
húsfreyja í Reykjavík
Birna Bjarnadóttir
húsfreyja á Húsavík, Borðeyri og víðar
Pétur Sigfússon
gjaldkeri KS á Húsavík, sýndi íslenska
glímu á Ólympíuleikunum í London
1908. Fluttist til Vesturheims 1955
Elísabet Þórunn Vigfúsdóttir Melsteð
hatta- og kjólagerðarkona og húsfreyja í Reykjavík
Guðbrandur Jónsson
bókavörður, rithöfundur og ritstjóri
í Reykjavík
Ragnheiður Guðbrandsdóttir
húsfreyja á Húsavík
Þórður Sveinbjörnsson Guðjohnsen
kaupmaður á Húsavík og forstjóri
Sparisjóðs Húsavíkur um tíma
Kristín Jakobsdóttir Guðjohnsen
húsfreyja á Húsavík
Stefán Þórðarson Guðjohnsen
kaupmaður á Húsavík
Úr frændgarði Arnórs Guðjohnsen
Eiður Guðjohnsen
múrari og kaupmaður í
Reykjavík
Gylfi Þorkelsson yrkir á Boðn-
armiði:
Lífið myndir tekur títt,
töfrum kyndir undir
grátlegt, fyndið, gamalt, nýtt,
gleymdar yndisstundir.
Hér er limra eftir Gylfa Þorkels-
son:
Mikið er garðurinn grænn!
Já, gróðurinn fagur og vænn.
En uppi í geimi
er alltaf á sveimi
veturinn, kaldur og kænn.
Magnús Halldórsson segir „ort
við neyslu hamingjueggja“:
Á taðbingnum húkti í höm
og henni var skoðun sú töm.
Egg á dag,
eykur hag.
Sú hæna var hamingjusöm.
Benedikt Jóhannsson yrkir:
Er glíma menn við tímans tog
og tækifærin leggja’ á vog,
annaðhvort eða
ýmsir þá kveða,
en best er einatt bæði og.
Þetta erindi Guðmundar Arn-
finnssonar nefnist „Morgunsigl-
ing“:
Sólin loftið lýsir,
leiðir allar greiðar,
út vil ég og ýti
unnarjó á sjóinn,
reisi segl og sigli
síðan yfir víði.
Stendur mær á ströndu,
stúlka fríð mín bíður.
Þá er limran „Í ræktinni“ eftir
Guðmund:
Það hermt var um herskáu Bínu,
að hún væri í essinu sínu,
er bóndann hún berði,
biti og merði,
enda í formi fínu.
Og hér er „Gallagripur“ eftir
Guðmund:
Það orð fór af Albertínu,
sem átti heima í Skrínu,
að við slefburð og slark,
slagsmál og hark
hún lægi ekki á liði sínu.
Maðurinn með hattinn yrkir:
Yfir þessu þjóðin kvelst,
það er slæmt að vita,
að í fréttum er það helst;
aukning veirusmita.
Út af kvæði Davíðs frá Fagra-
skógi, Dalakofanum, orti Vil-
hjálmur Benediktsson Branda-
skarði:
Illt er að éta einn úr skel
og eiga fátt til vina
en sælt er að vera saddur vel
og syngja um fátæktina.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Garðurinn grænn og hamingjuegg